Tíminn - 16.06.1974, Blaðsíða 30
30
TÍMTNN '
Sunnudagur lfi. júni> 1974
Maria var 18 ára gömul, þegar hún gekk I klaustur.
kaupfélag Stykkishólms
STYKKISHÓLMI
býður félagsmönnum og öðrum viðskipta-
vinum góðar vörur við hagstæðu verði.
Það er yður i eigin hag að
efla heimabyggðina
og skipta við kaupfélagið — hvort sem um
er að ræða vörukaup eða vörusölu.
Kaupum fisk af bátum til frystingar og
söltunar.
kaupfélag Stykkishólms
STYKKISHÓLMI
18 ára Stokkhólmsstúlka gekk í klaustur:
KÆRLEIKUR AAINN
NÆGÐI EKKI TIL
ÞESS AÐ VERÐA
NUNNA
Fyrir einu ári, þegar Maria frá Stokkhólmi var 18
ára, fór hún til London til þess að verða nunna. Hún
ætlaði að ganga i reglu Móður Teresu. Hún fékk að
vinna meðal sjúkra og heimilislausra, hún gaf fólki
að borða og lét það fá fatnað, hún gróf skurði og
vann þrælavinnu
Var þetta leiðinlegt? Nei, aldrei. Nunnur eru glaðar
og skemmtilegar, segir Maria. Samt tókst henni
ekki að verða nunna. Hér segir hún hreinskilnings-
lega frá klausturlifinu.
NUNNA verður að helga
sig starfi sinu 24 tima á
sólarhring. Mér tókst
það ekki. Nunnuhlut-
verkið krefst meiri kær-
leika heldur en ég hef yf-
ir að ráða.
Á siðasta ári trúði
Maria frá Stokkhólmi,
sem þá var 18 ára göm-
ul, að hún gæti lifað sinu
lifi i klaustri. Hún trúði
þvi i raun og veru, að
eftir niu ár gæti hún ver-
ið orðin nunna. Hún hélt
til London til þess að
helga lif sitt reglu
Heilags Franciskusar
þar.
Eftir eitt ár I London hefur hún
nú gefizt upp. Hún er komin aftur
heim til Stokkhólms og farin að
vinna i fatahreinsun. Klausturlíf-
ið olli henni ekki vonbrigðum,
heldur er hún vonsvikin vegna
eigin þrekleysis og skorts á
þrautseigju.
— Ég vildi óska þess, að ég
heföi getað verið þarna kyrr, en
ég var ekkert sérlega skemmtileg
þar, segir hún.
— Mér féll ekki trúarbragða-
kennslan i skólanum. Ég var nán-
ast guðleysingi, og fannst allt tal
um trúarbrögð hreinasta vit-
leysa, og mætti ekki i timunum.
— Þegar ég var tólf ára hætti
ég i skóla. Arið eftir var ég yngsti
nemandinn i „öldungadeildinni”.
Þar tók ég sex stig, og ætlaði mér
aö ferða forskólakennari, en varð
þreytt á þessu öllu saman og fór i
listaskóla, en þar gefst ég lika
upp.
— Ég fann engan tilgang i þvi,
sem ég var að gera. Nokkrum
sinnum reyndi ég að svipta mig
lifi. Ég gat alls ekki skilið, að til
væri nokkur hlutur, sem hægt
væri að trúa á — ég trúði ekki að
GUÐ væri til.
— Sumarið, sem ég var
fimmtán ára fór ég að gera mér
ljóst, að veröldin væri ekki sem
verst. Ég fór að sjá, að einhver
tilgangur var með þessu öllu. Ég
fann GUÐ bak við þetta allt, en
hann var aðeins óhlutlægur, en þó
sá, sem öllu stjórnaði, án þess þó
að elska.
— Þegar mér fór að verða ljóst,
að hann var eitthvað annað og
meira en ég fyrst hélt og væri
kærleikurinn sjálfur, hvarf ótt-
inn.
Maria leitaði til margra trúar-
hópa.
Hún kynnti sér trú Jehovanna,
hún heimsótti kvekara. Hún las
um hindúisma og búddhatrú, en
henni fannst eins og ekkert af
þessu væri raunverulegt, heldur
eintómt orðagjálfur.
Það var ekki fyrr en hún fór að
kynna sér kaþóska trú, að hún
fann eitthvað af þvi, sem hún
hafði verið að leita að, og hjá
kaþólskum dvaldist hún um stund
I Rögle-klaustri á Skáni.
— Mér féll vel við kaþólikkana,
ekki vegna þess að þeir væru
betri heldur en aðrir kristnir
menn. Þeir voru álika hálfvolgir i
trúnni margir hverjir og aðrir.
En þeir töluðu um Guð sinn en
reyndu þó ekki að þvinga trú sinni
upp á mig. Kaþólskan er meira lif
en orð. t kaþólskum kirkjum er
Guð alltaf nærri. Mótmælenda-
kirkjur eru hins vegar lausar við
allan guðdóm.
— Margir hafa skipt um trú
vegna þess að það hefur verið i
tlzku. Það getur verið skemmti-
legt i eina viku eða þar um bil.
Þess vegna hefur verið ákveðið,
að fólk þurfi að kynna sér trúar-
brögðin samfleytt i eitt ár áður en
það fær að skipta um trú og ger-
ast kaþólskt. Þess vegna fór ég að
læra það, sem til þurfti. Ég bjó og
lærði hjá Birgittinunum i
Vadstena i fjóra mánuði. Ég
reyndi að spyrja sem flestra
spurninga, og þar þýddi ég meðal
annars bókina um Móður Teresu.
Þá skyldist mér, að ég var á réttri
leið. Þremur dögum siðar var ég
tekin I kirkjuna og bað um að fá
vitnisburð um að ég væri sannrar
trúar. Ég var þá búin að ákveða,
að ég skyldi fara til London og
ganga i reglu Móður Teresu.
— Þar var ég i fjóra mánuði.
Viö störfuðum meðal heimilis-
lausra og sálsjúkra — meðal
fólks, sem reynt hafði að fremja
sjálfsmorð.
— Við gáfum fólki mat og klæði
og aðstoðuðum útigangskonur.
Starfið var mjög innihaldsrikt.
Við höfðum mikið að gera, en ég
fann, að ég gat ekki gert mikið
meira en það allra nauðsynleg-
asta fyrir þetta fólk, þar sem ég
var svo nýbúin að taka kaþólska
trú.
— Þess vegna fluttist ég til
reglu heilags Franciscusar, sem
einnig er i London, en það er
klaustur, þar sem mest er um
bænir og igrundun. Ég vann þar,
og veit nú, að bænin getur raun-
verulega hjálpað.
— Franciskusarnunnurnar eru
betlinunnur. Systurnar lifa af þvi,
sem þeim er gefið. Stundum
vinna þær smávægileg störf fyrir
söfnuðinn. Til dæmis sauma þær.
í „reglunum” stendur, að nunn-
urnar skuli ávallt fasta. Hins veg-
ar er vinnan i klaustrinu svo
erfið, að maður verður að borða.
Maturinn er þó ekki mikill og
mjög fábreyttur.
Dagurinn skiptist að mestu sem
hér segir:
X Kl. 5:30 er farið á fætur og
beðizt fyrir og fylgzt með messu
fram til klukkan 9.
X Morgunverður: — sneið af
þurru brauði og þunnt kaffi.
X Unnið i trjágarðinum. Til
dæmis stungin upp beð eða grafn-
ir skurðir, og annað, sem teljast
má erfið vinna.
X Kl. 14 bæn og hádegisverður
— egg, baunir, stundum fiskur, en
aldrei kjöt.
X Eftir hádegisverðinn er aftur
byrjað að vinna, og þá er aðallega
saumað eða unnið að leirkera-
gerð.
X Kl. 16 er bænastund — hug-
leiðsla og lestur ritningarinnar.
Þá er gengið til matsalarins og
lesnar ritningargreinar á leiðinni.
1 kvöldverð er brauð og te.
X Kl. 21 er ljósið slökkt og eftir
bænastund er gengið til hvilu.
Við fengum þó ekki að sofa ró-
lega. Beint fyrir utan klefann
minn var brunabjalla. Klukkan 12
á miðnætti var henni hringt hátt
og lengi, til þess að vekja alla. Þá
vöknuðu lika þær, sem annars
hefðu átt að mega sofa, og ekki
áttu neinum skyldum að gegna.
— Kominn var timi til þess að
biðjastfyrir. Þær, sem voru orðn-
ar nunnur þurftu að fara á fætur
fjórtán nætur i röð, þvo sér úr
isköldu vatni og klæða sig. Við
höfðum yfirleitt ekki ráð á oliu til
„ meiri
afköst mea
- stjornu
avél
/
Ný tækni. Rakar
í jaf na, lausa
múga. Rífur ekki
grassvörðinn. Hreinna hey. KS 80 D. Vinnslubreidd 2,8
m. Lyftutengd. Leiðbeiningabók á íslenzku.
B ÞORHF
íð .. reykjavi'k SKÓLAVÖROUSTÍG 25
TRAKTORAR