Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 56
5. mars 2005 LAUGARDAGUR
Þegar eitthvað
hverfur sjónum
manns sem hefur
átt hug manns allan
kemur alltaf eitt-
hvað annað í staðinn.
Stundum er það eitt-
hvað betra en stund-
um ekki. Er góður
vinur hverfur af landi
brott hleypur oftast annar í hans
skarð sem er ekki síður skemmti-
legur. Þegar toppleikmaður yfirgef-
ur uppáhaldsfótboltaliðið kemur
bara einhver annar og tekur upp
þráðinn þó hann sýni kannski ekki
alveg sömu taktana.
Lærdómurinn af þessu er sá að
enginn er ómissandi því alltaf er
eitthvað eða einhver til að taka við
kyndlinum. Eldurinn heldur áfram
að loga, bara á annan hátt. Söknuður
af því sem fer getur því oft á tíðum
breyst í gleði skömmu síðar, sem
mann hafði ekki órað fyrir að gæti
gerst.
Idolið hættir til að mynda bráð-
um og verður sjónarsviptir að þeirri
keppni enda mikil stemmning sem
fylgir henni. Í staðinn kemur þá
eins og þruma úr heiðskíru lofti
enginn annar en Hemmi Gunn með
glænýjan sjónvarpsþátt þar sem
tónlist er í fyrirrúmi. Spennandi,
ekki satt? Þegar Hemmi hætti í
sjónvarpinu á sínum tíma myndað-
ist smá tómarúm sem Gísli Mart-
einn fyllti nokkru síðar. Þó svo að
hann sé ekki eins skemmtilegur og
Hemmi hélt hann áfram að fá fræga
fólkið í heimsókn, rétt eins og
Hemmi hafði gert. Svipað gerðist í
Bandaríkjunum þegar hinn gríðar-
vinsæli Johnny Carson hætti með
spjallþátt sinn. Þá kom Jay Leno
bara í staðinn og hann er hreint ekki
svo slæmur. Það hefði verið gaman
að sjá þá Gísla og Hemma keppa um
áhorfið en ekkert verður víst af því,
að minnsta kosti í bili.
Hemmi, Gísli, Carson og Leno
eru eins og við öll hluti af risastóru
tannhjóli sem snýst hring eftir
hring, ár eftir ár eftir ár. Þegar ein
tönnin dettur úr kemur önnur í stað-
inn, þannig er það bara. Endurnýj-
unin er alltaf fyrir hendi og því
algjör óþarfi að örvænta þegar
atburðir eins og endalok Idol skekja
land og þjóð. ■
STUÐ MILLI STRÍÐA
FREYR BJARNASON SKRIFAR UM HRINGRÁS LÍFSINS OG ENDALOK IDOL
Fyllt upp í tómarúmið
M
YN
D
: H
EL
G
I S
IG
U
RÐ
SS
O
N
Eftir Patrick McDonnell
■ PONDUS
■ GELGJAN
■ KJÖLTURAKKAR
■ BARNALÁN
■ PÚ OG PA Eftir SÖB
Eftir Kirkman/Scott
Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
Eftir Frode Överli
Jæja stelpur, nú verðið
þið að fara í háttinn.
Allt í lagi
mamma!
Sástu Survivor-
þáttinn í gær?
þegar hann
hljóp inn í
skóginn...
Þú hefur í raun rétt fyrir
þér! Það eru foreldrarnir
sem njóta þess mest þegar
börnin fá bílpróf...
...og það er meðfætt
hjá okkur að telja börn-
um okkar trú um að við
hræðumst þennan dag
sem þau mega keyra!
En það
virkar
bara svo
lengi sem
við höldum
leyndarmálinu
fyrir okkur!
Ég segi
ekki orð.
Kross-
band um
tungu!
Halló!
Það er stundum nauðsynlegt
að hjálpa fólki sem er gjör-
samlega tómt í hausnum!
Takk! Það er líka
nauðsynlegt að
láta ískra í eyr-
unum á sér.
Það besta við þetta,
finnst mér allavega,
er að þetta var þín
hugmynd!
úbbs
Það er alltaf einn
í hverjum hópi!
Þetta er eins og eitt
stórt samsæri hjá
öllum foreldrum!