Tíminn - 16.06.1974, Qupperneq 11
Sunnudagur 16. juni 1974 •
TÍMINN
11
„Veslings börnin”.
Kennurum gáfust margskonar
tækifæri til að búa sig undir að
kenna nýju stærðfræðina, siðdeg-
is- og helgarnamskeið og út-
varpskennsla. Oft hlóð snjóbolt-
inn utan á sig: Nokkur þúsund
kennarar fóru á námskeið, og
kenndusiðan nokkrum þúsundum
annarra kennara.
Oft voru haldin námskeið áður
en námsskráin var tilbúin. Viða
voru skólayfirvöld svifasein, en
þeir sem réðu útgáfufyrirtækjum
skólabóka, höfðu veður af gróða-
fyrirtæki. Oft var auðvelt að sam-
ræma námsbækur og námsskrár,
þvi sumir prófessorar i kennslu-
fræði voru höfundar kennslubóka,
og áttu li'ka sæti i nefndum, sem
sömdu námsskrár.
Forleggjarar urðu að vera
snarir i snúningum, ef þeir áttu
að hagnazt á fyrirtækinu, þvi
kostnaður við gerð námsbóka og
hjálpargagna er svo mikill, að
mörgum skólum er ókleift að
Kölncr Stadt
skipta um kennslubók aí'
fjárhagslegum ástæðum.
Innan skamms var markaður-
inn fleytifullur af alltof mörgum
bókum, sem flestar voru
skrifaðar i flýti, og allt of miklu af
öðrum gögnum.
Kennslubækurnar eru mjög
misþungar. Hvernig tengja skal
nýju stærðfræðina með sinni
mengjakennslu venjulegri
reikningskunnáttu er kennaran-
um i sjálfsvald sett. En þvi
öryggislausari og áhugaminni
sem hann er um nýja námsefnið,
þvi háðari er hann kennslubók-
inni. Hins vegar getur kennari,
sem hefur efnið á valdi sinu og
þykir það skemmtilegt, bætt úr
göllum verstu kennslubókar.
Baráttan gegn nýju stærðfræði-
kennslunni hefur gert áhangend-
um hennar ljóst, að margt þarf að
bæta. Ýmislegt bendir nú til að
eitthvað gangi saman með
áhangendum og andmælendum
nýju stærðfræðinnar i Þýzkalandi
áður en langt um liður.
Hér sýnir Skúli Pálsson, Laxalóni Jon M. Lindberg laxaseiði.
LINDBERG
r
I
HEIMSÓKN
Hér á landi er nú staddur haf-
fræðingurinn Jon M. Lindberg,
ásamt konu sinni Barböru, til að
kynna sér islenzka silunga- og
laxarækt og ræða við fiskræktar-
menn. Lindberg er framkvæmda-
stjóri Domsea Farms Inc., sem er
dótturfyrirtæki bandariska fyrir-
tækisins Union Carbide. Megin-
verkefni Domsea Farms Inc., er
laxarækt i sjó. Fer hún fram rétt
norðan við Seattle i Washington-
fylki, en þar er einnig heimili
Lindbergshjónanna.
Jon M. Lindberg gekkst fyrir
stofnun félagsins Domesa Farm
Inc., er ákveðið var i Bandarikj-
unum fyrir þremur og hálfu ári að
gera tilraunir með laxarækt i sjó.
Það er hinn svonefndi Kyrrahafs-
lax sem þeir rækta, en hann mun
litið eitt frábrugðinn Atlantshafs-
laxinum. í ár búast þeir við að
geta selt um 200 tonn af ræktuöum
laxi og næsta ár um sama magn,
en nú eru þeir að breyta tækni
sinni við laxaræktina. Hafa þeir
hingað til notað netabúr, sem
hafa reynzt of stór, þannig að
margur laxinn hefur sloppið út og
lent á öngli veiðimannsins eða i
net fiskiskipanna. Arið 1976 er
hins vegar búizt við að salan á
Kyrrahafslaxinum geti orðið um
fjögur til fimm hundruð tonn. Jon
M. Lindberg hélt fyrirlestur á
Hotel Loftleiðum á fimmtudags-
kvöldið, og var fundurinn vel sótt-
hagkvæmustu viðskiptin
gerið þér ávallt hjá kaupfélaginu.
Seljum allar fáanlegar nauðsynjavörur á hagstæðu verði.
Kaupum islenzkar framleiðsluvörur.
Tryggingaumboð fyrir Samvinnutryggingar og Andvöku.
Greiðum hæstu vexti af sparifé i innlánsdeild vorri.
Það eru hyggindi — sem i hag koma — að skipta við
kaupfélag Steingrímsf jarðar
HÚLMAVÍK
ÚTIBÚ KALDAÐARNESI 0G DRANGSNESI
Reynslan hefur sannað — og mun sanna yður framvegis — að
ur. Þar ræddi hann um laxarækt I
sjó, sýndi kvikmynd frá Seattle
og svaraði fyrirspurnum.
Jon M. Lindberg er sonur flug-
kappans fræga, Charles Lindberg
er fyrstur flaug einsamall flugvél
sinni yfir Atlantshafið 1927.
Charles Lindberg kom hingaö til
lands ásamt konu sinni árið 1933,
er þau voru á sex mánaða ferða-
lagi sinu, til að kanna flugleiðir
yfir Norður-Atlantshaf á vegum
Pan American flugfélagsins. Jon
á tvær systur og tvo bræður, en
sjötta barniö, drengur, var myrt
eftir að hafa verið rænt árið 1931.
Jon, og kona hans Barbara, eru
nú i fyrstu heimsókn sinni hér á
landi og áttu varla til orð að lýsa
hrifningu sinni á landi og þjóð.
Hafa þau þegar skoðað Gullfoss,
Geysi og Þingvelli. Segjast þau
gjarnan vilja koma aftur og hafa
þá börn sin sex að tölu með sér, en
þau eru á aldrinum 7-19 ára.
Hingað komu Lindberg-hjónin i
boði Félags áhugamanna um
fiskirækt.