Fréttablaðið - 27.10.2005, Síða 46
Fullar verslanir af fallegum fatnaði
Fyrstu jólasendingarnar komnar
Exit
Kr ing lunni • Smára l ind
6 ■■■■ { barnablaðið }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Örvar heilastarfsemi ungra barna
Krisztina G. Agueda kemur frá
Ungverjalandi þar sem hún
menntaði sig til nokkra ára, og
sérhæfði sig í íþróttakennslu fyr-
ir börn. Hún er þekkt í sínu
heimalandi sem frumkvöðull í
líkamsrækt en hún rak þar lík-
amsræktarstöð og keppti
nokkrum sinnum í fitness. Á Ís-
landi rekur hún Hreyfiland þar
sem hún er með skemmtileg
námskeið fyrir börn og foreldra.
„Það er mér afar mikilvægt að
byggja á þekkingu og er ég sí-
fellt að viða að mér efni, upp-
fræðast og læra nýja hluti varð-
andi börn, líkama þeirra og
þroska. Börn eru í svo mikilli
mótun og það er mjög mikilvægt
að fara rétt að hlutunum,“ segir
Krisztina. Námskeiðin sem hún
kennir í Hreyfilandi hefur hún
sett saman sjálf og segir hún þau
öll byggja á fræðum um börn og
heilsu þeirra.
„Fyrst og fremst snýst þetta um
samverustund foreldra og barna
og ég kenni foreldrum að örva
heilastarfsemi barna sinna á ein-
faldan og lifandi máta. Við höf-
um gaman í tímunum og allir
eru með, bæði foreldrar og
börn,“ segir Krisztina. Hún telur
það skipta afar miklu máli að
foreldrar eigi samverustundir
með börnunum sínum og örvi
þau og segir Krisztina að það
skili sér þegar fram í sækir.
„Allar æfingarnar sem ég nota í
tímum, hef ég notað fyrir mín
eigin börn og ég veit að þær
virka,“ segir Krisztina.
Hún segist elska að vinna með
börnum og telur hún sig hafa
gott lag á þeim. „Enda á ég þrjú
börn sjálf,“ segir hún og hlær.
Hún vill þeim allt það besta og
vill leggja sig alla fram í kennsl-
unni. „Foreldrar eiga að vera
vakandi fyrir því að kennarar á
námskeiðum séu með góða þjálf-
un og séu menntaðir,“ segir
Krisztina.
Hún er ekki einungis með nám-
skeið fyrir börnin, heldur líka
barnshafandi mæður og hefur
búið til myndband með með-
gönguleikfimi. „Leikfimi á með-
göngu hefur marga kosti í för
með sér, og er konum óhætt að
stunda líkamsrækt. Hins vegar
skiptir máli að fara rétt að hlut-
unum,“ segir Krisztina. Mynd-
bandið er tekið upp víðsvegar
um landið þar sem æfingarnar
eru gerðar í íslenskri náttúru. Til
stendur að myndbandið komi út
á dvd fyrir jólin.
Börnin eru örvuð í fallegu og lifandi um-
hverfi í Hreyfilandi.
Krisztina G. Agueda stofnaði Hreyfiland árið 2003 þar
sem hún býður upp á lifandi og skemmtileg námskeið
fyrir börn og foreldra þeirra, mömmutíma fyrir barns-
hafandi mæður, leikfimi fyrir nýbakaðar mæður ásamt
nýfæddu börnunum og mæður með börn á brjósti.