Fréttablaðið - 20.10.2003, Page 12

Fréttablaðið - 20.10.2003, Page 12
12 20. október 2003 MÁNUDAGUR ■ Lögreglufréttir HEIMKOMA Suður-kóreskur hermaður kyssir dóttur sína við heimkomu til Seoul, en hann var í hópi 350 suður-kóreskra hermanna sem verið hafa í Írak síðastliðna sex mánuði. Kaupfélag Árnesinga þinglýsti ekki leigusamningi: Fær ekkert greitt fyrir rekstur Hótel Selfoss VIÐSKIPTI Kaupfélag Árnesinga (KÁ) getur ekki komið rekstri Hótels Selfoss í verð þar sem leigusamningur um húsnæði hót- elsins ógildist við sölu hússins. Þessu hefði kaupfélagið komist hjá með því að þinglýsa leigu- samningi áður en veðkröfum lánadrottna var þinglýst á húsið. Eignarhaldsfélagið Brú, sem á bygginguna sem hýsir Hótel Sel- foss, er gjaldþrota og verið er að selja húsið upp í kröfur lánar- drottna. Nýir eigendur verða ekki bundnir af leigusamningi við rekstraraðila Hótels Selfoss. KÁ sem lagt hefur í kostnaði við að koma hótelinu af stað, fær ekkert fyrir viðskiptavild sína. Húsnæði Brúar verður vænt- anlega selt á næstunni fyrir um fjórðung af skuldum eignar- haldsfélagsins. Sveitarfélagið Árborg lætur menningarsal húss- ins upp í áhvílandi veðskuldir, án allra kvaða um uppbyggingu fyr- ir menningarstarfsemi. KÁ fær ekkert fyrir Hótel Selfoss en tap- ar líklega um hálfum milljarði í hlutafé, lánsfé til Brúar, fjárfest- ingu í hótelrekstrinum og vegna ábyrgðarskuldbindinga fyrir Brú. ■ MEÐFERÐ „Dóttir mín er búinn að fara á alla staði sem til eru fyrir fíkniefnaneytendur og drykkju- sjúklinga. Hún er meistari í því að strjúka og kerfið vill hana ekki lengur,“ segir Sveinbjörg Karls- dóttir, móðir tuttugu og tveggja ára stúlku sem er haldin er geð- veilu auk þess að vera í mikilli vímuefnaneyslu. Hún segist vera ráðalaus eftir margra ára baráttu við dótturina og kerfið. „Það bráðvantar langtíma með- ferðarheimili fyrir fíkniefnaneyt- endur þar sem fólk er undirbúið fyrir að takast aftur á við lífið.“ Brösul skólaganga „Vandræðin með dóttur mína byrjuðu strax á barnaheimili þeg- ar hún var rétt rúmlega ársgömul. Hún var svo vond við hina krakk- ana að ekki var hægt að hafa hana þar,“ segir Sveinbjörg. Hún segir skólagöngu dóttur sinnar hafa byrjað illa. Hún var fyrst rekin heim fyrir að rífa kjaft sex ára gömul og hegðun hennar versnaði stöðugt eftir því sem hún varð eldri. Hún hafði enga eirð í sér og lærði ekki. Sveinbjörg segir dóttur sína örugglega hafa verið ofvirka þótt það hafi aldrei verið athugað. „Í þá daga var ekki hlust- að á áhyggjur foreldra, en sem bet- ur fer er farið að gera það núna. Ég sá hana í fyrsta skipti út úr drukkna ellefu ára gamla. Samt hefur það örugglega ekki verið hennar fyrsta skipti því hún hefur væntanlega leynt því fyrir mér eins og börn og unglingar gera gjarnan gagnvart foreldrum.“ Fyrsta meðferðin var fermingarárið Sveinbjörg segir dóttur sína hafa átt að fara til útlanda með föður sínum árið sem hún fermd- ist. Skömmu fyrir ferðina stakk hún af og þegar hún fannst var hún út úr rugluð af vímuefnum. „Vegna þessa fékk hún ekki leyfi til að fara út með föður sínum heldur var send á Tinda í sína fyrstu meðferð. Þaðan strauk hún skömmu eftir komuna og gerði það nánast jafn harðan og hún var færð þangað aftur. Tindum var síðan lokað áður en hún gat klárað meðferðina.“ Í staðinn var henni komið fyrir uppi í Efstasundi, sem var heimili fyrir vandræðaung- linga, en því var einnig lokað. Á þessum tíma bjó Sveinbjörg úti á landi og fékk hún dótturina senda til sín. Hún segir sambýli þeirra mæðgna ekki hafa gengið vel. Hún fékk barnaverndarnefnd í lið með sér sem leiddi til þess að dóttirin var vistuð inni á barna- og unglingageðdeild Landspítalans. „Eftir aðeins viku var hún strokin. Hún fannst þó fljótlega og var sett aftur inn en vistin entist ekki lengi þar sem henni var nánast hent út með þeim skilaboðum að hún væri ekki þunglynd og þar með fékk ég hana í hausinn aftur.“ Gjöreyðilögðu stolinn strokubíl Sveinbjörg segir að í tíunda bekk hafi dóttir hennar farið á Bakkaflöt í Skagafirði og í tví- gang strokið þaðan á stolnum bíl, ásamt öðrum stelpum. Í annað skiptið gjöreyðilögðu þær bílinn og ekkert spurðist til þeirra í sól- arhring. „Loksins tókst þó að hafa upp á þeim og dóttir mín fór aftur á Bakkaflöt. Hún kláraði tíunda bekk þar og kom heim til mín að því loknu.“ Sveinbjörg segir að hún hafi nánast setið á stelpunni þar til að hún varð sextán ára og fékk sjálfræði. Þá fór hún beint til Reykjavíkur og á götuna. „Síðan þá hef ég verið í slagsmálum við kerfið. Ég þurfti að svipta hana nokkrum sinnum sjálfræði tíma- bundið, til að ná henni úr umferð áður en hún myndi skaða sig al- varlega. Þegar hún var sautján ára tókst að fá langvarandi svipt- ingu.“ Framdi vopnað rán Eftir sjálfræðissviptinguna fór hún á Dyngjuna sem er áfanga- heimili fyrir fíkniefnaneytendur. „Þar dópaði hún sig út úr heimin- um og fór aftur á götuna. Á þeim tíma framdi hún vopnað rán í verslun á Langholtsveginum þar sem hún ógnaði tveimur eldri kon- um. Hún var handtekin og send heim eftir yfirheyrslur og þess Móðir segir sögu 22 ára dóttur sinnar sem reynt hefur öll úrræði sem til eru fyrir fíkniefnaneytendur og drykkjusjúklinga á Íslandi. Fréttaviðtal HJÖRDÍS SIGURJÓNSDÓTTIR ■ ræðir við móður ungrar stúlku sem haldin er geðveilu. Kallar ráðþrota eftir Ráðist inn í sjónvarpssal: Átök í beinni PARÍS, AP Nokkrir tugir starfs- manna í skemmtanaiðnaðinum réðust inn í sjónvarpssal þegar bein útsending á vinsælum frönskum sjónvarpsþætti stóð yfir á laugardagskvöld. Mótmælendurnir höfðu með sér spjöld þar sem áhorfendur voru hvattir til þess að slökkva á sjónvarpstækjum sínum, en í loft- inu var raunveruleikasjónvarps- þátturinn „Stjörnuskóli“. Útsend- ingu á þættinum var hætt í tvo tíma meðan óeirðirnar stóðu yfir. Tveir liggja alvarlega slasaðir eftir átök við gæslumenn og lög- reglu, en tugir lögregluþjóna voru kallaðir út. Þrír mótmælendur voru handteknir. ■ Beinverndardagur: Lífsgæði og beinþynning BEINVERND Alþjóðlegi beinvernd- ardagurinn er í dag og að þessu sinni er yfirskriftin lífsgæði og beinþynning. Verður sjónum beint að því hvernig dregið getur úr lífsgæðum í kjölfar beinþynning- ar, vegna skertrar hreyfigetu en einnig sálrænna og félagslegra áhrifa. Samtökin Beinvernd standa fyrir morgunverðarfundi í Iðnó. Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrver- andi heilbrigðisráðherra og verndari samtakanna, verður á fundinum ásamt öllum þingkon- um landsins. ■ HÓTEL SELFOSS Kaupfélag Árnesinga getur ekki selt við- skiptavild Hótels Selfoss sem það hefur rekið í húsi Brúar ehf. DATT AF MÓTORKROSSHJÓLI Maður stakkst fram fyrir sig í einu stökki á mótorkrossbraut rétt fyrir utan Selfoss í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans í Foss- vogi. Fyrstu fréttir voru að hann væri ekki alvarlega slasaður.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.