Tíminn - 16.06.1974, Page 6

Tíminn - 16.06.1974, Page 6
6 /"•TÍMINN • - Sunnudagur 16.‘júní 1974 ■ ’ - Þverdalur I Aöalvlk (1936) fjöru, sjá myndir. Drangurinn, sem nesið ber nafn af sést i baksýn t.v. Skammt undan landi liggur Grimsey á Steingrimsfirði, hlunnindaey, sem prýðir mjög umhverfið. Við Gröntved tókum jurtategunda- tal á þessum slóðum og var sú skrá birt i Náttúrufræðingnum. Á leiðinni til Bjarnarfjarðar og á Svanshóli, þar sem við gist- um, rifjuðust upp fornar sagnir I Njálu. Svanur bjó forðum á Svanshóli og þótti kunna tals- vert fyrir sér. Segir svo m.a. i sögunni: ,,Þá tók Svanur til orða og geispaði mjög, nú sækja að fylgjur Ósvifs.” Þjóstólfur spratt upp og tók öxi sina. „Lit- ils mun við þurfa,” segir Svan- ur. Hann tók geitarskinn og vafði um höfuð sér og mælti: „Verði þoka og verði skripi og undur öllum þeim, er eftir sækja”. Eftirreiðarmenn rammvilltust I þokunni, týndu hestum og vopnum, en sumir lentu i fenjum. Snéru þeir aftur. Oft mun vera æði þokusamt á hálsinum sunnan Bjarnarfjarð- ar. Nú býr á Svanshóli Ingi- mundur,oddviti og góður bóndi. Við komum i Asparvik til Bjarna bónda, sem nú býr i Bjarnarhöfn. Kjarr er i Aspar- vikurdal. Hefur einhvern tima vaxið þar ösp, eða hefur hana rekið á fjörur? þetta? Ég gisti i Þverdal á Sæbóli i Aðalvik. Sjá mynd af bæjunum þar. Frá Þverdal eru bræðurnir Kristjánssynir: Klemenz kornræktarfrömuður og Sverrir sagnfræðingur. Enn var fært frá i Þverdal sumarið 1936. Mikill burknagróður prýð- ir snjódældir kjarr og urðir i Aðalvik. Á mynd sést kirkju- staðurinn gamli Staður i Aðal- vik handan við Staðarvatn undir gróðurlitlu fjalli, 29. ágúst 1936. Ýmsir þjóðkunnir prestar hafa setið á Stað, t.d. Snorri siðar kenndur við Húsafell, og Vigfús kenndur við galdra. Það eru rúmar tvær aldir siðan. Mjög þrengdi að hag manna þarna nyrðra þegar hafis lagðist að landi. 1 vatninu og Staðará, sem úr þvi rennur vex stórvaxin langnykra og myndar flækjur. Nú eru Hesteyri, Aðalvik o.fl. byggðir á norðanverðum Vestfjörðum komnar i eyði. Gamlir ibúar sækja þó þangað á sumrin og nýta hlunnindi. Seint i ágúst 1936 athugaði undirritaöur gróður þar á Hest- eyri og i Aðalvik á Ströndum. Heldur var kuldalegt um að lit- ast þar nyrðra eftir nýafstaðið hret. Hafði snjóað langt niður i hliðar, en siðan húðrignt. En nú létti suddanum að mestu og sá til sólar. Á Hesteyri var sildar- verksmiðja og talsvert athafna- lif i þá daga. Farþegaskip komu þar við. Ég hafði bækistöð i húsi Snæbjarnar læknis. 1 klettunum ofan við slld'verksmiðjuna vex hliðarburkni, fágæt tegund, sið- ar einnig fundin i Grims- hamarskleif á Snæfjallaströnd. Lágvaxið birkikjarr, bælt af snjóþyngslum, vex við fjarðar- botninn. Gróðurfar hér nyrðra hefur breytzt allmjög síðan þessar byggðir fóru I eyði. Allt er nú gróskulegra, kjarrið eykst og miklu meira ber á ýmsum blómjurtum en áður, t.d. fiflum og sóley. Sumar ræktaðar skrautjurtir haldast furðulengi I göröunum. 1 Aðalvik voru tvö þorp, Sæból og Látur. Inn á Aðalvik leituðu skútur oft undan norðanveðrum i gamla daga. Höfðu eyfirzkir sjómenn sagt mér margar sögur þaðan og frá Horni: „Hann Bedúel I Vik réri með volga görn norður og niður á fulldýpi og það brá ekki sili”. Hvaða skilning leggið þið i Á Drangsnesi 1947 1 ágústbyrjun 1947 vorum við J. Gröntved (danskur grasa- fræðingur) i grasaferð um Steingrimsfjörð og Bjarnar- fjörð. Þá var lif og fjör i Drangsnesi sildarsöltun I full- um gangi strandferðaskip við bryggju, margir bátar þar og i A Drangsnesi 1947 (Sildarsöitun) XXVI Svanshóli i Bjarnarfiröi (1947) Hesteyri (1936) Staöur I Aöalvik (1936) Ingólfur Davíðsson: D/99T °9 DUIQ j _ _ i gamla i daga

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.