Fréttablaðið - 05.03.2005, Síða 10
5. mars 2005 LAUGARDAGUR
„Ég varð heillaður af persónu Precious Ramotswe
og hinum lúmska húmor Alexanders McCall Smith.“
Anthony Minghella, leikstjóri Enska sjúklingsins
3 BÓKIN
KOMIN Í
VERSLANIR
Kvenspæjarastofan
slær í gegn!
„Kvenspæjarastofan er bæði spennandi og
skrifuð af djúpri einlægni og visku ...
kjörin bók til að taka með sér í sumarfríið og er þýdd af
mikilli hind. Ef ég væri með hattinn tæki ég hann ofan.“
Gunnar Gunnarsson, Rás1
„Fágæt lestrarnautn.“
Daily Telegraph
DÓMSMÁL „Ég iðrast gerða minna
og vildi að þetta hefði aldrei átt
sér stað,“ sagði Hákon Eydal fyrir
dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur
en þar fór fram í gær aðalmeðferð
í máli ákæruvaldsins gegn honum
fyrir morðið á Sri Rahmawati í
júlí síðastliðnum. Saksóknari
krafðist hámarksrefsingar eða 16
ára fangelsis yfir Hákoni en verj-
andi hans sagði það fráleitt þar
sem engar forsendur væru fyrir
svo ströngum dómi. Réttarhöldin
töfðust um tvo tíma þar sem
gleymdist að gera ráðstafanir til
að sækja Hákon á Litla Hraun.
Hákon Eydal bar fyrir dómin-
um að morðið á Sri Rahmawati,
barnsmóður hans og fyrrum sam-
býliskonu, hefði verið framið í
stundarbrjálæði og mikil hræðsla
í kjölfarið hefði komið í veg fyrir
að hann gæfi sig fram við lög-
reglu strax eftir verknaðinn.
Sagði hann þau Sri hafa átt nótt
saman en morguninn eftir hafi
komið til harðra orðaskipta um
þriggja ára stúlku sem þau eiga
saman en Sri meinað honum að
umgangast og hitta um hríð.
Þegar hún tilkynnti honum fullum
hálsi að stúlkuna fengi hann
aldrei að sjá aftur greip hann því-
lík heift að hann myrti hana.
Kyrking dánarorsökin
Dánarorsök Sri var kyrking en
krufning á líki hennar leiddi í
ljós að þau fjögur höfuðhögg sem
Hákon veitti henni áður með kú-
beini hefðu að líkindum dregið
hana til dauða. Kom fram að
taubelti var vafið fast um háls
hennar þegar hún lá meðvitund-
arlaus eftir höggin á gólfi íbúðar
Hákonar þar sem brotið var
framið. Bar Hákon því við að
ástæða þess hefði verið sú að
mikið blæddi úr höfði fórnar-
lambsins og hann hefði viljað
stöðva blóðrásina með þeim
hætti. Fannst saksóknara, Ragn-
heiði Harðardóttur, sú skýring
fráleit en verjandi Hákonar,
Brynjar Níelsson, benti á að um-
bjóðandi sinn hefði verið í mikilli
geðshræringu á þeirri stundu og
mundi meðal annars ekki greini-
lega eftir hversu oft hann hefði
barið Sri með kúbeininu.
Kom fram fyrir dóminum að
tæknideild lögreglu hafði fundið
út með rannsóknum að höggin
sem hann veitti Sri með kúbeininu
voru þung og réttarmeinafræð-
ingur staðfesti að ef kyrking hefði
ekki átt sér stað mætti leiða að því
líkum að höggin og blóðmissirinn
hefðu dregið Sri til dauða.
Aðspurður um af hverju hann
geymdi kúbein í herbergi sínu
sagði Hákon að það væri vegna
hræðslu og sagðist hafa fengið
hótanir um líkamsmeiðingar frá
ættingjum Sri í talsverðan tíma.
Stormasamt samband
Hákon Eydal og Sri Rahmawati
kynntust fyrst árið 2000 og hófu
sambúð skömmu síðar. Ekki leið
á löngu áður en Sri tilkynnti
Hákoni að hún gengi með barni
og kom fram í yfirlýsingu sam-
eiginlegs vinar beggja að upp úr
því hafi Sri farið að gera óraun-
hæfar kröfur á Hákon. Fór hún
meðal annars fram á að Hákon
keypti íbúð fyrir sig og léti sig
reglulega hafa peninga en vildi
þó ekki stofna til fjölskyldu með
honum eins og vonir hans stóðu
til. Lauk þannig sjö mánaða sam-
búð þeirra og upp frá fæðingu
barnsins fór Sri fram á greiðslur
ætlaði Hákon sér að sjá barn
sitt. Gekk svo um hríð að sögn
Hákonar og reyndist sama hvert
hann leitaði sér fulltingis kom
hann að lokuðum dyrum. Sagðist
Hákon fyrir réttinum enn vera
afar reiður út í kerfið eins og
hann kallaði það en hann leitaði á
náðir fjölmargra stofnana sér
til aðstoðar í forsjármálinu án
árangurs.
Voru þau Sri áfram í sam-
bandi annars lagið og hafði
ástandið á milli þeirra batnað
þegar hún gisti hjá honum nótt-
ina fyrir morðið. Hafði hún að
hans sögn komið við kvöldinu
áður og fengið hjá honum pening
og ætlað sér að koma aftur eftir
miðnætti. Lét hún þó ekki sjá sig
fyrr en um fimm leytið aðfara-
nótt 4. júlí og gengu þau bæði til
svefns skömmu síðar. Morgun-
inn eftir hafði hann aftur á orði
að fá að sjá dóttur sína sem svo
endaði með þessum hörmulega
atburði.
Verðskuldar hámarksfangelsi
Saksóknari lagði áherslu á það í
málflutningi sínum hversu litla
iðrun Hákon hefði sýnt eftir at-
vikið og staðfesti sálfræðingur
sem til var kallaður það mat.
Sagði sá að Hákon bæri í sér vott
af kvenhatri og þó að ljóst væri
að hann hefði verið hrifinn af Sri
voru orð hans og athafnir yfir-
leitt neikvæðar gagnvart henni
bæði fyrir og eftir morðið.
Saksóknari sagði að með tilliti
til hegðunar Hákonar, bæði fyrir
og eftir verknaðinn, ásamt því
mati sálfræðinga að hann væri
sakhæfur réttlætti hámarks-
fangelsi sem í íslenskum lögum
eru 16 ár og taldi hann engar
málsbætur hafa þrátt fyrir bar-
áttu sína um forræði barns síns.
Um einbeittan ásetning og brota-
vilja hefði verið að ræða.
Verjandi Hákonar sagði hins
vegar ljóst að andleg heilsa hans
eftir þrotlausa baráttu fyrir að
sjá og umgangast dóttur sína
hefði hrakað mikið og Hákon
hefði verið í miklu ójafnvægi og
geðshræringu þegar morðið var
framið. Taldi hann og upp nokkra
dóma sem hann taldi fordæmis-
gefandi þar sem sakborningar
voru dæmdir í fjögurra til sjö
ára fangelsi fyrir svipaðan glæp
og Hákon framdi.
albert@frettabladid.is
Bar fyrir sig stundar-
brjálæði og hræðslu
Hákon Eydal sem ákærður er fyrir morðið á Sri Rahmawati í júlí síðastliðnum
sagðist iðrast gjörða sinna fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.
Saksóknari sagði Hákon hafa sýnt litla iðrun og krefst hámarksrefsingar.
Dómur verður kveðinn upp fljótlega.
HÁKON EYDAL Í HÉRAÐSDÓMI Í GÆR
Tveggja tíma töf varð á að málaferlin
gætu hafist þar sem gleymst hafði að ná í
Hákon að Litla Hrauni þar sem hann
hefur verið í varðhaldi síðustu mánuði.
Hákon sagðist fyrir dómnum sjá eftir
gjörðum sínum og ber fyrir sig sturlun
þegar hann framdi morðið á Sri
Rahmawati.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L