Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 29
16.500 ökutæki voru nýskráð á
síðasta ári samkvæmt tölum frá
Umferðarstofu.
Alls voru
12.600 öku-
tæki nýskráð
árið 2003 og
aukningin er því um það
bil 31 prósent milli ára. Þegar
verðmæti innfluttra einkabíla á
föstu verðlagi er skoðað kemur
fram að verðmætið jókst úr
12.207 milljónum króna árið
2003 í 16.970 milljónir króna á
síðasta ári. Þetta jafngildir um 39
prósenta aukningu milli ára.
Tékkneski bílafram-
leiðandinn Skoda
ætlar að bæta litl-
um jepplingi í
flota sinn á næst-
unni. Frumgerð jepplingsins er
sýnd á bílasýningunni í Genf sem
nú stendur yfir þar sem hann er
kynntur undir nafninu Yeti.
Skoda-jepplingurinn er af svip-
aðri stærð og smájeppinn
Suzuki Ignis. Hann er
þriggja dyra og svipaður að
stærð og Volkswagen Polo.
General Motors hefur valið
verksmiðju sína í Russelsheim í
Þýskalandi til að framleiða miðl-
ungsstóra Opel- og Saab-bíla fyr-
ir Evrópumarkað. General Motors
vildi ekki framleiða bílana í Sví-
þjóð eins og gert hefur verið
hingað til, til að minnka kostnað.
Á síðasta ári tilkynnti
General Motors
áætlun um að skera
niður allt að tólf
þúsund störf í Evr-
ópu enda stendur bílafram-
leiðandinn sig ekki alveg í sam-
keppninni.
LIGGUR Í LOFTINU
í bílum
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 4
Flokkar
Bílar & farartæki
Keypt & selt
Þjónusta
Heilsa
Skólar & námskeið
Heimilið
Tómstundir & ferðir
Húsnæði
Atvinna
Tilkynningar
Frjáls íbúðalán
vextir
100
%
veð
set
nin
gar
hlu
tfa
ll
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðslugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum.
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til íbúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn í Ármúla 13a,
hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is www.frjalsi. is
H
i
m
i
n
n
o
g
h
a
f
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræðingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviði
Ragnheiður Þengilsdóttir
viðskiptafræðingur er lánafulltrúi á viðskiptasviði.
Lánstími 5 ár 25 ár 40 ár
4,15% vextir 18.485 5.361 4.273
*Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.*
Góðan dag!
Í dag er laugardagur 5. mars,
64. dagur ársins 2005.
REYKJAVÍK 8.21 13.39 18.59
AKUREYRI 8.09 13.24 18.41
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Páll Dagbjartur Sigurðsson húsasmið-
ur hefur alltaf verið með bíladellu en
keypti sér sinn fyrsta jeppa, Jeep
Cherokee dísíl árgerð 1995, fyrir einu
og hálfu ári.
„Ég hafði aldrei átt jeppa þegar ég keypti
Cherokee en ég fékk algjöra jeppadellu þegar
ég fékk hann. Mig var búið að langa í jeppa
lengi og það er ekki aftur snúið núna. Ég á
aldrei eftir að kaupa mér neitt annað en jeppa.
Áður en ég keypti jeppann átti ég Mercedes
Benz 240 C árgerð 1998 og þá var ég mikill
sportáhugamaður. Nú hefur það aldeilis
breyst,“ segir Páll.
Páll keypti jeppann af því að honum bauðst
hann upp í skipti og því má segja að þetta hafi
verið skemmtileg tilviljun. En ætli Pál langi
ekki í annan jeppa á næstunni? „Jú, mig lang-
ar að skipta. Mann langar alltaf í meira og
meira, stærri og stærri og meira breyttan.
Draumajeppinn í dag er Toyota Hilux 35
tommu breyttur og er ég að leita mér að slík-
um grip. Reyndar skipti ég oft um drauma-
jeppa en það stendur til að skoða Hilux,“ seg-
ir Páll, sem breytti Cherokee-jeppanum að-
eins. „Hann er 31 tommu breyttur. Ég vil samt
frekar kaupa tilbúinn jeppa einfaldlega vegna
þess að það kemur miklu betur út peninga-
lega.“
„Ég hef alltaf verið bílakarl og ég fékk
meira að segja fyrsta bílinn minn löngu áður
en ég fékk bílpróf. Ég og vinur minn áttum
Citroën árgerð 1984 saman og ég held að við
höfum verið fjórtán ára þá. Við fengum
reyndar ekki að keyra hann því pabbi hans
var algjör Citroën-maður,“ segir Páll og hlær.
En hvað er það sem er svona heillandi við
jeppana? „Sumir sem eiga jeppa, þá sérstak-
lega dýra jeppa, finnst eins og það sé eitthvað
einkenni eða stolt. Mér finnst bara gaman að
geta farið hvert sem ég vil í hvaða veðri og
færð sem er. Jeppinn hentar mér líka í vinn-
unni því ég get dregið kerru eða hjólhýsi auð-
veldlega. Það er svo gott að vera ekki háður
öðrum og það er þetta frelsi sem ég finn í
jeppanum. Mér finnst líka mjög gaman að
keyra utan vega.“ ■
Gaman að keyra utan vega
bilar@frettabladid.is
Páll er stoltur eigandi Cherokee-jeppa og nýtur frelsisins sem jeppinn veitir honum.
Smáauglýsingar
á 995 kr.
visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TILBOÐ o.fl.
Þú getur pantað
smáauglýsingar á
www.visir.is
KRÍLIN
Í dag eigum við
að læra nýjan
sálm. Um hvað
ætli hann sé?!
Reynsluakstur á Skoda Octavia
BLS. 2
][
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N