Tíminn - 16.06.1974, Side 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 16. júni 1974
með ungu fólki með ungu fólki með ungu
r ' , ... .....—.1^
„Það er hægt að mat-
reiða skemmtiefni á
svo margvíslegan hátt"
— Rætt við Jónas R. Jónsson
Jónas R. Jónsson er
islendingum að góðu
kunnur. Hér fyrr ó árum
söng hann með mörgum af
vinsælustu hljómsveitum
landsins/ t.d. Flowers og
Náttúru/ og vann sér alls
staðar hylli sem góður
söngvari. Um hríð söng
hann með félaga sínum
Einari Vilberg, og gerðu
þeir m.a. garðinn frægan,
þegar þeir tóku þátt i söng-
lagakeppni i Japan á
siðastliðnu ári.
Jónas er sonur hjónanna
Margrétar Sveinsdóttur og
Jóns Aðalsteins Jónas-
sonar. Eiginkona Jónasar
er Helga Benediktsdóttir,
og eiga þau eina dóttur,
Margréti.
I komandi alþingiskosn-
ingum, 30. þessa mánaðar,
er Jónas í framboði fyrir
Framsóknarf lokkinn, og
skipar hann 6. sæti listans í
Reykjavík.
Jónas R. Jónsson hefur
verið umsjónarmaður vin-
sælustu skemmtiþátta,s
sem íslenzka sjónvarpið
hefur boðið upp á. I fyrra:
Kvöldstund í sjónvarpssal,
og í vetur: Ugla sat á
kvisti. Hefur Jónas, og
hans samverkamenn hjá
sjónvarpinu, hlotið mikið
lof fyrir þættina, og óhætt
er að segja, að þeir séu vel
að því komnir.
Skemmtiþættir hafa átt erfitt
uppdráttar hér á landi, og á
fyrstu árum sjónvarpsins voru
margar tilraunir geröar, en allar
mistókust þær meira og minna.
Þaö var ekki fyrr en Jónas tók aö
sér umsjón meö skemmtiþáttum
fyrir sjónvarpiö, aö árangurinn
varö fyrir ofan meöallag. Og meö
fenginni meiri reynslu á þessu
sviöi, héldu þættirnir áfram aö
batna, og þegar þeir eru bornir
saman viö þá erlendu skemmti-
þætti.sem sjónvarpiö hefur sýnt,
má hann vel viö una: megum viö
raunar öll vel viö una.
t vetur hefur Jónas haft þaö til
siös I „Uglunni” aö ræöa iitillega
viö sina skemmtikrafta, og þá i
leiöinni lagt fyrir þá nokkrar
spurningar. Mér fannst þvi vera
kominn timi tii aö sækja Jónas
heim og biöja hann aö svara
nokkrum spurningum fyrir
siðuna.
Jónas býr eins og sakir standa I
forcldragaröi, þvi afhendingu
húss hans, sem er I byggingu,
hefur seinkaö og i fá hús aö
venda, þvi aö fyrri Ibúöin var
seld.
Ilann er aö sporörenna siöasta
bitanum, þegar ég kem i gættina.
Þá sezt ég bara og biö, horfi á
regnið berja rúðurnar og þigg
kaffibolla úr höndum húsfreyj-
unnar. Svo kemur strákurinn og
fær sér lika kaffi, — og áöur en
varir er viötaliö byrjaö. Og þá er
eins gott aö fylgjast nægilega vel
meö frá byrjun.
„Kjarni málsins er
hunzaður og eingöngu horft I
formsatriðin.”
— Ertu hættur aö vinna hjá
sjónvarpinu?
— Þegar vetrardagskránni
lauk, var minum samningi einnig
lokiö, og ég veit ekki hvort ég held
áfram, — þvi ég hef fengið neitun
hjá sjónvarpinu um fastráðningu.
Hins vegar hefur mér verið boðið
að halda eitthvaö áfram sem
lausráöinn starfsmaður.
— A hvaða forsendum færöu
neitun um fastráðningu?
— Sjónvarpiö gerir þá kröfu, að
ég hafi stúdentsmenntun til að fá
inni sem fastráðinn starfsmaður.
Þeir hafa nefnilega þann háttinn
á að senda sina starfsmenn i
menntun erlendis, en vegna þess
að ég hef ekki stúdentspróf,
segjast þeir ekki geta sent mig
utan til menntunar.
Hins vegar benda þeir mér á
„greiðfæra” leið: Þú getur farið
út og menntað þig á eigin kostnað,
t.d. i stjórn upptöku, — og þá
yrðum við fyrstu mennirnir til að
taka á móti þér.
Hér er stúdentsprófið, sem þeir
horfa svo mjög i, allt i einu hætt
að gilda.
Aðalatriðið hjá þeim virðist
vera þetta: Ef þú hefur stúdents-
próf, borgum við allan kostnað.
Ef þú hefur ekki stúdentspróf,
borgar þú sjálfur allan kostnað.
Dæmi svo hver sem vill. Kjarni
málsins er hunzaður og eingöngu
horft i formsatriðin. Ég vil taka
það skýrt fram, að með orðum
minum er ég ekki að deila á einn
eða neinn persónulega.
— Þú vildir kannski segja
okkur frá muninum á lausráðn-
ingu og fastráöningu?
— Þá vetur, sem ég hef séð um
skemmtiþætti fyrir sjónvarpið,
hef ég fengið fasta greiðslu fyrir
hvern þátt, en ekki verið á föstum
viku- eða mánaðarlaunum.
Sem dæmi um greiðslu sjón-
varpsins til min má nefna, að i
einum þættinum fékk bassa-
leikari, sem einnig var stjórnandi
hljómsveitar, tæplega 150% hærri
greiðslu fyrir sinn skerf til
þáttarins en ég fékk fyrir umsjón
hans. Og söngvari, sem syngur
eitt lag, fær tæpan helming af
launum minum.
Lausráðning þýðir einnig enga
eftirvinnu, engar tryggingar, og
ég hef ekki fengið neitt orlof.
1 sambandi við orlofið er rétt að
geta þess, að mér þykir það furðu
sæta, aö rikisfyrirtæki skuli ekki
greiða orlof ofan á öll laun, — þar
sem þaö atriði er komið inn i lög.
Ég hef itrekað leitað réttar mins i
sambandi við þetta mál, — en
svörin eru á þá leið, að orlof til
min sé ekki einu sinni til umræðu.
Þá er vinnuaðstaðan fyrir
neðan allar hellur, og ég hef til að
mynda ekki skrifborð. Raunar
má segja, að þættirnir séu unnir á
göngunum.
Það er aðeins einn kostur við
lausráðningu: Ég er ekki bundinn
stimpilklukku, og get þvi ráðið
minum vinnutima að mestu leyti.
Hins vegar er vert að taka það
fram, að við gerð svona þátta er
maður aldrei búinn að ljúka þætt-
inum fullkomnlega, — ég get ekki
hætt á ákveðinni minútu og sagt
við sjálfan mig: Jæja, Jónas, þá
er vinnutima þinum lokið.
Sem dæmi um það, hversu
erfitt er að fá fastráðningu hjá
stofnuninni, veit ég að Jón
Þórarinsson dagskrárstjóri hefur
barizt fyrir þvi að fá dagskrár-
fulltrúa sinn fastráðinn. Hann er
yfir hlaðinn störfum og það var
ekki fyrr en i vor, að hann fékk
ráðninguna i gegn.
— Hvaö vinna margir hjá
Lista- og skemmtideild sjón-
varpsins viö efnisöflun?
— Ég er eini maðurinn, sem
hefur fullt starf að efnisöflun
innan Lista- og skemmtideildar-
innar, — og það hefur verið mitt
aðalstarf i tvö ár.
Hjá miðlungsstórum sjón-
varpsstöðvum erlendis sjá fimm
menn um það starf, sem mér
einum er ætlað að inna af hendi,
— samt gera islenzkir áhorfendur
auðvitað sömu kröfur til okkar
skemmtiþátta. Þó má ekki skilja
þetta svo , að ég áliti mig fimm
manna maka, heldur er ég með
þessu að benda á starfsmenna-
fæðina hjá Sjónvarpinu.
— Það er kannski ekki óeðlileg
spurning, Jónas, hvort þú sért
búinn aö tæma brunn fslenzkra
skemmtikrafta?
— Já, þessi spurning hefur oft
borizt mér til eyrna, og margir
furða sig á þvi, hversu lengi er
hægt að halda svona þáttum
gangandi.
Það má segja, að ég sé i raun-
inni búinn að tæma þennan brunn,
þ.e. aö flestir islenzkir skemmti-
kraftar hafa komið fram i þátt-
unum. Hins vegar erum við, sem
sjáum um þessa þætti, farnir að
lita öðrum augum á skemmtiefni.
og þaö eru fjölmargar hugmyndir
sem ég og Egill Eðvarðsson
stjórnandi upptöku, höfum til
ihugunar, ef framhald verður á
okkar samstarfi.
Það er nefnilega hægt að
matreiða skemmtiefni á svo
margvislegan hátt, og listin er að
gera þættina þannig úr garði, að
allir hafi gaman af.
Það er von okkar, að þegar fólk
stendur upp frá sjónvarpinu á
laugardagskvöldi til að slökkva á
fræðsluþættinum um börnin i
Kina, hafi allir haft einhverja
ánægju af þættinum, og um leið
okkar starfi.
— Má skilja sföustu orð þín svo,
aö þú sért óánægður meö helgar-
dagskrá sjónvarpsins?
— Já, mér finnst að sjónvarpið
ætti að hafa mun meira af léttu og
skemmtilegu efni um helgar.
Mér finnst það vera réttur sjón-
varpsnotenda að fá skemmtiefni
um helgar. Sérstaklega finnst
mér að sjónvarpið ætti að hugsa
um utanbæjarfólk, sem býr við
skemmtanafæð og hefur ekki allt
of mörg tækifæri til að fara á
skemmtanir. Þar á sjónvarpið að
vera góður gestur og rétta þeirra
. . . við gerð svona þátta er maður
aldrei búinn að ljúka þættinum full-
komlega, — ég get ekki hætt á
ákveðinni minútu og sagt við sjálfan
inig: Jæja, Jónas, þá er vinnutima
þinum lokið.
,,t»að er von okkar, að þegar fólk
stendur upp frá sjónvarpinu á
laugardagskvöldi til að slökkva á
fræðsluþættinum um börnin i Kina,
— hafi allir haft einhverja ánægju af
þættinum, og um leið okkar starfi.
með ungu fólki með ungu fólki með ungu