Tíminn - 13.03.1976, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 13. marz 1976
Árangurs-
lausir
sáttafundir
gébé Rvik — Fundir sáttasemj-
ara meO verkakonum á Akranesi
s.l. fimmtudag, uröu árangurs-
lausir og heldur verkfall þeirra
þvi áfram. Nýr fundur hefur ekki
veriö boöaöur. Konurnar eru
ákveönari en nokkru sinni fyrr,
og segja aö ekki þýöi aö gefast
upp þó á móti blási.
Fundirnir á fimmtudaginn uröu
tveir, og stóö sá fyrri frá kl. 10 um
morguninn fram að hádegi, er
annar fundur var boðaður klukk-
an hálf fjögur. Stóð hann rétt
fram yfir miðnætti, en samkomu-
lag náðist ekki.
AAarteinnHunger
á tónleikum
Tónlistarfélagsins
MARTEINN HUNGER FRIÐ-
RIKSSON heldur tónleika á veg-
um Tónlistarfélags Reykjavikur
sunnudaginn 14. marz kl. 5 I Dóm-
kirkjunni.
Tónleikar þessir eru sjöundu
tónleikar félagsins á starfsvetrin-
um 1975-1976.
Marteinn Hunger Friðriksson
stundaði tónlistarnám i Dresden i
2 1/2 ár við kirkjumúsikskólann
þar. Síðan stundaði hann nám frá
1959-’64 i Leipzig og lauk þaðan
prófi i hljómsveitarstjóm og A
prófi i organleik.
Marteinn Hunger fluttist til
Islands árið 1974. Hann var
búsettur i Vestmannaeyjum tjl
ársins 1970, en starfaði þar sem
skólastjóri og organleikari. Siðan
fluttist Marteinn til Reykjavikur
og starfar nú i dag sem tónlistar-
kennari við Tónlistarskólann i
Reykjavik og organleikari við
Háteigskirkju.
Árið 1974 fór Marteinn um land-
ið á vegum List um landið og hélt
viða tónleika. 1973 tók Marteinn
þátt I Norrænni tónlistarkeppni i
Stokkhólmi i organleik fyrir hönd
Islands.
A efnisskrá tónleikanna á
sunnudaginn eru verk eftir Pál
Isólfsson, Felix Mendelssohn,
Johann S. Bach, Þorkel Sigur-
björnsson og Cesar Franck.
Lífríki
fjörunnar
Fyrsta lesörk
Náttúruverndar
komin út
A vegum Landverndar er kom-
inn út bæklingur eftir Agnar
Ingólfsson prófessor, er nefnist
Lffriki fjörunnar. Þar ritar
höfundur itarlega lýsingu á fjör-
unni, lifsski lyrðum hennar og lif-
riki. Fjallar hann um uppruna
fjörulifvera. belfaskiptingu
þeirra, og gefið er yfirlit yfir teg-
undir er lifa i fjörunni. Jafnframt
er lýst lifmagni og lifrænni fram-
leiðslu þörúnga, og lýst áhrifum
mannsins á þetta sérstæða og
heillandi umhverfi.
Rit þetta er fyrsta heftið i nýj-
um útgáfuflokki er nefnist
Lesarkir Landverndar, og er hon-
um ætlað að mæta að hluta þörf-
um skóla fyrir námsefni i
náttúru- og úmhverfisfræðum, en
mikil vöntun hefur verið á sliku
efni á öllum skólastigum. Les-
arkaformið býður upp á sveigjan-
leika i vali námsefnis, og er þess
að vænta að kennarar taki þeirri
hugmynd vel.
Ritgerð Agnars Ingólfssonar
birtist fyrst i Riti Landverndar
um Votlendi (1975) og er 35 bls. að
lengd i litlu broti.
Útgáfu- og fræðslustarf Land-
verndar er nú orðið æði f jölbreytt,
má þar nefna fyrirlestrahald, út-
gáfustærri rita um einstaka þætti
umhverfism ála en þau eru:
Mengun, Gróðurvernd, Landnýt-
ingog Votlendi. Það fimmta er nú
i undirbúningi og fjallar um nýt-
ingu auðlinda okkar til lands og
sjávar í sambandi við fóður og
fæðuöflun þjóðarinnar. Fyrir
skóla hafa einnig verið gefnar út
litskyggnur auk veggspjalda og
bflmerkja.
Ebbe Rode I hlutverki sinu i Góöborgurum og gálgafuglum.
Sören Frandsen, leikmyndateiknari viö Konungiega leikhúsiö i
Kaupmannahöfn (standandi) kom hingaö til lands tii aö undirbúa
sýningu Ebbe Rode, ásamt Harald Jörgensen, og frú, en á hans veg-
um hefur farandsýning meö Ebbe Rode veriö sýnd viö miklar vin-
sældir viöa um Danmörku. Timamynd: Róbert
Danski leikarinn Ebbe Rode:
Einn með tveggja
stunda leiksýningu
gébé Rvik — Hinn vinsæii og
þekkti leikari Dana, Ebbe Rode
er tslendingum að góðu kunnur
frá fyrri heimsóknum sinum
hingað til lands, en um helgina
mun hann sýna leikritiö Góö-
borgara og gálgafugla, eftir
Englendinginn Patrick Garland
á stóra sviðinu i Þjóöleikhúsinu.
Ebbe Rode hefur fariö meö sýn-
ingu þessa viöa um i Danmörku
og hefur hlotiö einróma lof fyrir
þá erfiöu þraut, aö haida einn
uppi heilli leiksýningu i tvær
klukkustundir af miklum krafti.
Leikritið Góðborgarar og
gálgafuglar er byggt á endur-
minningabók enska fræði-
mannsins og furðufuglsins John
Aubrey, en hann var uppi i
London á 17. öld. Hann dó til-
tölulega óþekktur, en þegar
fram liðu stundir tóku menn að
veita verkum hans athygli, og
endurminningar hanseru taldar
með merkari minningabókum
heimsbókmenntanna. Leikritið
lýsir siöasta deginum I lifi
Aubreys, sem býr yfir hafsjó
skemmtisagna af ýmsum
merkismönnum. Milli þess,-sem
Aubrey sinnir smum daglegu
störfum, lætur hann gamminn
geysa, flytur hugrenningar og
hneykslissögur og hefur skoðan-
ir á flestu sem nöfnum tjáir að
nefna. Verkið var fyrst sýnt í
Bretlandi, en þar lék leikarinn
Roy Dotrice i þvi og kom hann
fram yfir 400sinnum á sviöi þar,
og auk þess hefur hann ferðazt
um Bandarikin með sýninguna.
Leiksýningin sem hingað
kemur, var fyrst sýnd sem
farandsýning viða um Dan-
mörku á vegum Harald Jörgen-
sen leikflokksins, en vegna mik-
illa vinsælda var hún fengin til
sýninga I Konunglega leikhús-
inu I Kaupmannahöfn. Ummæli
danskra blaða voru öll á einn
veg og hefur Ebbe Rode verið
hrósað á hvert reipi fyrir frá-
bæra túlkun sina. Leikstjóri
sýningarinnar er Flemming
WeissEndersen, leikmynd gerir
Sören Frandsen, kunnur leik-
myndateiknari við Konunglega
leikhúsið.
Eins og kunnugt er er Ebbe
Rode i hópi þekktustu leikara
Dana. Hann er nú 66 ára gamall
og hefur leikið siðan hann var
um tvitugt.Fyrsta hlutverk sitt i
Konunglega leikhúsinu lék hann
1932, en alls hefur hann leikið
yfir 150 hlutverk á sviði ýmissa
leikhúsa og farið með um 40
hlutverk I kvikmyndum. Hann
hefur tvivegis heimsótt Þjóð-
leikhúsið áður, siðast i fyrravor.
Aðeins verða tvær sýningar i
Þjóðleikhúsinu áGóðborgurum
og gálgafuglum, sú fyrri á
sunnudagskvöldið 14. marz og
sú seinni á mánudagskvöld. Að-
göngum iðasala hefur gengið
mjög vel og búizt er við að upp-
selt verði á báðar sýningarnar.
Áfrýjuðu úrskurðinum
til Hæstaréttar
— sem fjallar um málið eftir helgi
gébé Rvik — Samkvæmt upp-
lýsingum frá Erni Höskuldssyni
rannsóknarlögreglumanni, hafa
allir mennirnir þrir, sem nú sitja i
varðhaldi vegna gruns um aðild
að hvarfi Geirfinns Einarssonar,
kært gæzluvarðhaldsúrskurði
sakadóms frá þvi i fyrradag til
hæstaréttar. Sem kunnugt er var
gæzluvarðhald þeirra allra fram-
lengt. Orn sagði, að tima tæki að
undirbúa gögn varðandi kæru
mannanna þriggja, en að þau
yrðu send hæstarétti eftir helg-
ina.
Þess er þá að minnast, að tveir
af fyrrnefndum mönnum, kærðu
fyrri gæzluvarðhaldsúrskurði til
hæstaréttar, sem staðfesti hins
vegar úrskurð sakadóms þá.
Ný göngudeild opnuð
í Heilsuverndarstöð
— SPOEX gefur Ijóslampa
GONGUDEILD fyrir psoriasis-
og exemsjúklinga hefur nú verið
opnuð að Heilsuverndarstöðinni
við Barónsstig i Reykjavik.
Göngudeildin er opin frá kl. 9 til
12 alla daga vikunnar, nema
laugardaga og sunnudaga. I ráði
er að hún verði opin til kl. 13. Til
þess að fá meðhöndlun á deild-
inni, þurfa sjúklingar i fyr'sta sinn
að framvísa tilvisun frá húðsjúk-
dómalæknií og eftir það að
hringja og panta sér tima milli kl.
9 og 12.
Yfirlæknir á deildinni er
Hannes Þórarinsson, og enn
fremur starfar þar Sæmundur
Kjartansson, sérfræðingur i húð-
sjúkdómum. Heilsuverndarstöð-
in, sem leggur til húsnæðið, hefur
ráðið hjúkrunarkonu til þessara
starfa, Helgu Vigfúsdóttur. Þar
starfar einnig, ef með þarf, Guð-
rún Lilja Þorkelsdóttir hjúkrun-
arkona. Geta sjúklingarnir fengið
þar ljósböð, og þeir sem þess
þurfa, enn fremur böð.
Samskonar deild var opnuð á
húðsjúkdómadeild Landspitalans
i október s.l. og er hún þegar orð-
in fullnýtt og getur ekki sinnt
fleiri að sinni. Samtök psoriasis
og exemsjúklinga (SPOEX) hafa
með þessu náð góðum áfanga i
baráttu sinni fyrir slikri aðstöðu.
I tilefni opnunarinnar gáfu
samtökin lampa með útfjólublá-
um geislum til notkunar á deild-
inni. Lampar semþessi kosta nú
um 160 þúsundkrónur. Fyrir hönd
samtakanna afhenti Baldvin
Sigurðsson, formaður þeirra,
gjöfina. Hannes Þórarinsson,
yfirlæknir á deildinni, veitti henni
viðtöku og þakkaði gjöfina fyrir
hönd Heilsuverndarstöðvarinnar.
Kvað hann lampann vera mikinn
feng fyrir deildina.
A myndinni eru talið frá vinstri: Ásgeir Gunnarsson, fyrrv. formaður
SPOEX, Hörður Ásgeirsson, fyrsti formaður SPOEX, Baldvin Sigurðs-
son, núverandi formaöur SPOEX, Theódór Liliiendahl, I stjórn SPO-
EX, Hannes Þórarinsson yfirlæknir, Helga Vigfúsdóttir, hjúkrunar-
kona deildarinnar og Guðrún Lilja Þorkelsdóttir hjúkrunarkona.
Samkomulag milli BH
og fjármálaráðherra
gébé—Rvik. — Samkomuiag varð
nýlega milii Bandalags háskóla-
manna og fjármálaráðherra f.h.
rikissjóös um endurskoðun aðal-
kjarasamnings og framlengist
hann með nokkrum breytingum,
t.d. hækka föst mánaðarlaun um
6% frá og með 1. marz 1976 og
yfirvinnukaup og vaktaáiag
hækkar i sama hlutfalli frá sama
tima.
I samningi fyrrnefndra aðila
segir, aðsamkvæmt dómsáttinni
taki aðalkjarasamningurinn
eftirfarandi breytingum:
Heildarupphæð mánaðarlauna
miðað við júm-laun 1976 skal
hækka um 6% þann 1. júli 1976.
(Breytinglaunastiga er innifalin i
þessari prósentuhækkun). Þann
1. október 1976 kemur til fram-
kvæmda siðari breyting á launa-
stiga, sem skal koma til fram-
kvæmda i tveimur hlutfallslega
jöfnum áföngum, þ.e. 1. júli og 1.
okt. 1976, og skal launastigi
þannig breyttur hækka um 6% 1.
okt. Oll laun skulu hækka um 5%
þann 1. febrúar 1977 og aftur um
4% þann 1. júli 1977.
Um verölagsuppbót segir svo,
að ef visitala framfærslukostnað-
ar verði hærri en 557 stig 1. júni
1976, skulu laun samkvæmt
dómsáttinni hækka frá 1. júli
1976 i hlutfalli við hækkun visitöl-
unnar umfram þetta mark. Þetta,
svo og önnur atriði um verðlags-
uppbætur i samningum, er að
öðru leyti gert með hliðsjón að
hinum nýju kjarasamningum
ASI.