Fréttablaðið - 05.03.2005, Síða 72
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
MYSA LATT sæng
150x200 sm
790,-
990,-
Laugardaga kl. 10:00 - 18:00 | Sunnudaga kl. 12:00 - 18:00 | Mánudaga - föstudaga kl. 10:00 - 18:30 | www.IKEA.is
Allt í svefnherbergið
Nýjar textílvörur
IK
E
27
47
8
0
2.
20
05
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
5
290,-
MALOU BLOM sængurföt
150x200/50x60 sm
Tortillarúlla
og nachos
LYDIA RAND púði
30x40 sm
790,-
MALM kommóða/náttborð
40x48x56 sm
4.900,-
AGEN baststóll
2.790,-
MALOU motta
Ø65 sm
990,-
SULTAN FORSEN
svampdýna 80x200 sm
4.490,-
FELICIA púðaver
50x50 sm
590,-
FELICIA teppi
130x170 sm
1.490,- MALM rúmgrind 160 sm eik
18.900,-
ANEBODA fataskápur
81x50x180 sm
9.900,-
YNKA
borðlampafótur
30 sm
390,-
MALOU RAND
handklæði
50x100 sm
490,-
LYDIA púði
40x15 sm
490,-
MALOU teppi
150x240 sm
1.990,-
LINGARO
skermur
18 sm
290,-
Jú jú
Jú jú. Ég væri hugsanlega,kannski, ef til vill, mögulega,
jafnvel til í að íhuga það hvort ekki
væri skynsamlegt að uppfylltum
ákveðnum forsendum og með hlið-
sjón af því að viss þróun mála verði
á hagstæðan veg á komandi árum og
með tilliti til þess hvort ákveðnum
fyrirframskilgreindum markmiðum
verður náð og að tryggt verði að
þjóðarbúið muni að fullu njóta góðs
af þeim ákvörðunum sem teknar
verða og að hér fari ekki allt í kalda
kol heldur upphefjist mikið blóma-
skeið, að Íslendingar gangi, í kjölfar
viðræðna þar sem áhersla verður
lögð á að allt gangi þessari þjóð að
óskum og að skilyrðum hennar verði
að fullu mætt, í Evrópusambandið.
HINS vegar er alveg kristaltært í
mínum huga að ef aðild að Evrópu-
sambandinu þýðir – og ég endurtek
þetta: Ef aðild að Evrópusamband-
inu þýðir að hér fari allt norður og
niður í efnahagslegu tilliti og að
þýskir pylsuframleiðendur leggi
undir sig fiskimiðin í krafti reglu-
gerðarriddaranna í Brussel sem
ekki geta einu sinni borðað agúrkú
eða snýtt sér í vasaklút án þess að
skrifa fyrst um það reglugerð í þrjá-
tíu liðum með 100 blaðsíðna viðauka
og ef aðild þýðir að þjóðin geti ekki
lengur um frjálst höfuð strokið
heldur þurfi að hlýta duttlungum
pórtugalskra og spænskra kaþólikka
í siðferðismálum þannig að hér megi
til að mynda ekki lengur stunda kyn-
líf fyrir hjónaband út af samræmdri
evrópustefnu og að pólsk yfirvara-
skegg verði hluti af lögbundnu útliti
allra evrópskra karlmanna, að þá er
ég alfarið á móti aðild Íslands að
sambandinu. Alfarið.
ÞETTA er alveg kristaltært. Ef að-
ild er góð er ég til. Ef hún er vond
er ég ekki til. Þessi afstaða mín í
málinu er algerlega ófrjávíkjanleg
og ég mun aldrei, ég endurtek,
aldrei hvika frá henni. Reyndar hef
ég lengi verið þeirrar skoðunar að
svona sé þetta með mjög margt í
mannlífinu yfir höfuð: Ef eitthvað er
gott er ástæða til að taka afstöðu
með því. Ef það er vont er full
ástæða til að taka afstöðu gegn því.
Þetta er bjargföst trú mín og á
þessu hef ég byggt lífsskilning minn
um langt árabil. Langt árabil.
SPURT ER: Eigum við Íslendingar
að sækja um í Evrópusambandið?
Þetta er stór og mikilvæg spurning,
hér er í mörg horn að líta, og ég vil
leyfa mér að svara henni með eftir-
farandi hætti: Jú jú. Ég væri hugs-
anlega, kannski, ef til vill, mögulega,
jafnvel til í að íhuga það hvort ekki
væri skynsamlegt að uppfylltum
ákveðnum forsendum og með hlið-
sjón af því að viss þróun mála verði
á hagstæðan veg á komandi árum og
með tilliti til þess hvort ákveðnum
fyrirframskilgreindum markmiðum
verður náð og að tryggt verði að
þjóðarbúið muni að fullu njóta góðs
af þeim ákvörðunum sem teknar
verða.... o.sv.frv. (Endurtakið hring-
inn aftur og aftur. Endalaust).
BAKÞANKAR
GUÐMUNDAR
STEINGRÍMSSONAR