Fréttablaðið - 05.03.2005, Síða 65
LAUGARDAGUR 5. mars 2005
KRINGLUKRÁIN UM HELGINA
• Fjölbreyttur sérréttamatseðill
öll kvöld vikunnar
• Tilboðsmatseðill
fyrir Leikhúsgesti
• Hópamatseðill
• Sérsalur fyrir hópa
Borðapantanir í síma 568-0878 www.kringlukrain.is
STUÐ
BANDALAGIÐ
FRÁ
BORGARNESI
17.00 Ingólfur Arnarsson sýnir
teikningar í Safni, Laugavegi 37.
Einnig verða sýnd verk eftir sjö lista-
menn Frá hinu forvitnilega galleríi,
Pierogi, í New York.
18.00 Snorri Ásmundsson opnar
sýningu sína, Bloody Beauty, í Ban-
ananas, Laugavegi 80. Sýningin er
bönnuð börnum innan 18 ára.
Sýningin Farfugarnir, sem er sam-
sýning á verkum sex norrænna
myndlistarmanna frá Danmörku,
Finnlandi og Íslandi, verður opnuð í
sýningarsölum Norræna hússins.
■ ■ SKEMMTANIR
20.30 Breiðfirðingakórinn verður
með skemmtun í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14. Söngur, gamanmál,
happdrætti og dans.
Á Broadway verður sngkabarettinn
Með næstum allt á hreinu. Einnig
dansleikur með Milljónamæringun-
um.
Sveiflukóngurinn Geirmundur Val-
týsson leikur fyrir dansi í Vélsmiðj-
unni á Akureyri.
Spilafíklarnir skemmta á Dubliner.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.00 Á sjöunda laugardagsfundi
Reykjavíkurakademíunnar um Virkj-
un lands og þjóðar verður fjallað um
eignarhald og hugsanlega einkavæð-
ingu Landsvirkjunar. Steingrímur Ari
Arason, Sigurður Jóhannesson, Val-
gerður Sverrisdóttir og Helgi Hjörv-
ar halda stutt framsöguerindi.
13.00 Berglind Jóhannsdóttir
tannlæknir ver doktorsritgerð sína
„Tíðni bitskekkju, form og stærðir
andlitsbeina og erfðastuðull barna
við foreldra sína á íslandi“ í Hátíðar-
sal Háskóla Íslands.
■ ■ FUNDIR
09.00 Hvar er barnamenningin?
nefnist málþing í Gerðubergi á veg-
um Barnamenningarsjóðs þar sem
Ármann Jakobsson, Ragnheiður
Gestsdóttir, Ragnheiður Þórarins-
dóttir, Þorvaldur Þorsteinsson og
Þórunn Sigurðardóttir flytja erindi.
■ ■ SAMKOMUR
11.00 Dagur Tónlistarskólans á Ak-
ureyri hefst klukkan 11 með tónleika-
röð í Ketilhúsinu sem stendur til 16.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
Það er alltaf ánægjulegt þegar ungir
menn vilja segja eitthvað í leikhúsi og ef
þeim liggur nógu mikið á hjarta þá er
vísast að eitthvað kemur út úr því á
endanum.
Þorleifur Örn er tiltölulega nýútskrif-
aður leikari en hefur sett upp nokkrar
leiksýningar með ágætum árangri. Hér
sleppir hann leikskáldinu í sér lausu í því
augnamiði að stinga á kýlum í samfé-
lagsins. Til þess notar hann satíruna í
anda Dario Fo og bresku sitcom hefðar-
innar sem ól m.a. af sér hina sívinsælu
þætti „Já ráðherra“ í sjónvarpinu hér á
árum áður.
Hann brýtur þó leikritið upp annað
slagið með samtalssenum þar sem ráð-
herrann er á einhvers konar eintali við
sinn „innri mann“ eða tákngerving hins
jarðbundna íslenska alþýðumanns í
brúnni lopapeysu og endar svo á því að
strípa allt saman, svipta hulunni af
blekkingunni og sýna áhorfendum hina
köldu staðreynd um stöðu Íslands í
alþjóðasamfélaginu.
Íslensk pólitík er hér dregin sundur
og saman í háði en samt er alvarlegur
undirtónn og því miður örlar of oft á því
að höfundurinn er að trana sér fram-
fyrir verkið með meiningar og skoðanir
sem hann vill troða ofan í kokið á áhorf-
endum. Hann segir stundum alltof
mikið.
Engu að síður er ég viss um að Þorleif-
ur á eftir að dafna sem leikhúshöfundur
og sannarlega fær hann plús í kladdann
fyrir að hrista upp í okkur sem stöndum
oftast eins og fé í réttum sem bíður slátr-
unar í stað þess að temja okkur gagn-
rýna hugsun og láta okkur varða það
sem fram fer í okkar þjóðfélagi.
Hið napra háð er sterkt vopn í hönd-
um þess sem kann með það að fara og
fyrir minn smekk hefði ég viljað sjá fars-
ann keyrðan alla leið því farsinn lýtur
sínum eigin lögmálum og er alltaf hár-
beittur. Þorleifur hefði mátt þétta text-
ann hér og hvar og hleypa verkinu oftar
á skeið en hann gerði í þessari sýningu.
Leikararnir standa sig allir með prýði
og að öðrum ólöstuðum verður að segj-
ast eins og er að Hjálmar Hjálmarsson
bar sýninguna uppi með hárfínum línu-
dansi og tókst að vera bæði tragísk og
kómísk persóna mitt í öllu havaríinu.
Hann var eins og sambland af öllum
þeim pólitíkusum sem birtast með
reglulegu millibili á skjánum að segja
okkur sömu þreyttu klisjurnar með
reglulegu millibili til að við getum
þakkað þeim fyrir lífskjör okkar með
reglulegu millibili og kosið þá yfir okkur
með reglulegu millibili til að þeir geti
tekið okkur í r.... með reglulegu millibili.
Báðar leikkonurnar, Björk og Eline,
gera vel og þakklátt að þær skuli hafa
annað hlutverk en að matreiða brandar-
ana ofan í strákana eins og svo oft vill
verða. Ólaf Þorvaldz hef ég ekki áður
séð á sviði en hann stóð sig prýðilega.
Einkum var hann góður í bandaríska
sendifulltrúanum. Hefði ekki verið smart
ef höfundurinn hefði sjálfur stigið á svið
og leikið stíllistann? Þetta litla hlutverk
var þokkalega af hendi leyst hjá Ævari
en það er ekki gott að blanda svona
saman áhugaleikurum og atvinnuleik-
urum.
Búningarnir voru við hæfi og meira
að segja leikmyndin í sínum natúr-
alisma, svona yfirnáttúrulega ung-
mennafélagslega hallærisleg fór í heilan
hring og varð töff og smart þegar upp
var staðið. Ég vil ekki eyðileggja fyrir
væntanlegum áhorfendum með því að
ljóstra of miklu upp en á margan hátt á
þessi sýning brýnt erindi við okkur.
LEIKLIST
VALGEIR SKAGFJÖRÐ
Borgarleikhúsið í samvinnu
við Hið lifandi leikhús
American diplomacy
Höfundur og leikstjóri: Þorleifur Örn Arn-
arsson Leikmynd og búningar: Drífa Ár-
mannsdóttir Lýsing: Geir Magnússon
Leikarar: Hjálmar Hjálmarsson, Björk Jak-
obsdóttir, Eline McKay, Ólafur S.K.Þorvaldz,
Ævar Þór Benediktsson ásamt nokkrum
meðlimum úr Stúdentaleikhúsinu.
Niðurstaða: Hjálmar Hjálmarsson bar
sýninguna uppi með hárfínum línudansi
og tókst að vera bæði tragísk og kómísk
persóna mitt í öllu havaríinu.
AMERICAN DIPLOMACY Leikrit Þorleifs Arnar Arnarssonar er sýnt í Borgarleikhúsinu.
Gráglettin stjórnmál