Tíminn - 16.06.1974, Síða 24

Tíminn - 16.06.1974, Síða 24
24 TÍMINN Sunnudagur 16. júni 1974 launung að ræða. Við höfum ekkert að fela. Hvað áttu við? Jón varð hálffúll við raddblæ hans. — Ég meinti svosem ekkert illt! Af hverju ertu að reiðast? Ég átti bara við það, að Eiríkur er að bralla eitthvaðgegn honum Ólafi. En þaðtekur því ekki að vera að hugsa um það, sem maður þekkir ekki. Hann gekk aftur að stakkstæðinu. — Þú hugsar þá um bátinn og f iskinn? hrópaði Jónas á eftir honum. — Það skal ég gera, svaraði hinn. Jónas hélt áfram eftir götunni. Honum fannst hann hafa sett málið í klípu. Reykjavík! Þegar Jón hefði hugsað málið og rætt um það við konuna sína, myndi hann áreiðanlega koma með efasemdir, því að það var i rauninni afskaplegá vitlaust af manni að ráðast í slíka ferð, yfir tvö stórfljót og ótal f jöll, þegar Ingólfur var svo skammt undan. Bakarinn var einmitt að taka brauðin út úr ofninum: — Er nokkuð að f rétta af Eiríki, sagði hann, um leið og hann fékk Jónasi brauðið og tók við peningunum. — Hvað ætti það að geta verið? svaraði Jónas. — Það var verið að tala um það í gærkvöldi á Gisti- heimilinu, að hann hefði farið leiðar sinnar upp árdalinn og væri ekki kominn aftur. — Þú skalt bara segja þeim, að þeir skuli hugsa um sig og sín mál, sagði Jónas gremjulega. Hann Eirikur er áreiðanlega færari um að sjá um sig en f lestir aðrir, og þó að hann skreppi í nokkra daga i burtu til að huga að málum sínum, veit hann áreiðanlega, hvað hann er að gera. Hann fór út úr búðinni. Hér skutu nýir erfiðleikar upp kollinum. Hvernig átti að vera hægt að forðast augu og tungur Skarðsstöðvar? Eftir viku myndi allt plássið suða yfir fjarveru Eiríks, og það yrði ógjörningur að koma honum frá Fulmar til einhvers staðar utar á ströndinni, án þess að þessi mauraþúfa kæmist að raun um það. Og ef Skarðsstöð kæmist að því sanna, myndi héraðslæknirinn í Stykkishólmi fá að vita allan sannleikann. Þegar hann kom út á götuna, hitti hann Helgu Þórðar- dóttur, sem var á leið upp að húsinu þeirra. Þegar Helga kom á morgnana, voru mennirnir tveir alltaf komnir á fætur og venjulegast farnir. Hún ' bjó um rúmin, lagaði til, kveikti undir olíueldavélinni og hitaði morgunverð, einnig bjó hún til kvöldverð og vaskaði upp, og fyrir þetta tók hún ekki nema krónu á viku. Auk þess hugsaði hún um húshaldið heima hjá sér. Þarna kom hún með sóp í annarri hendinni og mjólkur- könnu í hinni. Hún var ein af þessum heiðarlegu, tryggu og þolinmóðu manneskjum, sem aldrei kvarta eða mögla, og maður rekst stöku sinnum á. Það er eins og drottinn skapi slíkar manneskjur öðrum til eftirbreytni — en næsta oft mæta þær ekki einu sinni skilningi. Allt frá upphafi hafði Jónas haft áhuga á henni. Við snertingu hennar færðistallt í lag. Hún var sál hússins og þegar hann hitti hana núna, var eins og hann hefði f undið leið út úr öllum sínum vandræðum. Á samri stundu hvarf honum sá kjánagangur að læsa húsinu til þess að hún gæti ekki séð tómleikann og ruslið inni. Hann fór heim með henni, og þegar hann hafði opnað, sagði hann: — Helga. Eirfkur er farinn f rá Skarðsstöð, og hann get- ur aldrei komið hingað aftur, og hann er á stað ekki ýkja langt í burtu héðan, sem ég má ekki nefna. Hann er í miklum nauðum staddur. Þú sérð, að ég færði honum teppin okkar, sængurnar og allt annað sem ég gat f undið. Helga litaðist um í herberginu, þar sem eftir voru að- eins rúmstæðin, stólarnir og borðið, einhver fatnaður og veiðarfæri. Hún var föl, og það fóru viprur um varir hennar, þegar hún sneri sér að Jónasi Það var rétt eins og ógæfan hefði hent hana. — Og hann kemur ekki aftur? Aldrei framár? spurði hún. — Nei, aldrei framar. — Og hvað ætlast þú nú fyrir? spurði Helga. Hvað ætlar þú að gera hérna i þessu tóma húsi, án hans? Þið tveir voruð eins og einn maður. Þetta er mikil ógæfa. — Og Svala — unnusta hans — veit hún þetta? — Nei, hún veit ekkert ennþá. Og það er hvað erfiðast f yrir mig að þurfa að segja henni það. Þú hef ur rétt fyrir þér. Þetta er mikil ógæfa. Og ég hef satt að segja ekki hugsað mér, hvað ég get gert án hans. TfmTnrrsagan 22-ctc Elín Hann settist á stól við dyrnar og fór að lífa á færi, rétt eins og hann hefði einhvern áhuga á þeim. Helga hafði sett könnuna á borðið og stillt sópnum upp við stól. Nú stóð hún við borðið og horfði á Jónas. En það var eins og hún sæi hann ekki, heldur horfði í gegnum hann og lengra út. Hún hafði ekki spurt, hvaða ógæfa hefði komið fyrir Eirík, hún lét sér nægja orð Jónasar fyrir því, að hann kæmi aldrei aftur. — Þú skilur það, Helga, sagði Jónas eftir nokkra þögn, — að enginn má vita af þessu. Enginn, nema ég og þú og Svala. Ekki einu sinni Stefán Gunnarsson má fá vit-' neskju um þetta. X'Svo ég nái i \ Ha, ætlar þú trp er líera^ Af "\mann þegar ég ) ekki að vera matreiðslu. fullorðiný rauðsokka? Auðvitað. En hvað er j varið i að vera rauð- / sokka ef ég á engan mann til að geta sagt það? Sunnudagur 16.júní 8.00 MorgunandaktSéra Pét- ur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög-Lllðra- sveit konunglega lífvarðar- ins í Kaupmannahöfn og Sinfóniuhljómsveit Berlinar leika. Stjórnendur: Robert Svansö og Robert Stolz. 9.00 Fréttir. CJtdráttur úr for- ustugreinum dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 11.00 Messa i Frlkirkjunni i Hafnarfirði Prestur: Séra Guðmundur Óskar Ólafs- son. Organleikari: Askell Jónsson. 12.15 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. Tónleikar. 13.25 Mér datt það I hug Séra Bolli Gústafsson i Laufási rabbar við hlust- endur. 13.45 Islenzk einsöngslög.Frið- björn G. Jónsson syngur lög eftir Jóhann Ó. Haraldsson, Ingunni Bjarnadóttur, Sigurð Þórðarson og Svein- björn Sveinbjörnsson. Ólaf- ur Vignir Albertsson leikur á pianó. 14.00 Flóra.báttur með blönd- uðu efni i umsjá Gylfa Gislasonar. 15.00 Miðdegistónleikar: Tón- list eftir Pergolesi 16.00 Tiu á toppnum. örn Petersen sér um dægur- lagaþátt. 16.55 Veðurfregnir. Fréttir. 17.00 Barnatimi. Fjölskyldu- tónleikar Sinfóniuhljóm- sveitar tslands frá 4. mai. Leikin verða lög eftir Bizet, Paul McCartney, Milhaud og Mincus. Stjórnandi er Páll P. Pálsson. Einsöng- vari með hljómsveitinni er Ruth Magnússon. Einleik- ari: Reynir Sigurðsson. Kynnir: Þorkell Sigur- björnsson. 18.00 Stundarkorn með Gáchinger-kórnum sem syngur lög eftir Johannes Brahms. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Tilkynningar. 19.25 Eftir fréttir. Jökull Jakobsson við hljóðnemann i þrjátiu og fimm minútur. 20.00 Frá listahátið: Daniel Barenboim leikur á planó Siðari hluti tónleikanna i Háskólabiói á sunnud. var. 20.35 t þotu til Miklagarðs Heiðdis Norðfjörð les frá- sögu eftir Katrinu Jósefs- dóttur. 20.50 Serenata nr. 2 I A-dúr op. 16 eftir Johannes Brahms Filharmóniusveitin i Dres- den leikur, Heinz Bongartz stj. 21.25 Vorþeyr Einar Guð- mundsson les þýðingu sina á smásögu eftir Selmu Lager- löf. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Danslög Heiðar Astvaldsson velur og kynnir lögin. 23.25 Fréttir i stuttu máli. Dagskrárlok. Þriöjudagur 18. júní 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. landsm.bl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55: Séra Garðar Þorsteinsson prófastur flytur (a.v.d.v.) Morgunstund barnanna kl. 8.45: Sverrir Hólmarsson byrjar lestur á sögunni „Krummunum” eftir Thög- e.r Birkeland i þýðingu Skúla Jenssonar. Morgun- leikfimikl. 9.20. Tilkynning- ar kl. 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunpopp kl. 10.25: Morguntónleikar kl. 11.00: Beverly Sills syngur ariur eftir Gustave Charpentier, Ambroise Thomas og Gia- como Meyerbeer með kór og Kgl. filharmóniusveit-

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.