Tíminn - 08.01.1974, Side 3
2
Nicholson
leitar að
leikmönnum
Bill Nicholson, fram-
kvæmdastjóri Totten-
ham, er nú á höttun-
um eftir nýjum leik-
mönnum. Hann fór til
Skotlands sl. miðviku-
dag til að lita á hinn
18 ára gamla
miðherja Dundee,
Andy Gray. Nicholson
var ekki eini maður-
inn, sem var þar
staddur til að lita á
Gray, þvi að þar hitti
hann menn frá Ever-
ton og Newcastle i
sömu erindagjörðum.
Nicholson hefur einnig
áhuga á hinum 16 ára gamla
Robbie James frá Swansea, en
þaðhafa einnig önnur félög en
Tottenham, þvi að Everton og
Manchester United hafa
einnig áhuga á þessum unga
knattspyrnumanni.
Bristol City er einnig undir
smásjánni hjá Nicholson. Þar
hefur hann áhuga á varnar-
manninum Geoff Merrick og
miöherjanum Keith Fear.
Bristol vill láta þessa tvo
menn i staðinn fyrir Joe
Kinnear, hinn snjalla bakvörð
Tottenham.
SHANKLY
GETUR NAGAÐ
SIG í
HANDARBÖKIN
Bill Shankly, framkvæmda-
stjóri l.iverpool, getur nú
nagað sig i handarbökin. Fyrir
tvcimur og hálfu ári lét hann
rúmlega 16 ára bakvörð, John
Gidman, fara frá Liverpool,
þvi að hann taldi, að hann yrði
aldrci góður knattspyrnu-
maður. Þcgar Gidman var
laus, var Aston Villa ckki
lengi að bjóða honum að koma
til fclagsins. Nú hcfur þessi
Gidman sannað, að liann cr
góður knattspyrnumaður, þvi
að þcssi I!) ára gamli piltur
hefur tckið hakvarðarstöðuna
frá John Robson i Villa-liðinu,
cn Itobson þcssi er mctinn á
510 þús. pund. John Gidman
inun lcika mcð unglingalands-
liði Knglands, og það sýnir, að
liann á framtið fyrir sér. Það
er sagt, að Shankly roðni
alllaf, þegar hann heyrir
minn/.t á Gidman og það cr
cnginn hissa á þvi.
„Það er gott
að fá Aston
Villa heim"
— segir Bertie AAee,
framkvæmdarstjóri Arsenal
,,Það er gott að fá Aston Villa heima — það er
bara til að bæta sjálfstraustið, þegar við erum
búnir að vinna þá,”... sagði Bertie Mee, fram-
kvæmdastjóri Arsenal, þegar hann frétti af
drættinum i fjórðu umferð bikarkeppninnar, sem
er þannig:
Wrexham-Middlesborough
Portsmouth eöa Swindon - Orient
Arscnal - Aston Villa
Liverpool eða Doncaster - Charlisle eða Sunderland
Newcastle eöa Hendon- - Millwall cöa Scunthorpe
Chelseaeöa Q.P.R. - Birmingham
Port Vale eöa Luton - Bradford
Petcrsborough - Wolves cöa Leeds
Manchester United - Ipswich
West Ham eöa Hereford —Bristol City eöa Hull
Southampton - Bolton
Fulham - Lýicester
Cambridge eöa Oldham - Burnley
Sheff. Wed. eöa Coventry - Derby eöa Boston
Nottingham Forest - Manchester City
Everton - West Bromwich Albion
TÍMINN
Þriðjudagur 8. janúar 1974
Þriðjudagur 8. janúar 1974
TÍMINN
I
b Sigmundur Ó. Steinarsson skrifar um ensku knattspyrnuna:
!
Heppnin var með
,,Sigurvélinni"
frd Elland Road
Lorimer jafnaði fyrir Leeds úr vítaspyrnu á síðustu mín. gegn
SSÚIfunum. Nokkuð var um óvænt úrslit í 3. umferð bikarkeppninnar
I
Sjaldan eða aidrei hafa
áhorfendur á Molineux í
Volverhampton verið eins
óánægðir eftir knatt-
spyrnuleik — eins og þeir
voru eftir leik Úlfanna og
Leeds i ensku bikar-
keppninni. Þeir stóðu
lengi, eftir að leiknum
lauk, á áhorfendapöllunum
og létu óánægju sína í Ijós.
úti á vellinum óðu leik-
menn úlfanna um,
grenjandi af illsku.
Ástæðan fyrir þessari
óánægju var dómari
leiksins, hinn sköllótti
Roger Kirkpatrick frá
Leicester. Hann dæmdi
vitaspyrnu á Young
Powell, sem lenti í návigi
við fyrirliða Leeds. Billy
Bremner. Peter Lorimer
tók spyrnuna og jafnaði
1:1.
,,Ég snerti ekki Bremner”...
sagði Powcll cftir leikinn. ,,Það
cina, sem cg gerði, var að ég
sparkaöi i knöttinn — ég kom ekki
við Bremner. Fáranlegur dóm-
ur.”
Framkvæmdastjóri Clfanna,
Bill McGarry, sagði: „Auðvitað
var þetta mjög leiðinlegt — sér-
staklega þarsem viö vorum búnir
að spila Leeds sundur og saman
og nú þurfum við aö leika gegn
Lecds aftur.” Lcikmenn Úlfanna
geta ásakað sjálfa sig. Þeir voru
búnir aö „yfirspila” Leeds I
langan tima og áttu aö vera búnir
að gera út um leikinn. John
Richards skoraöi mark úlfanna á
55. min., en þá fékk hann góöa
sendingu frá Sundcrland, sem
sendi knöttinn þvert inn I vlt.a-
teiginn. Aöeins tvcimur min.
siðar átti Itichards, sem hefur
skorað tiu mörk í síðustu 11 leikj-
um úlfanna, aö gera út um
leikinn. Hann skaut þá yfir — I
-dauöafæri. Ef hann hefði skorað
þarna, þá er ekki að efa að sigur-
vélin frá Elland Road, heföi
hunið.
Don Revie, framkvæmdastjóri
Leeds, sagði eftir leikinn, aö þetta
heföi vcriö gott jafntefli. Þegar
hann var spurður að þvi, hvort
Billy Bremner, heföi látiö sig
detta viljandi I lok leiksins, sagöi
hann: Fólkið er alltaf aö segja
svona lagaö um okkur — viö
segjum ekkert um þetta atvik.”
Sföan sagöi Revie, aö Leeds
mundi aö öllum llkindum leika án
McQucen, Yorath og Harvey
markvaröar á miövikudaginn
gegn Úlfunum —- þessir leikmenn
eru allir meiddir i ökkla.
En áður en við höldum lengra,
þá skulum við lita á úrslitin i
þriðju umferð bikarkeppninnar:
LAUGARDAGUR 5. JANÚAR:
Aston Villa- Chester 3:1
Birmingham-Cardiff 5:2
BristolCity-Hull 1:1
Carlisle-Sunderland 0:0
Chelsea-Q.P.R. 0:0
C. Palace-Wrexham 0:2
Derby-Bolton Utd. 0:0
Everton-Blackburn 3:0
Fulham-Preston 1:0
Grantham-Middlesb. 0:2
Grimsby-Burnley 0:2
Ipswich-Sheff. Utd. 3:2
Leicester-Tottenham 1:0
Liverpool-Doncaster 2:2
Man. Utd.-Plymouth 1:0
Millwall-Scunthorpe 1:1
Newcastle-Hendon 1:1
Norwich-Arsenal 0:1
Orient-Bournemouth 2:0
Oxford-Man.City 2:5
Peterborough-Southend 3:1
Port Vale-Luton 1:1
Portsmouth-Swindon 3:3
Sheff. Wed.-Coventry 0:0
Southampton-Blackpool 2:1
W.B.A.-Notts County 4:0
West Ham-Hereford 1:1
Wolves-Leeds 1:1
SUNNUDAGUR 6. JANÚAR:
Bolton-Stoke 3:2
Bradford-Alvechurch 4:2
Cambridge-Oldham 2:2
Nott. For.-Bristol R. 4:3
Eins og svo oft áöur, komu
fyrir mörg óvænt úrslit I bikar-
keppninni. Mest kom á óvart leik-
ur 1. deildarliösins Newcastle
gegn áhugamannafélaginu
Hcndon, sem er utandeildarlið frá
Lundúnum. Ahugamannaliöiö lék
frábæra knattspyrnu á St. James
Park. Leikmenn Hendons geröu
engin mistök. Heimamenn tóku
forustuna I leiknum á 40. min.
þegar Howard skallaöi knöttinn i
nctið. Jöfnunarmarkiö kom siöan
frá Ron Haider. En áöur en þessi
mörk voru skoruð þá varöi lan
McFaul, markvörður Newcastle,
stórkostlega, skot frá bezta
manni vallarins Bobby Childs, en
hann hljóp i gegnum alla vörn
Newcastle, leikmenn 1. deildar-
liðsins stóðu þrumulostnir og
horfðu á frábært skot Childs —
knötturinn stefndi i netiö. A
siðustu stundu bjargaði McFaul,
þegar hann sló knöttinn yfir. Allir
leikmenn Hendon voru ánægöir,
þegar leikurinn var flautaður af
og staðan var 1:1. Aöeins einn
maöur var ekki ánægöur, þaö var
Jimmy Quail, framkvæmdastjóri
liösins, en hann sagði eftir Ieik-
inn: „Við komum hingaö tii aö
sigra, og lékum vel og áttum þaö
svo sannarlega skiliö”.
West Ham vann heppnissigur
HÉR SÉST ÞAÐ!... ERIC REDROBE, innherji HEREFORD, spyrnir knettinum I netiö, framhjá
Tommy Taylor. Bobby Moore sést lengst til vinstri.
gegn 4. deildarliðinu Hereford,
þegar liðin mættust á Upton Park
i Lundúnum. Leikmenn Hereford
gerðu leikmenn West Ham
hrædda, en 4. deildarliðið skoraði
fljótlega, þegar Eric R;drobe
sendi knöttinn i netið hjá
„Hammers”. Eftir
það lék liðið varnarleik, en það
áttu samt skilið að skora fleiri
mörk. Það var ekki fyrr en tveim-
ur min. fyrir leikslok, að Holland
tókst að jafna með glæsilegu
marki. Holland, sem kom inná
fyrir Bobby Moore, lék þá á þrjá
leikmenn Hereford með
geysilegum hraða — siðan kom
þrumuskot frá honum, söng siðan
i netinu.
Leikur Liverpool gegn
botnliðinu i 4. deild, Doncastle,
vakti einnig geysilcga athygli. A
4. minútu kom Kevin Keegan
heimamönnum yfir 1:0 á Anfield
Road. En markiö varð eingöngu
til að æsa leikmenn 4. deildar-
liðsins upp, þeir ruddust fram og
þremur min. siðar voru þeir búnir
að jafna 1:1 meö marki frá Mike
Kitchen og á 19. min. kom Brend-
an O’Callaghan Doncastle yfir
1:2. Heppnin var með Liverpool
og Kevin Keegan tókst að jafna
meö skalla á 57. min. Liverpool
getur þakkaö Keegan fyrir jafn-
tefliö. Keegan, sem er fæddur i
Doncastle, hefur ávallt verið i
miklu uppáhaldi þar. Nú er hann
ekki hátt skrifaður hjá borgarbú-
um — fyrir að skora tvö mörk
gegn Doncastle.
Leikur Derby gegn utan-
deildarliðinu Boston Unitedvakti
einnig mikla athygli, en
leikmönnum Bolton tókst að
halda markinu hreinu og gera
jafntefli á Baseball Ground.
Steve Earle, 80 þús. punda
maðurinn frá Leicester, var
maöur dagsins á Filbert Street.
Þessi leikmaður, sem lék sinn
fyrsta leik meö Leicester gegn
Tottenham fyrir mánuöi i 1. deild
skoraði þá sigurmark gegn
Tottenham, spyrnti Tottenham út
úr bikarkeppninni aöeins tveimur
min. fyrir leikslok.
A 88 min. fékk Leicester auka-
spyrnu, þegar Pratt braut á Well-
er (fyrrum leikmanni Totten-
ham), fyrirliða Leicester. Munro
tók aukaspyrnuna — hann lyfti
knettinum til Worthington, sem
lék á tvo leikmenn og sendi knött-
inn til Stringfellow. Hann skaut
skoti, sem virtist vera langt fram
hjá, en Earle tókst að breyta
stefnu knattarins, sem þaut i
netiö hjá Lundúnaliöinu. Klukkan
tifaði og rétt fyrir leikslok geröi
Martin Chivers örvæntingarfulla
tilraun. til aö jafna. En hann
komst aðeins aö raun um, aö
Peter Shilton, landsliösmark-
vöröur Leicester, er frábær
markvörður.
Fyrir leikinn féll Len Glover i
læknisskoöun og hann fékk þvi
ekki að leika með Leicester.
Tomin kom inná fyrir hann.
Þegar 12 min. voru til leiksloka
gerði Jimmy Bloomfield, fram-
kvæmdastjóri Leicester, breyt-
ingu á liöi sinu, sem ruglaði vörn
Tottenham. Bloomfield tók
Tomin útaf og setti Stringfellow
inná og þessi breyting varö til
þess að Leicester vann.
Blackpool, sem hefur aðeins
komizt i 4. umferð fjórum sinnum
á sl. fjórtán árum, hafði ekki
heppnina með sér gegn Dýrling-
unum á The Dell. Þegar aðeins 5
min. voru liönar af leiknum, skor-
aði Terry Paine mark með
frábærum skalla og var það eina
markið i fyrri hálfleik, en i leik-
hléi átti Blackpool að vera búið að
skora 2-3 mörk. Dyson jafnaði
strax i byrjun siðari hálfleiksins
og við það vöknuöu leikmen
Southampton til lifsins og Bennett
skoraði sigurmark Dýrlinganna á
66. min. Var það fyrsta mark
hans á keppnistimabilinu.
A ýmsu hefur gengiö á hjá
Chelsea sl. daga. Alan Hudson og
JOHN RICHARDS...fagnar marki sinu gegn Leeds. Þessi markakóng-
ur hefur skoraö 10 mörk i slöustu ellefu leikjum úlfanna.
Petcr Osgood, sem báðu um að
vera settir á sölulista i sl. viku,
léku ekki mcð gegn Q.P.R. Þá
setti Dave Sexton, framkvæmda-
stjóri Chelsea, Peter Bonetti,
markvörð út úr liöinu á laugar-
daginn, en i hans staö kom While
Philips, en hann varöi vitaspyrnu
i leiknum frá Francis. Q.P.R. lék
mjög góðan ieik og liöiö heföi meö
réttu átt að bera sigur úr býtum.
Fjórir ieikmenn Chelsea voru
bókaðir, en það voru þeir Dave
Webb, Mickey Droy, Ron Harris
og Chris Garland. Þeir þrir
fyrrnefndu léku mjög gróflega og
þeir brutu oft mjög illa á Stan
Bowies, hinum marksækna
markaskorara Q.P.R.
Menn veltu þvi fyrir sér, fyrir
leikinn, hvort Osgood, seni var
settur út úr Chelsea-iiöinu um
daginn, yrði ekki settur aftur inni
þennan áriðandi leik. Sexton,
framkvæmdastjóri, sagöi: „Ég
hef engan áhuga á að láta hann
inn i liðið aftur”.
„Þarna fengu þeir eitthvað til
að læra af>það þýðir ekkert að
slaka á þótt aö liö hafi yfir 1:3 i
hálfleik”.... sagði Les Allan,
framkvæmdastjóri Swindon, eftir
leik liðsins gegn Portsmouth.
Þeim leik lauk 3:3 og jafnaði
Kellard úr vitaspyrnu fyrir
Portsmouth, þegar leiktiminn var
útrunninn.
Sammy Morgan, fyrrum mið-
herji Port Vale, var maður
dagsins hjá Aston Villa i leiknum
gegn Chester. Hann skoraði tvö
góð mörk, sem tryggðu Villa i
fjórðu umferðina.
Orient reyndi nýja leikaðferð
gegn Bournemouth, á Brisbane
Road i Lundúnum. Lundúnaliðið
lék þannig, að það voru gefnir
háir boltar fram og siðan var
hlaupið. Uppskeran? — jú, tvö
mörk, sem Fairbrother skoraði.
Len Bond, markvörður Bristol
City, getur kennt sér um að Hull
fékk aukaleik i bikarkeppninni.
Hann getur skrifað jöfnunarmark
Galvin á 20. min. á sig. Áður en
Galvin fékk knöttinn, hafði Bond
nógu mikinn tima til að ná
honum.
Birmingham á að leika á
Wembley, ef þeir verða eins
heppnir og gegn Cardiff. Leikur-
inn var svo opinn, aö þótt
Birmingham hefði tvö mörk yfir
og 10 min. væru til leiksloka, þá
vissi enginn hvernig leiknum
myndi Ijúka. Leikurinn var geysi-
lega skemmtilegur fyrir
áhorfendur, vel leikinn og spenn-
andi. Heppnin var meö Birming-
ham og sést þaö vcl á þvi, að
þegar Francis skoraði fyrsta
mark Birmingham á 3. min. heföi
Cardiff átt að vera búið að skora
og þegar Latchford skoraði
annað mark Birmingham, þá
heföu leikmcnn Cardiff átt aö
vera búnir að skora 3-4 mörk.
Staðan var 2:0 I hálfleik, i siðari
hálfleik skoruöu þeir Latchford
og Hatton (2) fyrir Birmingham,
en leiknum lauk 5:2 Frank
O’Farrell, framkvæmdastjóri
Cardiff, fyrrum framkvæmda-
stjóra. Manchester United, sagði
eftir leikinn: „Leikurinn var
skemmtilegur og það var svo
sannarlega lcikiö fyrir áhorf-
endur”. Þess má gcta, að Gary
Sprake, markvörður Birming-
ham (áður Leeds) átti stórleik og
bjargaði oft snilidarlega.
Tony Brown, markaskorarinn
mikli hjá West Bromwich Albion,
óð i tækifærunum i leiknum gegn
Notts County. Hann skoraði þrjú
mörk „hat trich” og tvö af
mörkunum skoraði hann á
þremur siðustu minútunum.
Leikmenn County áttu aðeins tvö
marktækifæri i leiknum, sem
lauk 4:0 fyrir W.B.A.
Kevin Keelan, markvörður
Norwich, átti enn einn stórleikinn
á laugardaginn, þegar Arsenal
kom i heimsókn á Carrow Road.
Hann varði hvað cftir annað
snilldarlega og Peter Storey,
landsliðsmaður mun aldrei
gleyma þvi, þegar Keelan sló
þrumuskot hans yfir þverslá. Það
var Eddie Kelly, sem tókst að
skora hjá Keelan á 30. min.
Staðan var 0:1 i hálfleik, en átti
með rétttu að vera svona 0:4.
Tommy Docherty, fram-
kvæmdastjóri Manchester Uni-
ted, tilkynnti rétt fyrir leik United
á laugardaginn, að Best myndi
ekki leika með United. En það
hefur verið nokkur óregla á Best
upp á siðkastið. Þetta skaðaði þó
ekki leik þeirra gegn Playmouth.
Macari skoraði eina mark
leiksins meö skalla, en hann fékk
snilldar sendingu frá Morgan.
Enginn núlifandi knattspyrnu-
maður hefur skorað eins niörg
mörk i bikarkeppninni og
Denis Law, sem skoraði tvö
mörk, gegn Oxford. Aörir, sem
skoruðu gegn Oxford, voru:
Summerbee (2), og Marsh. Denis
Law hefur skorað 38 mörk i bikar-
keppninni, eða 14 meira en næstu
menn, þeir Geoff Hurst (Stoke),
John Ritchie (Stoke) og George
Best (Manchester United).
3
SKOTAR LEIKA
MEÐ BRASILÍU-
MÖNNUM í HM
Skotland leikur með
heimsmeisturunum
frá Brasiliu i riðli i úr-
slitakeppni IIM i
knattspyrnu, sem fer
fram i Vestur-Þýzka-
landi. Á laugardaginn
var dregið um það,
hvaða lið leika saman
i riðli í heiins-
meistarakeppninni,
og varð útkoman
þessi:
1. RIDILL: Vestur-Þýzka-
land, Austur-Þýzkaland, Chile
og Zaire.
2. RIDILL: Brasilia, Skot-
land, Astralia og Spánn eða
Júgóslavia.
3. RIÐILL: Uruguay,
Sviþjóð, Búlgaria og Holland.
4. RIÐILL: ttalia,
Argentina, Pólland og Haiti.
Sterkasti riðillinn er riðill 3,
en þar leika fjórar sterkar
þjóðir, og er erfitt að spá um
úrslit i riðlinum, þó hallast
maður á að Holland og Sviþjóð
komist áfram. I riðli 1 eru
Vestur- og Austur-Þýzkaland
likleg til að komast áfram. 1
riðli 2 eru Brasilia og Skot-
land, likleg, og i riðli 4 hallast
maður helzt að ltaliu og
Argentinu, en Pólland hefur
einnig möguleika.
RÚSSAR
FENGU
„NIET"
Itússar voru útilokaöir frá úrslitakeppni HM i knattspyrnu á laugar
daginn. En eins og menn muna neituðu Rússar að leika viö
Chile-menn i Santiago I Chile. Þeirvilduað leikurinn yröi háöur i
hlutiausu landi. A laugardag voru greidd atkvæöi um þaö, hvort
Rússar ættu að fá'tækifæri til aö lcika viö Chile, en Chile var dæmd-
ur sigur i leiknum, þegar Rússar mættu ekki til leiks I Santiago. At-
kvæöagreiöslunni lauk annig, aö 15 voru á móti þvi aö Itússar fengju
annan leik, en aöeins 5 voru mcö þvi. Chile-menn leika þvi i úrslit-
unum I Vestur-Þýzkalandi I sumar.
Bond lítur
á leikmenn
.1 ohn Bond, framkvæmda-
stjóri Norwich, sá ekki leik
sinna manna við Arsenal á
laugardaginn. Asta:ðan fyrir
þvi var sú, að hann var stadd-
ur á Priestficld Stadium i
Gillingham og var meðal tæp-
lega 7 þús. áhorfenda, sem sáu
leik Gillingham og Barnsley i
3. deild. Bond hefur áhuga á
hakvörðunum David Pcach og
Dick Tydcman frá Gillingham
— þessir leikmenn eru inetnir
á (iOþús. pund livor, eða sam-
tals 120 þús. pund. Bond hcfur
einnig áhuga á lcikmönnum
frá Sheffield Wednesday, og
hann hefur verið að spyrja um
skoz.ka miðvallarleikinanninn
Tommy Craig, sem er metinn
á 120 þús. pund, og
miöhcrjann M i c k
Prendcrgast, sem einnig er
metinn á um 120 þús. pund.
Þótt þessir leikmenn færu til
Norwich, getur fátt bjargaö
liðinu i'rá falli I 2. deild.
O 6 af 10
vera brimbrjótur fyrir
iþróttamenn, en ekki öfugt.
tþróttaáhugamaður
af gamla skólanum.
P.s.
Eftir að hafa gluggað aðeins
betur i nafnalistann, sem birt-
ist i Timanum, langar mig til
þess að fræða Jón aðeins betur
um getu iþróttafólksins, sem
þar skrifa nöfn sin. Þar er að
finna fólk úr eftirtöldum
landsliðum i iþróttum: knatt-
spyrnu, handknattleik, sundi,
körfuknattleik, lyftingum,
frjálsum iþróttum etc. Og ef
landsliðsfólk okkar telst ekki
til þess bezta, er viö höfum
upp á að bjóða i iþróttum,
hverjir þá?
Sami.
Arsenal-aðdáandi
tapaði í getraunum
„SVONA er að treysta ekki á
sina menn"...sagöi hinn mikli
Arsenal-aðdáandi, Finnbogi
Guðmarsson, umsjónarmaður
Knattborðsstofunar á
Klapparstig, þcgar við til-
kynntum honum, aö það heföi
unniz.t á 11 rétta i get-
raununum. Finnbogi var með
10 rétta: hann var með leik
Bolton og Stoke vitlausan og
svo leik Norwich — Arscnal,
en þar spáði liann jafntefli. Já,
Finnbogi, svona cr að svikjast
undan merkjum og trúa ekki á
sina mcnn.
Tiu raðir fundust meö 11
rétta, og hlýtur hver röð kr. 23
þús. i vinning 95 raðir fundust
með tíu rétta, og hlýtur hver
kr. eitt þús i vinning.