Tíminn - 16.06.1974, Side 33
Sunnudagur l'6. júni 1974
TíWÍNN
33
i garði drottningar.
Næstelzta prinsessan
var á verði, og fór fyrir
henni eins og þeirri
elztu. Ekki var hún bet-
ur heima i tóvinnunni.
Þegar risinn kom heim
um kvöldið, lá við að
hann sprengdi i sér
hljóðhimnurnar með
reiðiöskrunum, sem
hann rak upp, þegar
hann sá, að prinsessan
hafði setið auðum hönd-
uin. Hann reif i prin-
sessuna, lúbarði hana og
fleygði henni út i
hænsnakofann til systur
sinnar. Þar lágu þær
báðar og gátu hvorki
hreyft legg né lið.
Sama kvöldið fór
yngsta systirin á vörð i
kálgarðinum. Fór eins
fyrir henni og hinum
systrunum, þvi að risinn
rændi henni.
Morguninn eftir skip-
aði risinn henni að vinna
sömu verk og hann hafði
áður ætlað systrunum.
Mjólkaði hún kúna og
rak hana á beit. Siðan
gerði hún sér hafra-
graút. Þá kom fólkið
smávaxna og bað hana
um grautarspón. Hún
sagði þeim að fara og ná
sér i skeiðar til að borða
með. Þau hlupu þá i
burtu og koinu aftur
með trjáflisar og gler-
brot. Allir fengu graut,
urðu vel mettir, tóku
siðan ofan litfögru
húfurnar og hlupu á
brott. Litill drengur
dróst aftur úr og hinkr-
aði við. Prinsessan
spurði hann eftir hverju
hann væri að biða,
kvaðst hann fús til þess
að vinna fyrir hana,
einkum þó, ef hún hefði
tóvinnu handa sér, hún
þætti sér allra verka
skemmtilegust.
,,Nú, jæja,” sagði
prinsessan, ,,nóg hefi ég
af ullinni, en kaup get ég
ekki greitt þér”.
,,Ekki set ég það fyrir
mig,” sagði stráksi. ,,En
þú verður bara að geta
upp á nafninu minu,
þegar ég kem aftur með
ullina.”
Prinsessan fékk hon-
um ullina og hann hvarf
á braut.
Undir kvöldið barði
gömul kona að dyrum og
baðst gistingar. Prin-
sessan kvaðst ekki geta
hýst gesti, en spurði,
hvort konan hefði nokkr-
ar fréttir eða slúðursög-
ur að flytja. Hún vonað-
ist eftir fréttum af móð-
ur sinni. Gamla konan
hafði engar markverðar
fréttir að flytja og prin-
sessan kvaðst ekki þora
að hleypa henni inn i
húsið, meðan risinn væri
að heiman. Gamla kon-
an varð þvi að leita sér
að náttstað uppi i heiði.
Hún gekk stöðugt
hærra og kom loks að
klettaborg nokkurri.
Þar hugði hún vera gott
skjól fyrir næturvindin-
um, sem næddi um
hruman likama hennar.
Hún sveipaði um sig
kápunni og hreiðraði um
sig i lynginu undir
klettunum. Hún var i
þann veginn að sofna,
þegar hún heyrði rödd
úr klettinum, sem sagði:
,,Hæ, hæ og hó!
Tætið þið og tætið!
Kembið þið og'
kembið,
þvi kallaður er ég
Flónið.
Spinnið þið og
spinnið!
Hæ, hæ og hó!”
Gamla konan reis á
fætur og gægðist fyrir
hornið á klettaborginni.
Sá hún þar ljósglætu
leggja út um rifu á
klettinum, og innan við
rifuna sá hún smávaxið
fólk önnuin kafið við tó-
vinnu. Ljóshærður
strákhnokki þ eittist á
Merkjasala
Sölufólk óskast til að selja merki þjóð-
hátiðardagsins 17. júni. Merkin eru af-
greidd að Garðastræti 3 i dag frá kl. 13.00
e.h. og á morgun frá kl. 9.00 f.h.
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavikur.
Viðskipti við okkur
bæta hag beggja
kaupfélag Rauðasands
HVALSKERI
milli þess og söng við
raust:
,,Tætið þið og tætið!
Kembið þið og
kembið,
þvi kallaður er ég
Flónið.
Spinnið þig og
spinnið!
Hæ, hæ og hó!”
,,Svona nú,” sagði sú
gamla, ,,þarna fæ ég þó
eitthvað að segja frá.”
Hún þaut nú sem fætur
toguðu, svo hratt, að hún
dró á eftir sér skóþveng-
ina, þegar hún kom að
húsdyruin risans.
Þegar prinsessan
heyrði frásögn gömlu
konunnar, hleypti hún
henni inn með glöðu
geði. Hún veitti henni
húsaskjól yfir nóttina,
eldaði handa henni
indælan hafragraut og
faldi hana siðan á
öruggum stað.
Myrkrið var þvi nær
skollið á, þegar ljós-
hærði drengurinn kom
aftur. Hann bar á öxl sér
vefjarstrangann úr ull-
inni, sem prinsessan
hafði fengið honurn.
En ekki vildi hann
sleppa stranganum, fyrr
en prinsessan hefði getið
nafnsins.
„Heitirðu Grámann?”
spurði prinsessan.
,,Nei,” sagði strákur
og hoppaði upp af kæti.
,,Heitirðu þá Glókoll-
ur?” spurði prinsessan,
en drengurinn veltist um
af hlátri.
,,Þá heitirðu lika
Flón!” sagði prinsess-
an.
Þegar stráksi heyrði
þetta, kastaði hann frá
sér stranganum og hljóp
burt.
( Þýtt SI)
Seljum á hagstæðu verði allar
nauðsynjavörur, búsáhöld, fatnað,
vefnaðarvöru, snyrtivörur, gjafavörur
Einnig timbur og ýmsar aðrar
byggingavörur.
Tökum landbúnaðarvörur í
umboðssölu.
kaupfélag Grundfirð nga
GRUNDARFiRÐi °
Meó Heimilistryggingu er innbú yðar m.a. tryggt gegn eldsvoóa, eldingum,
sprengingu, sótfalli, snjóskriöum, aurskrióum, foki, vatnsskemmdum, innbrotsþjófnaói o.fl.
í Heimilistryggingu er innifalin ábyrgóartrygging fyrir tryggingataka maka
hans og ógift börn undir 20 ára aldri, enda hafi þessir aóilar sameiginlegt lögheimili.
Tryggingarfjárhæóin er allt aó kr. 1.250.000 - fyrir hvert tjón.
i Heimilistryggingu er örorku- og dánartrygging húsmóóur og barna yngrj
en 20 ára, af völdum slyss eöa mænuveikilömunar. Örorkubætur fyrir húsmóður og börn,
nema kr. 300.000,- fyrir hvert þeirra vió 100% varanlega örorku.
Heimilistrygging Samvinnutrygginga er nauðsynleg trygging fyrir öll heimili
og fjölskyldur.
SAMVINIMJTRYGGINGAR
ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500