Fréttablaðið - 27.10.2005, Page 50
10 ■■■■ { barnablaðið }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Bætir félagshæfni barna
Stig af stigi er kennsluefni
sem þjálfar tilfinninga-
þroska barna. Börnin læra
að þekkja tilfinningar sín-
ar, leysa vanda og öðlast
sjálfstjórn. Efnið er kennt í
leikskólum og grunnskól-
um víða um landið.
„Námsefnið kemur frá Bandaríkj-
unum og var það upphaflega sett
fram sem námsefni gegn ofbeldi,
síðan kom i ljós hvað það bætti fé-
lagshæfni barnanna almennt,“ seg-
ir Kristján Magnússon hjá Reyni-
ráðgjafastofu á Akureyri, sem átt
hefur veg og vanda af því að ís-
lenska kennsluefnið Stig af stigi og
koma því í íslenska skóla. Hann
segir rannsóknir sem gerðar hafa
verið í Bandaríkjunum og Þýska-
landi sýna að börn sem fara í gegn-
um þetta námsefni eru síður árásar-
gjörn og sýna jákvæðari félagslega
hegðun en önnur börn, auk þess
sem minna er um kvíða hjá þessum
börnum.
„Efnið er byggt upp þannig að fyrst
er börnunum kennt að lesa úr til-
finningum, sem kallað er innlifun.
En hún lykillinn að þessu öllu sam-
an, þar sem þau læra að þekkja til-
finningar sínar og annarra,“ segir
Kristján. Næst er tekið á því að
leysa vanda og öðlast sjálfstjórn.
„Þetta er eina námsefnið sem er
kerfisbundið að vinna með tilfinn-
ingaþroska barna. Mest af efninu
byggir á þrælreyndum hugmynd-
um, en það hefur aldrei áður verið
sett svona kerfisbundið fram og í
jafn rökréttu kennslusamhengi,“
segir Kristján.
Námsefnið er í grunninn stórar
myndir, þar sem verið er að lýsa
aðstæðum sem notaðar eru til um-
ræðu í tímanum. Í byrjun geta það
bara verið tilfinningar, en síðan eru
það myndir af atvikum þar sem
þarf að leysa vanda. Aftan á mynd-
um eru leiðbeiningar um fram-
kvæmd tímans fyrir kennarann.
Einn af kostunum er hvað það er
auðvelt í kennslu, kennarinn fær
svo mikið upp í hendurnar. Allir
kennarar fara þó í gegnum þjálfun
áður en þeir byrja að kenna.
„Efninu hefur verið mjög vel tekið í
skólunum og leituðum eftir stuðn-
ingi frá menntamálaráðuneytinu, en
því miður gekk það ekki eftir. Sem er
synd þar sem skólarnir hafa tekið
þessu fagnandi og ég hef sjaldan séð
jafngóð viðbrögð við námsefni frá
kennurum. Skólum er skylt að kaupa
95 prósent af sínu námsefni frá
Námsgagnastofnun, sem gerir okkur
erfitt fyrir,“ segir Kristján.
Kennsluefnið Stig af stigi byggist á mynd-
um og notaðar eru brúður.
Fjörugir pelar fyrir smábörnin
ÍTÖLSK HÖNNUN Í SIPA.
Skemmtilegir og óvenjulegir pelar
eru til í versluninni Sipa á Lauga-
veginum. Þeir koma frá Ítalíu og
eru vægast sagt líflegir. Lokin á pel-
unum eru annaðhvort júgur eða
brosandi barnsandlit og er einn pel-
inn eins og lítið barn. Þeir eru stór-
ir og góðir og auðvelt er að halda á
þeim og þrífa þá. Fallegur
pelastandur er í stíl svo pelarnir eru
jafnvel til prýði þegar þeir standa
við vaskinn í eldhúsinu og standur-
inn sjálfur það smart að hann þarf
ekkert að fela inni í skáp. Pelarnir
kosta 1.600 kr., burstinn er á 1.440
kr. og pelastandurinn á 1.900 kr.
hönnun }
Peli með júgur. Krúttlegur peli í
nærbuxum.
Flottur bursti til að þrífa pelana.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Fagurgrænn pelastandur til að þurrka
pelana.
Fallegur og litríkur með skemmtilegum
doppum.