Fréttablaðið - 26.10.2005, Page 22
[ ]
Aukin ökuréttindi
Nú er rétti tíminn til að afla sér nýrra atvinnumöguleika!
Kennsla á leigu -, vöru -, hópbifreið og vörubifreið með eftirvagn.
Næsta námskeið hefst
2. nóvember
Upplýsingar og innritun í síma:
567-0300
Ökuskólinn í Mjódd
Þarabakka 3 109 Reykjavík
Netfang mjodd@bilprof.is
www.bilprof.is
„Þetta námskeið hjálpaði mér að rúmlega fjórfalda
lestrarhraða minn. Þetta var framar öllum vonum.
Ég vissi ekki að ég gæti lesið hratt.“ Kristján Ó., 18 ára nemi í VÍ
...næsta námskeið er í janúar 2006.
Skráning á biðlista er hafin á www.h.is og 586-9400
Akureyri – 9. nóvember – skráning stendur yfir
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
Barnaafmæli
Bekkjarferðir
Keramik fyrir alla,
Frábær sk mmtun
fyrir allan hópinn.
Tilboðspakkar
Keramik og pizza frá
kr. 990 á mann.
gefur gull í mund. Vaknaðu snemma til að læra fyrir skólann.
Hugurinn virkar svo vel á morgnana.
Morgunstund
Metnaðarfullir leikhúsgestir og
óperuunnendur geta búið sig
rækilega undir Sölku Völku og
óperuna Tökin hert.
Leikritið Salka Valka var frum-
sýnt liðna helgi í Borgarleik-
húsinu. Það er eins og kunnugt
er unnið upp úr verki Halldórs
Laxness. Hrafnhildur Hagalín
gerði leikgerðina en Edda Heið-
rún Backman leikstýrir. Þær eru
báðar á meðal fyrirlesara á nám-
skeiði Mímis um leikritið. Nám-
skeiðið, sem haldið er í samstarfi
við Borgarleikhúsið, hefst 1. nóv-
ember og verður haldið á þriðju-
dögum. Auk þeirra verða fyrirles-
arar Halldórs Guðmundsson og
Silja Aðalsteinsdóttir.
Endurmenntun Háskóla Ís-
lands stendur hins vegar fyrir
námskeiði um óperuna Tökin hert
eftir Benjamin Britten í samstarfi
við vinafélag Íslensku óperunnar.
Fjallað verður um óperuna og auk
þess sem einstakir hlutar óperunn-
ar vera teknir til nánari skoðunar
með hjálp tón- og mynddæma.
Síðasta kvöldið veðrur farið á
sýningu á Tökin her í Óperunni
þar sem færi gefst á stuttu spjalli
við nokkra af aðstandendum upp-
setningarinnar.
Námskeiðið hefst 1. nóvember.
Leiksýning og ópera
brotnar til mergjar
Bergur Þór Ingólfsson og Ilmur Kristjánsdóttir í hlutverkum sínum í Sölku Völku. Ilmur fer með titilhlutverkið.
Í kvöld hefst námskeið í Leik-
mannskóla kirkjunnar undir
yfirskriftinni „Að hugga og hl-
usta“. Kennari er séra Gunnar
Rúnar Matthíasson sjúkrahús-
prestur.
Á námskeiðinu verður fjallað um
veruleikann sem mætir fólki þegar
glímt er við dauðsföll, veikindi
og annan vanda sem ristir djúpt
í lífi þess. Skyggnst verður inn í
veruleika sorgarinnar og rætt um
hvað hjálpar okkur að nálgast fólk
í sorg eða erfiðleikum. Oft getur
verið erfitt að tjá sig við aðstand-
endur og er námskeiðinu ætlað að
hjálpa fólki að gera sorgarferlið
að eðlilegum hluta lífsins.
Séra Gunnar Rúnar Matthías-
son sjúkrahússprestur hefur
mikla starfsreynslu á þessu
sviði. Gunnar mun halda fyrir-
lestra og einnig verða umræður
og fyrirspurnir. Námskeiðið er
opið öllum. Starfsfólk heilbrigð-
isstétta, sem umgengst mikið
veikt fólk og ættingja þeirra,
hópar sem vilja styðja vin í sorg
og aðrir aðstandendur hafa nýtt
sér þessi námskeið með góðum
árangri. Námskeiðið verður hald-
ið í Grensáskirkju og kennt verð-
ur í fjögur skipti.
Að hugga og hlusta
Stjórnunarfélag Íslands stend-
ur fyrir námskeiði um skjala-
stjórnun á næstunni.
Stjórnunarfélag Íslands stendur
fyrir námskeiði í skjalastjórnun
mánudaginn 14. og þriðjudaginn
15. nóvember.
Skjalastjórnun er stjórnun á
öllum skráðum upplýsingum sem
verða til hjá fyrirtækjum og stofn-
unum. Markmið skjalastjórnunar
er að skjölin verði aðgengileg og
ávallt tiltæk þegar á þarf að halda.
Þetta er ekki síður mikilvægt í
dag á tímum tölvutækni og þegar
pappírsflóðið var sem mest.
Bent er á það í fréttatilkynn-
ingu að rafrænum skjölum jafnt
sem pappírsskjölum þarf að stýra
eftir skipulögðu ferli.
Á námskeiðinu verður farið
í undirstöðuatriði skjalastjórn-
unar. Leiðbeinandi þess er Sig-
mar Þormar, framkvæmdastjóri
Skipulags og skjala ehf. Nám-
skeiðsgjald eru 30.000 krónur.
Kennt verður frá kl. 13-16 nám-
skeiðsdagana í Hamraborg 10,
2. hæð. Hægt er að skrá sig með
því að senda tölvupóst á netfangið
stjornandinn@stjornandinn.is.
Skjölin
skipulögð
Ekki er gott að hafa skjölin öll í óreiðu.
Félagsvísindadeild, lagadeild og
viðskipta- og hagfræðideild Háskóla
Íslands standa næstkomandi föstu-
dag fyrir opinni ráðstefnu um rann-
sóknir í félagsvísindum. Á ráðstefn-
unni verða alls 33 málstofur með
122 fyrirlestrum um ólík viðfangs-
efni. Viðskipta- og hagfræðideild
stendur fyrir 11 málstofum með
44 fyrirlestrum á sviði stjórnunar,
mannauðsstjórnunar, markaðsfræði,
hagfræði, nýsköpunar, fjármála og
háskólarannsókna. Allir eru velkomn-
ir en dagskrá allrar ráðstefnunnar
er að finna á slóðinni: http://www.
felags.hi.is/page/radstefnaVI
ráðstefna }
Rannsóknir í fé-
lagsvísindum
Opin ráðstefna í Háskóla Íslands.
Vísindadagur rannsóknastofu í
öldrunarfræðum.
Rannsóknastofa í öldrunarfræðum
heldur næstkomandi föstudag vís-
indadag í Salnum í Kópavogi undir
yfirskriftinni minnismóttakan í 10
ár. Minnistruflun er oftast fyrsta
einkenni alzheimers og getur lengi
vel verið meginvandamálið sem
sjúklingurinn glímir við. Á dag-
skrá eru nokkur erindi.
Meðal annars fjallar Jón
Snædal yfirlæknir um sögu og
hugmyndafræði minnismót-
tökunnar, hlutverk hennar og
þjónustu. Hanna Lára Steinsson
félagsráðgjafi fjallar um varnar-
viðbragðið afneitun hjá sjúkling-
um, aðstandendum og ekki síst
heilbrigðisyfirvöldum. Guðlaug
Guðmundsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur ræðir um þróun í þjónustu
og hvernig hún hefur breyst á
undanförnum árum, verkefni og
framtíðarsýn.
Auk þeirra halda erindi Berg-
lind Indriðadóttir iðjuþjálfi, María
K. Jónsdóttir yfirsálfræðingur og
Björn Einarsson læknir.
Minnismóttaka í tíu ár
1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
Fræða og menningarritið Hugsandi
hefur hafið göngu sína á slóðinni www.
hugsandi.is. Titill vefritsins vísar til
þess markmiðs ritsins að kynna fyrir
umheiminum pælingar fræðimanna og
annarra sem niðursokknir eru í pælingar
um heiminn.
Vefritið mun leggja áherslu á greinar
sem tengjast
m e n n i n g u
í víðasta
s k i l n i n g i
þess orðs.
Fastar birt-
ingar verða á
þriðjudögum
og fimmtu-
dögum.
Ritst jórar
ritsins eru sagn-
fræðingarnir Unnur
María Karlsdóttir og
Hrafnkell Lárusson.
Nýtt vefrit
HUGSANDI.IS ER NÝTT VEFRIT