Tíminn - 16.06.1974, Qupperneq 4
pi» r
r.n y- r j / -;r^i
TÍMINN Sunnudagur 16. júni 1974
Hjartamiðstöð
fyrir ungbörn
1 Munchen i Þýzkalandi hefur
verih reist hjartamiðstöö, þar
sem framkvæmdar eru allar
mögulegar hjartaaðgerðir.
Þarna er sérstök deild fyrir
hjartaveil ungbörn, en fram til
þessa hafa ungbörn með vissa
hjartagalla ekki náð meira en
eins árs aldri alla jafna, þar
sem lítlir möguleikar hafa
veriö á að veita þeim lækningu.
I nýju hjartamiðstöðinni eru
sérstök tæki, sem sérstaklega
eru ætluð við uppskurði á smá-
börnum, og sjáið þið hér einn af
minnstu sjúklingum i umsjá
hjúkrunarkonu. •
Einbýlishús
vinsælust
A þessu ári verða byggð um 220
þúsund einbýlishús i Frakk-
landi, af þvi er segir i opinber-
um byggingaskýrslum. Mest
hefur verið byggt af litlum
einbýlishúsum viðast hvar i
Frakklandi, eftir að nokkuð hef-
ur dregið úr húsnæðisskorti
þeim, sem varð eftir siðari
heimsstyrjöldina. Þó eru un'dan
tekningar frá þessari reglu i
stórum borgum þar sem meira
hefur verið lagt upp úr fjölbýlis-
húsabyggingum heldur en
einbýlishúsabyggingum, eins og
eðlilegt má telja. Eru nú
einbýlishúsabyggingarnar
þriðjungur alls, sem byggt er
þar i landi af ibúðarhúsnæði.
Engin leikhúskreppa
í Sovétríkjunum
Samkeppni af hálfu sjónvarps-
ins og aðrir erfiðleikar ógna
ekki sovézku leikhúslifi. Fjöldi
leikhúsgesta eykst stöðugt og
meira en helmingur þéirra er
undir þritugu. Þetta stafar að
verulegu leyti af þvi að fólk
hefur kynnzt leikhúsinu i æsku
Hér eru um 100 brúðuleikhús og
mikill fjöldi barna- og unglinga-
leikhúsa. Auk þess er aðgöngu-
miðaverð i sovézkum leikhúsum
mjög lágt, svo allir hafa efni á
að fara i leikhús. 1 Sovét-
rikjunum eru færðar upp leik-
sýningar á 45 tungumálum, og
framlag leikhúsa hinna ýmsu
þjóðerna auðgar mjög leikhús-
lifið. Leikhúsum fjölgar sifelt.
1970-1975 hafa verið stofnaðir
meira en 150 atvinnuleik-
flokkar.
2,9 milljónir
útlendinga til
Sovétrík janna
Rúmlega 2,9 milljónir útlend-
inga frá 150 löndum heimsóttu
Sovetríkin á siðastliðnu ári.
★
Sandiorpnar gróðurlendur ræktaðar upp
í norðurhluta sovétlýðveldisins
Uzbekistan eru menn teknir að
rækta upp gamlar gróðurlendur,
sem kunnar eru undir nafninu
„Bæirnir 50”. Fornleifafræði-
rannsóknir hafa sannað, að
fyrir nokkrum öldum voru
þarna bómullarakrar og stórir
garðar. Siðar hafa ræktarlöndin
orpizt sandi frá eyðimörkinni.
Sérfræðingar i Uzbekistan eru
þeirrar skoðunar, að á
þessu svæði séu alls um hálf
milljón hektara ræktanlegs
lands, og er n nú hafin ræktun
þriðjungs svæðisins með hjálp
áveituskurða frá næsta stóra
áveitukerfi.
Greiddi ég þér
lokka...
Warren Beatty leikur aðalhlut-
verkið i nýrri ameriskri mynd,
sem er nefnd „Shampoo”. Með
honum leika þar Julie Christie
og Coldie Hawn, og eru þær
báðar yfir sig ástfangnar af
hetjunni i myndinni — hetjan
er hárgreiðslumeistari, sem er
svo vinsæll hjá kvenþjóðinni, að
hann þarf ekki nema þvo þeim
um hárið, þá verða þær alteknar
af hrifningu. Það er sagt i
Bandarikjunum, að þeir sem
standa að þessari kvikmynd,
séu með ákveðinn hárgreiðslu-
mann i huga, sem heitir Jon
Peters, og er vist feikilega vin-
sæll þar vestra. Myndin er oft
kölluð „The Jon Peters story”,
þvi að saga hans er vist við-
burðarik. Stórstjarnan Barbara
Streisand féll alveg fyrir
honum, og sjást þau hér á
myndinni og virðast mjög ást-
fangin. Einnig er hér mynd af
Warren Beatty, sem leikur hinn
töfrandi hárgreiðslumeistara i
myndinni nýju „Shampoo”.
DENNI
DÆMALAUSI
Hvað er að? Ég tala að minnsta
kosti betri islenzku, heldur en þú
itölsku.