Fréttablaðið - 29.10.2005, Page 21
Umsjón: nánar á visir.is
MESTA HÆKKUN
ICEX-15 4.705 Fjöldi viðskipta: 405
Velta: 4.981 milljónir
+0,61%
MESTA LÆKKUN
20 29. október 2005 LAUGARDAGUR
Actavis 43,00 +0,50% ... Bakkavör 44,80 +0,50% ...
FL Group 13,80 -1,10% ... Flaga 4,06 +9,70% ... HB Grandi 9,35 +0,00% ... Íslands-
banki 15,10 +0,00% ... Jarðboranir 22,00 +0,00% ... KB banki 610,00 +1,00% ... Kög-
un 54,10 -1,30% ... Landsbankinn 23,00 +0,90% ... Marel 65,20 +0,00% ... SÍF 4,36
+0,20% ... Straumur 13,45 +0,80% ... Össur 91,00 -0,60%
Flaga +9,73%
Mosaic Fashions+3,75%
KB banki +0,99%
Kögun -1,28%
Vinnslustöðin -1,18%
FL Group -1,08%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU:
Eignir fleirra aukast meira
en sem nemur landsfram-
lei›slu á einu ári. Öll upp-
gjörin framar væntingum
marka›arins.
Hagnaður viðskiptabankanna
þriggja, Íslandsbanka, KB banka
og Landsbanka Íslands, á fyrstu
níu mánuðum ársins nam um 66
milljörðum króna eftir skatta og
nærri tvöfaldast milli ára. Þetta
þýðir að bankarnir hafi hagnast
um 240 milljónir króna á hverjum
degi á tímabilinu.
Íslandsbanki hagnaðist um 15,4
milljarða, KB banki um 34,5 og
Landsbankinn um 16,2 milljarða.
Á þriðja ársfjórðungi högnuðust
þeir um nærri tuttugu milljarða
króna samanlagt.
Uppgjör allra bankanna voru
umfram væntingar markaðsaðila
en þannig hefur raunin verið á
árinu. Hagnaður Íslandsbanka
var fjórtán prósentum fyrir ofan
meðaltalsspá greiningardeild-
anna, fimm prósent hjá KB
banka en frávikin voru mest í til-
viki Landsbankans þar sem af-
koman var um 37 prósentum um-
fram spár.
Í lok september voru heildar-
eignir bankanna komnar í 4.700
milljarða króna og höfðu hækkað
úr 3.600 milljörðum frá ársbyrjun
eða um 1.100 milljarða. Samanlagt
eigið fé er um 350 milljarðar
króna. Ef teknar eru nokkrar hag-
stærðir til samanburðar þá nam
verg landsframleiðsla 885 millj-
örðum króna á síðasta ári og fjár-
lögin voru upp á þrjú hundruð
milljarða svo fátt eitt sé nefnt. Þá
eru skattskyldar tekjur einstak-
linga um 601 milljarður á þessu
ári.
Heildareignir KB banka eru
komnar yfir 2.300 milljarða króna
og hafa aukist um 800 milljarða
frá áramótum. Um 70 prósent af
tekjum bankans verða til erlendis.
Eigið fé bankans er komið í 173
milljarða.
Gríðarlegur vöxtur einkennir
Landsbankann en heildareignir
hans hafa aukist um 55 prósent
frá áramótum og eru 1.142 millj-
arðar. Að sögn Sigurjóns Árnason-
ar, bankastjóra Landsbankans,
liggur mesti vöxturinn í erlendri
starfsemi en 37 prósent af útlán-
um hans eru þar. Eigið fé bankans
er komið í 98 milljarða króna og
hefur aukist um 162 prósent frá
áramótum.
Frá áramótum hefur Lands-
bankinn hækkað mest eða um 90
prósent, KB banki um 37 prósent
og Íslandsbanki um 35 prósent.
eggert@frettabladid.is
Hagna›ur bank-
anna 66 milljar›ar
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ]
FRÁ KYNNINGARFUNDI LANDBANKANS Landsbankinn skilaði góðri afkomu á þriðja
ársfjórðungi en hagnaður bankans var um 5,1 milljarðar. Íslandsbanki og KB banki skil-
uðu einnig góðum tölum í hús. Fréttablaðið/E. Ól.
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu
mánuðum ársins nam sextán millj-
örðum króna eftir skatta, þar af 5.105
milljónum á þriðja ársfjórðungi.
Afkoma bankans á þriðja ársfjórð-
ungi er töluvert umfram væntingar
markaðsaðila sem höfðu spáð rúm-
lega 3,7 milljarða hagnaði. Til saman-
burðar var hagnaðurinn 5.788 á
þriðja ársfjórðungi í fyrra. Hreinar
vaxtatekjur voru 6,3 milljarðar og
hækkuðu um 62 prósent milli ára.
Aðrar rekstartekjur á fjórðungum voru
töluvert umfram spár en þær námu
10,7 milljörðum en þar telst til dæm-
is gengishagnaður af hlutabréfum.
Hreinar rekstrartekjur voru því sautján
milljarðar króna. Rekstrargjöld námu
um fimm milljörðum og hækka um
sautján prósent milli ára. - eþa
Mjög gott uppgjör Landsbanka
AFKOMA OG SPÁ
Hagnaður LÍ á 3. ársfjórðungi
Hagnaður LÍ 5.105
Spá KB banka 3.900
Spá Íslandsbanka 3.576
Meðaltalsspá 3.738
KB banki skilaði 9.708 milljóna króna
hagnaði á þriðja ársfjórðungi og nemur
heildarhagnaður ársins þá 34,5 millj-
örðum sem er þreföldun á milli ára.
Hagnaður KB banka á sama ársfjórð-
ungi í fyrra var rúmlega 5,5 milljarðar.
Uppgjörið er gott og umfram spár
Íslandsbanka og Landsbankans sem
gerðu ráð fyrir 9,2 milljarða hagnaði.
Hreinar vaxtatekjur voru 9,5 millj-
arðar á þriðja árshluta og hækka um
85 prósent á milli ára. Aðrar tekjur
eins og þóknanatekjur og gengis-
hagnaður nema 13,4 milljörðum.
Hreinar rekstrartekjur voru 22,9 millj-
arðar sem er helmingsauking miðað
við sama tíma í fyrra.
Rekstrargjöld voru 9,5 milljarðar og
hækka um 61 prósent. Heildareignir
bankans eru komnar yfir 2.300 millj-
arða króna og hafa hækkað um tæpan
helming frá síðustu áramótum. - eþa
Gó› afkoma KB banka
AFKOMA OG SPÁ
Hagnaður KB banka á 3. ársfjórðungi
Hagnaður KB banka 9.708
Spá Landsbankans 9.430
Spá Íslandsbanka 9.032
Meðaltalsspá 9.231
20-21 Viðskipti 28.10.2005 20:45 Page 2