Tíminn - 23.08.1973, Qupperneq 4

Tíminn - 23.08.1973, Qupperneq 4
4 TÍMINN Fimmtudagur 23. ágúst 1973. Vísindamennirnir flykkjast til Parísar Um það bil tveir þriðju hlutar franskra visindamanna og rannsóknarfólks á sviði visinda býr i Paris eða nágrenni. Franska stjórnin hefur gert ýmislegt til þess að þetta hlut- fall breytist, en án árangurs fram til þessa. Reyndar var komið á fót eðlisfræðirannsókn- arstofnun i Grenoble og efna- fræðistofnun i Strassborg, en þetta hefur ekki borið tilætlaðan árangur. Astaðan er sú, að meirihluti franskra visinda- manna virðist óska eindregið eftir þvi að fá að búa i Paris eða nágrenni hennar. Þar hafa lika öll stærstu fyrirtæki landsins, sem starfrækja rannsóknarstof- ur, aðsetur sitt, og flestar aðrar helztu visindastofnanir landsins eru þar niðurkomnar. Um helmingur æðri prófa i landinu eru tekin i Paris, og þar eru lagðar fyrir 60% allra doktors- ritgerða. Tvíburasamtök þinga Starfandi eru Alþjóðasamtök tvibura, og hyggjast þau efna til móts, i Springfield i Illinois i Bandarikjunum, 31. ágúst næst- komandiog til 3. september. Er þetta 39. árlegt þing tvibura, og er öllum tviburum á Islandi boðið að taka þált i þessu þingi. I Tviburasamtökin voru stofnsett árið 1934, og er þeim ætlað að bæta andlega, félagslega og menningarlega aðstöðu tvibura iheiminum. Arið 1939 var haldið fjölmennasta tviburaþingið til þessa, og var það i Fort Wayne i Indiana i Bandarikjunum. Sóttu það um 2500 tviburar og auk þeirra um 25.000 aðrir, sem komu aðallega tll þess að fylgjast með úr fjarlægð, þvi sem fram færi. Forsetar sam- takanna eru Marlin Roos og Melba (Roos) Novack tvibura- systkinin frá Illi nois. A þinginu verður margt skemmtilegt gert. Til dæmis verða þar valdir likustu og ólikustu tviburarnir, þeir yngstu og elztu fá einhverja viðurkenningu og sömuleiðis þeir tviburar, sem komnir eru lengst að til þingsins. Þeir sem bera sigur úr býtum fá verð- launastyttur, að sjálfsögðu tvi- burastyttur. Allir tviburar, sem áhuga hafa á, geta tekið þátt i þessu þingi, en þar sem nokkuð stuttur timi er til stefnu er ekki trúlegt, að islenzkir tviburar geti farið til þingsins. Hins vegar geta þeir islenzkir tvi- burar, sem áhuga hafa á félag- skapnum skrifað til for- mannanna, eða ritaranna, sem eru Judy Stillwagon og Julie Kirk, utanáskriftin er International Twins Assn., 114 N. Lafayette Dr. Muncie, Indiána, 47303, USA. Myndin er af Melba Roos Novack, Judy Stillwagon og Julie Kirk, og Marlin W,- Roos. Bandarikjunum, og þar kostar frá 50012500 krónur á sólarhring fyrir hvern hund. I borgunum Carmel og Walkill i New York riki eru hundaheimili, þar sem rúm er fyrir um eitt hundrað hunda, og eru þessi heimili allt- af yfirfull bæði tvö. Ef hundur- inn sem til Aranwood kemur er vanur að fá nautasteik heima hjá sér fær hann það lika þar. Annars hljóðar venjulegur mat- seðill eitthvað á þessa leið: hálft pund af soðnu nautakjöti eða kindakjöti. Stappaðar gulrætur, laukur og aspargus. I herbergj- unum eru teppi, rúm og matar- diskar, sem hægt er að hækka og lækka eftir stærð gestsins hverju sinni. Þá stendur i bæklingnum, að hundaheimilið sé sérstaklega skreytt og málað I mjög fallegum og samstilltum litum. Litirnir verða þó liklega ekki til að gleðja aðra en hunda- eigendurna, sem koma með þessa ferfættu vini sina til dvalar á heimilinu, þar sem hundrarnir sjálfir eru litblindir. Franskt heimsmet Frakkar eiga heimsme't sem þeir eru ekki hreyknir af. Þar i landi deyr flest fólk úr skorpu- lifur sem kölluð er, en sá sjúk- dómur er afleiðing drykkju- skapar. Opinberar skýrslur sem spanna árin 1965 til 1969 og birt- ar voru fyrir skömmu sýna að 35 af hverjum eitt hundrað þúsund Frökkum eyja af þessum völd- um á ári hverju. Dánartala karla var 49,7 af hverjum hundrað þús., en dánartala kvenna var 20,8. Hættast var fólki á aldrinum 55 til 74 ára. Sjaldgæfust er skorpulifur i Bretlandi þar sem aðeins 2,8 deyja af völdum hennar. Meðal Bandarikjamanna er talan 11,7, meðal Japana 10, 7, Vestur-Vjóö verja 23,3 Kanadamanna 7,1 og 25,2meðal ítala, en þeir drekka mikið af vini eins og Frakkar. Engar tölur voru tiltækar um þetta hvað áhrærir Sovétrikin og Austur-Evrópulöndin. Aðeins tvö lönd i heiminum komast ná- lægt Frökkum, þ.e. Chile með 34,7 og Austurriki með 30,4. Þó er einn staður i veröldinni, þar sem dánartala vegna skorpu- lifrar er mun hærri en i Frakk- landi. Það er Vestur-Berlin þar sem 44,3 ibúar af hverjum hundrað þús. deyja úr þessum sjúkdómi. hundar 1 bæklingi einum stendur: Aranwood, nýtizkulegt og glæsi- legt. Aranwood leggur metnað sinn i góða þjónustu. Það er aðeins fyrir þá beztu. Þetta er þó ekki auglýsing fyrir fimm stjörnu hótel, eins og mætti i- mynda sér, heldur er þetta leyfisheimili fyrir hunda i New Jersey. Rekstur hundahótela er blómstrandi atvinnuvegur i Heppnir ,,Að sjálfsögðu var það vegna —Getur þii þá lánað mér belti—? garðsins sem við keyptum það. DENNI DÆMALAUSI Ég skellti ekki hurðinni hjá Wilson. Hann gerði það sjálfur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.