Tíminn - 21.06.1974, Page 6
6
TtMINN
Föstudagur 21. júnl 1S74
© Atvinnulíf
Þaö fór ekki aö rætast úr
þessu fyrr en upp úr 1971. Um
langt árabil haföi ekkert verið
byggt, sem heitið gæti, þar til
árin 1972 og 1973, að kviknuð
var aftur trú á það, að fé væri
ekki á glæ kastað, þótt byggt
væri hér i kauptúninu. Þessi
ár var komið upp tiu ibúðum. 1
sumar hefur eitt hús verið
endurbyggt, og ég vonast til,
að byrjað verði á einu til
tveimur einbýlishúsum, og
auk þess hefji hreppsfélagið
byggingu einnar blokkar,
tveggja stigahúsa með fjórum
ibúðum.
Arin 1960-71 fór fólki
hér á Vestfjörðum fækkandi,
en nú held ég, að straumurinn
liggi frekar út á land heldur en
hitt, og síðasta ár gerðist það,
sem okkur þykir fréttnæmt, að
fólki fjölgaði á Vestfjörðum
frekar en hitt. Það er þó i
áttina — já, ég segi hreinustu
gleðitiðindi. Viö viljum um-
fram allt, að þessi blómgun
byggðarlaganna haldi áfram,
og finnst nú, að ekki muni
standa á fólki að flytjast til
okkar, ef ekki brysti húsnæði.
Þetta ber að þakka, en þar
með er ekki sagt að ekki mætti
gera ennþá betur. En það get-
ur verið miklu tapað, ef snúið
verður af þeirri braut, sem
farin hefur verið siðustu árin.
Við viljum umfram allt, að
þessari atvinnueflingu verði
haldið áfram.
Hér heima á Flateyri er
heldur lægð þessa stundina,
þvi að menn hafa verið að
Aðvörun um stöðvun
atvinnurekstrar
vegna vanskila
ó söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans i Reykjavik
og heimild i lögum nr. 10, 22. marz 1960,
verður atvinnurekstur þeirra fyrirtækja
hér i umdæminu, sem enn skulda sölu-
skatt fyrir janúar—marz 1974, og nýálagð-
an söluskatt frá fyrri tima, stöðvaður, þar
til þau hafa gert full skil á hinum van-
greiddu gjöldum, ásamt áföllnum dráttar-
vöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja kom-
ast hjá stöðvun, verða að gera full skil nú
þegar til tollstjóraskrifstofunnar við
Tryggvagötu.
Lögreglustjórinn i Reykjavík,
18. júni 1974,
Sigurjón Sigurðsson.
flóttinn alveg úr sögunni, og
aukningin hefur verið jöfn upp
á siðkastið, mest seinustu tvö
árin.
Þannig komst Jón Alfreös-
son, kaupfélagsstjóri á
Hólmavik, að orði, þegar við
ræddum við hann um atvinnu-
ástandiö á Hólmavik.
— Það hefur verið byggt til-
tölulega mikið hérna upp á
slökastið, þetta 3-4 ibúðarhús
á ári. 1 fyrra lukum við við
endurbyggingu á sláturhúsi
kaupfélagsins, og erum að
vinna viö frystihúsið núna.
—' Þannig að það er nóg at-
vinna hjá ykkur á Hólmavik?
— Já, það er næg vinna hjá
karlmönnum. Okkur vantar
meira að segja karlmenn til
starfa, en það þýðir nú vist
litiö um það að tala. Það
fjölgar bara ekki nóg hjá
okkur, þótt fólksflóttinn sé úr
sögunni. Hitt er annað mál, að
það koma dauðir timar hjá
kvenfólkinu, og erfitt úr að
bæta.
— Hvernig var vertiöin hjá
ykkur?
— Þetta var ágætisvertið á
rækjunni, það eru gerðir 9 bát-
ar út héöan, og eins og ég
sagði, þá skapa þeir góða
vinnu I landi. Þetta eru nú ekki
stórir bátar, en færaveiðin
hefur verið góð i vor.
— Svo að afkoman er góð hjá
mönnum á Hólmavik?
— Já, seinustu árin hefur af-
koman verið ágæt, og við von-
um, að svo megi halda áfram.
BILAVARA-
HLUTIR
NOTAÐIR
VARAHLUTIR
í FLESTAR GERÐIR ELDRI BÍLÁ
T.d. vélar, girkassar,
drif i Benz ’59-’64,
Opel ’62-’66,
Moskvitch ’59-’69,
Vauxhall Viva,
Vauxhall Victor,
og flest annað
i eldri teg. bila,
t.d. hurðir og boddihlutir i miklu úrvali.
Ýmislegt i jeppa.
BÍLAPARTASALAN
> Höfðatúni 10, simi 11397.
Opið frá kl. 9-7 alla virka daga og 9-5
laugardaga.
þrifa og mála bátana eftir
vertiöina, og þess vegna borizt
tiltölulega litið hráefni I frysti-
húsiö. En úr þessu rætist að ég
vona, þegar kemur fram á
sumarið. A næstu misserum
gerum við ráð fyrir aö fá
hingað norskan skuttogara, og
ég veit ekki betur en það sé
verið aö semja um þaö þessa
daga þegar hann er kominn,
verður örugglega kappnóg að
gera handa öllum, sem
vettlingi geta valdið.
Það hefur sýnt sig hér I
kringum okkur, hvilik lyfti-
stöng þessir nýju togarar eru.
Þannig er það á Þingeyri til
dæmis, þar sem manni
skilst, að allt hafi þanizt út.
Sums staðar kvað fólk jafnvel
kvarta undan, að of mikið sé
að gera. En þegar valið er á
milli atvinnuleysis, eins og
rikti svo viða fyrir aðeins
örfáum árum, eða mikillar og
stöðugrar vinnu eins og nú er
svoaðsegja alls staðar — ja,
hver er þá I vafa, hvort hann
kýs?
Ágæt afkoma
seinustu árin
— Hérna á Hólamvik er fólks-
Ungmennafélagar -
Ungmennafélagar
UMFÍ efnir til hópferðar til Noregs ef næg
þátttaka fæst.
Ferðin verður um miðjan júli og er áætlað
að dvelja i Noregi 8-10 daga ýmist i tjöld-
um eða hótelum.
Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig
fyrir 29. júni i sima 14713. Ódýr ferð.
Ungmennafélag íslands.
Orlofskonur Suður-
Þingeyjarsýslu
ATGUGIÐ! — 4ra daga orlofsferð yfir
Sprengisand verður farin 13. ágúst. Einnig
7 daga orlofsdvöl að Laugalandi siðustu
viku ágústmánaðar.
Tilkynnið þátttöku og fáiö upplýsingar hjá forstööukonum
kvenfélaganna fyrir 1. júli n.k.
Upplýsingar fyrir Húsavikurkaupstað gefur Bergþóra
Bjarnadóttir.
Orlofsstjórn húsmæðra Suður-Þingeyjarsýslu.
Mötuneytisróðskona
STÓRUTJARNASKÓLI, S-ÞING, óskar
að ráða ráðskonu i mötuneyti skólans frá
1. sept. n.k.
Fjöldi kostgangara er um 120 manns, og er æskilegt að
viðkomandi hafi góða menntun og/eða starfsreynslu við
hliðstæð störf. Æskilegt væri, að umsækjandi gæti tekið að
sér nokkurra tima kennslu á viku I hússtjórn og mat-
reiðslu. Góðlaun, og miklir atvinnumöguleikar á staðnum
fyrir hugsanlegan maka. Starfinu fylgir rúmgóð einstakl-
ingsibúö, sem hægt er að nota eins fyrir barnlaus hjón eöa
e.t.v. hjón með 1 barn.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Viktor A. Guölaugs-
son, simi um Fosshól, S-Þing, sem jafnframt veröur til
viðtals föstudaginn 21. mai kl 17-19 og laugardaginn 22.
mal kl. 13.00-15.00 á Hótel Esju herbergi nr. 510, simi
82200.
Umsóknarfrestur er tii l.júli n.k.
Auglýsing frá Lánasjóði
ísl. námsmanna vegna veitingar
sumarlána
til námsmanna
á lokastigi náms
Námsmönnum á lokastigi náms (við
prófundirbúning, prófverkefni o.þ.h.)
gefst kostur á að sækja um sumarlán,
fyrir þá mánuði, er sumarleyfi stendur
yfir, enda vinni þeir að námi sinu þann
tima, er lánið nær til og flýti námslokum
sem þvi nemur.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrif-
stofu Lánasjóðsins að Hverfisgötu 21,
Reykjavik og i sendiráðum Islands er-
lendis. Þeir námsmenn eða umboðsmenn
námsmanna erlendis, sem sækja vilja um
sumarlán eru beðnir að snúa sér til skrif-
stofu sjóðsins fyrir 4. júlí n.k.
Reykjavik, 20. júni 1974
Lánasjóður isl. námsmanna.
Tilkynning um breyttan
afgreiðslutíma
póstþjónustunnar
í Reykjavík
Afgreiðslutimar póstútibúa borgarinnar
breytast á þann veg um næstu helgi, að
þeim verður lokað á laugardögum, nema
afgreiðslu útibúsins i Umferðarmiðstöð-
inni. Hún verður opin á laugardögum sem
fyrr frá kl. 14-19.30.
Ennfremur verður Tollpóststofunni i
Hafnarhúsinu lokað sömu daga.
Engin breyting verður á afgreiðslutima
aðalpósthússins, Pósthússtræti 5 né
Bögglapóststofunni i Hafnarhvoli.
Hann verður á laugardögum sem áður frá
kl. 9-12.
Póstmeistarinn i Reykjavik.
Skrifstofustarf
Skrifstofustarf hjá embætti flugmála-
stjóra er laust til umsóknar.
Umsóknir, er greini aldur, menntun og
fyrri störf, sendist skrifstofu flugmála-
stjóra á Reykjavikurflugvelli fyrir 1. júli
n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna
rikisins.
Flugmálastjórinn
Agnar Kofoed-Hansen.