Tíminn - 01.08.1971, Page 1

Tíminn - 01.08.1971, Page 1
BLAÐ II — Sunnudagur l. ágúst T9WÍ — ......................% Myndin er af hjónunum með tvö börn sín. halda hjóna- bandi uppi — þarf ekki að spyrja um endirinn. í þetta sinn myrti maðurinn konu sína með hamri, þegar hún vildi skilnað Stöðugt fleira fólk á Vestur- löndum verður eiturlyfjum að bráð. Fyrst byrjar fólkið að nota róandi pillur, reykir cannabis eða neytir annarra efna, sem margir telja áhættu- lítil. Eftir því sem fólkið neytir meira þessara efna, cr liætt- unni æ meir boðið heim. Stór liópur fólks fer síðan yfir í sterkari eiturlyf og mun það þá oftast vera heróín. — Þetta vita reyndar flestir, því mikið hefur verið rætt og ritað upp á síðkastið um eiturlyfja- neyzlu. Hér á eftir fer harm- saga þýzkra hjóna. Sú saga varð til vegna eiturlyfja- neyzlu. Þeir voru þrír þátttakend- umir í hinu stormasama hjóna bandi, Lore og Hartwig Bartz, hann, hún og eiturlyf. | Eiturlyf bundu hjónin svo fast saman, að hjónaband þeirra gat aöeins endað með óhamingju. Hjónabandið end- aði á þann hátt, að Hartwig Bartz, 34 ára jazztrommuleik- ari, myrti eiginkonu sína með hamri. fbúarnir í litla bæn- um, Rehweiler, þar sem hjón- in bjugg'u, og var fæðingarbær Hartwig hristu höfuðið yfir þessum blóðuga fjölskyldu- harmleik. Hvers vegna þurfti Lora Bartz, þriggja barna móð- ir, að deyja? spurði fólk sjálft sig. Þá fyrst komu skýringarnar. Sú myrta var ekki saklaus. Hún hafði í mörg ár útvegað manni sínum og sjálfri sér eiturlyf, sem hún átti auðvelt með að komast yfir, þar eð hún var hjúkrunarkona. Þau voru bæði mjög háð eiturlyfjum, þegar hinn hörmulegi atburður átti sér stað, þrátt fyrir að þau væru í afvötnun p þessum tíma. Kynntust á sjúkrahúsi Uppháf sambands þeirra átti sér stað eins og gengur og gerist í mörgum skáldsögum. Hartwig Bartz var ungur og efnilegur jazztónlistarmaður, er lék með fyrsta flokks hljóm- sveit í stórborgum Evrópu Hann þráði alltaf heimabæ sinn, Rehweiler. Þangað fór hann stöðugt, sæi hann sér það fært, vegna vinnu sinnar. Eitt sinn þurfti hann að gangast undir smávægilegan uppskurð í bæ, cr var skammt frá Rch- weiler. Ung og fögur hjúkrun arkona þjónaði honum — hún hét Lora. Hún hugsaði vel um hinn unga og efnilega jazz- tónlistarmann. Honum mátti ekki iíða illa og þess vegna gaf hún honum pillur, sem bæði voru róandi og sendu hann einn- ig í svefnferðir á ljósrauðum skýjum. Harlwig hafði reyndar kynnzt smávegis eiturlyfjum á hljómleikaferðunum, en honum fannst sjúkrahúspillurnar miklu betri en þau eiturlyf sem hann hafði áður kynnzt. Falsaði lyfseðla Vegna þess arna — og einnig af rómantískari ástæðum — elskaði Hartwig hina fögru hjúkrunarkonu ,Og hún varð hrifin af honum. Brúðkaup Lore og Hartwig var haldið í Rehweiler 28. júlí 1962. Þegar á fyrstu dögum hjóna- bands þeirra var það ekki ein- ungis ástin, sem hélt þeim saman. Þau vori. þá háð eitur- lyfjum. Á þessu tímabili var ! r, erfitt fyrir þau að ötvega eftur lyf, þar eð það eiturlyfja- magn, sem var á sjúkrahúsinu, þar sem Lora vann, var nú undir ströngu eftirlitL Lore þurfti því að útvega eiturlyfin á annan hátt, heldur en hún hafði áður gert, og byrjaði að falsa lyfseðla. Þannig gekk það ágætlega í þrjú ár, en þá leyst ist Barz-fjölskyldan upp. Það komst upp um Lore og hún var handtekin. Hún sat í fang- elsi einn mánuð og hjónaband ið þoldi ekki meira. 7. febrúar 1964 skildu Lore og Haftwig. „Meira áfall þegar þau giftust aftur" Paula Bartz, móðir Hartwig segir: — Það var áfall fyrir okkur að Hartwig og Lora skildu. Þá áttu þau börnin Mahara og Hamady. En við urðum fyrir meira áfalli þegar við komumst að því, að skiln- aðurinn var yfirborðskenndur. Á sjálfan skilnaðardaginn tóku þau saman aftur. Það var eins og þetta hefði allt saman verið í gríni gert. — f dag er fullljóst hvers vegna þetta gerðist. Eiturlyfja neyzla þeirra hafði þau áhrif, að þau gátu alls ekki flutt frá hvort öðru. Hallar venjulega undan fæti Hartwig fékk vinnu í Berlín og Lore fór með honum. 25. október giftu þau sig aftur í ráðhúsinu þar. Hin nýfundna hamingja varaði ekki lengi vegna aukinnar eiturlyfja- neyzlu þeirra hjóna. Um þetta leyti var Hartwig Bartz svo forfallinn eiturlyfja neytandi, að hann gat varla stundað vinnu. Stóru þekktu hljómsveitirnir voru lokað land fyrir Hartwig, sem áður hafði verið mikils metinn trommu- leikari. Hartwig mátti nu þakka fyrir ef hann komst að í minnstu og verstu vertshúsun- um. Vikum saman gat hann ekkcrt unnið vegna þess að eitrið hafði dregið úr honum allan kraft, og það var ekki mikil hjálp í því, þegar hann fór af fúsum vilja á sjúkra- hús í Landeck til afvötnunar. Eftir tveggja mánaða dvöl þar óskaði hann eftir því, að hann yrði sendur heim. Nú vildi Lore skilnað í fullri alvöru Hartwig Bartz fór heim til Rehweiler, þar sem fjölskylda hans bjó nú. Lora tók ekki á móti honum með opn- um örmum, jafnvel þótt sér- fræðingar hefðu sagt, að dvöl manns hennar á sjúkrahúsinu gæfi góðar vonir. Lore var viss um að Hartwig myndi aldrei framar ná sér, og í þetta sinn vildi hún skilnað í fullri alvöru. Hartwig var mótfallinn skiln aðinum, segir móðir hans. — Hann elskaði börn sín, sem Harmsaga úr þýzkum smábæ

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.