Tíminn - 21.06.1974, Side 7
Föstudagur 21. júni 1974
TÍMINN
7
FLUGFÉLAGIÐ VÆNGIR:
Byrjar reglubundið
áætlunarflug
til AAývatnssveitar
Gsal-Reykjavik — Flugfélagið
Vængir hefur opnað nýja fiugleið,
Reykjavík—Mývatnssveit, og
vcrður fyrsta áætlunarflugið á
föstudaginn kemur.
Að sögn Hafþörs Helgasonar
framkvæmdastjóra Vængja
verða fastar áætlanaferðir tvis-
var i viku allan ársins hring með
skrúfuþotum félagsins, sem taka
nitján manns i sæti. Yfir háanna-
timann verður flogið oftar og
ræður eftirspurn þar mestu um.
Yfir sumarhelgarnar verður hægt
að fljúga tvisvar á dag.
Samtvinnað þessu áætlanaflugi
verður komið á fót sérstökum
ferðum fyrir ferðamenn sem vilja
dveljast daglangt i Mývatnssveit.
Þessar ferðir verða i helztu atrið-
um á þá leið, að flogið verður
fyrri hluta dags frá Reykjavik
norðurá Reynihliðarflugvöll. Há-
degismatur verður snæddur á
hótel Reynihlið og siðan sjá Mý-
vetningar um útsýnisferðir á
helztu staði i sveitinni.
Vængir geta á þennan hátt tekið
á móti hópum og einstaklingum,
sem hafa hug á dagsdvöl i hinni
fallegu sveit, með litlum fyrir-
Sverrir Tryggvason umboðsmaður Vængja I Mývatnssveit bendir hér ferðamönnum á Kröflu i noröri og
segir um leið, að vegur þangað sé ekki langt undan, þvi Orkustofnun byrjar vegaframkvæmdir innan
tiðar.
vara. Sagði framkvæmdastjóri
Vængja, að flugfélagið gæti tekið
á móti allt að fimmtiu manna hóp
i þessar ferðir.
Verðinu verður stillt mjög i hóf
og kostar ein svona dagferð, milli
fimm og sex þúsund krónur, og þá
er bæði matur og útsýnisferðir
taldar með.
t tilefni af þessari nýju þjón-
ustu, sem Vængir hafa nú á boð-
stólum, buðu þeir s.l. laugardag
blaðamanni og ljósmyndara Tim-
ans i flugferð til Mývatnssveitar.
Lagt var af stað frá Reykja-
vikurflugvelli klukkan tiu um
Hér er vélin á fiugvellinum norðvestur af Reynihlfð. A myndinni eru
vatnssveit, flugstjóri I feröinni og framkvæmdastjóri Vængja, Hafþór
hreppsnefndarmenn Skútustaðahrepps, umboðsmaður Vængja i Mý-
Ilelgason er lengst til vinstri á myndinni. Timamyndir: G.E.
morguninn með einni af skrúfu-
þotu félagsins. Flugferðin tók
einn og hálfan tima og á Reyni-
hliðarfiugvelli tóku á móti okkur
hreppsnefndarmenn Skútustaða-
hrepps ásamt umboðsmanni
Vængja i Mývatnssveit.
Á hótel Reynihlið var okkur
boðinn silungur, „þjóðarréttur”
Mývetninga. Ekki var þó þessi
silungur veiddur i Mývatni, held-
ur Sandvatni, en það vatn er vest-
ur af bænum Gautlönd og hefur
veiði verið mjög góð i þvi vatni á
siðustu árum. Veiði i Mývatni
hefur aftur á móti verið heldur
dræm, það sem af er sumri.
Silungurinn bragðaðist mjög vel,
eins og við var að búast. að lokn-
um hádegisverði var okkur boðið
I „rútuferð” með hreppsnefndar-
mönnum og Sverri Tryggvasyni,
umboðsmanni Vængja i Mývatns-
sveit.
Haldið var i austurátt og litið
yfir Kisilgúr-þorpið, en stanzað i
Námaskarði 'og náttúruundrin
skoðuð. Þá var ekið að hinni
frægu Grjótagjá, og allir fóru þar
niður og skoluðu af sér ferðarykið
i heitu vatninu.
Haldið var aftur i loftið siðari
hluta dags og flogið lágt yfir
Hverfjalli, Dimmuborgum, Höfða
og fleiri fallegum stöðum i sveit-
inni.
VEGGFÓÐRIÐ
OG MÁLNINGUNA
6-700 veggfóður-munstur
10.000 litamöguleikar í
mólningu
eldhús
böð og
herbergi
VIRKM 9
Veggfóöur- og máIningadeild
Ármúla 24 — Reykjavík
Simar 8-54-66 og 8-54-71
Opid til kL
101KVÖLD