Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 58
42 5. mars 2005 LAUGARDAGUR
Skórnir fullkomna heildarmyndina
Það eru engin nýmæli að kvenfólk hrífist af skófatnaði og sumar eiga það til að ljúga til um fjölda skópara ef þær eru spurðar.
Ofurskutlurnar Inga Rósa, Helga Ólafs og Hanna Stína eiga allar dágóðan slatta af skóm og skammast sín ekki fyrir það.
Þær eru líka með það alveg á hreinu hvað þær ætla að kaupa sér fyrir sumarið og hvernig tískustraumarnir liggja.
Inga Rósa Harðardóttir, verslunar-
og innkaupastjóri í GS skóm
Skóáhuginn byrjaði með
L.A. Gear strigaskóm
Inga Rósa hefur verið forfallin skóáhugakona síðan hún eignaðist sína
fyrstu L.A Gear skó þegar hún var 13 ára. Fólk af sömu kynslóð og Inga
Rósa man að sjálfsögðu eftir þessum skóm en þeir voru mikil tískuvara á
þeim tíma. Síðan þá hefur
áhuginn farið sívaxandi. Núna
er Inga Rósa í draumastarfinu
þar sem hún bæði kaupir inn
skó fyrir GS skó og stýrir skó-
búðinni. Aðspurð hvað hún
eigi mörg skópör segist hún
hafa hætt að telja þegar pörin
voru komin yfir 60.
Í augnablikinu eru gróf kon-
íaksbrún stígvél í mestu uppá-
haldi hjá henni. Þau eru með
kubbslegum hæl og með
bandi um ökklann.
„Þessi stígvél eru alveg geð-
veik. Ætli þau séu ekki í mestu
uppáhaldi því þau passa við
allt. Þau eru falleg við galla-
buxur, pils og kjóla.“
Að sögn Ingu Rósu skiptir
miklu máli að fara vel með
skóna sína.
„Ef ég ætla að dekra við skóna
mína tala ég við þá. Það virkar alltaf,“ segir hún og hlær. Inga Rósa segir
að það sé svolítið árstíðabundið hvað hún kaupi mikið af skóm.
„Mér finnst ég kaupa meira af skóm yfir vetrartímann, en það er kannski
bara af því að það fer meira fyrir stígvélum en sandölunum sem ég
kaupi mér yfir sumartímann. Ætli skókaupin séu ekki nokkuð
jöfn yfir árið. Ég kaupi þó alltaf mest þegar það eru að koma
inn nýjar vörur.“
Inga Rósa kaupir mest af skóm á Íslandi og þá í GS skóm.
Henni finnst þó alltaf jafn gaman að kíkja í Nota Bene í
Kaupmannahöfn.
„Mér finnst Nota Bene æðisleg skóbúð og svo er alltaf gaman að
hoppa inn í Shellys í London.“ Inga Rósa er farin að leggja drög
að því hvað hún ætlar að kaupa sér fyrir vorið.
„Ég ætla að kaupa mér trésandala með fylltum hæl ásamt
svokölluðum Jesúsandölum sem eru alveg flatir og reimaðir
upp á ökklann. Ef ég þekki mig rétt kaupi ég örugglega nokkur
pör af stígvélum. Ég er mjög spennt fyrir einum sem eru svolít-
ið hippaleg með bollutá og breiðum hæl.“
Helga Ólafsdóttir sér um
vöruþróum hjá Nikíta
Var hrifnust af
vaðstígvélum sem barn
Fatahönnuðurinn Helga Ólafsdóttir veit hvað klukkan slær þegar kemur
að tískunni enda er tískan stór hluti af vinnunni hennar. Hún er, eins
og margar aðrar skvísur, sérlega hrifin af skóm. Sem barn var hún þó
lítið að spá í skótískuna og var hæstánægð með vaðstígvélin sín. Skó-
dellan fór ekki að láta á sér kræla fyrr en á menntaskólaárunum en þá
áttu silfurlitaðir hælaskór vinninginn og voru þeir notaðir bæði á skóla-
böllunum og á útskriftinni.
„Það eru bara einhverjir ótrúlegir töfrar yfir skóm. Þetta eru töfrar sem
ég get ekki staðist,“ segir Helga. Háhælaðir skór eru líka í miklu uppá-
haldi hjá henni. Hún segir að það fari aldrei framhjá henni þegar hún
sér skó sem hana langar í.
Ég sé um leið hvort ég heillist af skónum eða ekki, ég er aldrei í vafa.
Ég á tvenna uppáhaldsskó sem ég get ekki gert upp á milli. Aðra keypti
ég síðasta sumar, hjartaskór frá Marc Jacobs. Það er eitthvað svo sexí
við þá. Hitt parið keypti ég fyrir rúmlega 4 árum í London en þeir eru
frá Miu Miu. Sama dag og ég keypti skóna kynntist ég kærastanum
mínum og við höfum verið saman frá þeim degi, ég, kærastinn og
skórnir,“ segir Helga og brosir út í annað. Það er mjög misjafnt hvað
Helga kaupir sér mörg skópör í mánuði.
„Suma mánuði kaupi ég mörg pör og aðra mánuði enga (ég reyni að minnsta
kosti að telja mér trú um það).“
Helga ferðast töluvert vegna starfsins og hefur hún komið þrisvar sinnum til
Shanghai.
„Á markaðnum þar er hægt að finna æðislega skó. Annars finnst mér skemmti-
legast að kaupa skó í Kaupmannahöfn, þar eru endalaust flottar skóbúðir.“
Helga er alveg búin að skipuleggja vorinnkaupin þegar kemur að skóm.
„Næst á dagskrá er að kaupa skó í Verksmiðjunni frá Maríu Kristínu skóhönn-
uði. Ég er búin að ætla að gera það síðan í desember. Annars er bara að bíða
eftir betra veðri svo ég geti farið að kaupa mér sandala og sæta sumarskó.“
Jóhanna Kristín Ólafsdóttir innanhússarkitekt
Innbyggða eðlið kallar á skó
Í Vesturbæ Reykjavíkur hefur fylgihlutadrottningin Jóhanna Kristín hreiðrað um sig eftir
sínum eigin smekk. Hún hefur ástríðu fyrir öllu sem gleður augað og leggur mikið
upp úr því að ekkert trufli fegurðarskynið. Þetta á við um allt, ekki bara heimilið. Hún
á veglegt fatasafn og elskar skó og töskur.
„Mitt náttúrulega innbyggða eðli kallar á fagran skóbúnað og töskur. Ég veit ekki af
hverju. Fyrir mér er þetta jafn sjálfsagt og að draga andann,“ segir Jóhanna Kristín.
Hún segir jafnframt að hið kvenlega element sé svo sjarmerandi við skó og töskur.
„Þetta er eitthvað sem strákarnir geta ekki stolið frá okkur. Það er ekki til neitt kven-
legra en háhælaðir skór á fögrum ökkla eða falleg taska á öxl.“
Skó- og töskuáhugi Jóhönnu Kristínar
byrjaði fyrir alvöru þegar hún fór að hafa
fjárráð til að geta leyft sér að kaupa skó
sér til ánægju en ekki af illri nauðsyn. Í
dag á hún stórt skósafn. Aðspurð um uppáhaldsskóna segist hún ekki
gert upp á milli bestu vina sinna.
„Oftast eru nýjustu skórnir í mestu uppáhaldi en þetta er líka árstíða-
bundið. Ég verð þó að viðurkenna að ég hef alveg vaðið metraháa
skafla í támjóum pinnahælum og skammast mín ekkert fyrir það,“ segir
hún og hlær. Hún er þó ekki alltaf vaðandi í sköflum í pinnahælum og
nú í vetur hefur hún mest verið í háum leðurstígvélum. Jóhanna Kristín
kaupir sér oftast tvö skópör í mánuði og stundum kemur fyrir að hún
kaupi fleiri. Henni finnst best að kaupa skó í Selfridges í London því þar
er allt á einum stað.
„Ég fylgist vel með hvað er í gangi hverju sinni þó ég líti ekki alltaf út
fyrir það. Ef ég hefði ótakmörkuð fjárráð væri ég í nýju dressi á hverj-
um degi,“ segir hún og hlær og vísar í stjörnu tvíburans sem hún er
fædd í. Jóhanna Kristín er farin að spekúlera í sumartískunni og hún
nokkurn veginn búin að gera sér hugmynd um hvað hún ætlar að
kaupa sér fyrir vorið.
„Mig dreymir um Miu Miu krókódílatösku, pinnahæla frá Stellu McCartn-
ey og flottar gallabuxur. Svo fæ ég mér örugglega einhver flott belti og
fullt af eyrnalokkum á stærð við ljósakrónur. Það kæmi mér heldur ekki
á óvart að ég myndi kaupa mér stutta jakka í massavís.“