Tíminn - 22.09.1971, Side 1
~ ^ ~ FRTSmOSTOR »
^ ® FRYSTISKÁRkR *
* fsJ? *.
* HAFTÆKJADEllP, HArH«BmÍBt«t JWM8KS- ,A.
214. tbl.
Miðvikudagur 22. september 1971 —
55. árg.
TK—Reykjavík, þriðjudag.
Ríkisstjórnin sendi í dag frá sér svohljóðandi fréttatilkynningu-.
„Ríkisstjórnin samþykkir að næsta stórframkvæmd í raforkumálum
skuli vera virkjun í Tungnaá við Sigöldu, í samræmi við niðurstöður
stjórnar Landsvirkjunar. Skal haga gerð útboðsgagna þannig, að hægt
verði að bjóða meginhluta verksins út snemrna á árinu 1972 og miða
framkvæmdir við að orkuframleiðsla geti hafizt á árinu 1975. Skal
gert ráð fyrir því, að verkinu megi skipta í þrjá áfanga, en framkvæmda-
hraðinn að öðru leyti miðaður við raforkumarkaðinn innanlands, stór-
aukna húshitun með raforku og uppbyggingu f jölbreytts iðnaðar í eigu
landsmanna sjálfra. Ennfremur samþykkir ríkisstjórnin, að hafinn skuli
undirbúningur að lagningu orkuveitulínu frá Búrfellssvæðinu til Norð-
urlands og gerð áætlun um samtengingu orkuveitusvæða um land allt.
Jafnframt skal lögum um Landsvirkjun breytt þannig, að fyrirtækið
verði sameign þjóðarinnar allrar.“
SENDIBÍLASTÖÐIN Hf
Af þessu tilefni sneri Tíminn
sér til Magnúsar Rjartanssonar,
iðnaðarráðherra, og bað hann að
skýra þessa ákvörðun ríkisstjórn
aririnar nokkru nánar.
Magnús Kjartansson sagði, að
í þessari ályktun ríkisstjórnarinn
ar um Stefnuna í, virkjunar- og
rafvæðinganmólum nú á næstunni
væru fólgnar mjög verulegar
grundvallarbreytingar á stefnunni
í þessum málum frá því sem verið
hefur. Þarna er í fyrsta lagi tek-
in ákvörðun um nýja stórvirkjun,
án þess að sú ákvörðun sé á nokk
um hátt tengd við samninga við
erlendan aðila um orkusölu.
Ennfremur sagði iðnaðarráð-
herra:
Þegar fyrrverandi ríkisstjórn
tók ákvörðun um að nota heimild-
ir Alþingis til virkjunar í Þjórsá
við Búrfell, var sú ákvörðun al-
gerlega bundin við Svissneska ál-
hringinn og samriingarnir við
svissneska hringinn voru alger
forsenda þess að ráðizt yrði í
virkjun. Og fyrrverandi ríkisstjórn
lýsti áformunum um virkjun í
Tungnaá á nákvæmlega sama
hátt. Fyrrverandi iðnaðarráðherra
sagði það margsinnis í kosninga-
baráttunni í vor, að heimild Al-
þingis til virkjana í Tungnaá yrði
því aðeins hagnýtt, að það tækjust
samningar við erlenda aðila um
stóriðju. En nú er ríkisstjórnin að
taka ákvörðun um að ráðast í
þessa framkvæmd, þannig að hún
sé miðuð við þarfir og áætlanir
íslendinga einna. Þarna er um
að ræða mjög veigamikla stefnu
breytingu. Ástæðan til þess að
ríkisstjómin leggur í svona stór
virki er sú, að í málefnasamningi
hennar eru ákvæði um að ríkis-
stjórnin ætli sér að framkvæma
mjög umfangsmikla iðnvæðingu,
uppbyggingu fjölbreytts iðnaðar í
þágu landsmanna sjálfra. Til þess
að hægt sé að framkvæma slík
áform verður auðvitað að tryggja
mikla raforku á hagkvæmu verði
þannig að þetta tvennt mun hald
ast í hendur hjá ríkisstjórninni,
annars vegar þessi ákvörðun um
stórvirkjun í Tungnaá og liins
vegar ákvöi’ðunin um að byggja
upp fjölbreyttan iðnað í eigu
landsmanna sjálfra.
Lína norður
Einn liður í þessum áformum
eru hugmyndirnar um verulega
aukningu á raforku til húshitun-
ar. Samkvæmt áætlun, sem Lands
virkjun hefur gert, þá er gei't
ráð fyrir því í sambandi við Sig-
ölduvirkjun, að húshitun muni auk
ast stig af stigi. Fyrsta kastið fram
til 1975, þ.e. 1972—1975 þá muni
hún aukast um 10 gígawattstundir
á ári. Síðan er áætlað að hún
geti aukizt um 40 gígawattstundir
á hverju ári og þannig yrði hún
komin upp í 320 gígawattstundir
á ári árið 1982, sem vissulega er
verulegt magn. Hins vegar eru
þessi áform um aukningu hús-
hitunar með raforku bundin við
núverandi Landsvirkjunarsvæði
og á því svæði eru eins og kunn
ugt er uppi áform um hitaveitu,
sem hagnýti jarðvarma. Þannig að
markaður fyrir raforku til hús-
hitunar er jafnvel öllu meiri ut-
an núverandi Landsvirkjunarsvæð
is. Þess vegna taldi ríkisstjórnin
rétt að tengja þessa ákvörðun
Dönsku kosningarnan
Kemst Kristilegi þjdöar-
flokkurinn í oddaaðstöðu?
Myndin er tekin við fossinn við Sigóldu, sem mun minnka mjög við tilkomu virkjunarinnar.
um virkjun Tungnaár við ákvörð
un um að tengja saman orkuveitu
svæðin um land allt og fyrsta
skrefið í því yrði þá að leggja
orkuveilulínu frá Búrfellssvæðinu
til Norðurlands.
Hér er einnig um mjög veiga-
mikla stefnuyfirlýsingu að ræða.
Með þessy er verið að leggja
áherzlu á það, að stórvirki eins
og virkjun í Tungnaá, algerlega á
vegum íslendinga sjálfra, verður
að vera sameiginlegt verkefni allr
ar þjóðarinnar. Menn verða bæði
vegna hagsmuna sinna og vegna
metnaðar að skipuleggja raforku
málin þannig, að íslendingar geti
virkjað þarna og hagnýtt sér ork-
una á eins hagkvæman hátt og
hugsanlegt er. Og með slíkri sam
tengingu eins og þarna er um
að ræða, væri vafalaust hægt að
auka húshitunina verulega frá
þessum hugmyndum Landsvirkj-
unar.
Lögum um Landsvirkj-
un verður breytt
Af þessu mundi svo aftur leiða
það, að um leið og Landsvirkjun
er farin að taka þátt í orkufram
leiðslu fyrir landið allt, þá verð
ur að breyta lögum um fyrirtæk
ið þannig, að það verði raunveru
leg Landsvirkjun, eins og hug-
myndin var raunar í upphafi, þ.
e. a. s. sameign þjóðarinnar allr
ar og að allir eigi hliðstæða aðild
að þessu fyrirtæki. í sambandi
við línuna norður og samtengingu
orkuveitusvæða er ástæða til
að leggja áherzlu á það einnig,
að slík samtenging gerir kleift að
síðar verði ráðizt í stórvirkjun t.
d. fyrir norðan, því að slík orku-
veitulína flytur að sjálfsögðu í
báðar áttir.
Það er ekki hægt að ráðast í
stórvirkjun fyrir norðan í þágu
íslendinga sjálfra, nema að hægt
sé þá að hagnýta þann stóra marþ
að, sem er hér á Suð-vesturlandi.
Framhald á bls. 7.
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
Þegar búið var að telja einn
fimmta hluta atkvæða í dönsku
kosningunum í kvöld, var því spáð
að stjórnarflr'-.karnir þrír myndu
tapa 12 þingsætum. Þeir höfðu
98 þingsæti, en var spáð 86 þing
sætu ’i samtals. Kristilega þjóðar
flokknum var spáð fjórum þing-
mönnum, en þeir liöfðu engan þing
mann áður. Þá var því spáð aö
Jafnaðarmenn og SF myndu bæta
vi'l' sig sex þingmönnum hvor
flokkur, og myndu þeir þá hafa
85 þingmenn samlals cn stjórnar-
flokkarnir núverandi 86.
Áætlað er að 3.3 milljónir Dana
hafi verið á kjörskrá, og að eitt-
hvað í kring um þrjár milljónir
hafi neytt atkvæðisréttar síns.
Kjörsókn var mjög góð, en ekki
var þó búizt við að hún hefði ver
ið eins góð og 1968, þegar 89,3%
neyttu atkvæðisréttar síns. Er
talið að °skoranir stjórnm:' ir-
ingja hafi haft mikið að segja nú.
Jafnframt þingkosningunum
fór fram þjóðaratkvæðagreiðsla
um það, hvort lækka ætti kosninga
aldurinn úr tuttugu og einu ári
í tuttugu ár.
Fyrstu úrslitin sem bárust voru
frá Christiansö við Bornholm og
þar unnu bæði Jafnaðarmcnn og
SF-menn á, en stjórnarflokkarnir
töpuðu.
Miðað við spána, þegar búið var
að telja 20% atkvæða, þá mun
flokkur forsætisráðherrans Hilm-
ars Baunsgaard standa í stað,
hvað þingmannatölu snertir, eða
vera áfram með 27 þingmenn, en
íhaldsflokkurinn mun tapa 7
Framhald á bls. 14.
Verður Baunsgaard áfram við
völd?
LÍNA
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar um virkjun við Sigöldu
L NORDURLANDS
Landsvirkjun verður „sameign þjóðarinnar allrar‘ ‘