Tíminn - 30.11.1971, Blaðsíða 1

Tíminn - 30.11.1971, Blaðsíða 1
.J EJ—Reykjavík, mánudag. Heilbrigðis- og félagsmála- nefnd efri deildar Alþingis lagði í dag fram nefndarálit um stjórnarfrumvarp til laga um orlof. Meðal breytinga, sem nefndin leggur til að gerðar verði á frumvarpinu, er að niður falli ákvæði um, að verka lýðsfélögin og vinnuveitendur geti samið uim annað orlof en lögin gera ráð fyrir. Verði frumvarpið samþykkt með breytingum nefndarinnar mun fjögurra vikna orlof því taka gildi strax 1. janúar 1972. Aðrar breytingar, sem nefnd in gerir tillögur um, eru yfir leitt í samræmi við kröfur full trúa ASÍ í nefndinni, sem frum varpið samdi, en sem ekki náðu þá fram að ganga. Þann ig er t. d. lagt til, að veita skuli 21 dag í stað 18 á tíima bilinu frá 2. maí til 15. sept ember í stað 2. maí til 30. september í frumvarpinu. Þá gerir nefndin tillögur um nokkrar minniháttar breyting- ar. Fékk 220 tonn af góðri síld ÞÓ—Reykjavík, mánudag. Vélskipið örfiriséy frá Akra- nesi fékk 220 tonn af mjög fall figri síld á laugardaginn. Sildina fékk skipið uppi í landsteinum í Meðallandsbug. Örfirisey fór með síldina til Akraness, þar sem síld in var öll söltuð, og er töluvert síðan svo stór síldarfarmur hefur farið í söltun. Nokkrir bátar hafa verið á sildarmiðunum í Meðallandsbug og hafa þeir kastað nokkuð mik ið, en síldin hefur yfirleitt verið það smá að bátarnir hafa orðið að kasta henni. Blaðinu er kunn ugt um einn bát, Höfrung III. Ak, sem er á leið í land með síld. Tíminn er 16 síður vegna yfirvinnubanns Lesendur Tímans eru vin- samlega beðnir að athuga að vegna yfirvinnubanns í prent- smiðju, er ekki unnt að stækka blaðið eftir þörfum. Tíminn verður því að koma út í 16 síðum, þar til yfirvinnubann inu lýkur. Lesendur eru beðnir velvirð ingar á því að lítið lesefni er í blaðinu þessa dagana, og eru lesendur beðnir að hafa biðlund meðan þetta ástand varir. Langir samningafundir um helgina: Takast á um aðalkröfurnar Vinnuveitendasambandið samþykkti verkbannsheimild nær samhljóða EJ—Reykjavík, mánudag. ic Talið er, að á sáttafundunum um helgina hafi lítillega glæðzt vonir manna um, að ekki þurfi að koma til verkfalla í yfirstand andi kjaradeilu, þótt enn beri mjög mikið á milli, t.d. hvað kaup hækkun til launþega snertir. if 75—80 verkalýðsfélög hafa boðað verkfall, flest þeirra frá og með næsta fimmtudegi, og í dag samþykkti fjölmennur fundur ■LJB Það er margt spiallað á göngunum á Loftleiðahótelinu þessa dagana, þar sem samningafundir fara fram. Hér takast þeir í hendur 'Hjörtur Hjartar framkvæmd astjórl ((t.v.) og Jón Ingimarsson formaður Iðju á Akur- eyri, en yzt til vinstri er Júlíus Valdimarsson framkvæmdastjóri Vinnumálasambands samvinnufélaganna. (Tímamynd Gunnar) Óvenjulengi fært til Austurlands: Bílfært allt austur í Neskaupstað - en enn tepptir fyrir sex bílar vestan í Vinnuveitendasambandi fslands heimild til verkbannsboðunar. Enn hefur ekki verið tekin um það ákvörðun, með hvaða hætti verk föll verða framkvæmd, ef til þeirra kemur, en ljóst þykir þó, að um víðtæka vinnustöðvun verður að ræða ef til hennar kemur á annað borð, þar sem atvinnurek endur hafa verkbannsvopnið tii reiðu. Langir sáttafundir hafa verið haldnir undanfarið. Sáttafundur inn í gær stóð t. d. fram á nótt, og nýr fundur hófst strax í morg un. Sá fundur hélfr áfram í kvöld, en síðdegis var enginn fundur, þar sem vinnuveitendur héldu félagsfund um verkbannsmálið. Samkomulag mun hafa náðst um það á sáttafundinum í gær- kvöldi, að viðræðum um hinar fjölmörgu og misjöfnu sérkröfur verkalýðsfélaganna skuli frestað þar til síðar. Þetta þýðir, að á sáttafundunum geta aðilar ein- beitt sér að meginkröfum verka lýðshreyfingarinnar, sem eru sam eiginlegar fyrir aðildarfélög ASÍ. Gefur þetta auknar vonir um, að það takizt að leysa kjaradeiluna án vinnustöðvana. Þær meginkröfur, sem hér um ræðir, setti verkalýðshreyfingin fram í september. Svo virðist sem samkomulag hafi náðst um eina þeirra, slysatryggingamar. Tvær aðrar verða afgreiddar með lög- gjöf á alþingi — vinnutímastytt ingin og orlofslengingin —, þótt gert sé ráð fyrir, að hægt sé að semja um styttingu vinnutím ans í áföngum, og enn sé deilt um, hvað skuli teljast virkur vinnutími. Ekkert samkoroulag er hins vegar enn um tvær stórar kröfur, annars vegar kaupkröfuna, sem felur í sér 20% kauphækkun aak sérstakra hækkana fyrir láglauna fólk, og svo kröfuna um kaup tryggingu tímakaupsfólks. Vinnuveitendur munu um helg ina hafa gert tilboð hvað kaupið snertir, en mikið bil er á njiUi þessi tilboðs og kröfu verkalýðs félaganna. OÓ ÞÓ,— Reykjavík mánudag. Bflalestin, sem tepptist í Gils firði s. 1. föstudag vegna fann- fergis, komst af stað vestur síð degis í gær. Voru það níu stórir vöruflutningabílar sem stöðvuð- ust. í dag komst bílalestin vestur í Gufudalssveit. Snjóýta fer á undan lestinni og ryður brautina. Einnig cr veghefill bílunum til aðstoðar. Veður var orðið .'■æmilegt í dag. Þrír bílanna, sem tepptir voru, fóru til Króksfjarðarness, en sex héldu áfram til ísafjarðar, Bolungarvíkur og Patreksfjarðar. Sæmileg færð er um flesta vegi á Austurlandi, nema Odds- skarð og Fjarðarheiði, meira að segja Möðrudalsöræfi eru fæ. og telst það til tíðinda, að þau séu fær um þetta leyti árs. Egill Jónsson, vegaverkstjóri á Reyðarfirði sagði, að nýi vegar kaflinn á Jökuldalsheiði ætti sinn þátt í því. Ef enn væri notazt við gamla veginn á Jökuldalsheiði, þá væri hún örugglega kolófær. En aðalástæðan fyrir því að Jökul dalsheiðin er fær er sú, að tíð in hefur verið sérstaklega hag- stæð. Sagði Egill, að þegar nýi vegarkaflinn á Jökuldal og brú yrði komin á Gilsá næsta sumar, mætti búast við því að vegurinn norður héldist opinn langt fram eftir haustinu, eins og nú hefði gerzt. Viggó Sigfinnsson, vöruflutn- ingabílstjóri í Neskaupstað, sagði, * þeir hefðu verið að koma til S kaupstaðar á tveim bílum. Færð in hefði verið sæmileg alla leið ma austur. Þeir hefðu aðeins tvisvar tafizt lítillega vegna snjóa á leiðinni og var það neðst á Jökuldal og í Oddsskarði í morgun, en yfir Oddsskarð þurfti að fylgja bílunum. Sagði Viggó að nýi vegarkaflinn á Jökuldals heiði hefði sitt gildi. Ef hann væri ekki, þá mætti búast við því að hciðin væri erfið yfirferð ar. Annars sagði Viggó, að hann væri búinn að vera í vöruflutn ingum í 9 ár og hefði það komið fyrir einu sinni áður, að þeir gætu stundað vöruflutningana svona langt fram eftir vetri, en það var 1963, og komu þeir úr síð ustu ferðinni 15. des. Bflarnir frá Viggó áttu að leggja af stað suður í kvöld. Þannig er enn langt frá því, að samkomulag sé á næstu grös um, en margir telja, að með ákvörð uninni um að fresta frekari um- ræðum um aukakröfurnar, vilji allir aðilar einbeita sér að því að ná samkomulagi um meginat- riðin á þeim tíma, sem enn er til stefnu. Hvort það tekst, er engu hægt að spá um í dag. Eins og áður segir, samþykktu vinnuveitendur í Vinnuveitenda sambandi íslands verkbannsheim ild á fundi sínum í dag. Var yfir gnæfandi meirihluti fylgjandi heimildinni, eða félagsmenn með tæplega 7000 atkvæði á bak við sig — en í Vinnuveitendasamband inu öllu munu vera um 8.700 at- kvæði. Aðeins 95 atkvæði voru á móti veitingu heimildarinnar, og 143 sátu hjá.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.