Tíminn - 13.03.1976, Side 5
Laugardagur 13. marz 1976
TÍMINN
5
iHHH
Ekki ástæðulaus
ótti menntaskóla
kennarans
Stundum kemur þaö fyrir i
okkar ágæta rikisiitvarpi,
þegar verið er að spila gamlar
piötur á grammófóninn, að
nálin festist i djúpri skoru. Þá
heyrist sama iaglinan aftur og
aftur, unz útvarpsmaðurinn,
sem á vakt er, uppgötvar slys-
ið, og setur nýja piötu á. Ekki
er fjarri lagi að likja áráttu-
skrifum menntaskólakennara
Visis við gamia ogsiitna plötu.
Sama tuggan birtist viku eftir
viku, sömu staðhæfingarnar
og saina ruglið. Augljósar
staðreyndir skipta hann engu
máli. Að þessu leyti svipar
honum til áróðursmeistara
þriðja rikisins, sem trúði þvi
að hægt væri að gera lygina að
sannleika með þvi að endur-
taka hana nógu oft. En að lok-
um hlýtur svo að fara, að jafn-
vel hans nánustu fara að efast,
þótt höfundurinn sé búinn að
sannfæra sjálfan sig, eða vilji
a.m.k. ekki viðurkenna mistök
sin. Ótti Vilmundar Gyifason-
ar I Visis-grein i gær, um að
fóik sé hætt að trúa honum, er
ekki ástæðulaus.
Dræmar undirtektir
« þingflokki
Alþýðuflokksins
Alþýðuflokknum hefur verið
blandað i þetta mál, og er það
ekki að ástæðulausu. Hins
vegar er rétt að það komi
fram, að það er fjarri þvf, að
áráttuskrif Vilmundar Gylfa-
sonar fái hljómgrunn meðal
alþýðuflokksmanna almennt.
Eggert G. Þorsteinsson og Jón
Árm. Héðinsson voru ekki til-
búnir til samvinnu við Gyifa.
Þvert á móti hafa margir
þeirra megnustu skömm á
iðju hans, sem vonlegt er. Er
þar bæði átt við flokksmcnn i
æðstu trúnaðarstöðum og al-
menna flokksmenn. Hér er
fremur um ákveðna kliku inn-
an flokksins að ræða. Kemur
það m.a. fram i þvi, að krafa
Vilmundar og Sighvats Björg-
vinssonar um rannsóknar-
nefndá vegum Alþingis hefur
engar undirtektir hlotið i þing-
flokki Álþýðuflokksins. Gylfi
Þ. Gislason tók málið upp i
þingflokknum fyrir nokkrum
dögum til að kanna fy Igi við þá
hugmynd, að þingmenn Al-
þýðuflokksinsstæðu saman að
tillögu um rannsóknarnefnd.
Tveir af þiiigmönnum flokks-
ins höfnuðu slikri tillögu um-
Gylfi getur hins vegar reitt sig á
stuðning hins grandvara Ellerts
B. Schram.
svifalaust, þeir Eggert G.
Þorsteinsson og Jón Armann
Héðinsson, og sögðust ekki
myndu standa aö sllku. Og
meira að segja formaður
flokksins, Benedikt Gröndal,
sem þó hefúr verið vigreifur i
þessu máli, taldi ekki rétt að
taka máiið upp að svo stöddu.
Gylfi getur þó altjénd hugg-
að sig við, að hann á öruggan
stuðning Ellerts B. Schram
alþm. og formanns Knatt-
spyrnusambands islands, sem
er hinn grandvarasti maður á
öllum sviðum, eins og kunnugt
cr.
Svona er hægt að
leika á kerfið!
Það er auðvitað ástæðulaust
að gera sér reilu út af bilaðri
grammófónsplötu, en ekki
verður hjá þvi komizt, vegna
þess hversu menntaskóla-
kennaranum verður tiðrætt
um heiðarleika, aö það komi
fram, að hann hefur aldrei
verið vændur um skattsvik i
Timanum. Af einhverjum
ástæðum hefur hann sjálfur
veriö að tönnlast á skattsvik-
um.
Þaðersvotilmarks um það,
hversu mikill heiðursmaöur
Vilmundur Gylfason er, að
hann klagaði undirritaðan fyr-
ir siðareglunefnd Blaöa-
mannafélags islands vitandi
það, að sá, sem þessar linur
skrifar, niá ekki, samkvæmt
reglum siðanefndar, kæra
hann fyrir sóðaiegt orðbragð
fyrir sömu nefnd, þarsem Vil-
mundur er ekki meðlimur I
Blaðamannafélagi islands.
Þetta kallar maður nú að
kunna að ieika á kerfið.
Kannski að einhverjir geti
lært af vilmundi?
— a.þ.
Akurevri
SUNNUKVOLD
i Sjálfstæðishúsinu annað kvöld (sunnudag) 14.
marz.
SKEAAAATIATRIÐI:
-ferðabingó
Þrjár glæsilegar Sunnu-ferðir til Mallorca,
Costa del Soi og Costa Brava.
Allt vinningar á einu kvöldi.
Hin frábæra hljómsveit Ingimars Eydals leik-
ur. — Einnig verður alþjóðleg
fegurðarsamkeppni
TÍZKUSÝNING - KARON
samtök sýningarfólks sýna tizkuna 1976.
Stjórnandi Heiðar Jónsson.
Ný spónarkvikmynd
frá liðnu sumri. — Missið ekki af þessari glæsi-
legu skemmtun og ferðabingói.
Pantið borð timanlega i sima 2-29-70.
Verið velkomin
■ SÖLSKINSSKAPI MED SUNNW
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
AAónudagsmynd eftir Fassbinder:
Einmana sálir í
milljónahafinu
ÞÝZK kvikmyndagerð virðist
vera að ná sér á strik eftir heims-
styrjöldina og þykir mörgum timi
til kominn.
Meðal þeirra leikstjóra i Vest-
ur-Þýzkalandi, er einna mest
kveður að, er Rainer Werner
Fassbinder, sem stendur á þri-
tugu og vekur æ meiri athygli á
sér með myndum sinum. Hann
stundaði fyrst leiklistarnám i
Munchenog var varla útskrifaður
i þvi efni, þegar hann stofnaði
eigin leikflokk, sem hann nefndi
„Antiteater” og átti að taka aðra
stefnu en þá tiðkaðist i þýzkum
leikhúsum. En svo sneri hann sér
að kvikmyndagerð, og kom fyrsta
myndin frá hans hendi árið 1967,
þegar hann var aðeins 21 árs,
„Liebe ist kalter als der Tpd” —
Ast er kaldari en dauðinn. Siðan
hefurhann stjórnað milli 20 og 30
myndum fyrir kvikmyndahús og
sjónvarp og oftast átt mikinn þátt
i handritum þeirra.
Mynd sú, er Háskólabiói sýnir
næstu mánudaga — óttinn tor-
timir sálinni — er ádeila á Vest-
ur-Þýzkaland nútimans. Efnið er
i stuttu máli á þá leið að tvær ein-
mana sálir, þvottakonan Emmi
og verkamaðurinn Ali, sem er frá
Noðrur-Afriku — kynnast i krá
fyrir erlenda verkamenn. Eykst
kunningsskapur þeirra smám
saman og þau ákveða loks að
gifta sig. Þá sýður upp úr hjá fjöl-
skyldu Emmiar — og fleiri — svo
að hinar einmana sáli verða að
sumu leyti enn meira einmana,
iþegar þær hafa sameinazt i
hjónabandi. Þetta er þeim mikil
eldraun, en þó fer smám saman
að rofa til og myndin sýnir, að
Góðarlíkurá samkomulagi
MÓ—Reykjavik — Það eru góðar
likur á að samkomulag takist
milli islendinga og Færeyinga um
veiðiheimildir fyrir Færeyinga
innan 200 mflna fiskveiðilögsög-
unnar við ísland, — sagði Pétur
Thorsteinsson ráðuneytisstjóri i
utanrikisráðuneytinu i viðtali við
blaðamann Timans i gær.
Sendinefnd Færeyínga kom til
Islands i gær og ræddi við is-
lenzku viðræðune&tdina, en liana
skipuðu: Einar Agústsson utan-
rikisráðherra, Pétur Thorsteins-
son ráðuneytisstjóri, Sverrir
Haukur Gunnlaugsson deildar-
stjóri og Hjálmar W. Hannesson
fulltrúi, Jón Arnalds ráðuneytis-
stjóri, Einar Ingvarsson að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra og Jón B. Jónsson fulltrúi.
í gær var rætt um hugsanlegan
samning, en siðan var viðræðum
frestað fram yfir helgi. Færeyska
sendinefndin fer utan i dag en eft-
ir helgina verður málið kynnt i
utanrikismálanefnd Alþingis. Að
sögn Péturs Thorsteinssonar eru
góðar likur á samkomulagi og
yrði þá um minna aflamagn til
Færeyinga en i gildandi sam-
komulagi.
höfundur er ekki vonlaus um, að
fulltrúar svo ólikra „heima” geti
fundiðnokkra hamingju, ef annað
fólk vill ekki ráða yfir þeim.
Fassbinder fékk verðlaun fyrir
þessa mynd i Cannes 1972 — kvik-
myndagagnrýnendur kjöru hana
beztu mynd hátiðarinnar
ð Arkltektar
Þá telur félagið að þær fregnir,
sem það hefur haft af fram-
komu fyrirtækisins við hluta af
þeim fagmönnum, sem þar hafa
starfað, séu ekki traustvekj-
andi, og þvi óverjandi að fela
þvi svo ábyrgðarmikla umsýslu
sem hönnun 700-800 milljón
króna skóla er.
Með tilvisun til framan-
greinds varar A1 borgaryfir-
völd eindregið við þvi að standa
á þennan hátt að hönnunarmál-
um. Slikt væri að mati félagsins
i andstöðu við hagsmuni borg-
aranna, en óvirðing við þær
starfsstéttir, sem hafa þá
menntun og reynslu er umrædd
störf krefjast.
Timinn hafði samband við
framkvæmdastjóra ítaks hf.
Agúst Jónsson, véltæknifræðing
og spurðist fyrir um mál þetta.
— Að svo stöddu viljum við ekki
svara neinuum þetta, nema það
að hluthafaskipti hafa átt sér
stað i fyrirtækinu, sagði Agúst.
— Þeir aðilar sem nú eru i Itak
hf. hafa starfað að byggingar-
hönnun, hver á sinu sviði, i
mörg ár. Þá sagði Agúst, að að
frumhönnun Seljaskóla hefðu
aðallega staðið fjórir menn,
arkitekt og verkfræðingar. —
Frumhönnunin var framkvæmd
af islenzkum arkitekt i samráði
við sérfræðinga i hönnun skóla-
bygginga erlendis, sagði hann.
Hins vegar hefur Timinn
fengið þær upplýsingar, að
hvorki arkitektar né verk-
fræðingar hafi verið á firma-
skrá fyrirtækisins sem hluthaf-
ar þann 11. marz (s.l. fimmtu-
dag). Arkitektafélagið mun
senda itarlega greinargerð frá
sér fljótlega um mál þetta.