Tíminn - 16.06.1974, Blaðsíða 2
2
TÍMINN
Sunnudagur 16. júni 1974
Sunnudagur 16. júní 1974
Vatnsberinn: (20. jan.-18. febr)
Eitthvaö hefur komið fyrir á vinnustaðnum,
sem þú skalt nota daginn i dag til að kippa i lag.
Simtal eða vinarvottur gæti gert kraftaverk.
Annars skaltu sinna fjölskyldunni sem mest I
dag og búa þig undir morgundaginn.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Hafirðu geymt einhver verkefni til þessarar
löngu helgar, þá skaltu flýta þér að ljúka þeim
af, þvi að upp úr hádeginu og á morgun er hætt
við, að þú hafir nóg fyrir stafni. Vinir úr fjar-
lægð koma mikið við sögu.
Hrúturinn. (21. marz-19. april)
Þessi dagur og morgundagurinn hafa mikið að
segja fyrir þig. Þú umgengst margt fólk þessa
hátiðisdaga, og litur út fyrir, að eftir þér verði
tekið á þann hátt, sem kemur sér vel fyrir þig, og
þá, sem þér þykir vænst um.
Nautið: (20. april-20. mai)
Þú færð einhver tiðindi i dag, og ekkert útlit fyrir
annað en fagnað og gleði. Þú ættir að varast að
fara út i rökræður um þessa helgina. Þfi ert
undir það sterkum tilfinningalegum áhrifum, að
dómgreindin er rugluð.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
íþróttamenn, sem fæddir eru undir tvibura-
merkinu, mega búast við þvi, að dagarnir verði
þeim sigursælir og ánægjulegir. Ef til vill vinna
þeir afrek, sem þeir hafa ekki náð áður en nafni
þeirra verður haldið á lofti.
Krabbinn: (21. júni-22. júli)
Það litur út fyrir, að einhver samvinna, sem til
stóð um helgina, fari út um þúfur. Þú skalt
vera viðbúinn öllu, og þá axla byrðarnar sjálfur.
Það er ekki sá vandi að þú ráðir ekki við hann.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Sennilega verður dagurinn rólegurogþægilegur,
og þú ættir að nota hann til a sinna andlegum
efnum. Fjölskyldan er undir mjög góðum áhrif-
um frá þér, og það er rómantiskur blær yfir
kvöldinu og morgundeginum.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. sept)
Þú ert kannski ekki i sem allra beztu skapi
framan af degi, en það lagast, þegar á hann
liður, og þú færð ánægjulega heimsókn, sem
kemur þér á óvart. Morgundagurinn verður
skemmtilegur viö gamlar endurminningar.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Þetta verður annasamur sunnudagur og jafnvel
erfiöur. Þú kemur miklu i verk, og það verður
bæði þér og öðrum til yndis og ánægju, að svona
vel skuli hafa tekizt til og morgundagurinn
verður alveg einstakur.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Það er eitthvað i sambandi við peningamálin,
sem varpar skugga á daginn, og þt er liklega
ráðlegast að reyna að leiða þau hjá sér með öllu i
dag — sérstaklega ef einhver gamall vinur eða
kunningi kemur með uppástungu.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þetta er mesti indælisdagur og’tilvalinn til úti-
lifs. En það er óþarfi að fara langt, þvi að gleðin
er oft nær manni en mann grunar. Einhver, sem
þér þykir vænt um, hefur samband við þig.
Steingeitin: (22. des.-19. jan).
Það, sem þér fannst áður aukaatriði, fær nú
aukna þýðingu. En mundu það i dag, að fæst orð
hafa minnsta ábyrgð. Ef þú gætir þin vel og
neytir alls I hófi, ætti morgundagurinn að geta
orðið hinn ánægjulegasti.
t 14444 T 25535
mn FDiR bílale|ga
WLUnLtlUin CAR RENTAL
BORGARTÚN 29
Dagskráin 17. júní
í Reykjavík
ÞJ ÓÐ H ÁT ÍÐARHÖLDIN i
Heykjavik 17. júni verða með líku
sniðu og i fyrra. Þó er dagskráin
heldur meiri en verið hefur og er
hún I niu liðum.
Ólafur B. Thors, forseti bæjar-
stjórnar, leggur blómsveig frá
Reykvikingum á leiði Jóns
Sigurðssonar i kirkjugarðinum
við Suðurgötu, og leikur lúðra-
sveitin Svanur bæði þar og á
Austurvelli, en þar verður hátiðin
sett af Má Gunnarssyni, formanni
þjóðhátiðarnefndar. Forseti ts-
lands, dr. Kristján Eldjárn, legg-
ur blómsveig frá islenzku þjóð-
inni að minnisvarða Jóns
Sigurðssonar á Austurvelli. Á
Austurvelli flytur forsetinn ávarp
og karlakórinn Fóstbræður syng-
ur. Halla Guðmundsdóttir flytur
Ávarp Fjallkonunnar, eftir
Matthias Jochumsson, en ávarpið
samdi Matthias i tilefni þúsund
ára afmælisins, 1874.
Guðþjónusta verður I Dóm-
kirkjunni kl. 11:15. Fyrir hádegi
munu lúðrasveitir leika við elli-
heimilin Grund og Hrafnistu.
Skrúðgöngur verða frá Hlemm-
torgi, Miklatorgi og Melaskóia og
hefjast þær klukkan eitt eftir há-
degi og lýkur öllum á Lækjar-
torgi, en þar verður barna-
skemmtun klukkan tvö. Þar
verða fjölþætt skemmtiatriði,
söngur, leikþættir og fleira.
Sundmót verður i Laugardals-
sundlaug,en 17.júni-mótið hefst á
Laugardalsvellinum klukkan hálf
fjögur. Knattspyrnuleikur milli
borgarstjórnar og embættis-
manna borgarinnar mun án efa
vekja mikla eftirtekt, en hann
verður klukkan fimm á Laugar-
dalsvellinum. Leikurinn stendur i
2x10 minútur. Þar verða meðal
annars fjórir fyrrverandi lands-
liðsmenn, þeir Albert Guðmunds-
son borgarráðsmaður, Hermanna
Hermannsson forstjóri Sundhall-
arinnar, Helgi V. Jónsson borgar-
endurskoðanda og Gunnar Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Laugardalshaliarinnar. Þetta
verður án efa mjög skemmtileg
keppni, en dómari verður Guð-
mundur Jónsson óperusöngvari.
Dansað verður á sex stöðum i
borginni: við Austurbæjarskóla,
Breiðholtsskóla, Langholtsskóla,
Melaskóla, Árbæjarskóla og
Fellaskóla. Hljómsveitir á þess-
um stöðum verða Experiment,
Tilfinning, Haukur Morthens,
Ragnar Bjarnason, Brimkló og
Ernir. Hátiðinni verður slitið
klukkan tólf á miðnætti.
Dagskrárstjóri verður Klemenz
Jónsson, en þjóðhátiðarnefnd
skipa: Már Gunnarsson, Július
Hafsteiri, Kolbeinn Pálsson,
Böðvar Pétursson, Öskar Péturs-
son og Hilmar Svavarsson.
Minnismerki þjóðhátiðarnefnd-
ar verður selt á 70 kr. stykkið, en
ágóði af þeirri sölu rennur i
Minnismerkjasjóð e;ns og undan-
farin ár. Minnismerkjasjóður var
stofnaður á 10 ára afmæli lýð-
veldisins, og er ætiunin að reisa
minnismerki i tilefni 1100 ára
afrpælis tslandsbyggðar, og mun
Sigurjón Ólafsson gera það
merki.
Eindregin tilmæli þjóðhátiðar-
nefndar eru til Reykvikinga um
að draga fána sina að húni 17.
júni, og að verzlanir skreyti
glugga sina með myndum og fán-
um.
VÉLHJÓLA
VERZLUNIN
í Dunhaga 23 selur
Gold Top hanzka og
stígvél, NGK-kerti,
leðurjakka með stríp-
um, stál-stýri, Melton
gleraugu, andlitshlífar
í litum fyrir 3 & 5
punkta
(smellu)hjálma.
Póstsendi út á
land s'n), ,
Verzlumn 'Iq
Hannes ólafsson
Dunhagi 23
LEGGJANIÐURFISKMATIÐ?
-hs-Rvik. i gær var haUlinn 41. að-
alfundur Sölusambands islenzkra
fiskframleiðenda. Verður siöar
reynt að segja frá þvi helzta, sein
fram kom á fundinum, en hér
verður aðeins getið eins atriðis,
sem fram kom i skýrslu stjórnar.
Þar segir svo: Á stjórnarfundi i
Sölusambandi isl. fiskframleið-
enda, sem haldinn var 16. janúar,
kom fram bréf frá sjávarútvegs-
ráðuneytinu þess efnis, að það
hygðist leggja Fiskmat rikisins
niður, en þess i stað koma á fót
nýrri stofnun, sem fengi sömu eða
svipuð verkefni, þó með eitthvað
breyttum hætti og öðrum mönn-
um. Um þetta efni átti stjórn
S.t.F. að gefa umsögn, og urðu
miklar umræður um þetta, en að
loknum þeim umræðum var eftir-
farandi bókað:
„Stjórn S.l.F. kemur ekki auga
á, að frumvarpið geri ráð fyrir
neinum þeim skipulagsbreyting-
um i fiskmati, sem réttlæti nýja
lagasetningu. Hins vegar telur
stjórnin eðlilegt, að ferskfiskmat
og sildarmat verði tekið til endur-
skoðunar innan ramma gildandi
laga svo og mat á söltuðum
hrognum”.
! Engan í útlegð É
til Ástralíu
x-B
Morgunverður
kl. 8 í Hóbæ
BH-Reykjavik. — Borgarráð
Reykjavikur hefur tekið til með-
ferðar umsókn Svavars Kristj-
ánssonar, er sótt hefur um veit-
ingaleyfi fyrir Hábæ, Skólavörðu-
stig 45, og var á fundi þess 11. júni
tekið fram, að borgarráð hefði
ekkert á móti þvi, að almennur
veitingarekstur verði leyfður i
garði veitingahússins, þó ekki
vinveitingar. Leyfi heilbrigðiseft-
irlitsins skyldi vera áskilið.
Veitingahúsið Hábær hefur
gegnt nokkurri sérstöðu meðal
veitingastaða borgarinnar, og
garðurinn þar er nýmæli, sér-
staklega eftir það nýjasta, sem sé
að opna með morgunverði kl. 8 á
morgnana. Hefur garðinum verið
breytt til samræmis við islenzkt
umhverfi, að svo miklu leyti sem
aðstæður leyfa. Þarna er seldur
matur: tiltölulega ódýrir fiskrétt-
ir og iburðarmeiri og dýrari rétt-
ir. Þar eru og aðstæður til að taka
á móti ferðamannahópum, ef
pantað er með nokkrum fyrir-
vara.