Tíminn - 16.06.1974, Side 7

Tíminn - 16.06.1974, Side 7
Sunnudágur'16. júni 1974 ‘ TÍMINN 7 . Þar sem vitað er, og marg- viðurkennt af ábyrgum aðilum, að áfengisneyzla landsmanna og alfeiðingar hennar eru geigvæn- legt þjöðarböl, ættu allir þjóð- hollir menn að hefja nú þegar öfluga baráttu til þess að aflétta þessu böli. Ahrifarikt í þessu sambandi má telja, að uppalendur veiti ungu fólki vandað fordæmi, sem þvf sé óhætt að likja eftir til þroska og skilnings á þvi, að hverjum einstaklingi sé hollast að byrja aldrei áfengisdrykkju eða aðrar skaðanautnir. Hjá æskufólki býr athafnaþrá og framkvæmdavilji, sem þarf að beinast að hollum viðfangsefnum. Það er verðugt verkefni fyrir ungt fólk að hefja nú þegar öfluga baráttu gegn drykkjuskap og annarri fikniefnanotkun, með þvi að gerast sjálft bindindisfólk og fá aðra til þess að afla sér þekkingar á skaðsemi eiturefna og illra afleiðinga þeirra, sem viða um lönd er orðið mesta vandamál þjóðanna, og hér á landi geigvænlegt þjóðarböl. Margir fullveðja menn, sem eru svó ólánssamir að hafa um lengri eða skemmri tima verið tóbaks- og drykkjumenn, viður- kenna skaðsemi þess og óska þess af heilum hug aö þeir hefðu ekki vanizt óreglunni. Þessir menn geta stutt ungt fólk til reglusemi með leiðbeiningum og frásögnum af ógæfu sinni og sýnt þvi fram á þau sannindi, að með þvi að byrja aldrei eiturnautn, verði mannlifið allt hamingjurikara og fegurra. Sjálfsagt er að viðurkenna, að algjört aðflutningsbann áfengis og annarra eiturefna væri áhrif- arikast. Með þvi væri sjúkdóms- orsökin fjarlægð, eins og venja er lækna til þess að vinna bug á sjúkdómum. Dæmi eru frá bann- árunum eftir 1915 um miklu farsælla liferni fólks. Segja má, að blessun þjónaverkfallsins i vetur hafi bent til hins sama. Þá heyrðust fréttir i fjölmiðlum um betri reglu og rólegri helgar- vörzlu lögreglu og um nær tóma fangaklefa i stað þeirra frétta, sem algengari eru, um mesta fylliri verstu ólæti, skemmdir, bifreiðaárekstra, slys og mannskaða, sem eru oftast fyrstu morgunfréttir útvarps á mánu- dögum og bundnar við helgarfri fólks frá föstudegi til mánudags, þeim tima sem menningarlegt og vel hugsandi fólk notar annars sér til heilbrigðrar ánægju og góðra verka, Komið er i það óefni af ofdrykkju fólks og eiturnotkun, að ætlast verður til þess af Alþingi og rikisstjorn, að settar verði nú þegar strangar reglur um að tak- marka verulega sölu áfengis og að þyngdar verði refsingar fyrir ólöglega meðferð þess. Meðan það ófremdarástand, sem nú rikir i þessum málum, varir, verður þjóðfélagið að veita hinum óláns- sömu drykkjusjúklingum og eiturnotendum hælisvist, hjúkrun og lækningu. Auðvitað þarf að byggja drykkjumannahæli og gera allt sem hægt er til þess að lina þjáningar hinna sjúku og hjálpa þeim og aöstandendum þeirra til betra lifs. En mesta og fullkomnasta ráöið til þess að draga úr sjúkdómum af völdum eiturnotkunar, er að fólkið venji sig ekki á hana. Benda má á það, að mikil framför hefur orðið hér á landi i heilsugæzlu, og tekizt hefur að útrýma skæðum sjúkdómum og halda öðrum niðri. Þrifnaður hefur, samhliða bættum húsa- kosti, aukizt, svo óþrif eru ekki áberandi. Skæðar drepsóttir, holdsvpiki, barnaveiki og fleiri sjúkdómar, sem áður herjuðu hér, eru yfirunnir. Með sameigin- legu átaki landsmanna, með forystumenn lækna og heil- brigðismanna i fararbroddi, hefur berklum verið nær útrýmt. Aður lagði „hviti dauðinn” fjölda manns, oft efnileg ungmenni, i gröfina, og var um skeiö skæðasta dánarorsök hér á landi. Islenzka þjóðin hefur orðið að heyja haröa baráttu fyrir lifi sinu og tilveru. Að henni hafa sótt margvislegar plágur, erlend ánauð, verzlunarófrelsi og siglingavandræði, að ógleymdum hafis, eldgosum og drepsóttum. Þjóðin hefur þolað þrautirnar og sigrað margan vanda. Nú þarf hún að afstýra þvi böli, sem áfengi, tóbak og önnur eiturefni valda. öllum ætti að vera ljóst, að drykkjusýkin er svo algeng hér á landi, að varla verður á næstunni rúm á heilsuhælum fyrir allan þann fjölda. Verða þvi öll öfl, sem vinna vilja þessu máli gagn, að samstilla kraftana til þess að bjarga þvi sem bjargað verður. Manntalsskrifstofa rikisins, heilbrigðisyfirvöld og fleiri stofnanir þyrftu aö taka þannig manntal i landinu, að ljóst yrði um ástæður og fjölda eitursjúkra og annarra, sem neyta áfengis, tóbaks eða annarra fikniefna. Á þann hátt fengjust heimildir, sem styðjast mætti við, þegar leitað er að aðferðum til að draga úr eitur- bölinu, en það verður að vera takmark allra landsmanna, svo hér geti þróast heilbrigt þjóðlif. Guðinundur Benediktsson frá Breiðabóli. Hús Jóns Sigurðssonar opið ísienzkum ferðamönnum VEGNA sivaxandi ferðamannastraums verður hús Jóns Sigurðssonar, östervoldgade nr. 12, opið i sumar fyrir islenzka ferðamenn, og aðra, sem áhuga hafa á að skoða húsið. Gefst fólki þarna tækifæri á að lesa islenzk blöð og fá sér kaffisopa eða aðra hressingu. Húsið verður opið daglega frá kl. 14-18 (lokað á mánudögum), en á föstudögum verður op- ið frá kl. 16-22. Þær Ingunn Jónasdóttir og Maria L. Einarsdóttir, sem sjá má hér á myndinni, munu annast starfsemina. KAUPFÉLAGIÐ selur allar fdanlegar vörur d hagstæðu verði. KAUPFÉLAGIÐ kaupir allar landbúnaðarafurðir. KAUPFÉLAGIÐ tryggir líf og eigur yðar hjd Líftryggingafélaginu Andvöku og Samvinnutryggingum. KAUPFÉLAGIÐ greiðir hæstu fdanlegu vexti af sparifé í innlénsdeild sinni. KAUPFÉLAGIÐ veitir viðskiptavinum sínum beztu þjónustu d öllum sviðum viðskipta KAUPFÉLAGIÐ FRAAA NESKAUPSTAÐ T.d. vélar, girkassar, drif i Benz ’59-’64, Opel ’62-’66, Moskvitch ’59-’69, Vauxhail Viva, Vauxhall Victor, og flest annað i eldri teg. bila, t.d. hurðir og boddihlutir i miklu úrvali. Ýmislegt i jeppa. BÍLAPARTASALAN Höfðatúni 10, simi 11397. Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5 laugardaga. FÉLAGSAAENN og aðrir viðskiptavinir f < r; *■ Reynslan hefur sýnt og sannað, að hagkvæmustu viðskiptin gerið þér ávallt hjá kaupfélaginu. BILAVARA- HLUTIR NOTAÐIR VARAHLUTIR í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ FRJÁLST FRAMTAK

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.