Fréttablaðið - 05.03.2005, Page 22
Sverrir áhorfandi
Sverrir Hermannsson, fyrrum formaður
Frjálslynda flokksins, sagði í samtali á
Talstöðinni að hann skipti sér ekki af því
sem gerðist í kosningum til embætta í
flokknum. Sagðist sestur í helgan stein,
en ekki alveg. Hann sagði enga ástæðu
til að skipta um formann og lýsti þar
með stuðningi við Guðjón Arnar Krist-
jánsson, sem eins og kunnugt er dró
Sverri með sér á þing í kosningunum
1999. Guðjón er aftur á móti ekki í vafa
um hvað hann vill. Hann vill að núver-
andi varaformaður,
Magnús Þór Haf-
steinsson, verði
áfram í embætti.
Eitthvað mistaldi
Guðjón Arnar
þegar hann
færði rök fyrir
skoðun sinni
og benti á þing-
reynslu Magnúsar um-
fram Gunnar Örn Örlygsson, en á þeim
munar heilum degi. Einum degi.
22 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is
Rými ehf
Háteigsvegi 7
Reykjavík
Sími 511 1100
Bréfsími 511 1110
ÚTS
ALA
N
Í FU
LLU
M G
AN
GI
Ef þú ert mikill aðdá-
andi hreingerninga þá
biðjumst við velvirðing-
ar á því að valda þér
vonbrigðum.
Með Pergo gólfefni
verður þú að finna þér
eitthvað annað að gera
í frítímanum þínum.
Stórútsala á
Pergo parketi
Ótrúlegt verð
Ekki missa
af gólfefnaútsölu
ársins
Aðeins
í nokkra daga
!
""#
$
%&
R Í K I S S K A T T S T J Ó R IRSK
Bestu vinir Dóra
slá í gegn
Ný hljómsveit skipuð ein-
tómum framsóknar-
mönnum kom fram á
flokksþinginu um síðustu
helgi. Hjálmar Árnason
formaður þingflokksins
spilaði á trommur. Hann
útilokar ekki að hljóm-
sveitin gefi út plötu.
FLOKKSÞING Á flokksþingi Fram-
sóknar um síðustu helgi kom fram
glæný og áður óþekkt hljómsveit
skipuð ekki svo óþekktu fólki.
„Við lékum þarna heil tvö æfð
lög og vorum jafnframt neydd til
þess að taka óæft aukalag,“ segir
Hjálmar Árnason, formaður þing-
flokks Framsóknarflokksins og
trommari hljómsveitarinnar.
„Auk mín var hljómsveitin
skipuð þeim Magnúsi Stefánssyni,
Sigurði Egilssyni, Guðmundi
Ragnarssyni og söngvararnir
voru ekki af verri endanum held-
ur því Árni Magnússon félags-
málaráðherra og Sæunn Stefáns-
dóttir varaþingkona og aðstoðar-
kona heilbrigðisráðherra, sungu
þetta kvöld. Við spiluðum þarna
lögin Mustang Sally og Proud
Mary og aukalagið Traustur vinur
fyrir um fimmhundruð manns og
höfðum afskaplega gaman af og
síðan hef ég verið hamingjusamur
maður,“ segir hann og hlær.
Að sögn Hjálmars er sveitin
ónefnd ennþá en margar hug-
myndir hafa komið upp, þar á
meðal „Bestu vinir Dóra“, og úti-
lokar hann ekki að hljómsveitin
gefi jafnvel út eitthvert efni.
Aðspurður hvernig þetta mikla
hljómsveitarævintýri hafi komið
til segir hann að allt hafi byrjað
með kaupum hans á trommusetti
fyrir nokkrum árum.
„Ég hef átt þennan draum
síðan ég var lítill strákur og ákvað
að láta hann rætast. Ég byrjaði að
æfa mig úti í bílskúr og gekk nú
mjög illa svo lítið sé sagt. Eftir
flokksþingið hef ég þó öðlast
meira sjálfstraust í þessu áhuga-
máli mínu og finnst fátt betra en
að koma heim að loknu argaþrasi
á þinginu og ganga út í bílskúr þar
sem ég á unaðslegar stundir með
þeim Charlie Watts, B.B. King og
John Lee Hooker og fer vel á með
okkur félögunum. Svo kem ég
klukkutíma seinna aftur inn
endurnærður og glaður.“
hilda@frettabladid.is
FRAMSÓKNARBANDIÐ Hjálmar Árnason,
formaður þingflokks Framsóknarflokksins og
trommari, ber hér húðirnar ásamt hljómsveit
á flokksþingi Framsóknar um síðustu helgi.
Úr bakherberginu...