Tíminn - 20.06.1971, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
SUNNUDAGUR 20. júní 1971
---------------------------------------------------
Fulltrúaráðsfundur á mánudaginn
Fundur fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík verður
haldinn mánudaginn 21. júní, í Framsóknarhúsinu við Fríkirkju-
veg, og hefst hann kl. 20:30. Allir aðal- og varafulltrúar í fulltrúa-
ráðinu eiga að mæta. Sýnið skírteini við innganginn. — Stjórnin.
HABSPLAST I BULLUM
CONOLITE
Ameríska harðplastið CONOLITE
{ rúllum, þrjár breiddir, hvítt og viðarlitir.
Á sólbekki, borS o. fI., p. fl.
Samskeytalaus álíming, selt í metratali og í heil-
um rúllum. — Póstsendum.
MÁLNING- & JÁRNVÖRUR H.F.
Laugavegi 23 — Sími 11295 og 12876.
UTBOD
r,.ÍiX'ÁJs.:V±^áí:3.,ý.
Stjórn verkamannahústaða í Neskaúpslað ðfkát
hér með eftir tilboðum í að byggja 6 íbúðir í
blokk við Starmýri 17, Neskaupstað. Útboðs og
verldýsing verður afhent hjá formanni stjórnar-
innar, Gesti J. Ragnarssyni, Miðgarði 4, Neskaup-
stað, sími 324 og hjá Húsnæðismálastofnun ríkis-
ins, Laugavegi 77, Reykjavík, gegn 2000 króna
skilatryggingu,
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu bæjarstjórans
í Neskaupstað, laugardaginn 10. júlí n.k. kl. 17.
TilbDðum ber að skila til stjórnarformanns fyrir
þann tíma.
Neskaupstað, 18. júní 1971
Stjórn verkamannabústaSa í NeskaupstaS.
VEIÐIFELAGIÐ KOLKA
í SKAGAFIRÐI
ákvað á aðalfundi 18. júní 1971, að leita eftir
tilboðum um ræktun og leigu vatnasvæðis Kolku.
Tilboð sendist formanni félagsins, Haraldi Árna-
syni, Hólum í Hjaltadal, fyrir 28. þ.m.
Stjórnin.
BILABÆR
LátiS skrá bílinn í dag. OpiS til kl. 6.
Bíiasalan BÍLABÆR, HöfSatúni 10.
Símar 15175 og 15236.
Þegar þessi orð eru rituð, er
barnaskólum í Reykjavík ný-
lokið, og kennslustarfið og
prófin okkur kennurum þess
vegna í fersku minnk
Undanfarin liðug 20 ár hef-
ég haft það starf á vorin að
gefa einkunnir fyrir skrift við
barnapróf í öllum barnaskólum
Reykjavíkur ásamt öðrum próf-
dómara. Af þeim sökum er
mér vel kunnugt um árangur
skriftarkennslu barna i borg-
inni. Ég tel mig því hafa nokk-
ur skilyrði til að ræða lítillega
þennan þátt kennslunnar og
um skrift yfirleitt.
Er ástæða til að kenna skrift?
Þannig er spurt og er ekki
að furða, þar sem prent og vél-
ritun er svo mjög komin í stað
handskriftar áður. Vera má, að
ritvélar verði í framtíð enn
meira notaðar en nú. Þó hygg
ég langt í land, að fólk beri
þær í vösum sínum eða veskj-
. um, svo að þær séu janan til-
tækar, ef skrifa þarf kvittun,
reikning eða bréf o.s.frv. Eða
að hvert barn hafi sína ritvél
í skólanum og heima til að rita
námsverkefni sín. Og allir
þurfa þó að skrifa nafnið sitt,
eða undij^ .samninga. Ef þú lúð-.
.'stundugi .þlæsilegt). Véííritað
nafn er ekki tekið gilt á víxla
i eða undir samftinga. Sf þú bið-
ur bifreiðarstjóra að gefa þér
jiótu, þar sem taka skal ftam
hvert var ekið og með hvað,
mundi honum þykja þægilegra
að skrifa þetta í kvittanaheftið
sitt heldur en taka upp ritvél
og pikka á hnjám sér í bíln-
um. Hugsum okkur, að kennari
væri að lesa verkefni fyrir 30
nemendur, sem allir hömruðu
á rityélar sínar. Ætli hávaðinn
í vélunum trufluðu ekki helzt
til mikið?
Nei, skriftarkunnátta, og þá
um leið skriftarkennsla, er enn
nauðsynleg, þótt handskrlft
verði ekki notuð í jafn ríkum
mæli og áður.
Skrift var listgrein.
Ýnisir voru óskrifandi eða
lítt skrifandi áður fyrr, en
talað hefur verið um listaskrif-
ara, og eru til gamlar verzlun-
arbækur, sem vitna um þá, —
hreinustu listaverk. Við ættum
líka að muna eftir handritun-
um. Þar er víða um listaverk
að ræða. Síðar breyttist stafa-
gerðin í annað og einfaldara
form, sem þjónaði betur hrað-
ari vinnubrögðum.
Ber ekki fslendingum, þess-
ari gömlu og grónu skriftar-
þjóð, að -eggja nokkra rækt
við forna mennt og kenna og
iðka skrift?
Ekki er langt síðan það
tíðkaðisl nokkuð að fyrirtæki,
sem auglýstu eftir fólki til
starfa við skrjfstofustörf eða
þess háttar, kröfðust skrif-
legrar, eiginhandar umsóknar.
Rithönd umsækjanda skar þá
stundum .. um það, hvort hlut
aðeigandi fékk vinnuna.
Síðastliðinn vetur kom til
mín stúlka um tvítugt, sem
vinnur hjá fyrirtæki við ýmis
skriflég störf, og bað um til-
sögn við að laga skrift sína.
Rithönd hennar var reyndar
allgóð, en hún sagði að vinnu-
veitendurnir heimtuðu af sér
góða skrift. Þetta er virðingar-
vert af báðum aðilum.
Sem betur r9r eru enn marg-
ir, er meta góða skrift og
jafnvel krefjast hennar. Hinir
eru þó fleiri, sem kæra sig koll
ótta. Nafn sitt skrifa sumir
eins og einhver tákn eða
krass, svo þeir einir geta ráðið
í nafnið, sem eru kunnugir eða
hafa séð það oft. Stundum hef
ég fengið í hendur verzlunar-
nótur þar sem nafn vöru var
ólæsilegt. Þetta hvort tveggja
er vítavert. Það ber vott um
kæruleysi og skort á virðingu
fyrir verkinu og þeim, sem
eiga að lesa þetta krass. Menn
ættu að kvarta við hlutaðeig-
endur, þegar þeim er fengið
svona í hendur. Hvers virði er
, 4agJ)laí}ið, ef letrið er svo
slæmt,. gð það verður naumast
lesið? Mundum við ekki
kwta?
Hcfur skriftin batnað?
Yfirleitt er skrift við barna-
próf betri nú hér í Reykjavík
a.m.k. en fyrir 20 árum. Ástæð-
ur eru ýmsar, en einkum held
ég, að leiðandi starf Guðmund-
ar í. Guðjónssonar í skriftar-
kennslu við Kennaraskólann
hafi haft áhrif til bóta. Kenn-
araefnin hafa fengið betri
undirbúning. En árangur
skriftarkennslunnar í skólun-
um er misjafn. Fer það mest
eftir kcnnaranum. „Veldur
hver á heldur11. Einum tekst
vel að kenna skrift, öðrum
miður. Útkoman í þessu efni
getur þá líka orðið nokkuð
ólík hjá hverjum skóla frá ári
til árs, eftir þeim starfskröft-
um, sem þeir hafa á að skipa.
Kennsla í skrift er vanda-
samari en í ýmsum öðrum
greinum. Ekki má treysta um
of á forskriftarbækur. Þeim
verða að fylgja ákveðnar og
margendurteknar leiðbeiningar
kennarans. Hann verður og að
fylgja því fast eftir, að öll
skrift nemandar.a sé vönduð
svo sem unnt er. Komist nem-
andinn upp með óvandaða
skrift á stilum eða vinnubók-
um, telur han ~ig kannski að-
elns þurfa að vanda sig í skrift
artímunum svo nefndu. Þá
notar hann „span skrift. —
Þarna skortir kennarann oftast
tíma, aðstæður eða dug til að
fvlgja eftir. Stundum þarf að
taka nemendur ejfna og láta þá
gera upp, en veita þá góðar
leiðbeinin;,-r um hvað þurfi að
laga og hvernig. Þetta er ekk-
ert óeðlilegt heldur sjálfsagt,
alveg eins og þegar bömum er
hjálpað í lestri eða reikningi
einum eða fáum saman. Hér
er um höfuðatriði að ræða í
skriftarkennsli og viðhaldi
rithandarinnar.
Ekki skiptir miklu, hvort
barnið skrifar hina hefð-
bundnu, íslenzku stafagerð eða
t.d. formskrift, hvort það hall-
ar skriftinni til hægri eða lítið
eitt til vinstri eða letrið er
lóðrétt. En hægri halli er þó
eðlilegastur. Einhvers konar
prentletur þarf helzt öllum að
vera tiltækt, einkum vegna
ferðalaga erlendis o.fl. Kúlu-
pennar eru ekki heppileg tæki
við skriftaræfingar bama. Þeir
gera oft slitrótta drætti, skilja
eftir klessur og em óstöðugir
í rásinni. Með góðum sjálfblek
ungum (lindarpennum) vinnst
oftast betur. Kreppt tök og
stirðlegar hreyfingar valda oft
slæ.-iri skrift. Til að koma í
veg fyrir slíkt er gott að nota
sérstakar liðkunaræfingar öðru
hvom en einkurn fyrstu skóla-
árin.
Þó að ég telji skriftar-
kennsluna hér 1 Reykjavík
nokkuð hafa batnað hin síðari
ár, er hún víða alls ekki í
nógu góðu lagi. Einkunnin 5
er of algeng. Hún er miðuð
við skrift, sem að vísu er hægt
að lesa en er mjög ljót. Veit
ég vel, að ekki er hægt að
kenna öllum börnum að skrifa
vel. en yfirleitt á lágmarks-
krafa við b.rnapróf að vera
Iæsileg skrift.
Heyrt hef ég kennara segja,
að þeir teldu sig ekki hafa góð
tök á að kenna skrift. Mér hef-
ur bví dottið í hug, að e.t.v.
hefðu þeir gagn af stuttu nám-
skeiði í skrift og skriftar-
kennslu. Endurhæfing er orð.
sem menn bera sér mjög í
munn nú, og námskeið em
haldin í öllum mögulegum
greinum. Engat. hef ég þó
heyrt nefna námskeið í skrift.
Hvers veg .a ekki námskeið í
þeirri grein?
Ég hef dálítiö borið saman
skrift barna hér á landi og á
hinum Norðurlöndunum nema
Finnlandi. Sá samanburður er
að sumu leyti íslenzku börnun-
um hagstæður. Og þegar ég
leitaði að fyrirmyndum meðal
forskriftarbóka þar úti, fann
ég ekkert betra né fegurra en
okkar skóláskrift. Að sönnu er
stafagerð víða einfaldari þar,
og byrjunarkennslan er öllu
markvissari. En svo er beinni
skriftarkennshi mjög viða hætt
við lok 10 ára bekkja, og teikni
kennurum síðan falið eftirlit
Framhald á bls. 10.
KOSNINGASKEMMTUN FYRIR UNGT FOLK
Skemmtun fyrir ungt fólk, sem starfaði fyrir B-listann á kjördag, verS*
ur haldin i Glaumbæ, uppi, næstkomandi þriðjudag, 22. júní, og hefst hún
kl. 20,30. Miðar afhentir að Hringbraut 30, eftir kl. 14 á mánud. og þriðjud.