Tíminn - 01.08.1971, Blaðsíða 6

Tíminn - 01.08.1971, Blaðsíða 6
SUNNUDGUR 1. ágúst 1971 TÍMIN N I Greiðslumerkí 2. f júní’ 1935. Gullfoss 65 aur ar frímerki, yfirstimplað eins og áður. Upplag 100.000. í juní (seint) 135. Greiðslu- merki 10 aurar. Mynd af fjöll- um og sjó, fisk og hrút. Merk- ið er prentað í bláum lit á sama pappír og 10 aurar Dynj- andi, hvítan. Merkið er takkað 12% og prentað af prentsmiðju dönsku Póststjórnarinnar, út- gáfa 120. Upplag 2.000.000. September 1936, sama, merki. Grófari mynd (kannski gert myndamót eftir fyrri útgáfu), brúnleitur pappír, takkað 11. Upplag 1.000.000. Þetta eru sem sagt þau 4 upplög, sem gefin eru út beint af greiðslumerkjum. Auk þessara merkja er svo vitað til, að notuð hafi verið eftirtalin frímerki í stað greiðslumerkja, og þá ógilt með bleki eða stimplun fyrirtækja. 10 aurar Dynjandi. 10 aurar fáni, 10 aurar fiskar, grænt, 5 aurar Matthías Jorhumsson, tvö saman. Það kann vel að vera, að önnur frímerki hafi verið not- uð til þessara hluta, en ekki er mér þó kunnugt um það, og væri ég þakklátur fyrir frekari upplýsingar. Þetta var ekki í eina skipt- ið, sem frímerki voru notuð til annarra hluta en að frí- merkja með þeim póstsending ar. Mikið af frímerkjum er þekkt frá árinu 1918, sem þá voru notuð bæði sem stimpil- merki á víxla og ennfremur á hverskonar voltorð frá prests- embættum, skýrnarvottorð, gift ingarvottorð o.s.frv. Frá þessum tíma eru merki með ógildingum eins og: „Jón 27/8 ’18“, „Kjartan Helga 20/10 ’18“, en Kjartan Helga- son var prestur í Hruna. „Kr. Daníelsson 15/8 1918“, en Kristinn Daníelsson var prest- ur að Útskálum. Við bankann á Selfossi, eða réttara Spari- sjóðinn þar, notuðu menn svo frímerki til að stimpla með víxla, og sennilega víðar. Að greiðslumerkin skuli finn ast mcð póststimplum, hefi ég áður skýrt. Fyrirtækin ógiltu svo með stimplum, eða dagsetn ingu og undirskrift þess er límdi merkin á. Því er hægt að eignast þessKmerki í eftirfar- andi fernskonar ástandi: a) Ónotuð b) Blek- eða blýantsógild c) Ógild með hinum ymsu gúmmístimplum d) Póststimpluð. Sé um það að ræða, að menn eignist par af þessum merkj- um noluðum, þá getur aðeins verið um merki af póstávísun- um eða póstkröfuávisunum að ræða, þar sem báðar greiðsl- urnar hafa verið inntar af hendi af sendanda ávísunarinn ar. Því er það sögulegt þegar um er að ræða að finna par, sem er blekógilt. Þá er aðeins um er að ræða bréfhirðingar, sem ekki hafa stimpil, en senda póst áfram til næsta pósthúss til stimplunar. Greiðslumerkin blekógilda þær liinsvegar. Sigurður H. Þorsteinsson. Út í bláinn Framhald af bls. 20 fjölskyldu sinni, norður í Ólafs- fjörð, en ekki ætluðu þau að fara að skemmta sér þar, held- ur væru þau á leiðinni þangað til að setjast þar að. Ætli við getum nokkuð skemmt okkur um verzlunarmannahelgina sagði Sigurjón, maður fær víst nóg að gera að ganga frá bú- slóðinni þegar norður er kom- ið. Þau hjónin sögðust ætla að aka í einni lotu norður á Ólafs- fjörð í nótt og sögðust þau ekk- ert kvíða fyrir því þótt umferð yrði mikil, sögðust bara vona að ryk yrði ekki mikið. VeiSir lax Guðmundur Guðvarðarson var að stíga út úr rauðum Volks- wagen, þegar okkur bar að garði, sagði hann að þau væru 5 saman, konan hans og 3 börn þeirra og ætluðu þau sér austur í Flóa og hafa það gott þar, nú um helgina. Ekki sagði hann að þau mundu fara á neina úti- skemmtun, heldur ætlaði hann sér að stunda laxveiðar og fjöl- skyldan myndi svo slappa af í nágrenninu. Guðmundur sagði að hann kviði ekkert þótt'Svo að - það rigndi eitthvað yfir helg- ina, enda er það ekki verra fyrir veiðmenn að fá einhverja vætu, ef sá sterki á að bíta á. Hressir í annríkinu Á leið inn í borgina aftur litum við inn hjá Umferða- ráði og hittum þar þá félaga Pétur Sveinbjarnarson ogArn- þór Ingólfsson, sem sögðu okk- ur að umferðin út úr bænum væri þegar orðin talsverð og samkvæmt nýjustu fréttum væri mikil umferð uppi í Borg arfirði. Voru þeir félagar liinir hress- ustu, þrátt fyrir að þeir ættu- framundan annasama helgi. Pétur kvaðst álíta að umferð- . in yrði mun meiri 17Ú, heldur en um verzlunarmannahelgina í fyrra, enda hefði bifreiða- eign landsmanna aukizt um 6 þús. bíla frá því í fyrra. í Babýlon Framhald af bls. 15 skuli nú gengin fyrir ætterijis- stapa og á erfitt með að sætta sig við að hún hefur reynzt forgengileg, líkt og önnur mann anna verk. Hann er fullur svart- sýni á framtíð lands og þjóðar vegna þess, að við stjórnartaum unum hafa tekið menn, sem lík- legir eru til að byggja athafnir sínar á öðrum hugsjónum en þeim, sem er að finna í trúar- játningu þeirra Morgunblaðs- manna. En ef hann þekkti eitt- hvað til skoðana fólks úti um lancj mundi hann vita, að stjórn arskipunum er fagnað, einnig af mörgum Sjálfstæðismönnum. Og þegar tímar líða mun hann einnig átta sig á, að stjórnin hans er horfin „í svipanna heim“ og verður ckki grátin lir helju. Haustsýning Félags íslenzkra myndlistarmanna verður opnuð í hinu nýja sýningarhúsnæði Norræna hússins 4. september næstkomandi. Að venju er öllum heimilt að senda inn myndir, olíumálverk, vatnslitamyndir, grafík, vefnað og höggmyndir. Vaéntanlegir þátttakendur fá afhenta pappíra með skilmálum sýningarinnar, á skrifstofu Norræna hússins eftir þ- 15. ágúst. Utanfélagsmenn borgi 300 króna ábyrgðarþóknun. Tekið verður á móti myndunum þ. 25. ágúst n.k. á milli kl. 2 og 7 e.h. Stjórnin. Maðurinn mlnn Lúðvík Rudolf Kemp, andaðist að heimili sfnu, Karlagötu 20, Reykjavík, 30. júlf. Jarðarförin auglýst síðar. Elfsabct Kemp. ÍSLENZKUR TEXTI GRIKKINN ZORBA (Zorba The Greek) ANTHONY QUINN ALAN BATES IRENE PAPAS LILA KEDROVA Þessi heimsfræga stórmynd verður vegna fjölda áskorana sýnd í kvöld kl. 5 og 9. örfáar sýningar eftir LÉTTLYNDU LÖGGURNAR Sprellfjörug ^rínmynd. Barnasýning í dag og á morgun (mánud.) kl. 3. Magnús II. Gíslason.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.