Tíminn - 22.01.1976, Blaðsíða 13
Fimmtudagur 22. janúar 1976.
TÍMINN
13
Dr. Jóhann M. Kristjónsson:
Hverjir afstýrðu afhroði
íslenzks sjávarútvegs
árin 1953 til 1957?
Þvi tek ég penna i dag — i
máli sem ég taldi af minni hendi
lokið — að mér býður i grun, að
dragi i brúnir ráðamanna is-
lenzkra gagnvart frændþjóðinni
færeysku næstu daga er að
siðbúnum samningi liður.
Ekki skal metast um hvor
þjóðin hefur meira til hinnar
sótt, heldur skal byggja upp
heilsteyptari og nánari sam-
vinnu þessara þjóða en nokkru
sinni fyrr.
Eitt er það mál, sem hefir sér-
stöðu og þarft er að minnast.
Aldrei hafa Islendingar farið
hundruðum og þúsundum
saman til Færeyja til að forða
fiskveiðum Færeyinga frá af-
hroði. Þetta gerðu Færeyingar
árin 1953 til 1957 þegar Is-
lendingar sjálfir fóru af fiski-
flotanum til byggingarvinnu við
herstöðina og flugvöllinn i
Keflavik, en þjóðina vantaði
bæði sjómenn og fólk i landi til
að geta nýtt fiskiflotann.
Var þetta stóra framlag Fær-
eyinga metið að verðleikumþá?
Er það gleymt nú?
Enn skal á það bent, að i
samningum við Færeyinga
verði ekki frá þvi sjónarmiði
vikið, að þjóðirnar skipti hlut-
fallslega jafnt veiði á fiskimið-
um landanna, þannig að leggja
saman framleiðslumöguleika
og skilyrði beggja svo báðir
hljóti jafnan hlut. Yrði þó að
taka tillit til þess, að af heildar
þjóðarframleiðslu Færeyinga
eru sjávarafurðir 98% en ts-
lendinga 84%.
Við megum ekki setja Fær-
eyingum ósanngjarna kosti I
þessum samningum. — Enginn
skyldi borga fyrir það sem hon-
um ber. Við getum t.d. ekki
vænzt þess, að þeir beiti það
virkri afstöðu gagnvart and-
stæðingum okkar, að það skaði
Dr. Jóhann M. Kristjánsson.
viðskiptalegar og stjórnmála-
legar þarfir og skyldur þeirra.
Sannarlega kæmi það úr
hörðustu átt og væri litilmann-
legt, ef við nú gengjum á rétt
annars strandrikis — sama
réttinn og við ætlum okkur og
ætlumst til að allir viðurkenni,
og nokkuð yfirlætislegt meðan
við stöndum svo höllum fæti, að
flestir telja að 200 milna lög-
sagan sé nánast ekki nema
kritarstrik á kortum heims-
hafanna, þótt siðferðislegur
réttur sé óvéfengjanlegur, en
hann er það þá einnig þeim til
handa, sem hér eiga hlut að
máli. Við skulum leitast við að
firra okkur þeim mistökum.
Hverju verðum við að
„fórna” til þess að Færeyingar
fái hlutfallsleg veiðiréttindi við
okkur án þess að skerða þorsk-
stofninn?
í fyrsta lagi: Fullvinna aflan
til manneldis en ekki hálfvinna
og sóa i lýsi og mjöl til iðnaðar.
A þessum eina lið getum við
árlega sparað tugþúsundir
tonna fiskistofnsins, þó marg-
faldað atvinnu og verðmæti
framleiðslunnar.
1 öðru lagi: Draga úr gjald-
eyrissóun á fjárfrekum
innflutningi svo sem ýmsum
þungavélum og allt of mörgum
bflum, sem allir verða komnir á
öskuhaugana eftir 12 ár , með
sinn langa hala varahluta,
hjólabarða, bensin og slys.
í þriðja lagi: Hægja á sjálfri
skaðseminni áfengi og sigar-
ettum. Allt veldur þetta óeðli-
legu magni framleiðslu sem við
sækjum efnið I i fang þjóðar-
auðsins i fiskstofnum land-
grunnsins. „Þar heggur sá er
hlifa skyldi”. Þarna er hægt að
spara og auðga sitt land.
Þannig er unnt að breyta
„fórninni” i margþætta þjóðar-
hagsmuni. Meiri atvinnu,
fyrningu fiskstofna. Svona vinn-
ur viturleg fórn fyrir sér.
Það er næstum hlægilegt að
tslendingar kalli Færeyinga út-
lendinga. Að lita á þá sem slika i
þessari fiskveiði — orrahrið er
fjarstæða. Við áttum strax að
semja þegar samningar við þá
voru úti, áður en hinir raun-
verulegu útlendingar komu til
greina. Likur standa til að þeir
sönnu útlendingar hefðu ekki
einu sinni tekið eftir þvi, litið á
það sem sjálfsagðan hlut.
Mistökin eru okkar og þau eru
veruleg.
Ef við gjörum ekki vel við
Færeyinga, sýnum við þeim
sama óréttlætið og viö mótmæl-
um af hendi Breta.
Það er háttur húska einna, að
skera hvern skammt við nögl.
5. janúar 1976
Jóhann M. Kristjánsson.
Fjármálaráðuneytið
20. janúar 1976.
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir desembermánuð 1975
hafi hann ekki verið greiddur isiðasta lagi 26. þ.m.
Viðurlög eru 2% af vangreiddum söluskatti fyrir hvern
byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru orðin
10% en siðan eru viðurlögin 1 1/2% til viðbótar fyrir
hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16. febrúar
n.k.
Athygli þeirra smáatvinnurekenda, sem heimild hafa
' til að skila söluskatti aðeins einu sinni á ári, er vakin á
þvi, að þeim ber nú að skila söluskatti vegna tima-
bilsins 1. mars-31. desember.
Athugasemd
verðlagsstjóra
Að gefnu tilefni vill
Verðlagsstjóri taka
fram eftirfarandi:
Þess misskilnings hefur gætt i
ummælum um verðlagsmál i fjöl-
miðlum, að með tilkomu nýrrar
verðlagslöggjafar, sem sniðin
væri að norrænni fyrirmynd, þá
muni stórlega draga úr verðlags-
eftirliti, og það jafnvel leggjast
niður.
Verðlagskerfi á hinum Norður-
löndunum eru frábrugðin þvi sem
hér er, en eru einnig innbyrðis
ólik. Þrátt fyrir mismunandi
kerfi er verðlagseftirlit á hinum
Norðurlöndunum mjög virkt og
öflugt.
Það er þvi á misskilningi byggt,
að með nýrri islenzkri verðlags-
löggjöf, sem mótuð væri eftir
fyrirmynd einhverra hinnar
Norðurlandanna, dragi úr verð-
lagseftirliti. Aðsjálfsögðu myndu
þó starfshættir breytast nokkuð.
Loðnan:
Skattaframtöl
Námskeið í skattframtali fyrir almenning
hefst fimmtud. 22. jan. kl. 19.30 i Lauga-
lækjarskóla.
Kennt verður 6 kvöld til 29. jan. Nám-
skeiðsgjald kr. 1800, greiðist við innritun,
sem verður sama dag kl. 19-19.30 i Lauga-
lækjarskóla.
Námsflokkar Reykjavikur.
Aðeins einn bátur
fékk afla í gær
gébé Rvik — Bræla var á
loðnumiðunum i allan gærdag, en
undir kvöld virtist veðrið ætla að
ganga niður, og vonuðust sjó-
menn eftir veiðiveðri þegpr á liði.
Aðeins einn bátur tilkynnti um
afla i gær, Asberg RE með 250
tonn, sem hann landaði á Seyðis-
firði.
Fjörutiu og sex loðnubátar eru
farnir á miðin, en ekki munu þeir
allir hafa hafið veiðar enn.
Guðmundur Björgvinsson
sýnir í sýningarsal
Arkitektafélagsins
FB—Reykjavlk — Um þessar mundir stendur yfir myndlistarsýning í
sýningarsai Arkitektafélags tslands að Grensásvegi 11. Þar sýnir Guð-
mundur Björgvinsson 42 penna- og pastelteikningar, sem allar eru til
sölu. Sýningin hófst s.l. laugardag og stendur fram til 25. janúar, og er
hún opin ki. 14-22 daglega. Guðmundur er 21 árs gamall og stundar nú
nám f Sálarfræði og listum við háskóla i Bandarlkjunum. Hér fylgir
meö mynd af einu verkanna á sýningunni, nefnist það Sjónvarpssýkin.
AHar myndirnar eru til sölu. (TlmamyndGE)
Jörð óskast
Ung hjón, vön búskap, óska eftir góðri jörð
til kaups eða leigu, með bústofni og vél-
um, nú þegar eða sem allra fyrst.
Skipti á ibúð i Hafnarfirði koma til greina.
Upplýsingar i sima 1-31-50 kl. 9-5 og 41-600
á kvöldin.
R5i\m]
AFL
FRAM-
FARA
MANNHEIM
ORÐSTÍR DEYR ALDREGI
Hinn 25. nóvember 1975 fórst mótorbáturinn Hauka-
ver SU-50 i hafi. Mannbjörg varð.
Við eftirlit yfir viðskipti bátsins við okkur kom i
ljós, að siðustu 16 mánuði hérvistarveru hans höfðu
engir varahlutir verið teknir út i 17 ára gamla aðal-
vél hans.
Þetta er ekki aðeins stórkostlegur vitnisburður um
aðalvél bátsins. Maðurinn, sem gætti hennar og
kelaði við hana til hinzta dags var starfi sinu
vaxinn.
Það hefur úrslitaáhrií á gengi allra hluta að farið sé
vel með þá.
Þetta gildir jafnt fyrir menn sem málleysingja, hús
og hafnir, vegi og veiðarfæri, konur og krónur,
vélar og vasahnifa.
Engin vél er betri en maðurinn sem gætir hennar.
1975 -í- 1925 = 50 ár
SöyirÐmiiguir St ©@ reykjavik, iceland
/ESTURGSOTU I6-SlMAR 14680 - 21480 - POB 605 —TELEX, 2057 STURIA IS