Fréttablaðið - 21.10.2005, Síða 48
Avion Aircraft Trading, sem er
dótturfélag Avion Group, hefur
fest kaup á þremur Airbus 300-
600 farþegavélum sem verður
breytt í fraktvélar. Heildarvirði
samningsins er um 4,3 milljarðar
króna.
Seljandi vélanna er China Air-
lines í Taívan. Vélarnar verða af-
hentar á næsta ári og í byrjun árs
2007.
Hafþór Hafsteinsson, forstjóri
flutningasviðs Avion Group, segir
fjárfestinguna koma á góðum
tíma og gefi fyrirtækinu há-
marksarðsemi. Mikil eftirspurn
er eftir Airbus 300-600 fraktvél-
um og getur komið til greina að
vélarnar verði seldar.
Avion Aircraft Trading gekk
nýverið frá risasamningi við
Boeing-verksmiðjurnar um kaup
á fjórum, nýjum Boeing 777-
fraktvélum sem verða afhentar
árið 2009. Verðmæti samningsins
er um 63 milljarðar króna. - eþa
Umsjón: nánar á visir.is
Að éta köku og eiga
Íslandsbanki í London hefur verið að ná meiri fót-
festu í fyrirtækjaráðgjöf sinni. Um daginn var bank-
inn ráðgjafi Premier Foods við sölu á teframleiðslu
fyrirtækisins. Þetta mun eftir því sem næst verður
komist í fyrsta skipti sem íslenskur banki er ráðgjafi
við sölu erlends fyrirtækis til annars erlends fyrir-
tækis, án þess að koma jafnframt að
lánafyrirgreiðslu og hlutafjárkaupum.
Næsta verkefni í London var kaup
stórnanda á Cate’s Cakes eða
Kötukökum sem var fjármögnun upp
á 1,4 milljarða króna. Kökurnar ku vera
mikið gómsæti og munu starfsmenn bank-
ans í London vera ólmir í að taka með sér
kökur til að leyfa kollegum sínum á Íslandi
að smakka. Íslandsbanki kom bæði að fjár-
mögnun og keypti hlut í fyrirtækinu, sem
má orða sem svo að bankinn hafi bæði étið
kökuna og átt hana.
Jólagjöf gjaldeyrismiðlaranna
Á gjaldeyrismarkaði gildir að vera framsýnn og
veðja rétt á þróun gjaldmiðla. Þetta gildir í ýmsum
öðrum viðskiptum og nú hafa framtakssamir menn
veðjað á frekari styrkingu krónunnar. Þeir hafa látið
prenta á boli töluna 99 sem framtíðargildi gengis-
vísitölu krónunnar. Ákvörðun um gerð
bolsins var reyndar tekin fyrir
fjórum mánuðum, sem sýnir
ótrúlega spákaupmannshæfi-
leika. Athafnamennirnir veðja
á að krónan verði komin í
þessa stöðu fyrir jól og þar með sé
komin heitasta tækifærisgjöfin fyrir
jólin. Einhverjir á markaðnum eru
svo vissir í sinni sök að þeir eru
þegar farnir að ganga í bolunum inn-
an undir skyrtunni og munu fletta sig
klæðum samstundis og krónan fer í
þetta gildi.
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.562 Fjöldi viðskipta: 269
Velta: 14.030 milljónir
-0,14%
MESTA LÆKKUN
MARKAÐSFRÉTTIR...
Vísitala byggingarkostnaðar hækk-
aði 0,09 prósent frá fyrra mánuði og
er 316,6 stig. Undanfarna tólf mánuði
hefur vísitalan hækkað um 4,2 pró-
sent.
Stærsti lyfjaframleiðandi Pfizer til-
kynnti í gær að hagnaður félagsins á
þriðja ársfjórðungi hefði dregist saman
um 52 prósent á milli ára. Hagnaður-
inn var rétt um eitt hundrað milljónir
króna. Hlutabréf í Pfizer lækkuðu um
meira en fimm prósent á hlutabréfa-
mörkuðum vestanhafs.
Arcadia, sem er að stærstum hluta
til í eigu kaupsýslumannsins Philip
Green, ákvað í gær að greiða út arð
upp á rúmlega 130 milljarða króna.
32 21. október 2005 FÖSTUDAGUR
Peningaskápurinn…
Actavis 41,90 -1,64% ...
Bakkavör 43,40 -0,23% ... FL Group 14,00 -1,06% ... Flaga 3,74 -
0,53% ... HB Grandi 9,30 +0,00% ... Íslandsbanki 14,95 +0,67%
... Jarðboranir 22,00 -0,45% ... KB banki 586,00 -0,17% ... Kögun
54,40 +0,00% ... Landsbankinn 21,90 +0,00% ... Marel 63,80
+0,00% ... SÍF 4,47 +0,90% ... Straumur 12,95 -0,77% ... Össur
91,00 +0,55%
SÍF +0,90%
Atorka Group +0,89%
Íslandsbanki +0,67%
Actavis -1,64%
FL Group -1,06%
Icelandic Group -1,04%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Útlit er fyrir a› raun-
ávöxtun lífeyrissjó›a
ver›i gó› flri›ja ári› í
rö›. Innlendu hlutabréf-
in gefa vel af sér.
Eignir lífeyrissjóðanna voru
komnar í 1.100 milljarða króna í
lok ágústmánaðar og höfðu aukist
um 123 milljarða frá áramótum.
Ef eignum lífeyrissjóðanna væri
skipt niður á hvert mannsbarn
fengi hvert og eitt 3,7 milljónir
króna í sinn hlut.
Heildareignirnar hafa vaxið
hratt á undanförnum árum, sem
þakka má hagstæðum skilyrðum á
fjármálamörkuðum, einkum inn-
anlands, en Úrvalsvísitala Kaup-
hallar Íslands hækkaði um 35 pró-
sent frá áramótum.
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Landssambands líf-
eyrissjóða, segir hækkun innlendra
hlutabréfa skipta mestu máli hvað
þessa aukningu varði. Erlendu
hlutabréfin gefi ekki mikið af sér
nú þegar gengi krónunnar hafi
hækkað mikið undanfarnar vikur.
Hann er bjartsýnn á ávöxtun ársins
og býst við að árið 2005 verði þriðja
árið í röð sem raunávöxtun lífeyris-
sjóða fari yfir tíu prósent.
Fyrir ári síðan stóðu heildar-
eignirnar í 870 milljörðum króna
og voru þar með hærri en lands-
framleiðslan í fyrsta skipti, um
102 prósent af landsframleiðsl-
unni. Þetta hlutfall hefur aldrei
verið hærra en núna og má ætla
að hlutfallið sé komið í 120 pró-
sent, miðað við að landsfram-
leiðslan verði um 900 milljarðar
á þessu ári. Í febrúar fóru eign-
irnar yfir eitt þúsund milljarða
króna.
Aðspurður hvar allir þessir
peningar séu segir Hrafn um 22
prósent vera í erlendum verðbréf-
um. Það skipti máli að dreifa
áhættunni enda séu þetta gríðar-
lega miklar fjárhæðir sem fólkið í
landinu hafi lagt til hliðar fyrir
elliárin. Einnig sé fjárfest í inn-
lendum skuldabréfum og svo
hlutabréfum. Þá hafi sjóðsfélagar
sjálfir tekið um níutíu milljarða
að láni hjá lífeyrissjóðunum. Ekki
sé erfitt að koma þessum pening-
um fyrir í þeirri von að ávaxta þá.
Innlend verðbréfaeign lífeyris-
sjóða nam um 812 milljörðum
króna og hefur aukist um tíu pró-
sent frá áramótum. Þar af var
heildareign í innlendum hluta-
bréfum komin í 164 milljarða og
hafði hækkað um þrjátíu prósent.
Erlendar eignir lífeyrissjóðanna
jukust töluvert og námu um 264
milljörðum. - eþa/bg
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
Heildareignir lífeyris-
sjóða 1.100 milljarðar
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Frábært úrval af
góðum vörum
Barna og fullorðins
fatnaður.
50-90% afslætti .
Golffatnaður,
útivistarfatnaður, skíða
og snjóbrettafatnaður,
einnig mikið úrval
af skóm.
Verðdæmi:
Útivistarjakki: Áður 29.990- Nú : 6.900-
Úlpur: Áður 19.900- Nú: 6.900-
Fótboltaskór Áður 12.990- Nú: 3.990-
Brettajakar: Áður: 17.990- Nú: 3.990-
Opið eingöngu:
Föstudag 1. Apríl. 14:00 til 20:00
Laugardag 2. Apríl. 10:00 til 18:00
Sunnudag 3. Apríl. 11:00 til 18:00
Nýbýlavegi 18 (Dalbrekku megin) Kópavogi
HEILDSÖLU LAGERSALA
Útivistarjakki aður 29.990- Nú 11.900-
Fótboltaskór aður 12.990- Nú 4.900-
Brettajakkar aður 17.900- Nu 7.900-
Hlaupajakkar áður 8.990- Nú 3.990-
Úlpur áður 14.990- Nú 5.990-
Opið eingöngu
Fimmtudag 20. Oktob. 14:00 til 20:00
Föstudag 21. Oktob. 14:00 til 20:00
Laugardag 22. Oktober 10:00 til 18:00
Sunnudag 23. Oktober 11:00 til 18:00
Mánudag 24. Oktober 14:00 til 20:00
KAUPA AIRBUS-VÉLAR Avion Aircraft
Trading hefur fest kaup á þremur Airbus-far-
þegavélum sem breytt verður í fraktvélar.
Vífilfell hf. hefur keypt um
þrjátíu prósenta
hlut í fyrirtækinu
Mjólku ehf. Mjólka
var stofnuð fyrr á
árinu og er megin-
tilgangur félagsins
að framleiða osta
fyrir innanlands-
markað.
Mjólka er í meirihlutaeigu
fjölskyldunnar á Eyjum II í Kjós
en ostaframleiðsla félagsins er
þegar hafin í nýrri mjólkurstöð
félagsins á Ártúnsholti í Reykja-
vík. Fyrsta vara félagsins verður
fetaostur sem væntanlegur er á
markað innan skamms. Félagið
starfar utan greiðslumarkskerfis
landbúnaðarins og nýtur því ekki
framleiðslustyrkja frá hinu opin-
bera. - hb
Kaupa flrjár Airbus-vélar
Vífilfell kaupir hlut í Mjólku
Farþegum í millilandaflugi
Icelandair í september fjölgaði
um tæp fimmtán prósent, miðað
við sama mánuð í fyrra. All flugu
132 þúsund manns með félgainu í
mánuðnum og var sæta nýting 79
prósent sem er hækkun um 2,8
prósentu stig frá því í fyrra.
Fjölgun yfir árið er 14,5 pró-
sent og flutti félagið rúmlega
1,2 milljónir farþega á fyrstu
níu mánuðum ársins. Aukning í
innanlandsflugi nam sex pró-
sentum það sem af er ári. Vöru-
flutningar hafa aukist um 11,7
prósent og fartímum í alþjóð-
legu leiguflugi hafa aukist um
fjórðung. Jón Karl Ólafsson,
forstjóri Icelandair group, segir
í tilkynningu að það sem standi
upp úr sé gríðarleg fjölgun far-
þega í september. „Það var tek-
in ákvörðun um að auka sæta-
framboð Icelandair mikið fyrir
árið og salan hefur gert gott
betur en að fylgja því eftir.“
Flugfarflegum fjölgar áfram
Sætan‡ting batna›i og farflegum fjölga›i um
tæp fimmtán prósent hjá Icelandair.
ÓLAFUR M.
MAGNÚSSON
Nýherji ríður á vaðið í dag og verð-
ur fyrsta Kauphallarfélagið sem
birtir uppgjör fyrir þriðja ársfjórð-
ung. Engin greiningardeildanna
spáir fyrir um afkomu Nýherja.
Félagið hefur gefið út afkomu-
viðvörun og sagt að reksturinn
verði í járnum á þriðja ársfjórð-
ungi vegna ágreinings við stóran
viðskiptavin um túlkun á samn-
ingi. Fyrirtækið hagnaðist um 27
milljónir króna á þriðja ársfjórð-
ungi í fyrra.
Íslandsbanki kemur næst á
eftir þegar hann birtir afkomutöl-
ur sínar á þriðjudaginn. - eþa
Fyrsta uppgjöri›
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
. Ó
L.
ÞÓRÐUR SVERRISSON, FORSTJÓRI NÝHERJA Rekstur Nýherja verður í járnum á þriðja
ársfjórðungi en uppgjörstímabil hefst í Kauphöllinni í dag þegar félagið birtir afkomu sína.
EIGNIRNAR HÆKKA Heildareignir lífeyrissjóða voru orðnar 1.100 milljarðar í lok ágúst.
Hver Íslendingur á 3,7 milljónir í lífeyrissjóðum landsmanna.