Tíminn - 16.06.1974, Side 9

Tíminn - 16.06.1974, Side 9
Sunnudagur 16. júni 1974 riMiNN 9 inn á næstu grösum og reiði þeirra sé mikil og útbreidd, þá mun nýja stærðfræðin blifa i skól- unum. Engin önnur skynsamleg leið er til. Leggja ber áherzlu á að kennsl- an verði betri en hún er nú i mörgum skólum. „Afturhvarf til gömlu reikningskennslunnar væri það versta, sem komið gæti fyr- ir,” segir einn kennslufræði- prófessorinn. Að hans dómi væri það upphafið að endalokum nýju stærðfræðinn- ar ef menntamálaráðherra Slésvikur-Holsteins héldi fast við þá ákvörðun að mengi yrðu að- eins 15% stærðfræðikennslunnar og ef aðrir menntamálaráðherrar fylgdu dæmi hans. „Niðurskurð- ur nýja námsefnisins i minna en fimmta hluta alls kennsluefnisins merkir að umbæturnar stöðvast, áður en þær eru hafnar.” Um er að ræða þá grein nýju stærðfræðinnar, sem allir þekkja nú orðið, am.k. af afspurn, meng- in. Mengi eru mynduð þannig að ýmsir hlutir eru taldir upp eða teknir saman sem heild vegna eins eða fleiri, sameiginlegra eiginleika. Mengi getur að dómi Bertrands Russel i fyrsta lagi verið asni, ráðherra og kálhöfuð. í öðru lagi gæti mengi verið allir þingmenn kristilegra demókrata og kristilegra sósialista saman- taldir. 1 skólastærðfræðinni skipta að- eins mengi af sfðari gerðinni máli. Að umgangast slik mengi hefur þann mikla kost að gera erfið reikningsdæmi, sem þó eru grundvallaratriði, ljós, og á áður óþekktan hátt auðskiljanleg. Að fylla innkaupakörfu, taka af borði eða leggja bfl, er stærð- fræðilega séð, verk, sem hafa áhrif á mengi. Barn, sem virðir fyrir sér fyrst fjögur glös á borði en siðan aðeins tvö, skilur senni- lega betur frádrátt, en ef það væri þvingað til að viðurkenna, að 4-=-2 = 2, eins og hvert annað náttúrulögmál. Raunar eru mengi undirstöðu- kenning stærðfræðinnar, sem skilgreinir töluna á þann hátt, að hún sé sameiginlegur eiginleiki allra mengja með jafnmörgum einingum. Bjartsýnir menn i hópi þeirra, sem hlynntir eru nýju stærðfræð- inni, telja að ágreiningurinn byggist á misskilningi. Ný náms- grein, mengi, sé ekki til, hugtakið eitt sé villandi. Hvorki hefur reikningur verið aflagður né læra börn mengi i fjögur ár, satt er það. Rétt er lika, að mengi eins og þau eru kennd i barnaskólum, eru mjög ólik mengjum, sem kennd eru i háskólum. Það er einnig rétt, að mengi eru aðeins hluti nýju stærðfræðinnar i skyldunáminu. Aðrir hlutar eru relasjónir eða venzl, flatar- málsfræði og undirstöðuæfingar i rökfræði. Barnaskólabörn læra nú margt, sem áður var aðeins kennt i framhaldsskólum. Þau vigta og mæla, nota hringi og keðjur, byggja turna og skipta peningum. Nýju stærðfræðinni bæri vissu- lega að útrýma, ef alvarlegasta ásökun andstæðinga hennar væri' á rökum reist, nefnilega að hún valdi veikindum hjá börnunum. En þessi ásökun er ekki tilhæfu- laus. Mengi valda eins miklum eða litlum veikindum og aðrar náms- greinar. Vafalaust reynir meira á börn nú i skólum, á götunni, i foreldrahúsum og annars staðar en áður. En erfiðleikar þeirra og tjónið, sem þau verða fyrir eiga sér margvislegar orsakir. Orðaaðferðin er einmitt dæmi þess, hve fjarstætt er að ein ákveðin námsgrein eða námsað- ferð geti verið orsök sálrænna og likamlegra truflana, en hún hefur árum saman verið umdeild, og er nú, ásamt mengjum, undir harðri gagnrýni. Með orðaaðferðinni læra byrjendur að lesa og skrifa með þvi að sjá fyrir sér heil orð, en ekki fyrst og fremst með hjálp stafrófsins eins og áður. Það er ekki fyrr en siðar, að þau læra að þekkja einstaka bókstafi. 1 skólum i Þýzkalandi eru fylgjendur orðaaðferðarinnar annars vegar og hljóð- og staf- rófsaðferðar hins vegar hættir að vera i hári saman. Nokkrir upp- eldisfrömuðir hafa þegjandi og hljóðalaust horfið aftur til gömlu „samsetningar” aðferðanna frá „sundurgreinandi” aðferðinni (orðaaðferðinni), en flestir nota hvort tveggja. I millitiðinni hefur verið gengið úr skugga um það visindalega,hverjir hefðu á réttu að standa. Niðurstaðan var: báð- ir. Samt sem áður hverfur ekki andstaðan gegn orðaaðferðinni. Prófessor i barnalækningum i Munchen, Theodor Helbrugge, kom nýlega fram með þá kenn- ingu, að „orðaaðferðin og meng- in” „gerðu of miklar kröfur” til barnanna. „Læknisfræðilegar rannsóknir” hefðu sýnt að „10- 17% nemendanna hefðu fengið lesblindu, eingöngu vegna orða- aðferðarinnar.” Helbrugge geng- ur út frá að 20% nemenda séu lesblindir, flestir af völdum orða- aðferðarinnar. „Óskiljanlega” telur Renate Valtin uppeldisfræðingur þessa kenningu læknisins, en hún hefur skrifað itarlegt verk um les- blindu. „Hvers vegna eru þá 22% barna i Austurriki lesblind, og þar þekkist orðaaðferðin tæp- ast?” spyr Renate Valtin. í V-Þýzkalandi liður um tiunda hvert barn af alvarlegi lesblindu. Þetta eru nemendur, sem skrifa „Dederbed” i staðinn fyrir „Federbett” og „Ferksampl” I stað Verkehrsampel”. Lesblinda hefur verið rannsök- uð itarlega i V-Þýzkalandi undan- farin 15 ár. Sú kenning, að lestrar- og réttritunarerfiðleikar færist stöðugt i vöxt — andstæðingar orðaaðferðarinnar halda þvi gjarna fram — stenzt ekki. Lesblinda þekkist hins vegar oft ar nú en áður, en er ekki tekin fyr- ir heimsku eða leti, — en sá mis- skilningur dæmdi oft börn á röng- um forsendum til vistar i sérskól- um fyrir getulitla nemendur. Lestrar- og réttritunarörðug- leikar stafa nær alltaf, að dómi Renate Valtin, af samspili margra atriða, bæði sálrænna og likamlegra. Meðal mikilvægustu orsaka þeirra eru: óhæfni til að heyra og bera fram nákvæmlega lélegt minni heilaskaðar á meðgöngutima eða við fæðingu. Mikil könnun i Þýzkalandi hef- ur sýnt, hve mikil áhrif umhverf- isins, og þá fyrst og fremst heimilisins geta verið: 72% les- blindra barna eru úr lágstéttun- um, en aðeins 28% úr millistétt. Andstæðingar orðaaðferðar, og einnig mengjakennslu, hirða ekki um niðurstöður slikra rannsókna. Þeir halda fremur fram kenningu Helds barnasálfræðings frá Stutt- gart, sem telur þessar námsað- ferðir ekki samræmast heila barnsins. Hann álitur „sérstakar heilastöðvar taka á ákveðinn hátt við orðum, bókstöfum og tölum”. Hugmyndin um afmarkaðar heilastöðvar hefur fyrir löngu verið afsönnuð með heila- rannsóknum. Vitað er, að I mannsheilanum er aðeins eih skynjamiðstöð, sem tekur við öll- um sýnum, heyrnum og tilfinningum, og sendir siðan boð um þetta til annarra heilastöðva, en ekki er að fullu ljóst hvernig það verður. Alveg eins og það er fjarstætt að nýja stærðfræðin, sé hún ástunduð á skynsamlegan hátt, valdi veikindum, þannig eru einnig áhyggjur margra foreldra af þvi, að börnin iæri ekki að reikna, að öllu ástæðulausar. Þetta hefur einnig verið sannað með mikilli rannsókn undir stjórn stærðfræðingsins og kennslufræð- ingsins Bauersfeld. 40 bekkjum i Frankfurt var kennt að reikna annars vegar með gömlu aðferðinni og hins vegar hinni nýju. í lok rannsóknarinnar höfðu báðir hóparnir nokkurn veginn sömu reikningskunnáttu. En nýja stærðfræðin er ekki kennd við eins góðar aðstæður i öllum skólum Þýzkalands og i tilraunabekkjunum i Frankfurt. Aðurnefnd tilraun til að leysa Súgfirðingar Eflið eigin hag og byggðarlagsins með viðskiptum við kaupfélagið kaupfélag Súgfirðinga SUÐUREYRI Hvaða börn eru á röngum stað? (Mengjaverkefni) EIN ÞEKKTUSTU , , AAERKI [SVflifliBK NORÐURLANDA BATTEFOæ TUDOR 7op RAF- GEYMAR 6 og 12 volta Sönnak og Tudor Rafgeymar jafnan fyrirliggjandi ARMULA 7 - SIMI 84450 r • •- KAUPFELOGIN DOMUS ® M flH fl n m AUSTURSTR/ETI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.