Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 24
„Við höfum náð okkar markmiðum
í keppni og ætlum nú að beina
kröftum okkar að grasrótarstarf-
inu og látum af bikurunum glaðir í
bragði,“ segir Hrafn Jökulsson,
formaður skákfélagsins Hróksins
sem hefur hætt keppni í skák.
Íslandsmeistaramótið í skák
stendur nú yfir og verður nýr
meistari krýndur í dag. Hrókurinn
hefur unnið titilinn síðastliðin þrjú
ár. Þetta er í fyrsta skipti sem
Hrókurinn keppir ekki á Íslands-
meistaramótinu, en Hrafn segir
Hróksmenn engu að síður áber-
andi á mótinu, þar sem þeir keppi
fyrir önnur lið.
Hrókurinn hefur fyrir löngu
getið sér það orð að vera ein öflug-
asta grasrótarhreyfing landsins;
Hrafn og félagar virðast óþreyt-
andi í trúboðinu. „Sem dæmi má
nefna voru um 20 uppákomur á
vegum Hróksins í síðustu viku
einni saman. Við höfum boðið
tugum erlendra skákmeistara til
landsins og haldið mörg alþjóðleg
mót en stoltastir erum við af upp-
byggingarstarfinu í skólum lands-
ins. Á síðustu þremur árum höfum
við farið í um 600 skólaheimsóknir
um allt land. Hrókurinn er því eng-
an veginn allur þó að hann sé hætt-
ur keppni, hann hefur í raun aldrei
verið fjörugri,“ segir Hrafn.
Hrókurinn var stofnaður af
skákáhugamönnum á Grandrokk
við Klapparstíg haustið 1998. „Við
segjum í fullri alvöru að þetta
byrjaði sem brandari. Við ætluðum
að taka þátt í einu Íslandsmóti,
vinna eins marga sigra og hægt
var og hafa gaman af þessu, sem
og við gerðum,“ segir Hrafn.
Brandarinn vatt upp á sig sem og
metnaður Hróksmanna; þeir byrj-
uðu í fjórðu deild og sigruðu eina
deild á ári þar til þeir unnu loks Ís-
landsmeistaratitilinn árið 2002.
Titlinum héldu þeir í tvö ár til við-
bótar. Félögum í Hróknum hefur
stórfjölgað, starfsemi félagsins
teygir sig um allt land og jafnvel út
fyrir landsteinanna. „Við erum
með sendinefnd í Namibíu sem
verður þar í sex vikur. Þá höfum
við beitt okkur fyrir landnámi
taflsins á Grænlandi og rekum
skákskóla í Sarajevo,“ segir Hrafn.
Hrafn spáir hinu fornfræga
Taflfélagi Reykjavíkur sigri á mót-
inu í dag. „Ég myndi veðja á þá, en
þeirra helstu keppinautar eru
Hellir og nýliðar Eyjamanna, en
þar hefur verið sannkölluð skák-
sprenging.“ Sjálfur keppir Hrafn
fyrir Fjölni í fjórðu deild og unir
sér vel þar. „Mér til mikillar
ánægju fæ ég að tefla við einn
efnilegasta skákmann landsins,
Ingvar Ásbjörnsson, sem er ekki
nema þrettán ára gamall og eitt
mesta efni sem hefur komið fram
lengi.“
Hrafn viðurkennir fúslega að
hann hafi ekki séð þessa atburða-
rás fyrir á sínum tíma. „Útsýni
mitt var afar takmarkað haustið
1998 en eitt leiddi af öðru og
brandarinn á Grandrokk dreifðist
svo sannarlega út.“ ■
24 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
JÓSEF V. STALÍN (1879 – 1953)
lést þennan dag.
Brandari sem dreifðist
um allan heiminn
TÍMAMÓT: NÝR ÍSLANDSMEISTARI Í SKÁK
„Það nægir að fólk viti að kosningar hafi átt sér
stað. Fólkið sem kýs ákveður ekkert. Fólkið sem
telur atkvæðin ræður öllu.“
„Stálmennið“ hélt margar málamyndakosningar og vann jafnan yfirburðasigur í
þeim. Sagan segir að eitt sinn hafi fundist kjörseðill sem á stóð „Þessi með yfir-
varaskeggið er asni.“ Leyniþjónustan hafði uppi á höfundinum og færði hann fyrir
Stalín sem spurði hvað þetta ætti að þýða. „Ég er vitaskuld að tala um Hitler,“
sagði maðurinn. „Auðvitað,“ tók Stalín undir, leit svo á yfirmann leyniþjónustunn-
ar og spurði með hægð: „Hvern hélst þú að hann ætti við?“
timamot@frettabladid.is
HRAFN JÖKULSSON Hrókurinn byrj-
aði sem brandari á Grandrokk haustið
1998 en átti eftir að vinda upp á sig og
teygja sig út fyrir landsteinana.
„Mér fannst alltaf innst inni að það
væri eitthvað að, ekki eins og það
átti að vera,“ sagði Lena Betak fyrir
20 árum en þennan dag árið 1985
var hún send heim af fæðingardeild
Landspítalans með rangt barn. Lena
og maður hennar komu frá Dan-
mörku og bjuggu ásamt dótturinni
Liv á Kjalarnesi. Lena gekk með
þeirra annað barn og fæddi aðra
dóttur hinn 28. febrúar. Móður og
barni heilsaðist vel og allt var með
felldu þar til hinn 4. mars þegar
Lenu var afhent dóttir sín til að
setja á brjóst. Lena kannaðist ekki
við að barnið sem hún var látin fá
væri dóttir sín. „Ég sá strax að þetta
var miklu minna barn en mitt, en
samt ótrúlega líkt,“ sagði hún við
blaðamann eftir atburðinn. Starfs-
fólk spítalans maldaði í móinn og
sagði það ekki geta verið að þetta
væri annað barn en hennar eigið.
Þrátt fyrir mótbárur var Lena send
heim með barnið hinn 5. mars.
Skömmu eftir að fjölskyldan kom
heim hringdi síminn og starfsmaður
spítalans tilkynnti Lenu að hræðileg
mistök hefðu átt sér stað; tveimur
börnum hafði verið víxlað í vöggur
og Lena látin fá barn sem fæddist
3. mars. Fjölskyldan rauk hið
snarasta niður á spítala og hafði
barnaskipti við foreldrana sem voru
með barn Betakhjónanna. Þáver-
andi yfirlæknir á fæðingardeild
Landspítalans, var miður sín yfir
mistökunum og sagði þetta gamlan
skrekk allra fæðingarstofnana. Þetta
er eins og þegar maður tekur vit-
lausa tösku á harðahlaupum á flug-
velli,“ var haft eftir honum í DV árið
1985.
5. MARS 1985
ÞETTA GERÐIST MERKISATBURÐIR
1461 Hertoginn af Jórvík steypir
Hinrik VI af stóli í Rósa-
stríðinu í Bretlandi.
1558 Francisco Fernandes kynnir
Evrópubúum tóbaksreyk-
ingar.
1616 Kaþólska kirkjan bannar rit
Kópernikusar því sólmiðju-
kenning hans gekk gegn
kennisetningum kirkjunnar.
1807 Fjórða sinfónía Beethovens
í B-dúr flutt í fyrsta skipti.
1865 Möðruvallarkirkja í Hörgár-
dal brennur.
1897 Fyrsti háskóli fyrir svarta
stofnaður í Bandaríkjunum.
1933 Þýski nasistaflokkurinn
vinnur meirihluta í þing-
kosningum.
1946 Winston Churchill flytur
ræðuna um „járntjaldið“
milli austurs og vesturs.
1955 Elvis Presley kemur fram í
sjónvarpi í fyrsta skipti.
Móðir send heim með rangt barn
ANDLÁT
Lára S. Ólafsson lést mánudaginn 21.
febrúar. Útförin fór fram í kyrrþey.
Aðalheiður Ósk Jónsdóttir, Aðalgötu 1,
Keflavík, lést mánudaginn 28. febrúar.
Soffía Einarsdóttir, Furugrund 54,
Kópavogi, lést þriðjudaginn 1. mars.
Árni Vilhjálmsson, Urðarteigi 5, Nes-
kaupstað, lést miðvikudaginn 2. mars.
Jóhanna Baldvinsdóttir, Grund, lést
miðvikudaginn 2. mars.
JARÐARFARIR
11.00 Haraldur Guðbergsson verður
jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju.
13.00 Siggeir Jóhannsson, bóndi, Núp-
um, Ölfusi, Sóltúni 5, Selfossi,
verður jarðsunginn frá Hveragerð-
iskirkju.
14.00 Anna Kjartansdóttir, frá Hrauni,
Hnífsdal, verður jarðsungin frá
Hnífsdalskapellu.
14.00 Gestur Þórarinsson, Urðarbraut
4, Blönduósi, verður jarðsunginn
frá Blönduóskirkju.
14.00 Ingveldur Gísladóttir, frá Patreks-
firði, verður jarðsett í Patreksfjarð-
arkirkjugarði að lokinni minning-
arathöfn í Patreksfjarðarkirkju.
14.00 Sigursteinn G. Melsteð, Ásvegi
21, Breiðdalsvík, verður jarðsung-
inn frá Heydalakirkju.
Formlegt upphaf framkvæmda
við Hellisheiðarvirkjun verður
staðfest með skóflustungu að nýju
stöðvarhúsi virkjunarinnar við
Kolviðarhól klukkan 14.30 í dag.
Helgi Pétursson, verkefnisstjóri
hjá Orkuveitu Reykjavíkur, segir
að gert sé ráð fyrir að fyrsti hluti
virkjunarinnar verði tilbúinn í
maí á næsta ári og rafmagnsfram-
leiðsla geti hafist haustið eftir.
Afkastageta virkjunarinnar
eftir fyrsta áfanga verður 90
megavött. Heitavatnsframleiðsla
fylgir á næstu þremur árum en
Norðurál kaupir allt rafmagn.
- bs
FÆDDUST Á ÞESSUM DEGI
1908 Rex Harrison,
leikari. Hann lék
meðal annars í My
Fair Lady og Dagfinni
dýralækni.
1957 Mark E. Smith.
Söngvari ensku
hljómsveitar-
innar The Fall
og Íslandsvinur.
AFMÆLI
Jón Ormur Halldórs-
son stjórnmálafræð-
ingur er 51 árs í dag.
Sigurður Valur
Sveinsson handknatt-
leiksmaður er 46 ára í
dag.
Eggert Þór Aðalsteinsson sagnfræðing-
ur er 29 ára í dag.
Okkar ástkæri
Kristinn Hólm Vigfússon
Ránargötu 23, Akureyri,
lést á gjörgæsludeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri sunnu-
daginn 27. febrúar. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju mánu-
daginn 7. mars kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Anna Rósantsdóttir, Lára Björk Kristinsdóttir, Halldór Árnason,
Bragi Hlíðar Kristinsson, Fríða Pétursdóttir, afabörn og langafabarn.
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir og afi,
Guðmundur Eyjólfsson
Hrafnistu í Reykjavík, áður til heimilis að Álftamýri 49,
er lést 24. febrúar á Hrafnistu í Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju mánudaginn 7. mars kl. 15.
Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Úlfhildur Ebenesardóttir, Hörður Guð-
mundsson, Anna Margrét Tryggvadóttir, Sigrún Guðmundsdóttir,
Vilhjálmur Sigurgeirsson, Þórunn Guðmundsdóttir, Ólafur R. Vilberts-
son, Guðveig Nanna Guðmundsdóttir, Sigurður Grétar Geirsson,
Guðlaugur Björn Guðmundsson, Anna María Valdimarsdóttir,
Sigurjón Guðmundsson, Dagbjört Erla Ásgeirsdóttir og afabörn.
Skóflustunga tekin í dag
STÖÐVARHÚSIÐ Tölvuteikning af stöðvar-
húsinu við Hellisheiðarvirkjun.
Sveinn Gamalíelsson, Kópavogsbraut
20, lést miðvikudaginn 2. mars.