Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 15
Kjósum Ingibjörgu Sólrúnu sem formann
Það hefur varla farið fram hjá
neinum síðustu daga að það stend-
ur til að kjósa formann í Samfylk-
ingunni nú á vordögum. Undirrit-
aður er einn af þeim fjölmörgu
sem yfirgaf Framsóknarflokkinn
eftir að hægri öflin undir öruggri
forustu Halldórs Ásgrímssonar
tóku völdin í flokknum og stilltu
honum upp hægra megin við
Sjálfstæðisflokkinn og þarf nú þó
nokkuð til. Afleiðingarnar af
stefnu Halldórs hafa ekki farið
fram hjá neinum, síst okkur hér á
landsbyggðinni sem höfum mátt
horfa upp á hnignandi atvinnulíf
og versnandi fjárhagsstöðu sveit-
arfélaga vegna kolrangrar tekju-
skiptingar ríkis og sveitarfélaga.
Þá hefur framsóknarmönnum tek-
ist að gera Byggðastofnun fjár-
hagslega máttvana og getulausa
til að taka þátt í uppbyggingu at-
vinnulífsins á landsbyggðinni.
Það væri verðugt verkefni
fyrir þau Valgerði Sverrisdóttur
og Halldór Ásgrímsson að taka
dagstund í að fara yfir stöðu
Byggðastofnunar og hvernig hún
getur aftur náð vopnum sínum og
hlutverki til styrktar atvinnu-
lífinu á landsbyggðinni. Þá væri
ágætt að iðnaðarráðherra gerði
sér grein fyrir að Húnavatnssýsl-
urnar og Skagafjörður teljast líka
til Norðurlands þegar rætt er um
hugsanlega stóriðju á Norður-
landi, þótt landsvæðið teljist ekki
til kjördæmis ráðherrans hvað þá
Akureyrar. Með hliðsjón af þess-
um atriðum og mörgum öðrum er
ljóst að það er brýnna en nokkurn
tímann áður að skipt verði um
húsbændur á ríkisstjórnarheimil-
inu eins fljótt og nokkur kostur er.
Til þess að sá kostur verði í stöð-
unni að loknum næstu alþingis-
kosningum þurfum við sem telj-
um okkur til jafnaðar- og félags-
hyggjumanna að tryggja glæsi-
legt kjör Ingibjargar Sólrúnar til
formanns Samfylkingarinnar,
enda óverjandi að viðurkennt
forsætisráðherraefni flokksins
standi ekki í brúnni og hafi yfir-
stjórn á fiskiríinu.
Ljóst er að núverandi formaður
nær ekki að fiska meira úr þeim
kvóta sem honum var úthlutað þeg-
ar Samfylkingin var stofnuð og í
raun var honum bjargað á ögur-
stundu fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar með því að fá Ingibjörgu
Sólrúnu sem forsætisráðherraefni
flokksins, kæmist hann í þá stöðu
að loknum kosningum. Ljóst er að
framboð Ingibjargar í Reyjavík
hafði áhrif víða um land og sá
möguleiki að hún settist hugsan-
lega í forsæti á ríkisstjórnarheim-
ilinu að kosningum loknum færði
Samfylkingunni mörg atkvæði á
landsbyggðinni. Góðir Samfylking-
arfélagar, nú hljótum við að setja
markið á 40% fylgi í næstu alþing-
iskosningum. Til að gera þetta
markmið raunverulegt þurfum við
að tryggja Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur þá glæsilegu kosningu
sem hún á skilið sem næsti formað-
ur Samfylkingarinnar, að öðrum
kosti er draumur okkar um stóran
flokk brostinn. ■
15LAUGARDAGUR 5. mars 2005
Vakandi yfir netinu
Vandinn er bara sá að það eru margir
vakandi yfir því sem er skrifað á netið
og því neyðarlegt að breyta eftir á. Við
erum ekki öll eins og Björn Bjarnason
sem hefur sagt að hann hafi aldrei á
ævinni þurft að breyta neinu. Annar
sem ætti stundum að fá sér glas af
köldu vatni áður en hann setur djarfar
fullyrðingar á netið er Magnús Þór
Hafsteinsson. Magnús er mikill skap-
maður – sem er allt í lagi, það er leið-
inlegt að hafa bara ofurpassasama
menn – en líklega þarf hann að gæta
sín sig sérstaklega vel nú þegar hann
er búinn að fá mótframboð á lands-
fundi flokks síns. Sjálfur hef ég ekkert
alltof góðan feril á þessu sviði. Ég hef
verið að skrifa á netið í á sjötta ár – og
stundum hef ég sett fram hluti sem ég
hef séð eftir. Í fyrravor breytti ég pistli
þar sem ég hafði bendlað þekktan
lögmann við hórerí. Hann fór eitthvað
í taugarnar á mér um þær mundir –
en fullyrðingin var náttúrlega alveg
fráleit svo ég þurrkaði hana út þegar
ég var búinn að anda að mér fersku
lofti.
Egill Helgason á visir.is
Stjórnað í nafni félagshyggjunnar
Það er ótrúlegt að verkalýðsforingjar
skuli ætla að stjórna hluta fólki í nafni
félagshyggjunnar. Flestir eru þetta
menn með tæplega milljón á mánuði
sem ætla að taka sér það vald að
semja um lág laun fyrir alla aðra. Er
ekki eðlilegra að hver og einn semji
við sína yfirmenn um laun. Jú ef að
einhverjir telja sig þurfa að semja
saman þá gera þeir það bara sín á
milli. Ef að maður rekur fyrirtæki með
20 starfsmönnum þá er það auðvitað
hans mál að semja við sína starfs-
menn. Það er svo starfsmannanna að
ákveða hvort að þeir vilji semja einn
og sér eða sem hópur. Ef þeir semja
sem hópur eru þeir auðvitað að binda
hver annan í ákveðna fjötra. En það er
kannski það sem þeir vilja og þá er
það þeirra mál. En þegar utanaðkom-
andi aðili kemur og ákveður hvernig
og um hvað þeir semja þá erum við
komin á hála braut.
Gísli Freyr Valdórsson á ihald.is
Ábending til fréttamanna
Það er því full ástæða til að benda
íslenskum fréttamönnum á eitt: Eftir
nokkur ár verður Tony Blair ekki
lengur við völd. George Bush ekki
heldur eða Halldór Ásgrímsson. Eftir
enn fleiri ár verða þeir dauðir og
gleymdir og engu máli skiptir hvort
þeir voru óvinsælir eða vinsælir þenn-
an eða hinn daginn. Það sem stendur
eftir eru hins vegar ákvarðanir eins og
sú sem breska þingið hefur nú tekið.
Þær eru sögulegar, ekki Tony Blair. Ef
íslenskar fréttir og fréttir almennt eiga
ekki að breytast í frekar slappan raun-
veruleikasjónvarpsþátt (með aðeins
eldri og ófríðari keppendum en Survi-
vor) þá er kominn tími til að þeir, sem
þær segja, hætti að taka þátt í leikriti
spunameistaranna og segi frá því sem
máli skiptir. Og í þessu máli blasir við
að pólitískt gengi Tony Blair skiptir
litlu máli samanborið við innihald
laganna sjálfra.
Ármann Jakobsson á murinn.is
VALDIMAR GUÐMANNSSON,
VERKAMAÐUR Á BLÖNDUÓSI,
SKRIFAR UM FORMANNSKJÖR Í SAM-
FYLKINGUNNI
BRÉF TIL BLAÐSINS
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
75
92
2/
20
05
Reykjavík • Kópavogi • Akureyri
Selfoss • Reykjanesbær
www.blomaval.is
af allri
gróðurmold
Fræ 25%afsláttur
Vorlaukar 25%afsláttur
25%
afsláttur
afsláttur af öllum
blómstrandi plöntum
Vortilboð25%
Blómstrandi vor
Ís og Mónu-
páskaegg
Gildir í Sigtúni
199 kr.
799 kr.
10 rósi
r
Tilboð
í Sigtún
i
Það er brýnna en
nokkurn tímann
áður að skipt verði um hús-
bændur á ríkisstjórnarheim-
ilinu eins fljótt og nokkur
kostur er.
,,