Tíminn - 30.11.1971, Qupperneq 6
6
TÍMINN
ÞRIÐJUDAGUR 30. nóvember 1971
I
I
Leyndarmál og læknisköllun, er
saga af ungum manni, Bobby
Merrick, sem er á hraðbraut til
lífsspillingar. Hann bjargast frá
drukknun með hjálp öndunar-
tækis, sem Hudson heilaskurð-
læknir á, en vegna fjarveru tækis-
ins deyr hinn frægi læknir á sömu
stundu. Þetta veldur örlagaskil-
um. Ungi maðurinn finnur til
sektar og snýr við blaðinu.. Hon-
um verður það heilög köllun að
bæta brot sitt með því að reyna
að feta í fótspor hins fræga
læknis. Líf Hudsons læknis er
sem hulinn dómur, sem þó opin-
berast í dagbók hans, sem rituð
er á dulmáli. Þar opnast nýr
heimur andlegs máttar. Sagari er
einnig stórbrotin ástarsaga með
hraðri atburðarás.
Lloyd C. Douglas, höfundur sög-
unnar, sem lézt 1951, rúmlega sjo-
tugur að aldri, var lútherskur
prestur í Bandaríkjunum og
Kanada. Kenning hans um trúar-
legan mátt viljans og sannfæring-
ar um styrk orða, mannsins frá
Nazaret, mátt gjafá og veglyndis,
vakti mikla athygli á sínum tíma.
Þessa kenningu boðaði hann
meðal annars f skáldsögum sín-
um. Einhver frægasta saga hans
er Kyrtillinn, sem út kom hér á
landi fyrir allmörgum árum og
vakti mikla athygli og hlaut vin-
sældir, sem enn lifa, enda er
Kyrtillinn talinn einhver mesta
söluskáldsaga á síðari áratugum
í Bandaríkjunum. Einnig er skáld
sagan Hinn mikli fiskimaður al-
kunn.,
LEYNDARMÁL OG LÆKNIS-
KÖLLUN ber öll beztu höfundar-
einkenni hans, er í senn hröð og
lífstrú, vettvangur heitra tilfinn-
inga og mikilla örlaga og lofsöng-
ur um ástina í sinni fegurstu
mynd.
Við málaferlin gegn Rinnan-
flokknum sagði herfræðingurinn
Knut Alming m.a.:
„Norðan Vikna höfum við
stöðvarnar tvær á Lúreyjarsvæð-
inu, og þar af var önnur á Lúrey.
Árangur þeirra var slíkur að þær
áttu verulegan þátt í því, hve
mörgum þýzkum skipum var sökkt
við Nordlandsstrendur. Hin mikla
loftárás á ströndina í október
1943 byggðist líka á upplýsingum
þeirra“.
í bók þesari segir frá norskum
liðsforingja, John Kristofersen,
sem í ágúst 1943 hélt frá Englandi
til Norður-Noregs til að setja þar
upp njósna- og sendistöð' fyrir
Bandamenn. Hann hafði ekki
lengi starfað, þegar Þjóðverjana
fór að gruna, að ekki væri allt
með felldu á þessum slóðum.
Gerðu þeir út leiðangra ti. að
reyna að hafa upp á hugsanleg-
um njósnurum.
Eftir margvíslega reynslu og
erfiðleika sn ri John aftur til
Englands, en vegna ýmislegra at-
vika fór hann aftur til Noregs og
lenti þar á sömu slóðum. Skömmu
síðar gera Þjóðverjarnir mikla
leit þarna og John verður að
leggja á flótta, og tekst honum
að komast í gegnum raðir Þjóð-1
verjanna og sleppa undan á
undraverðan hátt.
Það fer vart á milli mála, að i
þessari bók birtir Páll Hallbjörns-
son fleiri og fjölbreytilegri hliðar
á höfundahæfileikum sínum en í
nokkurri af sínum fyrri bókum —
og er þó hvergi fjallað um sjó-
mennskuna í þetta sinn.
Sögur þessar eru af ólíkasta
tagi, allt frá sönnum ferðaminn-
ingum erlendis frá og úr íslenzk-
um óbyggðum og til hreinnar
fantasíu sem ýmist skírskotar til
draumaveraldar, framhaldslífa eða
ókominna tíma. f þeim sögum
skipar Páll sér mjög í sérflokk
meðal íslenzkra höfunda í dag,
og kynni sumum að detta í hug
skyldleikinni við frænda hans,
Benedikt skáld Gröndal, og er þá
ekki leiðum að líkjast. Gott dæmi
um það er hin forvitnilega smá-
saga „Framúrstefnuskáldið", sem
óefa* mun vekja mikla athygli og
umræðu, því að svo ólík er hún
öllu öðru i sem Páll hefur skrifað
fram til þessa. Þar kemur hahn
fram sem ádeiluhöfundur, grípur
á lofti þau vópmsem honum þykir
hafa verið beint að því sem gott
er og fagurt — og sendir þau til
baka. Af allt öðrum toga er svo
sagan „Eftirminnilegur dagur“,
sem er hugljúf bernskuminning,
sönn og áhrifamikil í einfaldleika
sínum, og svo lærdómsrík á sinn
hátt, að hún mætti vel eiga heima
í úrvals lestrarefni fyrir börn og
unglinga. Páll Hallbjörnsson hef-
ur nú eignazt fastan lesendahóp
um land allt, sem bíður bóka hans
með eftirvæntingu. Þessi bók á
það sammerkt með fyrri bókum
hans, að hún er skemmtileg af-
lestrar, fjallar um margbreytileg-
ustu lífssvið og viðhorf og hefur
mannbætandi áhrif á hvern sem
hana les, það gerir hin jákvæða
afstaða höfundarins til alls, sem
lífsanda dregur.
Benedikt Benjamínsson, sögu-
maður bókarinnar var um aldar-
fjórðungsskeið Strandapóstur.
Hann hóf starf sitt. á hörðu ári \
1918 og fór þá frá Stað í Hrúta-
firði að Árnesi í Tréákyllisvík,
seinna alla leið norður t: Ófeigs-
fjarðar. Um norðurhluta Stranda-
sýslu var á þeim árum órudd leið,
víða torfær og hættusöm og þvi
enginn veifiskata vegur.
Frásögn Benedikts er trú heim-
ild þeirra lífshátta sem útskaga-
búin varð að temja sér, ætti hann
að komast óbrotinn gegnum önn
aldarfarsins. Hann lætur hvergi
mikið yfir sínum hlut, en atburðir
og aðstæður bera starfi hans bezt
vitni.
Saga hans er jafnframt brot úr
sögu margra merka samtíðar-
manna, því að oftast var hann leið-
sögumaður beirra er lögðu leið
sína um útskaga þennan.
FRÓÐI
TILKYNNING UM LÖG- TÖK í MOSFELLSHREPPI 22. nóv. s.l. voru úrskurðuð lögtök vegna ógreiddra útsvara, aðstöðugjalda og fasteigna- gjalda, álagðra í Mosfellshreppi árið 1971. Lögtök fyrir gjöldum þessum geta farið fram að Iiðnum 8 dögum frá birtingu auglýsingar þessar- ar, ef ekki verða gerð skil fyrir þann tíma. Sýslumaður Gullbringu- og Kjósarsýslu. Einar Ingimundarson. y * * Ódýrir varsdaðir svefnbekkir tii söiu Sendum í póstkröfu út á land, ef óskað er. Upplýsingar á Öldugötu 33. Sími 19407.
fÚTBOÐÍ
„
Tilboð óskast í byggingu barna- og unglingaskóla í Breiðholti hér í borg, sem nefndur verður Fella- skóli. Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri gegn 5.000 króna skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað mánudaginn 20. desember 1971. kl. 11,00 f.h. m FRlMERKI — MYNl & j| Skrifið eftir ókeypis |r .fP F^imerkjam'ðstöðin, j| Skrilavörðustie 21 A K*
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
*
Hef opnað
tanniæknastofu
að Háteigsvegi 6.
Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 21055.
JÓHANN GÍSLASON, tannlæknir.
Sinfóniuhljómsveit íslands:
TÓNLEIKAR
í Háskólabíói fimmtudaginn 2. des. kl. 21,00.
Stjórnandi: David Atherton. Einleikari: Iona
Brown, fiðluleikari. — Efnisskrá: Forleikur að
Beatrice og Benedikt, eftir Berlioz; Fiðlukonsert
eftir William Walton og Sinfónía nr. 1 eftir
Beethoven.
Aðgöngumiðar seldir í hókahúð Lárusai Blöndal
Skólavörðuptíg 2 og bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar, Austurstræti 18.