Tíminn - 09.02.1974, Page 7

Tíminn - 09.02.1974, Page 7
Laugardagur 9. febrúar 1974. TIMINN 7 ÍJtgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, simar 18300-18306. Skrif stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusimi 12323 — aug iýsingasimi 19523. Askriftagjald 360 kr. á mánuði innan lands i lausasölu 22 kr. eintakið. Blaðaprent h.f. Hlutabréfin voru sett ofar öllu Sjálfstæðismenn hafa lagt fram frumvarp um lækkun á tekjuskatti, sem myndi hafa 4500 milljóna króna tekjurýrnun i för með sér, ef það yrði samþykkt. Ekki benda Sjálfstæðis- menn á neina útgjaldalækkun hjá rikissjóði til að mæta þessu og heldur ekki á neina nýja tekjuöflun, sem kæmi i staðinn. Óhætt er að fullyrða, að ábyrgðarlausari tillögur hafa aldrei verið lagðar fram á Alþingi. Jafnvel Glistrup hinn danski er ekki svo ábyrgðarlaus, að hann flytji tillögu um skattalækkun án þess að benda jafnframt á þá útgjaldalækkun, sem eigi að mæta henni. Þessi tillöguflutningur Sjálfstæðismanna verður þó enn furðulegri, þegar athugaður er fyrri valdaferill þeirra. Það var eitt af loforð- um „viðreisnarstjórnarinnar” að afnema tekjuskatt á almennum launatekjum. I fram- haldi af þvi beitti fyrri fjármálaráðherra viðreisnarstjórnarinnar, Gunnar Thoroddsen, sér fyrir breytingu á tekjuskattslögunum, sem átti að fullnægja þessu loforði. Jafnhliða felldi Gunnar skattvisitöluna niður. Skattstigar og frádrættir stóðu þvi óbreyttir, þótt dýrtið magnaðist. útkoman varð sú, að skattar urðu svo háir, að sérfræðingar rikisstjórnarinnar lögðu til, að skattþegnar fengju bráðabirgða- lán til greiðslu á sköttum. Jafnframt var skattvisitala tekin upp að nýju en viðreisnar stjórnin sleit hana fljótlega úr sambandi við framfærsluvisitöluna, og hækkuðu skattar þvi stórlega af sjálfu sér, sökum stóraukinnar dýrtiðar. Framsóknarmenn fluttu þá tillögur, þing eftir þing, um það, að skattvisitalan væri látin fylgja framfærsluvisitölunni. Vegna baráttu Framsóknarmanna fengust fram nokkrar leiðréttingar á þessu tvö siðustu valdaár viðreisnarstjórnarinnar, en samt var skattvisitalan, þegar viðreisnarstjórin fór frá völdum, ekki nema 168 stig, en hefði átt að vera 196, ef fylgt hefði verið framfærsluvisitölunni. Þá var það eitt af loforðum viðreisnar- stjórnarinnar að gera skattakerfið einfaldara og óbrotnara. Niðurstaðan varð sú, að það varð miklu flóknara i valdatið hennar. í stað þess að fækka sköttum og tekjustofnum, var bætt við fjöldamörgum nýjum, og mun aðstöðugjaldið svonefnda vera frægast þeirra skattanýjunga, sem fjármálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins fundu upp á viðreisnartimanum. Á siðasta þinginu, sem viðreisnarstjórnin fór með völd, beitti hún sér fyrir breytingum á tekju- og eignaskattslögunum Menn gætu ætlað af þvi frumvarpi, sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur flutt nú, að þar hafi verið stefnt að þvi að lækka tekjuskatt á einstakling- um. Þvi var siður en svo að heilsa. Aðalefni þeirrar breytingar var að gera arð af hluta- bréfum skattfrjálsan. Alþýðuflokkurinn var tregur til að fallast á þessa breytingu, en Sjálf- stæðisflokkurinn neitaði þá að fallast á hækkun tryggingabóta, nema hlutabréfaarðurinn yrði gerður skattfrjáls. Þannig var það siðasta stjórnarverk Sjálfstæðisflokksins að setja skattfrelsi hlutabréfanna ofar öllu. Ekkert lýsir betur hinni raunverulegu stefnu Sjálf- stæðisflokksins i skattamálum. NikoSaj Patolitsjeff: Aukin viðskipti Sovét- ríkjanna og V.-Evrópu Vestræn fyrirtæki semja til langs tíma Pompidou forseti mun fara til Sovétrikjanna i þessum mánuði og mun m.a. ræða við Bresjneff um aukin viðskipti Sovétrikjanna og Frakklands. llöfundur þessarar greinar er utanrikis- verzlunarráðherra Sovét- rikjanna. t greininni, sem er frá fréttastofunni APN, er sagt frá ýmsum nýjum viðskiptasamningum, sem Rússar haga gert yið rikis- stofnanir og einkafyrirtæki i Vestur-Evrópu: t RIKISAÆTLUN Sovét- rikjann fyrir árið 1974 er gert ráð fyrir 10% aukningu á utan- rikisvöruveltu landsins. Það þýðir, að sovézka utanrfkis- verzlunin mun þróast hraðar en allt efnahagslif landsins i heild. Sósialisku rikin eru enn sem áður helztu verzlunar- aðilar Sovétrikjanna, en tveir þriðju hlutar utanrikis- verzlunarinnar fara fram við þau. Efnahagstengsl Sovét- rikjanna við lönd þriðja heimsins aukast söðugt. Á undanförnum tiu árum hefur verzlunin við þau rúmlega tvöfaldazt. Um það bil 16% utanrikis verzlunar Sovétrikjanna á sér stað við hin þróuðu auðvalds- lönd Vestur-Evrópu, og eru það 70% af vöruveltunni við iðnþróuð auðvaldslönd alls heimsins. Verzlunartengsl Sovétrikjanna og Vestur- Evrópu verða æ viðtækari og aukast nú hraðar heldur en i allri sögu utanrikisverzlunar Sovétrikjanna. Þess vegna verða þessi lönd æ mikilvægari i utanrikis- verzlun Sovétrikjanna, sem taka sivirkari þátt i alþjóðlegri verkaskiptingu, einkum evrópskri. SOVETRIKIN hafa áhuga á auknu alþjóðasamstarfi og leyna þvi ekki. En þvi má ekki gleyma að Sovétrikin eru ekki eins háð utanrikisverzlun og verzlunarfélagar þeirra. Þau eru birgari en nokkurt annað land af hraéfni eldsneyti og orkulindum. Hið feykilega mikla efnahagsveldi Sovét- rikjanna eru til komið næstum eingöngu vegna þeirra mögu- leika, sem fyrir hendi voru innanlands, og þrátt fyrir ytri aðstæður, (nú framleiða Sovétrikin einn fimmta hluta heimsframleiðslunnar) Niðurstaðan er einf öld áhugi á áframhaldandi og viðtækari verzlunarsamningum við vestrið er til staðar. En viðræður þessar geta aðeins farið fram á jafnréttháum grundvelli, og verið báðum i hag. Þar er ekki um að ræða einhvern „sérstakan áhuga” og þvi siður ófrelsi. Arangur sá, sem naðst hefur á sviði efnahagstengsla Sovétrikjanna og vestursins, vitnar um, að þessi sjá'lfsagði sannleikur nýtur æ meiri skilnings. A undanförnum ár- um hafa utanrikisviðskiptin við lönd Vestur-Evrópu kom- izt á nýtt stig.’Verið er að koma á langvarandi gagn- kvæmu samstarfi á grundvelli langtima samninga og sátt- mála. Slik skjöl hafa verið undirrituð til tiu ára við Finnland, Frakkland, Austur- riki og Vestur-Þýzkaland. Viðræður um samþykkt slikra sáttmála standa yfir við ttaliu, England og Belgiu. I Vestur-Evrópu eru ýmist ekki fyrir hendi eða ekki nægileg framleiðsla á ýmsum tegundum hráefna, hálf- unninnar vöru, eða eldsneyti, sem Sovétrikin hafa lengi flutt út. Þar má nefna ljósmálma, skóg, spón, kol, oliu, oliu- vörur, gas, asbest, bómull og ýmsar neyzluvörur. Vestur-evrópsk lönd flytja til Sovétrikjanna mikið af stálplötum I bila og spennu- breyta, einstakar tegundir ljósmálma, efnavörur, ullar- band og fleira. SKIPTI á tækjum og vélum eru mjög mikilvæg i viðskipt um Sovétrikjanna við Vestur- Evrópu. Um margra ára bil hafa Sovétrlkin keypt mikið af vélum og tækjum frá Vestur-Evrópu fyrir efna- og timburiðnaðinn, i bifreiða- verksmiðjur, byggingar- iðnaðinn og i léttaiðnaðar- og matvælaverksmiðjur. Góður árangur á sviði sovézkrar vélsmiði gerði kleift að auka útflutning á vélum, tækjum«gýmiss konar tækni til Vestur-Evrópu. Sovétrikin flytja út málmskurðarvélar, skruðgröfur, dráttarvélar, bila, flugvélar, skip og fleiri tegundir véla. Einnig eru flutt út ljósmynda- og kvikmynda- vörur, útvarpstæki og sjón- vörp. Hafinn hefur verið út- flutningur á einkaleyfum á framleiðslu iðnaðarvara, sem fundnar hafa verið upp og framleiddar i Sovétrikjunum og nýjustu tækniaðferðum. SAMNINGAR um samstarf við fyrirtæki i Vestur-Evrópu um nýtingu náttúruauðlinda i Sovétrikjunum og byggingu iðnaðarfyrirtækja i Sovét- rikjunum á jöfnunargrund- velli er tiltölulega nýtt form utanrikisverzlunar. Slikir samningar eru fólgnir i þvi.aðerlend lán eru fengin til framkvæmda, og fyrir lánsféð kaupa sovézk fyrirtæki tækja- útbúnað. efni og nauðsynleg einkaleyfi. Lánin eru greidd með vörum. sem þessi fyrir- tæki framleiða. Jöfnunarvið skipti suðla að langvarandi og traustum tengslum milli aðilanna. Samstarf á jöfnunargrund- velli gerir Sovétrikjunum kleift að flýta fyrir nýtingu náttúruauðæfa og auknum fra mleiðslum æt t i. Áhugi verzlunarfélaga okkar er fólginn i þvi, að annars vegnar tryggja þeir sér stórar pantanir frá Sovétrikjunum á tækjaframleiðslu, en fá hins vegar ýmsar nauðsynlegar iðnaðarvörur og hráefni frá Sovétrikjunum samkvæmt langtimasamningum. UNDANFARIN ÁR hafa verið gerðir samningar um sölu á sovézku jarðgsi til 20-30 ára til rikisfyrirtækja og fyrir- tækja i Austurriki, ttaliu. Vestur-Þýzkalandi. Frakk- landi og Finnlandi. Jafnframt gassölunni hafa náðst samningar um kaup á pipum með breiðu þvermáli, vara- hlutum i vélar og tækjum fyrir gasiðnaðinn, og fer greiðslan fram með gasi. Frönsk fyrirtæki munu taka þátt i sölu á tækjum til Timburverksmiðjunnar i Úst- Ilimsk á árunum 1975-’76. en greiðslan fyrir þau fer fram i tréni. Gerður hefur verið samningur við Itölsku eína- verksmiðjurnar um samstarl' við finnsk fyrirtæki um byggingu á timburverksmiðj- um i Sovétrikjunum. Samningar standa yfir við Vestur-Þýzkaland um byggingu málmiðnaðarverk- smiðja i Sovétrikjunum við járnmálmsnámurnar i Kúrsk. Þetta verða umfangsmikil viðskipti við Vestur-Þýzka- land, og fara þau einnig fram á jöfnunargrundvelli. Einnig hafa verið gerðir slikir samningar við Bandarikin og Japan. Slik langtima verzlunar- og efnahagstengsl efla traustið. skapa góðan efnahagsgrund- völl fyrir hagstæða þróun st jórnm álatengsla m illi Evrópulandanna og hafa góð áhrif á stjórnmálaástandið á alþjóðavettvangi. (APN) -Þ.Þ.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.