Tíminn - 15.07.1971, Side 7
nnHHTUDAGUR 15. m 1971
TÍMINN
19
fS þá fil úrlansnar 10 spurn-
ingar um dráttarvélina og akst-
nr hennar. Síðan hefst sjálf
aksturskeppnin og eru kepp-
endur látnir aka í gegnum mjó
hliB, fara í krákustíga og fleiri
þrautir eru lagðar fyrir. Dóm-
arar gefa svo stig fyrir frammi
stöðuna og ræður tíminn, er
það tekin: keppanda að fara í
gegnum brautina, nokkru, en
mest gildir samt öruggur akst-
ur og fá mistök.
— Hverju þakkarðu þessa
velgengni þína að sigra þris-
var sinnum í röð á Landsmót
um?
— Það er líklega að þakka
ágætri æfingu, ég hef alltaf
æft vel fyrir Landsmótin. Auk
þess hef ég svo alltaf ekið
traktor af og til milli mót-
anna. Svo get ég nefnt það,
að föðurbróðir minn, Stefán
Kristjánsson, sem dreif mig
í keppnina í fyrstu, hafði unn-
ið í dráttarvélaakstri á Lands-
mótum fram að því, svo að ég
reyni alltaf að gera mitt bezta
til að halda titlinum í ætt-
inni.
Stefán Hallgrímsson UÍA
hlaut flest stig karla í frjáls-
þróttakeppninni á Landsmót-
inu. Stefán varð annar í þrem-
ur greinum: langstökki, há-
stökki og 400 m hlaupi, og
Stefán Hallgrínrsson með verðlaunabikarinn fyrir flest stig i karlagreinum
Crjálsra íþrót+a.
Edda Lúövílcsdóttir meS gullið fyrir 400 m, silfrið fyrir 100 m og bronsiS
fyrir hástökk.
Sigmundur Hermundssóo
munaði mjóu á honum og sig-
urvegurunum í öllum þessum
greinum. Stefán er Norðfirð-
ingur og hefur stundað nám
við Kennaraskólann undanfarna
tvo vetur.
— Hvernig er aðstaða til æf-
inga frjálsra íþrótta fyrir aust
an?
— Það má segja, að hún sé
engin, nema á Eiðum. Þetta
aðstöðuleysi hefur auðvitað orð
ið til þess, að áhugi á frjáls-
um íþróttum hefur verið hverf-
andi lítill á Austurlandi. A
síldarárunum höfðu menn líka
um annað að hugsa en íþrótt-
ir. fþróttaáhuginn er á upp-
leið fyrir austan, einnig í frjáls
untv íþróttum, það sýnir bezt
vaxandi fjöldi þátttakenda í
Austurlandsmótinu.
— Ertu ánægður með árang
ur þinn í þessu móti?
— Miðað við aðstæður er ég
ánægður, sérstaklega kom mér
á óvart, hvað ég varð framar-
lega í 400 m hlaupinu.
— Hvenær byrjaðir þú að
æfa frjálsar íþróttir?
— Eiginlega byrjaði ég fyr-
ir alvöru eftir síðasta Lands-
mót á Eiðum, þá 20 ára gam-
alL Ég tók svo þátt í Ungl-
ingameistaramóti íslands sama
sumar og sigraði í þrístökki.
Síð|n hef ég æft nokkuð reglu
aí sew, jic^aijáLCÍriac ffóta®
' lprotta með - fimmtarþraut ög
tugþraut í huga.
Edda Lúðvíksdóttir UMSS
stóð sig bezt heimamanna á
Landsmótinu. Hún sigraði í
400 m hlaupi, varð önnur í 100
m hlaupi o^ þriðja I hástökki.
Loks hljóp hún í sveit UMSS,
er varð fimmta í 4x100 m
boðhlaupi. Edda stundaði nám
í 3. bekk Gagnfræðaskólaps á
Sauðárkróki og ætlar í 4. ‘bekk
næsta vetur.
— Hvemig Bzt þér á þetta
Landsmót?
— Mér hefur þótt mjög gam-
an á mótinu og ágætt að keppa
við þessar aðstæður, þótt braut
imar mættu vera betri. Mér
gekk vel fyrri dag mótsins, en
í dag hefur mér ekki gengið
eins vel. (Edda var óheppin í
hástökkskeppninni).
— Hvenær hófst þú keppni?
— Fyrsta keppni, sem ég tók
þátt í, var þríþraut FRÍ og
Æskunnar, þá 11 ára gömul.
Ég hef síðan æft nokkuð reglu
lega, aðallega hlaup. Ég hef
þó aldrei hlaupið 400 m fyrr
en nú, svo að ég hlýt að vera
ánægð með árangurinn.
Sigmundur Hermundsson
UMSB sigraði í spjótkasti á
Landsmótinu. Sigmundur keppti
áður fyrir ÍR, en er nú fluttur
r,'';upp í Borgarfjörð, þar sem
hann starfar sem vélstjóri við
Ándakílsárvirkjun.
— Hvernig finnst þér þetta
Landsmót hafa farið fram?
— Mér hefur fundizt dvölin
hér á Sauðarkróki dásamleg í
alla staði. fþróttaaðstaðan hér
er stórkostleg og hlýtur hún
að verða mikil lyftistöng fyrir
íþróttirnar í bænum.
— Nú ert þú þrítugur. Ætl
arðu að halda áfram að æfa
og keppa í frjálsíþróttum?
— Meðan ég hef áhuga og
gaman að íþróttum, held ég
æfingunum áfram. Ég er ný-
byrjaður að æfa eftir nokk-
urra ára hlé og held því von-
andi áfram næstu árin.
í handknattleik kvenna var
keppni geysihörð, einkum í úr-
slitaleiknum, er HSÞ og UMFN
(Umf. Njarðvíkur) leiddu sam
an hesta sína. Lengi vel höfðu
Njarðvíkurstúlkurnar yfir í
leiknum, en undir lokin kom-
ust þingéysku stúlkumar yfir
og sigruðu.
Sú stúlka úr liði HSÞ, er
vakti ón efa mesta athygli áhorf
enda var fyrirliðinn, Björg
Jónsdóttir, enda reyndu and
stæðingarnir að taka hana úr
umferð en án árangurs. Björg
er 18 ára gömul og stundaði
nám í 1. bekk Kennaraskólans
í vetur.
— Hvenær obytjaðir þú að
æfa handbolta?
— Það em líklega 4—5 ár
siðan ég byrjaði að æfa. Ég
lék fyrst með 2. fl. Völsunga
í 3 ár, en hef leikið með meist
araflokki undanfarin 2 ár.
— Lið HSÞ er eingöngu skip
að stúlkum úr Völsungum. Nú
virtust þið illa samæfðar, a.
m.k. í fyrsta leiknum á móti
UÍ A. Hver er ástæðan?
— Hún er sú, að við höfum
ekki fengið neina æfingaleiki
í vor og því ekkert spilað sam-
an. Við vorum rétt famar að
þekkja inn á hver aðra og ná
upp samspiU síðast í seinni
leiknum.
— Hvemig finnst þér svo
aðstaðan hér á Sauðárkróki?
— Hún er ágæt og Skagfirð-
ingum til sóma. Handknattleiks-
völlurinn er góður, aun.k. af
útivelU að vera. — E. T.
1
Sólun
SÓLUM HJÓLBARÐA Á FÓLKSBÍLA,
JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ
DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM.
Ábyrgð tekin d sólningunni.
Kaupum notaða sólningarhæfa nylon-hjólbqrða;
önnumst allar .viðgerðir hjólbarðd með
fullkomnum tækjum.
GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík.