Fréttablaðið - 20.10.2003, Síða 17
17MÁNUDAGUR 20. október 2003
TÓNLIST Jakob Ingi Jakobsson er
fasteignasali sem er að læra að
syngja. Hann var ekki sáttur við
að ekki fengist á markaði geisla-
diskur með undirspili við ís-
lensk einsöngslög og tók sig því
til og gaf út diska sjálfur.
„Ég hóf söngnám fyrir tveim-
ur árum og varð þess fljótt
áskynja að mig vantaði geisla-
disk með undirspili við íslensk
lög og að hann fékkst hvergi. Ég
leitaði víða í verslunum og
verslunareigendur sögðu mér
að mikið væri spurt um þetta.
Þess vegna ákvað ég að hrinda
þessu sjálfur í framkvæmd með
aðstoð góðra manna,“ segir Jak-
ob.
Hann fékk Snæbjörgu Snæ-
bjarnardóttur, sópran og söng-
kennara, til að stjórna upptök-
um og velja með honum lögin og
píanistann og skólastjórann Ag-
nesi Löve til að leika þau inn á
diskana. „Diskarnir eru tveir,
annar fyrir háar raddir eins og
tenór og sópran, hinn er leikinn
fyrir lágar raddir eins og bassa,
baríton, mezzo og allt þannig að
allir fái undirleik við sitt hæfi.
Diskarnir henta öllu söngáhuga-
fólki,“ segir Jakob og bætir við
að þegar hafi þeir fengið mjög
góðar viðtökur. „Ég gef þetta út
alfarið á eigin reikning og ætl-
ast alls ekki til að hagnast á út-
gáfunni. Ég verð glaður ef ég
tapa ekki á þessu því í fyrsta
sinn á Íslandi eru til sölu diskar
með píanóundirleik við nokkur
fegurstu einsöngslaga okkar Ís-
lendinga. Diskarnir eru spilaðir
inn nákvæmlega eins og lögin
eru skrifuð og henta því sérlega
vel til söngnáms, bæði til æf-
inga heima fyrir eða undirleiks í
söngtímum“
Jakob bendir á að það hafi
staðið söngáhugafólki fyrir
þrifum að geta ekki nálgast
undirleik við æfingar. Það sé
tvennt ólíkt að æfa með
undirleik og án hans. „Þessi
diskur ætti að ganga vel í
skólum og alls staðar þar sem
fer fram tónlistarkennsla,“
segir hann.
Diskarnir fást hjá fasteigna-
sölunni Eignakaup í Reykjavík
en einnig er hægt að panta disk
við hæfi í netpósti: jak-
ob@eignakaup.is eða
jakob@hn.is ■
Fasteignasali
í útgáfu
Íbúðirnar sem við erum að leigjaút eru ekkert slor heldur fyrsta
flokks,“ segir Bergþór Jónsson,
framkvæmdastjóri Átthaga.
Fyrirtækið er meðal þeirra
fyrstu á markaði sem sérhæfir sig
í þeirri nýjung að byggja og leiga
út íbúðir með öllum þægindum.
Fyrstu íbúðirnar voru teknar í
notkun í október og segir Bergþór
það hafi gengið mjög vel. „Við-
skiptavinir okkar eru úr öllum
stéttum þjóðfélagsins enda er það
stefna okkar að gera ekki sér-
samninga við nein samtök. Íbúð-
irnar eru útbúnar öllum helstu
þægindum, eins og uppþvottavél,
örbylgjuofni, ísskáp með góðum
frysti, þvottavél og þurrkara auk
þess sem uppsettar gardínur
fylgja. Menn þurfa ekki annað en
labba inn með kaffivélina og
steikina,“ segir Bergþór en játar
að menn verði að skilja hundana
sína eftir því ekki sé leyfilegt að
vera með hunda og ketti í íbúðun-
um. „Það kemur nú eingöngu til
vegna þess að við erum ekki með
sérinngang og við verðum að taka
tillit til allra íbúa en ekki sérhags-
muna fárra. Það getur þó allt eins
verið að ef við byggjum íbúðir
með sérinngangi að við gefum
fólki kost á að halda dýr. Það horf-
ir allt öðruvísi við en það hefur
talsvert verið spurt um þetta,“
segir Bergþór.
Íbúðirnar kosta rúmar 1000
krónur fermetrinn og er allt inni-
falið, eins og viðhald og öll þjón-
usta.
Fleiri fyrirtæki eru á markaði
sem sjá um að leigja íbúðir og eru
flestar íbúðirnar nýjar með öllum
þægindum. „Íbúðirnar eru betri
en nokkru sinni hefur tíðkast á ís-
lenskum leigumarkaði,“ segir
Bergþór og bætir við að tilkoma
þeirra inn á þennan markað eigi
án efa eftir að hafa það í för með
sér að kröfurnar verði meiri. „Það
verður ekki lengur hægt að leigja
hvað sem er á hvaða verði sem er.
Þeir sem ætla sér að gera það í
framtíðinni verða að laga sig að
breyttum tímum,“ segir Bergþór
og bætir við að Íslendingar eigi
eftir að átta sig á hagræðinu af
því að leigja áhyggjulaust lúxus-
íbúðir. Menn reikni ekki alltaf
dæmið til fulls þegar verið er að
kaupa íbúð. ■
Tímamót
BERGÞÓR JÓNSSON
■ Átthagar er fyrirtæki sem sérhæfir sig
á að byggja og reka leiguíbúðir. Íbúðirnar
eru mjög úr garði gerðar og þeim fylgja
öll heimilistæki.
Bara að ganga inn með kaffivélina og steikina
BERGÞÓR JÓNSSON
Hann er framkvæmdastjóri Átthaga sem
byggir íbúðir gagngert til að leigja á al-
mennum markaði. Hann er ekki í vafa um
að tilkoma þeirra inn á markaðinn eigi eft-
ir að hafa þau áhrif að betri íbúðir bjóðist
til leigu.
ÍBÚÐIRNAR
Það fylgir allt með lúxusíbúðum Átthaga
en íbúðirnar eru leiguíbúðir.
JAKOB JAKOBSSON
Hann fékk fagfólk til að vinna fyrir sig verk-
ið og afraksturinn eru tveir geisladiskar.