Tíminn - 09.06.1971, Blaðsíða 7

Tíminn - 09.06.1971, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 9. júní 1971 7 Útgefandi: FRAMSÓKNARFLOKKURINN Framkvæmdastjórl: Kristján Benediktsson Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (áb). Jón Helgason. indriói G Þorsteinsson og Tómas Karisson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason Rit- stjómarskrifstofur i Edduhúsinu. stmar 18300 — 18306 Skrif stoiur Bankastræti 7. — Afgreiðslusími 12323. Auglýsingaslmi' 19523. Aðrar skrifstofur simi 18300 Askriftargjald kr 195.00 á mánuði lnnanlands. 1 lausasölu kr 12,00 eint — Prentsm Edda hf. Hvað vill Framsóknar- flokkurinn? Reynsla undanfarins áratugs hefur sýnt það greini- lega, að ríkisstjómin hefur ekki verið þeim vanda vax- in að ráða við stjórn efnahagsmálanna. Því hefur verð- bólga vaxið hér tvöfalt örar en í nokkru nálægu landi, verkföll verið meiri en í nokkru öðru landi, kaupmáttur láglauna minnkað og landflótti margfaldazt. Framsóknarflokkurinn telur það annað meginmál kosninganna, jafnhliða landhelgismálinu, að breytt verði um stefnu 1 efnahagsmálum og ákveðið verði stefnt að því að draga úr hinum hraða vexti verðbólgunnar. Þetta vill flokkurinn m.a. gera á eftirfarandi hátt: Fylgt verði markvissri áætlun um framkvæmdir og uppbyggingu atvinnuveganna meS það fyrir augum að tryggja forgangsrétt þess, sem mest er aðkallandi. Þannig verði stefnt að því að tryggja stöðuga at- vinnu og jafnvægi í byggð landsins. Með þessu verði jafnframt dregið úr skriffinnsku, þar sem margir aðilar vinna nú að athugunum og skýrslugerð, sem ættu að heyra undir eina stofnun. Allt ríkiskerfið og bankakerfið verði tekið til vand- legrar athugunar með það fyrir augum að draga úr kostnaði og skriffinnsku, t.d. með sameiningu stofn- ana og sameiningu banka. Unnið verði að því að bæta rekstrargrundvöll et- vinnufyrirtækjanna, án skerðingar á hlut launafólks. Þetta er hægt að gera með lækkun vaxta, lengingu lána, útvegun fullnægjandi rekstrarfjár, afnámi og lækkun ýmissa álaga og niðurfellingum tolla á vélum og hráefnum til iðnaðar. Þá getur komið til mála að auka ýmsa styrki, þegar um sérstaka, tímabundna erf iðleika er að ræða. Áherzla verði lögð á hvers konar hagræðingu og aukna hagsýni í rekstri. Allt kapp verði lagt á að leysa vanda atvinnuveganna með öðr- um úrræðum en gengislækkun. Þá verði reynt að hjálpa fyrirtækjum til að eignast sem mest eigið fjármagn og því unnið gegn áformum stjórnarflokk- anna um að fella niður skattfrjálsa varasjóði atvinnu- fyrirtækja, en það var hindrað með naumindum á síðasta þingi. Unnið verði að bættum kjörum launafólks sem mest eftir öðrum leiðum en beinum kauphækkunum,. sem geta leitt til verðhækkana og aukinnar verð- bólgu. Þetta verði m.a. gert með aukningu húsnæð- islána, lengingu á húsnæðislánum og afnámi vrsitölu- kvaða á þeim. Þá verði persónufrádráttur aukinn við skattálagningu, og felldur niður söluskattur á brýn- ustu nauðsynjum. Elli- og örorkulífeyrir verði hækk- aður og þeim, sem engar aðrar tekjur hafa, tryggð hæfileg lágmarkslaun. Tekin verði upp námslaun, sem tryggi að æskufólk hafi jafna aðstöðu til mennt- unar. Tekna, til að mæta útgjöldum, sem af fram- angreindum ráðstöfunum geti leitt, verði m.a. aflað með því að skattleggja meira ýmsa miður þarfa eyðslu. Á þennan og annan hátt verði stefnt að því að jafna byrðarnar og láta þá greiða mest, er breið- ust hafa bökin. Framsóknarflokkurinn vill þannig stefna að því með margháttuðum, samhliða ráðstöfunum að draga úr verð- bólgunni og koma efnahagslífi á traustan grundvöll. Það er því stórfelldur munur á stefnu hans og stjórnar- flokkanna, sem hafa látið tilviljanir og augnabliks gróða- hyggju ráða röð framkvæmda og trúað á gengislækkun sem einhlýtt allsherjarúrræði. — Þ.Þ. TIMINN TILLMAN DURDIN, NEW YORK TIMES: Mao hefur látið útrýma gömlum hlutum, hugmyndum og venjum Hið nýja Kína er með allt öðrum háttum en hið gamla MENNINGARBYLTINGIN í Kína hófst árið 1966 og stend- ur enn, eins og kunnugt er. Eitt af markmiðunum frá upp- hafi var að útrýma „hinni fornu femu“, eða gömlum hlutum, gömlum hugmyndum, gömlum siðum og venjum. „Hin forna fema“ var þegar farin að láta á sjá á fyrstu ár- um kommúnistastjórnarinnar áður en menningarbyltingin hófst, en samherjar Maos í for- ustu flokksins reyndu að nýta byltingarölduna, sem reis 1966, til þess að koma hinu gamla endanlega fyrir kattarnef. Á umbrotaárunum 1966 til 1968 var ráðizt harkalega gegn flestu gömlu og reynt að ráða niðurlögum' þess, Má í því sam- bandi nefna gamla trúarsiði, gamla hjátrú, fornar hátíðir, fornar þjóðfélagsvenjur eins og sérstaka brúðkaups- og jarðar- fararsiði, og ennfremur fornar venjur í klæðaburði. Reynt var að tortíma gömlum minjum, bæði sýnilegum og áþreifan- legum, gamlar bækur voru brenndar til hátíðabrigða og gamlir listmunir mélaðir. RÁUÐIR varðliðar á ungum aldri réðust inn á heimili manna og rifu niður ölturu, sem táknuðu hefðbundna tignun for- feðranna í anda Konfúsíusar. Lokað var þeim fáu musterum, moskum og kirkjum, sem enn voru í notkun, og hafizt jafn- framt handa um veraldlega notkun þeirra. Nokkrum trúar- legum byggingum hafði verið haldið opnum til sýnis fyrir al- menning, svo sem hinum miklu musterum Búddatrúarmanna, Lama og Taoista í Peking, en þeim var nú lokað og styttur altari og annar búnaður fjar- lægður. „Bannaða“ borgarhlutanum í Peking var einnig lokað, en það er afgirt svæði, þar sem standa hallir, samkomu- og skemmtihús keisarans og hirð- ar hans. Frá þessum stað var Kína stjórnað fram til ársins 1911. Ég ferðaðist um austanverð strandhéruð Kína í þrjár vikur fyrir skömmu, og allt, sem ég sá, virtist eindregið benda til, að herferðin gegn „hinni fornu fernu“ hafi orðið mjög árang- ursrík. Ég kom á mörg heimili Kín- verja, en sá hvergi fjölskyldu- altari, minningartöflu um for- feður eða nein tákn hinna gömlu guða, sem almenningur í Kína tignaði áður fyrr. Borg- in Hong Kong ber að mörgu leyti vestrænan blæ, enda enn undir brezkri stjórn, en eigi að síður eru þessi fornu tákn al- geng á kínverskum heimilum í borginni. Ég varð aldrei var við nein- ar trúarlegar athafnir á ferða- lagi mínu um Kína, og fylgdar- menn mínir staðfestu, að þær væru ekki framar iðkaðar. Trú- arlegar byggingar hafa verið MAO formaður teknar til notkunar sera skólar, vörugeymslur eða hvildarheim- ili. Almenningi er enn synjað um aðgang að „bannaða“ borg- arhlutanum í Peking, en þar er að finna merkilegar minjar um foma byggingarlist og ýmsar aðrar listgreinar. Fornum must- erum og moskum er enn lokað bæði í Peking og annars stað- ar, en sagt er þó, að örfáum sé haldið opnum til þess að sýna sendinefndum Búddatrú- armanna og Múhameðstrúar- manna. í SÉRSTÖKUM verzlunum í Peking, Shanghai og Canton eru til sölu miður góð söfn fornra kínverskra listmuna, svo sem postulínsmuna, málverka, lakkmuna, skartgripa og fleira, en ekki mega aðrir kaupa en erlendir ferðamenn. Kínverjar eiga þess aldrei kost sjálfir að komast í náin kynni við þessa fornu listmuni. Fyrir menningarbyltinguna var allalgengt að sjá kínversk- ar konur, sem gengu í fornum búningum og notuðu fegrunar- lyf. Nú er forn tízka í klæða- burði kvenna gersamlega horf- in og konur ganga í sömu, ósé- legu bláu og gráu buxunum og jökkunum og karlmennirnir. Hvergi gat ég komið auga á varalit eða andlitsfarða. Konur eru eins búnar og karlmenn og ganga að allri vinnu við hlið þeirra, hvort heldur er erfiðis- vinna eða skrifstofuvinna, og fá sömu laun. Hin gamla, fjölmenna kín- verska fjölskylda virðist einnig horfin. Þröngar íbúðir og allar félagslegar aðstæðui virðast gera ráð fyrir fámennum fjöl- skyldum. hjónum og einu til þremur börnum. EINA forna hátíðin, sem enn er við lýði, er haldin á sama tíma og gamli áramótafagnað- urinn, sem miðaður var við tunglárið. Hann heitir að vísu ekki áramótafagnaður lengur, heldur vorfagnaður. Hátíðar- höldin eru ekki jafnlitbrigða- rík og áður tíðkaðist. Hátíðir eru að vísu haldnar, en það, sem þá fer fram, er af stjórn- málatoganum spunnið, pólitísk- ar sýningar, pólitískir fjölda- fundir og íþróttaatriði. Fornar bókmenntir eru engar á boðstólum, hvorki kínverskar né vestrænar. Bókabúðir eru troðfullar af verkum Mao Tse- tungs og þeim fáu tímaritum um stjórnmál, bókmenntir og læknisfræði og annað ámóta, sem gefið er út nú til dags. Ég athugaði bókasafn við Tsinghua-háskólann í Peking, og deildin, sem geymdi fornar, kínverskar bókmenntir, var þama óskert. Ég leit í fom- fræga skáldsögu, en þá kom í ljós, að hún hafði síðast verið fengin til lestrar í janúar 1967. NÚ ERU engar foraar óperur sýndar, engin hefðbundin tón- list leikin og fom leikrit em heldur ekki sýnd. Meðan á menningarbyltingunni stóð vom samin tfu ný leikrit, og þau em hvarvetna sýnd, ýmist í heilu lagi eða þættir úr þeim. Framkoma fólks er önnur en áður var og viðbrögð þess breytt. Brúðkaup og jarðarfar- ir fara fram með ákaflega óbrotnum hætti og engin opin- ber sýningaratriði era þeim tengd framar. Almenningur er hreinn og beinn, en ekki eins kurteis og áður var. Tíminn virðist skipta fólk miklu meira máli en áður var, og sama er að segja um or sök og afleiðingu, líkt og í hin- um vestrænu samfélögum. FLEST hið framandi, svo sem forn myndræn og hefð- bundin litauðgi, er horfið úr dag fari Kínverja, að minnsta kosti þar, sem ég kom við í ferð minni. I alþýðulýðveldinu Kína er- ekki framar að finna neina „austræna dulúð“, aðeins hvers dagslegt fólk, sem sinnir hvers- dagslegum störfum og kemur vestrænum manni ákaflega hversdagslega fyrir sjónir, iafn- vel þótt innan einveldisramma marxista sé. Fornir kínverskir málshættir heyrast af og til. en spakmæli Maos formanns eru að mestu búin að leysa þá af hólmi. — Fyrsti janúar er haldinn hátíð- legur sem nýársdagur, e.i " ar hátíðir, auk vorhátíðarinnar, eru 1. maí og 1. október, þjóð- hátíðardagurinn. Fram á sjónarsviðið er kor> in ný kynslóð. Fjölmargt af hinu gamla Kína er al14 of óaf- máanlegt ti] þess að unnt sé að ætlast til að þ ð hverf: í svip, en eigi að síður er orðið til nýtt Kína, með allt öðrum háttum en það gamla.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.