Fréttablaðið - 15.12.2003, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
Tónlist 38
Leikhús 38
Myndlist 38
Íþróttir 32
Sjónvarp 40
MÁNUDAGUR
MEISTARINN OG MARGARÍTA Í
kvöld mun Ingibjörg Haraldsdóttir fjalla
bæði um bókina og höfund hennar, Mik-
haíl Búlgakov, á Súfistanum við Lauga-
veg.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
HLÝTT OG BLAUTT Það hlýnar eftir
því sem líður á daginn. Þetta eru hlýindi
sem vara munu eitthvað fram í vikuna. Það
er ansi dimmt þessa dagana og skyggni lé-
legt. Flas gerir engan flýti. Sjá síðu 6
jólabað ● jólakort
Hefur oft fengið
skraut í skóinn
jólin koma
Katrín Svava Másdóttir:
▲
SÍÐUR 22-27
15. desember 2003 – 313. tölublað – 3. árgangur
gunni helga og fleiri taka við
Áramótaskaupið:
▲
SÍÐA 42
Nýir handrits-
höfundar
● nýjung frá michelin
Draumabíllinn er
klikkaður Benz
bílar o.fl.
Sigga Beinteins:
▲
SÍÐA 28
TILFÆRSLA FJÁR Sigurður Guð-
mundsson
landlæknir seg-
ist ekki sjá að
verið sé að
spara fé al-
mennings með
sparnaðartillög-
um Landspítal-
ans. Einungis
sé verið að flytja þjónustu af einum stað á
annan. Sjá síðu 2
KÆRIR LÍKAMSLEIT Móðir 17 ára
drengs leggur í dag fram kæru til lögreglu-
yfirvalda vegna meintrar óheimillar líkams-
leitar á syni sínum þar sem hann var látinn
berhátta þegar hann fór á Litla-Hraun til að
heimsækja ættingja sinn. Sjá síðu 2
ÖRYRKJAR Í BEITNINGARSKÚR-
UM Formaður Útvegsbændafélags Vest-
mannaeyja segir að umframafli smábáta
verði til að fjölga öryrkjum og gamalmenn-
um í beitningarskúrum. Vestmannaeyingar
vilja að þingmenn Suðurkjördæmis hafni
línuívilnunarfrumvarpinu. Sjá síðu 8
AUGLÝST EFTIR NASISTUM Simon
Wiesenthal-stofnunin reynir enn að hafa
uppi á stríðsglæpamönnum nasista. Hún
auglýsir nú eftir þeim í von um að koma
þeim fyrir rétt. Sjá síðu 2
STJÓRNMÁL Þeir þingmenn og ráð-
herrar sem hafa látið af störfum á
Alþingi ráða því hvort þeir taka eft-
irlaun samkvæmt núverandi lögum
eða á grundvelli eftirlaunafrum-
varpsins sem verður að öllum lík-
indum samþykkt sem lög á Alþingi í
dag.
„Að svo miklu leyti sem þau
veita fyrrum þingmanni eða ráð-
herra betri rétt þá er honum heimilt
að taka eftirlaun sín út eftir nýju
lögunum,“ segir Bjarni Benedikts-
son, formaður allsherjarnefndar Al-
þingis. Henti það viðkomandi betur
að taka eftirlaun eftir gömlu lögun-
um getur hann hins vegar gert það.
Bjarni segir þetta almennt vinnulag
við breytingar sem þessa enda ekki
hægt að ganga á rétt manna sem
þeir hafa áunnið sér.
„Ég tel mig ekki lengur bundna
af því að styðja málið í heild. Svo
kemur það í ljós á morgun hvernig
ég greiði atkvæði,“ segir Þuríður
Bachman, þingmaður Vinstri
grænna, sem stóð að flutningi frum-
varpsins upphaflega, og því nokkuð
ljóst að hún greiðir ekki atkvæði
með frumvarpinu. Hún vildi hins
vegar ekki segja til um hvort hún
sæti hjá eða greiddi atkvæði gegn
frumvarpinu. ■
góð ráð ● jólahreingerning
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
Íslensk hús eins og
skessukúkur
Auður Haralds:
AP
/M
YN
D
Mannbjörg á Breiðafirði:
Trilla sökk
á svipstundu
SJÓSLYS „Þegar við komum að var
skipverjinn kominn í gúmmíbjörg-
unarbát og báturinn sokkinn. Öðru
hvoru sendi hann ljósmerki þannig
að við vorum aldrei í vandræðum
með að finna hann í myrkrinu,“
segir Viðar Björnsson, skipstjóri á
Ársæli, sem kom sjómanni til
bjargar eftir að trilla sem hann var
á sökk á Breiðafirði síðdegis í gær.
Einn skipverji var um borð í
sex tonna trillunni Hólmaranum
SH 114. Um það leyti sem klukkan
sló sex í gær sendi hann út neyðar-
boð. Viðar var á Ársæli um sex sjó-
mílur frá staðnum þar sem
Hólmarinn sökk. Hann lagði strax
af stað til aðstoðar og var kominn á
vettvang tæpri klukkustund síðar.
„Rétt eftir að boð bárust um að
Hólmarinn væri í vandræðum
sáum við tvö neyðarblys. Um leið
settum við á fulla ferð,“ segir
Sævar.
Viðar segir að skipverjinn hafi
verið bæði blautur og kaldur eftir
að hafa lent í sjónum en hafi að
öðru leyti borið sig vel. „Það fer
óneitanlega um sjómenn þegar
boðin berast. Við erum mjög fegn-
ir að hafa bjargað honum enda
kunningi okkar allra.“
Slysið bar hratt að en rétt
viðbrögð skipverjans skiptu
miklu. ■
ÍRAK, AP Eftir rúmlega átta mán-
aða langa leit er Saddam Hussein
fundinn og hefur verið tekinn
höndum. Hann fannst í tveggja
metra djúpri holu sem grafin
hafði verið og dulbúin í kjallara
hrörlegs húss. Margir höfðu orðið
til þess að spá því að Saddam
myndi frekar falla í byssubardaga
en að gefa sig fjandmönnum sín-
um á vald. Hann var hins vegar
samvinnuþýður og ræðinn við
hermennina sem handtóku hann
en alls tóku 600 hermenn þátt í að-
gerðunum.
Ábending frá nánum fjöl-
skyldumeðlimi Saddams Husseins
varð til þess að hafðist uppi á hon-
um eftir leit sem hafði fram að
þessu verið árangurslaus. Saddam
fannst á laugardagskvöld að
íröskum tíma en fréttir af því
spurðust ekki út fyrr en í morgun.
Þá var staðfest að það væri hinn
raunverulegi Saddam Hussein
sem hefði náðst en ekki einn tví-
fara hans. Gengið var úr skugga
um það með DNA-prufu sem
framkvæmd var á nokkrum
klukkustundum.
Handtöku Íraksforsetans fyrr-
verandi hefur verið fagnað meðal
íbúa Íraks og víða um heim.
Sjá síður 4 og 6
Þingmenn sem hafa látið af störfum:
Geta valið hvernig þeir taka eftirlaun
Saddam fundinn
Fyrrum einræðisherra Íraks var handtekinn eftir að náinn fjölskyldu-
meðlimur benti á verustað hans. Hann fannst í grunnri holu í kjallara
húss, var grár og gugginn og veitti enga mótspyrnu.
Opið til kl. 22 í kvöld
9
dagar
til jóla
SADDAM HUSSEIN
Einræðisherrann fyrrverandi var með mikið skegg og orðinn ansi grár þegar bandarískir og kúrdískir hermenn tóku hann höndum.
BJARNI
Ekki er hægt að
breyta lögum um
lífeyri öðruvísi en
svo að tryggt sé að
þeir sem hafa
unnið sér inn rétt-
indi tapi ekki á
breytingunum.
FELUSTAÐUR SADDAMS
Saddam Hussein hafðist við í um tveggja metra djúpri holu í kjallara húss í bænum
Adwar. Op holunnar var hulið með múrsteinum og mold.
Ljósmyndabók:
Stærsta bók
sögunnar
MASSACHUSETTS, AP Stærsta bók
sem framleidd hefur verið er um
það bil mannhæðarhá og vegur 60
kílógrömm. Bókin fjallar um
Asíulandið Bútan og blaðsíðurnar
í henni fara langleiðina í að þekja
heilan knattspyrnuvöll ef þeim er
raðað þannig upp. Þær eru þó að-
eins 112 talsins.
Starfsmenn heimsmetabókar
Guinness hafa staðfest að bókin
sé sú stærsta sem hefur verið
framleidd. Í henni eru ljósmyndir
frá Bútan og verður ágóðanum
varið til menntastarfs í ríkinu. ■