Fréttablaðið - 15.06.2005, Blaðsíða 60
Dýr mundi
Björgólfur allur
DV gerði úttekt um helgina á hí-
býlum hinna lánlausu banka-
stjórnenda þessa lands. Það kom
ekki á óvart hversu lítið þeir
skulda í húsunum, enda hljóta
menn með tugir milljóna á ári að
eiga fyrir húsunum sínum. Meiri
athygli vakti áætlað söluverð
húsanna sem var ansi ríflegt.
DV mat svo að 261 fermetra ein-
býlishús Björgólfs Guðmunds-
sonar, við Vesturbrún 22, kosti
150 milljónir króna. Gerir það
575 þúsund krónur á hvern fer-
metra. Fermetraverðið á einbýl-
ishúsum Bjarna Ármannssonar,
Sigurjóns Árnasonar og Sigurð-
ar Einarssonar var um og yfir
350 þúsund kall fermetrinn. Ef
bankastjórarnir myndu setja
upp þennan verðmiða er hætt
við að þeir sætu þar fastir inni
til eilífðarnóns.
Blaðamannafund-
ur dauðans
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins var hér á landi á dögun-
um til að meta horfur í efnahags-
málum. Mikla athygli vakti með-
al blaðamanna frammistaða for-
manns nefndarinnar en erfitt er
að hrósa honum fyrir hæfni í
mannlegum samskiptum.
Formaðurinn gerði lítið annað
en að lesa orðrétt upp úr þeim
gögnum sem útdeilt hafði verið
meðal fjölmiðlafólks og þurfti
beinlínis að draga öll svör upp úr
honum með töngum.
Sérstaklega var þó frétta-
manni Ríkissjónvarpsins vor-
kunn, enda frásögn formannsins
lítt myndræn.
Yfirtaka
stjórnenda
Umfjöllun Blaðsins um stórkaup
bankastjóra og stjórnenda Ís-
landsbanka á hlutabréfum í fé-
laginu var athyglisverð fyrir
þær sakir að fullyrt var að ekki
hefði þurft að gefa út nýtt hluta-
fé í tengslum við viðskiptin.
Bréfin voru nefnilega „keypt af
aðila úti í bæ“ eins og einn við-
mælandi orðaði það.
Þess var ekki verið getið í til-
kynningu Íslandsbanka að við-
skiptin væru partur af kauprétt-
arsamningum. Því velta margir
því fyrir sér hvort bankarnir
geti prentað út nýtt hlutafé, eins
og peninga, þegar stjórnendur
þeirra óska eftir því að kaupa
hlutabréf í þeim – líkt og Blaðið
gefur í skyn. Lausnin er því
fundin í Íslandsbankamálinu:
Stjórnendur bankans fá að
kaupa nýtt hlutafé þar til að þeir
ná meirihluta.
4,1 4,15 242,4Steinunn Jónsdóttir selur Burðarási fjög-urra prósenta hlut í Íslandsbanka á geng-inu 13,6 Útlánavextir Íbúðalánasjóðs verðaóbreyttir eftir síðasta útboð hjásjóðnum. Vísitala neysluverðs í júní samkvæmtmælingu Hagstofunnar. Verðbólganmælist því 2,8 prósent á ársgrundvelli.
SÍMANÚMER MARKAÐARINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@markadurinn.is Veffang: visir.is
410 4000 | www.landsbanki.is
B2B | Banki til bókhalds
Betri þjónusta og upplýsingagjöf til viðskiptavina og lánardrottna
Fyrirtækjabanki
B A N K A H Ó L F I Ð