Tíminn - 17.02.1976, Blaðsíða 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 17. febrúar 1976
Upprennandi kvikmyndastjarna
Það kann að hafa skipt sköpum Slavicu Jovancic, að hún eyddi
fyrir júgóslavnesku fyrirsætuna stundum kvöldinu við spilahjól-
in i Cromwells Mint spila-
klúbbnum i Kensington. Það var
svo sem allt i hófi hjá henni.
Annar áhugamaður i spilavit-
inu, Telly Savalas, kynntist
henni þar og bauð henni hlut-
verk i næstu kvikmynd sinni,
Grikkinn Nick, en þar leikur
hann fjárhættuspilara með þvi
nafni. Savalas bauð Slavicu út
einu sinni eða tvisvar, áður en
hann fór burt. Nú hafa ábyrgir
aðilar fullvissað hana um að
hún megi bráðlega búast við
flugmiða til Hollywood, svo
hægt verði að hefja upptöku.
Meðfylgjandi mynd er að sjálf-
sögðu af hinni upprennandi
kvikmyndastjörnu, Slavicu _
Jovancic.
Nýja tízka ^
keisarans
Rudi Grenreich heitir banda-
riskur tizkufrömuður, sem
ávallt sýnist vera nokkuð á und-
an sinni samtið. Djarfar hug-
myndir hans um hvernig fólk á
að punta sig hafa lengi vakið at-
hygli og hafa sumir jafnvel
klætt sig að hans fyrirsögn.
Rudi er einkar laginn við að
finna upp eitthvað fyrir fólk að
hengja utan á sig, se.m ekki
þjónar nokkrum tilgangi öðrum
en að vekja eftirtekt. A mynd-
inni eru nýjustu tizkuhugmynd-
ir Rudis og virðist ekki vera
mikið skjól i þvi dinglumdangli,
sem tyllt er á kroppana og gerir
raunar ekki annað en undir-
strika að fólkið er jafn klæða-
laust og keisarinn i ævintýri
H.C. Andersens.
Allt fór í mylluna — penlngarnir og hjónabands
hamingjan
Margir muna eftir Hayley Mills,
sem lék oft i Walt Disney-
myndum og var þegar sem barn
orðin fræg fyrir leik sinn. Nú er
hún orðin 29 ára en eiginmaður
hennar Roy Boulting 62 ára, —
sem sagt 33 ára aldursmunur!
Vinir og vandamenn litu efa-
semdar-augum á samband
þeirra, en allt virtist ganga vel,
par til Hayley fékk þá hugmyncí,
að káupa gamla myliu frá 17.
öld, sem stóð á fallegum stað i
Buckinghamshire nálægt þorpi,
sem heitir Turville og er i nánd
við High Wycombe i Englandi,
og láta innrétta hana sem heim-
ili þeirra. Myllan var rándýr, og
stórfé hefur þegar farið i að
gerá hana ibúðarhæfa, og er þó
ekki hálfgengið frá henni enn til
ibúðar. En hjónaband þeirra
Hayleys og Roys entist ekki
nógu lengi til þess að þau kæmu
til með að flytja inn i nýja heim-
ilið.
„Viljiö þér vinsamlegast taka
gjaidmæiinn úr sambandi.”
DENNI
DÆMALAUSI
Ef veðrið gerir ekki eins og þessi
kona segir strax á rnorgun, þá
hættir hún.