Tíminn - 15.07.1971, Síða 1

Tíminn - 15.07.1971, Síða 1
Þetta gerðist ígær • Brezkur hermaður var skotínn tíl bana í Belfast í N- frlandi aðfaranótt miðvikudags, og er þetta annar hermaðurinn, sem skotinn er til bana á nokkr nm dögum. Mjög róstursamt hefur verið í N-írlandi undan- farið. • Dómstóll í Svíþjóð dæmdi tvo Júgóslava í ævilangt fang- elsi fyrir morðið á júgóslavn- eska ambassadornum í Stokk- hólmi 7. apríl s. 1. Þrír aðrir voru dæmdir í 2—4 ára fang- elsi. • Jarðskjálftakippur, sem mældist 8,1 á Richter-kvarða, og 2ja metra há flóðbylgja, sem fylgdi í kjölfarið, hefur valdið verulegu tjóni á Kyrra- hafseyjunni Nýja Bretlandi. Óttazt er að margir hafi látið lffið á eyjunni og nálægum eyjum . 0 Hálf milljón starfsmanna á símstöðvum í Bandaríkjunum fór í verkfall í dag. Verulegur hluti símakerfis landsins lam- aðist. Það voru starfsmenn Bell Telephone fyrirtækisins sem fóru í verkfall, og mun það standa a.m.k. 14 daga. Sagt er að einungis 1% kauphækkun beri á milli deiluaðila. • Tilkynnt hefur verið, að við ræður fulltrúa austur og vest- ur Berlínar hefjist að nýju í Austur-Berlín 19. júlí. 0 Hanoi-stjóm segir, að fyrri helming þessa árs hafi banda- rískar flugvélar farið í 1600 árásarferðir inn yfir Norður- Vietnam á hverjum mánuði. 0 Melvin Laird, hermálaráð- herra USA, sagði á blaðamanna fundi í Seoul, að Bandaríkja- menn myndu væntanlega halda áfram að fækka verulega í her liði sínu í Suður-Kóreu. Þegar hefur verið fækkað úr 63 þús. I 43 þúsund hermenn. 0 Hafin er stórsókn gegn itölsku Mafíunni. Lögreglan handtók 31 mann í „rassíum11 i Palermo, Napoli, Rómaborg og Mílanó. Enginn hinna hand teknu er þó úr æðstu stjórn Mafíunnar. 0 Skoðanakönnun, sem Finan- cial Times birti, sýnir, að 67% aðspurðra voru andvígir aðild að EBE og aðeins 22 með að- ild. 76% töldu hins vegar senni legt, að Bretland gengi í banda lagið. 0 Upplýst er, að Joseph J. Sisco, aðstoðarutanrikisráðh. USA, muni í næstu viku halda til ísrael til viðræðna við ráða menn þar, um möguleika á að ná einhvers konar samkomu- lagi í deilu ísraels og Araba. Hann mun dvelja þar í 4—5 daga. 0 Meira en 1000 manns hafa verið handteknir síðan mis- Framhald á bls. 22 Monique Liebert Claudine Liebert Daniei Berland frönsku ungmennin, sem myrt voru í svefni á tjaldsvæSi í norðurhluta Englands á síðustu mánudagsnótt. Morðingi ungmennanna fannst sjálfur látinn — talið að hann hafi framið sjálfsmorð skömmu eftir morðin NTB-Chester, Engiand!, miSvikudag. Morðingi frönsku ungmennanna þriggja, sem fundust myrt í svefnpokum sínum í tjaldi á tjaldsvæði í Dalmare- skógi í norðurhluta Englands, er nú fundinn. Hann er látinn. Hann framdi sjálfsmorð og skildi eftir skriflega játningu. Morðinginn reyndist vera 25 ára gamall maður, Michael Bass- ett að nafni. Hann er frá London að ætt og uppruna ,en hefur síð- ari ár dvalið í friðsælu litlu þorpi í miðhluta Englands, Barlaston. Michael var látinn þegar lög- reglan fann hann .Hann sat í bif- reið, og var slanga leidd frá út- blástursröri hennar og inn í far- þegarýmið. Maðurinn lézt af kol- sýringseitrun. Bifreiðin, sem Basett fannst í, var á vegi skammt frá Barlaston, sem er aðeins 72 km. fjarlægð frá tjaldstæðinu við Chester, þar sem ungmennin frönsku voru myrt aðfaranótt mánudagsins. Skömmu eftir að Bassett fannst, og játning hans þar með, var leitinni að morðingjanum hætt og tilkynnt ,að málið væri leyst. — Leitin að morðingjanum er á enda, og við erum fullvissir um að enginn annar en Michael er við- riðinn þennan glæp, sagði Arthur Benfield, lögreglustjóri, sem stjórnað hefur leitinni. Utanríkisráðherrar EBE Ræöa um EBE og EFTA-ríki NTB-Brussel, miðvikudag. Utanríkisráðherrar Efnahags bandalagsríkjanna sex koma saman til fundar 26. júlí nsest- komandi til þess að ræða af- stöðu Efnahagsbandalags Ev- rópu í framtíðinni til þeirra ríkja innan EFTA, sem ekki vilja aðild að bandalaginu en telja hins vegar nauðsynlegt að ná sérstökum samningnm við bandalagið. Þessi ríki eru sex talsins. Fjögur þeirra, Sví þjóð, Sviss, Finnland og Austur ríki, tclja sig ckki geta gengið inn í bandalagið vegna hlut- leysisstefnu sinnar, en tvö þeirra, fsland og Portúgal, tclja sig ekki geta gengið inn í EBE af öðrum ástæðum. Talið er í Brussel, þar sem EBE hefur aðalstöðvar sínar, að framvinda þessa máls verði í meginatriðum sem hér segir: f september verður um frek ari viðræður ráðherra EBE- rikjanna að ræða. f október verður afstaða EBE í samningaviðræðunum endanlega ákveðin. Því næst munu eiginlegar viðræður við rikin sex hefj- Framhald á bls. .22 Friðunarstarfsemi Bandarík 150 ÞÚSUND MILLJÓNIR HAFA H0RFID EJ-Reykjavík, miðvikudag. Hussein, konungur Jórdaoíu. Bandarískir ríkisendurskoðendur, sem skipaðir eru af bandaríska þinginu, hafa skýrt frá því, a8 þeim sé ómögulegt að komast að því, hvað varð um ca. 150 þús. milljónir króna, af þeim 175 þúsund milljónum, sem varið var til svonefndrar friðunar- og þróunaráætlunar í Suður-Vietnam frá júlí-lokum 1967 til júlí-loka 1970. Frá þessu var skýrt í bandaríska stórblaðinu New York Times, en skýrsla ríkisendurskoðendanna er leynileg. Jórdanía: Barizt af hörku viB skæruttía NTB—Damaskus—Jerash, miðvikudag. Harðir bardagar hafa geisað í dag milli hcrsveita Jórdaníustjómar og skæruliða Palestinuaraba nálægt ferðamannabænum Jarash í Jórdan- íu. f opinberri tilkynningu, sem gefin var út í dag, segir, að skærulið- arnir hafi ráðizt gegn bændum í héraðinu kringum Jerash í því skyni að grafa undan efnahag landsins. Skæruliðarnir voru hraktir frá sjálf- um bænum í dag og einnig frá mörgum öðrum stöðum, sem þeir höfðu áður haft á valdi sínu. Meðal þeirra eru hinar víðáttumiklu og fjöl- mennu flóttamannabúðir „Gaza“, í átta kílómetra fjarlægð frá Jerash, og hið hernaðarlcga mikilvæga A1 Agra f jaU. Endurskoðendurnir hafa sent sérstaka skýrslu til Melvin Leard, varnarmálaráðh. Banda- ríkjanna, og til nokkurra þing- nefnda Bandaríkjaþings, um þetta mál. Skýrslan, sem er 160 blaðsíður, fjallar um þátt- töku Bandaríkjanna í friðunar og þróunaráætlunum í Suður- Vietnam áðurnefnt tímabil. í þessari skýrslu kemur fram, að Bandaríkjamenn veittu samtals 2,1 milljörðum dala eða 175 þúsund milljónir króna til þessarar áætlunar í Vietnam. Hins vegar finnst hvergi neitt það, sem getur gefiö til kynna, hvað orðið hef ur af 1,7 milljónum dala, eða um 150 þús. milljónum króna. Endurskoðendurnir hafa gögn um hvernig 339,2 millj. dala af þessu fé var eytt, en af því hafði 65,5 miilj. dala verið eytt í annað heldur en til var ætlazt, og var endurskoð endum ekki ljóst til hvers það fjármagn var notað. a 0 Sérstök bandarísk stofnun bar ábyrgð á friðunaráætlun- * inni svonefndu, og nefndist ■ hún CORDS. Fjármagn fékk 0 þessi stofnun einkum frá varn _ armálaráðuneytinu, þótt banda ríska leyniþjónustan, CIA, og AID-þróunarstofnunin hafi ■ einnig veitt CORDS nokkurt fé ■ að sögn New York Times. 0 Enc’.urskoðendurnir draga _ engar niðurstööur af þeirri staðreynd. að CORDS hafi ® fengið 21 inilljarð dala en ■ Framhald á bls. 22 Síðdegis var ekki vitað, hve margir höfðu fallið í þessum bar- dögum, en í gær hermdu fréttir skæruliöa, að mörg hundruð hafi fallið í bardögum um flóttamanna búðirnar einar. Talsmaður Jórdaníustjórnar vís aði í dag á bug þeirri staðhæf- ingu skæ-aliða, að bardagarnir væru háðir af stjórnarhemum í þeim tilgangi að útrýma hersveit um Palestínu-Araba. Sagði hann, að skæruliðarnir hefðu skotið á bændur úr vélbyssum, kastað á þá handsprengjum o.s.frv. Stjórn Framhald á bls. 22 /

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.