Tíminn - 16.06.1974, Page 21

Tíminn - 16.06.1974, Page 21
20 TÍMINN Sunnudagur 16. júni 1974 Sunnudagur 16. júni 1974 ÞAU HAFA SÉÐ VÍK VAXA ÚR GRASI — rætt við Einar Erlendsson og Þorgerði Jónsdóttur í Vík í Mýrdal t- Sá maður, sem hvað gjörst þekkir sögu Vikur i Mýrdal, er Einar Er- lendsson, faðir Erlends Einarssonar forstjóra Sambands islenzkra samvinnufélaga. Einar fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Vikur 1898, þá þriggja ára gamall, ólst þar upp og hefur búið þar alla tið. Þegar hann kom til Vikur, var þar aðeins eitt ibúðarhús neðan Bakka, sem kall- að er. Einar þekkir þvi manna bezt til vaxtar og viðgangs kauptúnsins, og á þar raunar sjálfur ærinn hlut að máli, þvi að hann gegndi um langt skeið ábyrgðarmiklum og giftudrjúgum störf- um i þágu Kaupfélags Vestur-Skaftfellinga, og þar með Vikur og héraðsins alls, þvi að kaupfélagið hefur verið burðarásinn i atvinnu og félagslegum framförum þar eystra og um það sammerkt með fjölda annarra kaupielaga og samvinnufyrirtækja viða um land. Þvi lá beint við að sækja heim þau hjón Einar og konu hans, Þorgerði Jónsdóttur, þegar blaðamaður Timans átti leið um Vik i Mýrdal fyrir skömmu. I viðtalskorni þvi, sem hér fer á eftir, er aðeins vikið að fáum þáttum i hinu fjölþætta ævistarfi Einars, enda yrði það langt mál, ef vikja ætti að öllu, þvi að af mörgu er að taka. — Ég er i heiminn kominn að Engigarði i Mýrdal hinn 1. febrú- ar 1895, sagði Einar, þegar við höfðum komið okkur fyrir við stofuborðið á heimili þeirra hjóna. Foreldrar minir voru þau Ragnhildur Gisladóltir og Er- lendur Björnsson eða Bjarnarson, eins og hann skrifaði nafnið sitt. Ég var einn fimm systkina, sem á legg komust. — Þú komst ungur til Vikur? — Já, þegar ég var þriggja ára fluttumst við búferlum til Vikur, og þar reisti faðir minn sér ibúðarhús, sem var annað ibúðar- húsið neðan Bakka. Þar var að- eins eitt hús fyrir, sem Einar Hjaltason reisti, en þeir voru bræður Hjalti faðir Einars og Gisli afi minn. Faðir minn var smiður, og Halldór Jónsson bóndi, kaupmað- ur og útgerðarmaður mun hafa eggjað föður minn á að flytjast til Vikur og setjast þar að. 1 Vik stundaði faðir minn smiðar og sjósókn. — Ólikt hefur verið um að litast i Vik þá og nú? — Hætt er nú við, segir Einar og klmir. Þegar ég man fyrst eftir mér, voru hér sárafá hús, fjögur eða fimm, að mig minnir. Siðan óx byggðin smátt og smátt og fólki fjölgaði. Atvinnu höfðu menn fyrst og fremst af verzlun- inni og sjóróðrum, þar til þeir lögðust af um 1941 eftir stórslys, sem varðum þær mundir. Annars voru slysfarir tiðar, og margir áttu um sárt að binda af þeirra völdum. — Þú hófst starfsaldur þinn ungur að árum? — Ég byrjaði innanbúðar hjá Bryde, þegar ég var á þrettánda ári. Aðdragandi þess er það atvik, sem mér er hvað minnisstæðast úr bernsku minni. Þetta var 1907, og þannig var, að ég var heima við og var að skera pabba nef- tóbak eitt sinn sem oftar. Þá kemur i heimsókn Gunnar Ólafs- son verzlunarstjóri hjá Bryde, en hann var kunningi foreldra minna og kom stundum heim. Ég heyri að þeir fara að tala saman, faðir minn og Gunnar, og legg við eyr- un, þvi að ég var forvitinn eins og unglingum er titt. Þá heyri ég að Gunnar segir við pabba: ,,Á ég ekki að taka strákinn i búðina?” Mér varð svo mikið um, að ég vissi hvorki i þennan heim né annan. — Það var nú ekki nema von að þér yrði mikið um, unglingnum, skýtur Þorgerður inn i. Það var litið svo upp til búðarmannanna, þeir þóttu næstum eins og æðri verur, finir og stroknir með hvit- an flibba. — Já, það er kannski nokkuð til I þvi, segir Einar og brosir, þegar honum verður hugsað til þessa. — Jæja, heldur hann áfram, ég byrjaði i mai og var i búðinni fram I slátt, og kaupið var að mig minnir 25 krónur þennan tima. Næstu árin vann ég hjá Bryde, sem reyndar hét Ingjald Peter Bryde fullu nafni, á sumrin og gekk i skóla á veturna, þangað til 1914, en þá var ég eitt ár hjá Guð- laugi Br. Jónssyni, sem rak verzlun hér i Vik og i Vestmanna- eyjum. — Samskipti Mýrdælinga og Eyjamanna hafa verið mikil á þessum árum, eða hvað? — Já, það voru alltaf mikil samskipti þeirra á milli, sérstak- lega eftir að vélbátarnir komu til sögu. Mjög margir fóru i útver til Eyja. — Hvenær hófstu störf hjá kaupfélaginu? —1916 fór ég að vinna hjá kaup- félaginu, en hafði þá verið eitt ár við störf hjá Þorsteini Þorsteins- syni, sem verið hafði verzlunar- stjóri hjá Bryde, en siðar keypt verzlunina. Nú, siðan vann ég all- an minn starfsaldur i þágu kaup- félagsins, þar til ég hætti fyrir fá- um vikum, enda er heilsan farin að bila, segir Einar. Þvi má skjóta hér inn, að eng- inn færsamt bilbug á honum séð, þótt hann sé nú nær áttræður, enda kom i ljós siðar i samtali okkar, að hann sinnir enn ýmsum verkefnum fyrir kaupfélagið, sem eru þess eðlis, að hann getur fengizt við þau heima fyrir. — Kaupfélagið hefur með öðr- um orðum verið tiu ára, þegar þú hófst störf þar, Einar. Kaupmenn hafa væntaniega litið kaupfélagið heldur óhýru auga á þessum ár- um, eða hvað? — Auðvitað litu kaupmenn kaup félagið hornauga, en þó get ég ekki sagt, að verulegir úfar hafa risið með þeim framan af, en sið- ar versnaði sambúðin, þegar póli- tik hljóp i málið. Benedikt Gislason frá Hofteigi fór um þessar mundir um landið og hélt fundi á vegum Sambands- ins. Einhverju sinni átti að halda slikan útbreiðslufund i Vik, en kaupmenn vildu fá að sitja hann og höfðu uppi nokkurn liðssöfnuð, væntanlega til þess að spilla fundinum, þannig að brugðið var á það ráð að halda fundinn úti i Reynishverfi, til þess að fá fundarfrið. — Þú stundaðir einnig sjóróðra héðan frá Vik? — Já, ég var nokkuð til sjós, og var m.a. nokkrar vertiðir for- maður á bát, sem við áttum fjórir saman og hét Svanur, sexróinn bátur. Hásetarnir voru verzlunarmenn hér, þvi að litið var að gera i verzlunum á veturna. Oft var teflt á tæpasta vaðið i fiskiróörum, og einnig við út- og uppskipun á vörum hér við sand- inn. Landleiðin opnaðist ekki fyrr en um 1940, en áður var öllum afurðum skipað út héðan af sandinum. Ég minnist þess, að sérstaklega var erfitt að skipa út kjötinu, sem var i 160 kilóa tunnum. Þær voru fluttar á hestum fram að sjó og skipunum lagt eins nærri landi og tök voru á. Síðan var sá háttur á hafður, að tveir menn tóku tunn- una á milli sin og gösluðust með hana út að bátnum. Stærstu skip- in tóku allt að 30 tunnum i hverri ferð. — Ekki getum við minnzt svo á vöruflutninga, að við látum ekki að einhverju getið hins fræga skips, Skaptfellings? — Nei, það er af og frá. Skapt- fellingur var- rösklega 60 tonna skip i eigu héraðsbúa, og var um það félag, sem fjöldi manns átti hlut að. Skaptfellingur kom að miklum notum. Hann tók stund- um furðu mikið, þótt hann væri ekki stærri en þetta. Eitt sinn kom hann t.d. með 90 tonn af salti hingað austur, en þá var hann nú hlaðinn. Annars var það svo, að einu sinni á ári kom hingað flutn- ingaskip með vörur beint að utan, en væri ekki hægt að losa það hér vegna brims, var þvi siglt til Reykjavikur og vörunum skipað upp þar, og þær siðan sóttar á Skaptfellingi. Oft var ekki hægt að skipa upp eða út langtimum saman vegna brimróts við sand- inn. Ég minnist þess t.d., að einu sinni var ekki hægt að afgreiða Skaptfelling i fimm vikur sam- fleytt. Skaptfellingur kom hingað 1918. Siðar keypti Helgi Benediktsson hann, og öll striðsárin var hann i förum til Englands. — Þú vékst að þvi hér að fram- an, Einar, að frændi þinn og nafni Hjaltason hefði fyrstur reist hér ibúðarhús neðan Bakka, en siðan faðir þinn. En hér hafði þá verið rekin verzlun um nokkurt skeið? — Já,hér voru auðvitað bæirnir Suður-Vik og Norður-Vik. 1896 reisti Einar Hjaltason svo ibúðar- hús hér neðan Bakka, og 1898 fluttumst við hingað. Þá hafði verið verzlun hér um alllangt skeið. Bryde flutti fyrst hingað gömul hús frá Eyjum, en 1895 byggði hann nýtt hús, þar sem nú er búð kaupfélagsins. Siðan fór fólk að tinast hingað smátt og smátt, og má segja að fólki hafi fjölgað hér nokkuð fljótt. Eftir Kötlugosið 1918 komu t.d. nokkrir, aðallega úr Álfta- veri. Eftir það var fjölgunin ákaf- lega hægfara, og raunar litil sem engin á timabili upp úr 1920. Svo eflist hér þjónusta ýmiss konar og verzlun, aðallega á veg- um kaupfélagsins, sem var stofn- að 1906 eins og við drápum á áð- an. — Þú hefur auðvitað farið á fjall á yngri árum, Einar? — Já, ég seig töluvert á árunum 1921-’27. Þegar farið var i fjall, voru menn sjö saman. Sex sátu undir, sem kallað var, og einn seig I tvöföldum vað. Þetta kölluðust stórsig. Lengsta sigið var 96 faðmar. Maður hafði mikl- a skemmtun af þessu og svaf ekki nóttina áður fyrir tilhlökkun. Faðir minn og nokkrir aðrir höfðu Útfjallið, sem við köllum, á leigu. Farið var i fjallið i ágúst i 17. og byrjun 18. viku sumars. Helgin, þegar sigum lauk, var kölluð fýlahelgin. Fýllinn var rotaður með þar til gerðu verkfæri, sem kallað var fýlaklappa. Þetta var tréskaft með járnhaus á öðrum endanum, einna likast smáexi. Á hinum endanum var ól, sem menn brugðu um úlnliðinn. Stundum stóð svo á, að ekki var hægt að koma klöppunni við, segir Einar og hlær, en þá varð maður bara að bita fýlinn i hausinn. Oft var ljót á manni verkunin, þvi að maður varð hálfgegndrepa af lýsi eftir daginn og þurfti að þrifa sig allan hátt og lágt. — Þeir létu sig nú hafa það sumir sigamennirnir að sofa i gallanum allan veiðitimann, seg- ii Þorgerður, en þá urðu þeir lika að gera sér að góðu að sofa úti i hlöðu, þvi að lyktin af þeim var miður góð, þegar þeir komu heim, allir útataðir i spýju, sem Mýrdælingar kalla fýlabrýlu. — Já, það var ljóta verkunin, segir Einar brosleitur. Nú, fengn- um var skipt i sjö hluti, og ég minnist þess, að stundum var veiðin svo góð, að 150 komu I hlut. Fýllinn var svo verkaður þann- ig, að fyrst var hann reyttur og sviðinn og siðan saltaður. Eftir svona hálfan mánuð var hann farinn að taka saltið, sem kallað var, og þá mátti fara að gæða sér á honum. — Fýllinn hefur aldrei verið verkaður á annan máta, reyktur t.d.? — Nei, fýllinn var ekki reyktur, en lundinn var það aftur á móti. — En þið hafið lika tekið fýl að vetrarlagi? — Já, mikið var veitt af vetrar- fýl I Vikurklettum og Reynis- hverfi. Sumir lifðu mikið til á honum. Þá var byrjað i nóvember og haldið áfram veturinn út. Vetrarfýllinn var veiddur I háf. Það verkfæri var u.þ.b. sex álna langt skaft með högld á endanum, og I hana gengu s.k. spækur, þannig að þetta var likast vaffi. Að framan var strengt selgarn Pétursey Ifjöruborftinu I Vik. Hún hefur nú fyrir alllöngu fengift samastaft á byggftasafninu aft Skógum. Hér má sjá Farsæi f lendingu vift Vfkursand. Ekki var heiglum hent aft stunda sjö frá Vfk eins og ráfta má af þessari mynd, og var þó oft verra f sjó en f þetta sinn. TÍMINN 21 ■iPawiUÞ..'. , 1--71* Frú Þorgerftur Jónsdóttir og Einar Eriendsson á heimili sfnu í Vfk Tfmamynd Róbert, eða snæri og poki festur á, og i honum hafnaði fuglinn, þegar slegið var fyrir hann. Menn sátu á vissum stöðum, sem kallaðar voru setur, en það fór nokkuð eftir vindátt, hvar bezt var. Oft var mikið af fýl við berg- ið i austanátt. Sagt var að fýllinn væri við, þegar hann flaug mikið við bergið. — Jæja, Einar, nú höfum við litillega vikið að fáeinum þáttum úr ævi þinni, en þó höfðum við ekki enn minnzt á þann, sem er hvað veigamestur. — Rétt er það, segir Einar, og litur hýru auga til frú Þorgerðar. — Þú ert Mýrdælingur, Þor- gerður, eins og Einar, eða er ekki svo? — Jú, ég er Mýrdælingur, og hef alið allan minn aldur i Mýrdaln- um, og þá lengst af i Vik, nema hvað ég var einn vetur á Patreks- firði. Foreldrar minir voru þau Jón Brynjólfsson og Rannveig Einarsdóttir. Ég fæddist hinn 20. janúar 1897 að Höfðabrekku, og átti þar heima, þangað til ég var niu ára, en þá fluttumst við til Vikur. —- Einar lét þess getið' áðan, Þorgerður, að sá atburður úr bernsku hans, sem honum væri hvað minnisstæðastur, væri að- dragandi þess, að hann gerðist innanbúðarmaður hjá Bryde. Nú langar mig til þess að spyrja þig, hvaða atvik sé þér minnisstæðast úr uppvexti þinum. —■ Já, ýmislegt er manni auð- vitað minnisstætt, en ég get nefnt eitt atvik, sem brenndi sig svo inn I minni mitt, að ég hef aldrei gleymt þvi siðan. Það er e.t.v. ekki stórfenglegt i augum ann- arra, en segir þó að minu áliti töluverða sögu. Þannig var, að á meðan ég þótti of ung til annarra meiri háttar verka, rak ég og sótti kýrnar. Við vorum tvær saman um þetta verk, ég og stalla min úr nágrenninu, sem var á svipuðu reki, og rétt er að geta þess strax, að hún var tökubarn. Jæja, i þá daga fékk maður að eiga upptin- ingslagðana sina, og það var eitt sinn að við stöllur fundum nærri hálft reyfi. Nútimabörnum þætti sennilega litið til þess koma, sem hægt er að fá fyrir slikt, en okkur þótti heldur en ekki hafa hlaupið á snærið hjá okkur. Þegar við höfð- um skiiað kúnum af okkur, fórum við fyrst heim til hennar og vor- um glaðar mjög og sýndum hús- móður hennar reyfið eða filuna, sem við köllum. Þá segir konan óðara, að þetta hljóti að vera af gemsunum þeirra, sem sóttir hafi verið inn á afrétt i gær, og tók af okkur ullina. Okkur sárnaði þetta óskaplega, og fátt hefur brennt sig eins inn i minni mitt. Og mér finnst þetta auk þess sýna hvilik- ur munur er á tiðarandanum þá og nú, þvi að ég hygg, að ungling- um nú þætti harla litið til þessa fundar okkar koma. Mér datt það lika i hug, þegar hann Einar var að tala um, hvaða kaup hann hefði fengið, þegar hann byrjaði hjá Bryde, eða 25 krónur fyrir nokkra mánuði, að ekki fékk ég nema átta krónur á mánuði, þegar ég fór fyrst i vist, og var ég þó uppkomin mann- eskja, þegar það var. — Fundum ykkar Einars hefur borið saman hér i Vik? — Já, við vorum leikfélagar hér, og þar kom að við giftum okkur ...24. júli 1920, skýtur Einar inn i. — Já, og svo reistum við okkur hús hér I Vik 1922 og eignuðumst þrjú börn, þau Erlend, sem nú er forstjóri Sambandsins, Steinunni, sem búsett er i Los Angeles, og Erlu, sem á heima á Sauðárkróki. Þegar hér var komið sögu var orðið áliðið kvölds og við kvödd- um þau hjónin og þökkuðum þeim fyrir ánægjulegt spjall og góðan viðurgjörning og héldum af stað áleiðis til Reykjavikur i nætur- myrkrinu. Erlendur, faðir Einars, var smiftur ágætur og smiftafti m.a. mörg áraskip. Hift mesta þeirra var Farsæli, sem hann smiðaði 1924. Þvi miður hlaut Farsæll sömu örlög og mörg önnur ágæt skip — þegar hætt var að nota hann, var ekki um hann hirt, svo að nú er hann týndur og tröllum gefinn.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.