Tíminn - 09.02.1974, Síða 4

Tíminn - 09.02.1974, Síða 4
Má bjóða þér 5000 ára gömul brauð?? Brauö hafa verið bökuð ár- þúsundum saman. Sannanir fyrir þvf fengust i fornleifarann- sóknum i Egyptalandi, er vis- indamenn voru að rannsaka grafhvefingu Tutankhamuns konungs. Þar fundu fornleifa- fræðingar brauð, sem talin eru um 5000 ára gömul, og voru þau margvisleg að lögun, t.d. i lag- inu eins og fiskar, vasar, fuglar -og Sfinxar. Frakkar hafa þótt mjög færir bakarar og þar voru taldar — fyrir fyrri heims- MaðurJane Fonda fyrir rétti Þessi mynd var tekin nýlega, þegar Jane Fonda var að yfir- gefa dómshúsið, eftir að maður hennar Tom Hayden hafði verið kærður fyrir að óviðurkvæmi- legt orðbragð og framkomu i réttarsalnum. Tom Hayden heldur á smábarni þeirra hjóna undir jakkanum sinum. styrjöldina — a.m.k. 20 mis- munandi brauð i bakaríum, fyr- ir nú utan allar tegundirnar af kökum og sætabrauði. í Vin eru bakarar sérstaklega frægir fyr- ir kökulengjur, — sem auðvitað eru kallaðar Vinarbrauð, — Er sagt, að 27 mismunandi tegund- ir af vinarbrauðum sé algengt að sjá I góðum brauðbúðum i Vin. 1 rannsókn, sem yfirvöld i Vinarborg létu einu sinni fara fram I sambandi við efnagrein- ingu á brauðum og kökum, þá komu fram yfir 12.000 mismun- andi tegundir, en sumar þeirra voru erlendar brauðtegundir. í Louisiana i Bandarikjunum eru bakarar skyldugir að merkja brauðin með dagsetningu i skorpurnar, og einnig að hafa sérstakt merki fyrir hverja brauðgerð. Með þessum sér- stöku merkjum á sjálfum brauðunum er svo hægt að sanna hvaðan brauðið er, — ef einhverjar kvartanir berast, eöa brauðið þykir svikið á ein- hvern hátt, — jafnvel þó að það sé keypt i stórverzlunum, sem selja brauð frá mörgum brauð- gerðum. Erfiðir dagar framundan 78% Frakka trúa þvi, að mjög alvarlegir efnahagsörðugleikar séu nú framundan i Frakklandi. Þetta kom fram i könnun, sem gerð var á vegum SOFRES, sem er þekkt stofnun i Frakk- landi og efnir oft til skoðana- kannana meðal fólks um ýmiss efni. Þá kom einnig fram I sömu könnun að 63% álita að efna- hagsvandræðunum fylgi einnig vandræði á sviði stjórnmála þar I landi. Til samanburðar má geta þess, að þegar sams konar könnun var framkvæmd I ágúst siðast liöinn, bjuggust aðeins 56% þeirra, sem spurðir voru við efnahagsvandræðum. 21% þeirra, sem nú bjuggust við vandræðum, kenndu oliuskort- inum um, 72% vildu að vand- ræðin yrðu leyst I samvinnu við önnur aðildarriki Efnahags- bandalagsins. Aðeins 10% vildu að Frakkar reyndu að leysa vandann sjálfir meðal annars með tollahækkunum. TÍMINN Laugardagur 9. febrúar 1974. Kínverskir bergrisar Viða hér á tslandi má sjá skemmtileg andlit i klettum. Þessir skrýtnu karlar (eða kerlingar), sem þarna virðast vera að skeggræða eru samt ekki af islenzku bergi brotnir, þvi að þeir eru á ströndinni við Petchilli i Kina. Þeir eru ósköp broshýrir að sjá, og eru'Iiklega að ræða um Maó foringja! Vaknað eftir tuttugu óra svefn Nadezjda Lebedina, sem sofnaði árið 1954, vaknaði ekki fyrr en árið 1973. Hún fæddist i Úkrainu, vann ung á samyrkju- búi, gifti sig, missti mann sinn i heimsstyrjöldinni siðari og gifti sigafturog eignaðist dóttur 1949. Arið 1954 fór henni að veit- ast erfitt að halda sér vakandi. Svo sofnaði hún dag nokkurn og var flutt á sjúkrahús, þar sem hún var i næstum fimm ár. Þaðan var hún flutt heim, steinsofandi. í ágúst sl. dó mamma hennar og Nadezjda segir, að vitundin um það hljóti að hafa náð til hennar. Hún settist upp i rúminu og sagði: ,,Er mamma dáin?” Þetta voru hennar fyrstu orð eftir næstum 20 ár. Nú hefur hún vanizt þvi, að dóttir hennar, sem var fimm ára, þegar hún sofnaði, er nú orðin 25 ára og orðin verkfræðingur. Og að mennirnir fara i geimferðir. O.fl. nýjungum verður hún að venjast. Læknarnir hafa hjálp- að henni til að koma vöðvakerf- inu i lag aftur með sjúkraæfing- um. Bráðlega verður hún alveg búin að ná sér. ☆ Baldvin var máður nefndur, smiður og mikil hamhleypa, og gerði sömu kröfur til annarra og sjálfs sin. Hann var tileygur og horfði jafnan útundan sér á menn. Eitt sinn gerðist það, að vinnufélagi hans gerði Baldvin svo fokvondan, að hann jós úr skálum reiði sinnar yfir mann- inn góða stund. Þegar Baldvin loks gerði lát á máli sinu, sagði sá, sem skammadembuna hafði fengið, eins rólega og búast mátti við: — Það er leiðinlegt með þig, Baldvin minn, að þú skulir aldrei geta litið nokkurn mann réttu auga! Viltu setja diskana i. ...Leyfðu mér að hvisla dálitlu i eyrað á þér. DENNI DÆMALAUSI

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.