Tíminn - 16.06.1974, Page 16

Tíminn - 16.06.1974, Page 16
16 f/yill/iiT TÍMINN atTí ílf lll fk f '| ISQ RÍHf ,t Sunnudagur 16. júni 1974 Háspennullnan sést hér liggja yfir hluta húsgrunnsins, en undanþága hefur verið veitt til byggingar þess hluta hússins, sem þegar sést á myndinni. Mun fjarlægðin frá linu að sperrunni, sem næst er,ekki vera meiri en um 5,5 metrar. Timamynd: Röbert HÆTTULEG HÁSPENNULSNA — sem stendur í miðju nýju byggingahverfi við Ártúnshöfðann -hs-Rvik. Ekki alls fyrir löngu gerðist það, að stórt vinnutæki frá islenzkum aðalverktökum lenti i háspennulinu, 66000 volta, sem cr á Ártúnshöfðanum. Engin slys né skemmdir urðu við óhappið, en þetta varð til þess, að menn fóru að lita i kringum sig. Þarna við linuna er verið að reisa mikið stálgrindahús, og er greinilegt, að grunnur þess fer undir linuna. Búið er að reisa nokkrar spcrrur, og snéri blaðið sér til Rafmagns- eftirlitsins með þá spurningu, hvort ekki væri of nálægt linunni ••yggt- Fyrir svörum hjá Raf- mangseftirliti rikisins varð Friðþjófur Hraundal. Hann sagði, að ekki yrði leyft að byggja húsið undir linuna, þ.e. á allan grunninn, en það sem þegar væri risið, fengi að standa þrátt fyrir það, að þar með yrði húsið innan við 10 metra frá linu, sem er lág- mark, ef ekki eru gerðar sérstak- ar varúðaráðstafanir. Sagði Friðþjófur, að þessi lina væri falltraust, svo sem það er kallað, en þá er það undir mati Rafmagnseftirlitsins komið, hvort byggingar eru leyfðar innan 10 metranna. Þetta var á ■sinum tima metið og bygging leyfð, að hluta, en þá kom það upp úr kafinu, að útreikningar borgarverkfræðings varðandi staðsetningu á húsinu voru rang- ar. Munaði þar um 1 metra, og var á ný farið fram á undanágu Kom til greina að láta hús byggjandann rifa eina sperru, en frá þvi ráði var horfið, af ýmsum ástæðum, m.a. vegna lána, sem hann hafði tekið út á vissa stærð af húsu. Var endanlega ákveðið hjá Rafmagnseftirlifeinu að leyfa þvi, sem þegar hetur risið, að standa, en mikiar öryggisráð- stafanir verða gerðar, þannig að ef svo ótrúlega skyldi vilja til að linan félliú húsið, þá „leysi hún út” á stundinni og nálægir menn eiga aðvera algjörlega óhultir. Fleiri aðilar eiga þarna byggingarlóðir, og þrýsta væntanlega framkvæmdir mjög á það að linan verði flutt, en hún flytur Akurnesingum rafmagn og er i eigu Rafmagnsveitna rikisins. Stendur til að fjarlægja linuna og láta linuna frá Geitháls- stöðinni að Korpúlfsstöðum taka við hennar hlutverki. Er sú lina 130 kV, en ekki tilbúin ennþá. Friðþjófur sagði, að fjar- lægðarákvarðanir við háspennu- Hnur væru settar til varnar hús- um, linunni við húsbruna, mönnum á þaki húss eða við vinnu nálægt þvi, og svo til að ná- lægð mannvirkja torveldaði ekki viðhald linunnar. Sagði hann, að Rafmangsefptirlitið hefði fyrir sitt leyfi heimilað byggingu hluta hússins, en ef til vill gætu Raf- magnsveitur rikisins, sem eig- andi linunnar, sagt nei, ef þeim litist svo á, að torveldara yrði að halda linunniviðog reka hana en ella. Að lokum benti Friðþjófur Hraundal á það, að hér á landi væru mun strangari fjarlægðar- ákvæði heldur en annars staðar á Norðurlöndum, en i a.m.k. einu atriði væru ákvæði ekki nógu 'ströng. Heimilt er nefnilega að leggja háscennulinu i þriggja metra fjarlægð frá brekkubrún eða mishæð, þar sem t.d. al- menningur á leið um. Til sölu: LAND/ROVER disel ’64 Útungunarvél fyrir 2000 egg ásamt klakvél 10 kýr, vorbærur. Opið milli 2 og 7. LANDBUNAÐARÞJONUSTAN Skúlagötu 63 — Sími 2-76-76 Til sölu: Vörubill ’67 fóðurflutningabill með nýrri dælu i góðu standi, má einnig nota sem pallbil. Senuiferðabill Ford D 300 með vönduðu húsi, útbúið til hestaflutninga. Opið milli 2 og 7 LANDBÚNAÐARÞJÓNUSTAN Skulagötu 63 — Sími 2-76-76 Heimabyggð aukinn hlut rikisins við hafna- framkvæmdir á minni stöðun- um. sem léttir geysilega undir hjá þeim og gerir þeim kleift að ráðast i stórframkvæmdir. Sama máli gegnir um sjúkrahús og elliheimili, en hér er einmitt byrjað á slikri stofnun, — heilsugæzlustöð/ sem jafn- framt er sjúkrahús og elli- heimili. Þáttur rikisins i þessum framkvæmdum hefur gert okk- ur þetta kleift. Nú, rekstraraf- koma hinna smærri byggðar- laga hefur breytzt mjög til batnaðar við breytingar á lög- unum um tekjustofna, sem gerð voru i tið núverandi rikisstjórn- ar. — Hvað er að segja um at- vinnuástandið hjá ykkur á Ólafsfirði? — Hérna á Ólafsfirði er nú varla hægt að segja, að ástandið hafi verið mjög slæmt, nema hvað vinna var stopul oft á tið- um — en viðhorfin eru allt önnur i dag. Ástandið hefur stórbatnað með komu skuttogarans, vinnan öruggari og jafnari, og þetta á enn eftir að færast i betra horf, þegar annar togari kemur. Frystihúsin hafa verið i upp- byggingu á þessu timabili, og það er augljóst, að atvinnulifið er mikiu styrkara. — Er ekki bjartsýni i mönn- um vegna þessa? — Jú, hérna fjölgar fólki einmitt um þessar mundir, en það hefur verið rólegt i þeim efnum fram að þessu. Nú er mikið byggt hérna á Ólafsfirði, — alls staðar verið að byggja. — Heldur þú ekki, Armann, að byggðastefna rikisstjórnar- innar verði þung á metunum i kosningunum 30. júni? — Ég tel engan vafa á þvi. Þessi rikisstjórn hefur beint meira fja'rmagni út i hin smærri byggðarlög en áður hefur gerzt, og áhrifin af þessu eru nú að koma i ljós. „ólafi treysti ég, Jó- hannessyni" Karl Agústsson.útgerðarmað- ur á Raufafhöfn, sagði okkur að það gegndi eiginlega sama máli með alla staðina fyrir norðan og austan. — Það passar eiginlega sama prógrammið fyrir alla þessa staði, sagði Karl. Atvinnulifið hefur alveg snúizt við á þessum stöðum. Með komu skuttogar- anna er alveg útilokað þetta árstiðabundna atvinnuleysi, og það setur sannarlega sinn svip á mannskapinn. Bjartsýnin hefur kviknað hjá fólkinu á ný og von- irhafa glæðzt. Eftir dauðu árin, þegar sildin hvarf, voru ýmis vandamál, sem við hérna höfum orðið að glima við, syo sem endurbyggingu frystihússins, sem brann, og útvegun fjár- magns. Svona höfum við verið að feta okkur áfram, og sem sagt, á siðustu árum hefur at- vinnuleysisvofunni verið bægt frá. Andrúmsloftið er allt annað en það var. — Er þá ekki mikið um byggingar og heimilisstofnun hjá ungu fólki hjá ykkur á Raufarhöfn? — Jú, nú er ekki um annað að ræða en áframhaldandi búsetu á staðnum, fólk hefur fiutt mikið hingað, og margt ungt fólk hefur sett sig niður og er að byggja yfir sig. Það er mikið um byggingar, eitt var að komast undir þak i gær. Það var byrjað á mörgum húsum I fyrrahaust. — Hvernig hafa aflabrögðin verið hjá ykkur? — Við höfum haft nógan fisk. Það var ágætur afli i vetur, bæði hjá togara og bátum, en hann var tregur i vor. Nema i grá- sleppunni. Það var alveg mok- afli i grásleppunni. Ætli það hafi ekki verið saltaðar einar 1600 tunnur af hrognum. — Og heldur þú ekki, að menn vilji hafa áframhald á þessu ástandi, Karl? — Ég get nú bara sagt fyrir mig, að Ólafi treysti ég, Jó- hannessyni, og það mættu fleiri menn eins og hann Stefán, vin- ur, Valgeirsson vera á þessu þingi. Ég er hræddur um, að það þurfi einurð og festu til þess, að það fari ekki úr böndunum, sem áunnizt hefur. /, Blessaöir verið þiö — þetta er gjörbylting" Guðmundur Jónsson i Grimsey var ómyrkur i máli, þegar við röbbuðum við hann og spurðum hann um atvinnu og horfur á þessu nyrzta byggða bóli landsins. — Hér hefur orðið gjörbylting i atvinnuháttum i tið rikis- stjórnar Ólafs Jóhannessonar. Við höfum endurbyggt allan bátaflotann, hér hefur verið komiðupp nýju fiskmóttökuhúsi með flatningsvél og hausunar- vél og öllum nýtizku tækjum, þeim fullkomnustu, sem nú er vöi á. Það vantar bara mann- skap. Fleiri hendur til að vinna störfin. Það kom hingað Frans- maður, og við tókum hann og drifum hann i vinnu. Það er unnið hérna dag og nótt. — Hvað eru margir bátar gerðir út frá Grimsey núna? — Það eru vist orðnir 14 bát- ar, þar af eru fjórir þilfarsbát- ar, 3 ellefu tonna. — Og hvernig fiskast? — Hér verður allt i fiski. Þeir komu með allt upp i 2 tonn i bát i gær, og svona er þetta dag eftir dag. Aflinn er alltaf að aukast. Ungu mennirnir sækjast eftir að komast á sjóinn. Þetta er þeim i blóð borið. — Og þá er náttúrlega nóg vinna i landi? — Það er unnið eins og hægt er og við höfum rétt undan. En það vantar fólk hingað. Hérna væri gott fyrir svona 140 manns, Forðizt voðann — varizt „viðreisn" x-B en þá kemur að húsnæðisleys- inu. Við erum i vandræðum með húsnæði. — Er ekki verið að byggja i Grimsey? — Jú, hérna eru 3 ibúðarhús i smiðum, eitt komið undir þak. Svo erum við að kaupa tvö tilbú- in hús til að setja hérna upp. Það er alltaf sótt á okkur með að fá að vera hérna, en við getum bara ekki útvegað húsnæði. — Byltingin hefur sem sagt orðið veruleg á liðnu kjörtima- bili á atvinnuháttum Grimsey- inga? — Blessaðir verið þið þetta er gjörbylting. Þetta er allt annað núna. — Heldurðu, að Grimseying- ar hafi áhuga á, að kjósa aðra rikisstjórn yfir sig? — Æ, nei, það held ég ekki — það skil ég ekki. Við stöndum saman, Grimseyingar i flestum málum. Ég held það séu eitt- hvað tveir á öðru máli, en við hinir styðjum við bakið á Ólafi Jóhannessyni og hans mönnum eftir fremsta megni. OPIO Virka daga Kl. 6-10e.h. Laugardaga kl. 10-4 e.h. ..Ö<BILLINN BÍLASALA HVERFISGÖTU 18-sími 14411 Eingöngu: VÖRUBÍLAR VINNUVÉLAR ‘^DS/OÐ^ SÍMAR 81518 - 85162 SIGTÚNI 7 - REYKJAVÍK SIG. S. GUNNARSSON ^Sbílaleigan felEYSIR CAR RENTAL V24460 í HVERJUM BÍL PIONEER ÚTVARP OG STEREO CASETTUTÆKI LOFTLEIÐIR BÍLALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 LOFTLEIÐIR Viðgerðir á fólksvögnum Höfum til sölu fólksvagn. Skiptivélar frá Danmörku. Bílaverkstæðið EKILL BRAUTARHOLTI 4, SÍMAR: 28340-37199

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.