Tíminn - 13.03.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 13.03.1976, Blaðsíða 8
8 TÍMINN Laugardagur 13. marz 1976 Laugardagur 13. marz 1976 Gamanleikur — höfundur, leikstjóri, Sveinbjörgu Halls'dóttur eftir Trausta Jónsson, en hann er ungur Borgnesingur, sonur hjón- anna Jóns Kr. Guðmundssonar og Oddnýjar Þorkelsdóttur, en bæði hafa þau starfað mikið að leik- listarmálum i Borgarnesi. Þetta er fyrsta leikrit Trausta, en hann hefur áður nokkuð starfað við leiklist i Menntaskólanum á Akureyri. Trausti dvelst nú við veðurfræðinám i Noregi. Leikstjóri er Theódór Þórðar- son, Borgarnesi og er þetta i fyrsta sinn, sem Theódór spreytir sig á leikstjórn, en hann hefur leikið hjá Ungmennafélaginu undanfarin ár og verið formaður Hér er að sjálfsögðu margs að gæta, ekki sizt þar sem_ leikritið er hér frumflutt. Theódór sótti leiklistarnámskeið i Danmörku á árinu 1974. . LeikritiðSveinbjörg Hallsdóttir gerist á Flgeðiskeri, sem er byggðakjarniá'eyju útaf Mýrum. Við sögu koma margbreytilegar persónur i gömjlum stH, nýjum stil og framúrstefnustn. Og gefur kannski bezta hugmynd um fjöl- breytnina að telja upp nöfn nokkurra per^óna leikritsins: Ófeigur Sveinbjarnarson fram- kvæmdastjóri Sameinaða gúmmikompanisins, Henrietta kona hans, fsgerður dóttir þeirra, Jakobina móðursystir Henriettu Jón Jónsson hænsnabóndi, Svein- björg kona hans, Brotsjór Ægis- son rottueitrunartæknifræðingur, Jon Smith söngvari i hljómsveit- inni Skarphéðinn i brennunni, Sveinbjörg Hallsdóttir dansmey. Leikarar eru þessir Ingvi Arna- son, Hjördis Karlsdóttir, Annabella Albertsdóttir, Oddný Sólveig Jónsdóttir, Jenny Lind Egilsdóttir, Grétar Ingimarsson, Guðrún Helga Andrésdóttir, Alfreð Almarsson, Kári Waage, Elin Magnúsdóttir, Böðvar Björgvinsson og Theódór Þórðar- son. Söngvar i leikritinu eru einnig eftir Borgnesinga, lög eftir Gisla Jóhannsson og textar eftir Theó- dór Þórðarson. Leikritið Svein- björg Hallsdóttir er að mestu i gömlum gamanleikjastil en þó með innskotum úr poppheimin- um. Það er fjörugt, skemmtilegt og vel leikið. Um helgina verður leikritið sýnt í Dölum og á Snæfellsnesi. leikendur allt Borgnesíngar JE-Borgarnesi Ungmennafélagið Skallagrimur i Borgarnesi verður 60 ára siðast á þessu ári. Einn af mörgum starfsþáttum félagsins hefur lengst af verið leik- starfsemi, og væri það langur listi að telja öll þau leikrit, sem fé- lagið hefur æft og komið á svið frá upphafi. Leikrit vetrarins var frumsýnt laugardaginn 7. marz hér i sam- komuhúsinu og hefur verið sýnt fjórum sinnum fyrir fullu húsi. Að þessu sinni sýnir Ungmennafé- lagið Skallagrimur gamanleikinn Skagaleikflokkurinn frum- sýnir Gísl í dag GB-Akranesi. Skagaleikflokkur- inn frumsýnir irska sjónlcikinn Gisl eftir Brendan Behan i Bió- höllinui á Akrauesi i kvöld kl. 21. Lcikstjóri er Herdis Þorvalds- dóttir, og er þetta fyrsta leikhús- verk, sem hún setur á svið fyrir leikfclag. Um þrjátiu manns hafa unnið að þessu verkefni frá miðium janúar, en leikendur eru sextán. Með aðalhlutverk fara Halldór Karlsson, sem leikur Pat, upp- gjafa hermann og Þórey Jóns- dóttir, sem leikur Meg, forstöðu- konu bjórkrár, Hönnuður að sviði er Stefán Magnússon. Tónlistina hefur Úlrik Ólason æft, en mörg irsk lög og baráttusöngvar koma fyrir i verkinu. Fyrirkomulag sviðsljösa annast Kristinn Danielsson, ljósameistari Þjóð- leikhússins. Sýningin tekur liðug- ar tvær klukkustundir. Þetta er annað verkefni Skaga- leikflokksins á þessu leikári. Hið fyrra var finnski gamanleikuTinn Fórnarlambið, ersýndur var tólf sinnum við góða aðsókn á Akra- nesi og viðar á Vesturlandi. Önnur sýning á Gisl verður á sunnudagskvöld. Mynd þessi var tekin á æfinguhjá Skagaleikflokknum og sýnir atriðiúr irska sjónlciknum Gisl. Leikfélag Austur-Eyfellinga í leikför með Pétur og Rúnu Leikfélag Austur-Eyfellinga sýnir um þessar mundir verð- launalcikrit Birgis Sigurðssonar, Pétur og Rúnu. Frumsýning var i fclagshcimili Austur-Eyfcllinga Skarðshlið þann 26. febrúar, og hcfur leikritið einnig verið sýnt i Gunnarshólma og á Heliu við mjög góðar undirtektir. Rúna og Pétur eru leikin af Guðbjörgu Þórisdóttur og Árna Blandon Einarssyni, sem jafn- framt er leikstjóri og hefur gert leikmynd. Onnur hlutveik eru leikin af Margréti Tryggvadóttur, Ingimundi Vilhjálmssyni, Sésselju óskarsdóttur, óskari Ketilssyni, Ólafi Eggerlssyni og Garðari B. Sigvaldasyni. Leikfélag Austur-Eyfellinga var stofnað 1970 og hefur sýnt verk eins og „Orrustan á Háloga- landi” eftir Schwarts o.fl., „Leynimelur 13” eftir Þridrang, þætti úr „Manni og konu” eftir Jón Thoroddsen og „Happið” eft- ir Pál J. Árdal. Núverandi stjórn félagsins skipa Margrét Tryggvádóttir formaður, Ingi- mundur Vilhjálmsson ritari og Gunnar Sigurðsson gjaldkeri. Leikritíð Pétur og Rúna fékk fyrstu verðlaun, ásamt „Kerta- logi” eftir Jökul Jakobsson, i leik- ritasamkeppni, sem efnt var til vegna 75 ára afmælis Leikfélags Reykjavikur. Höfundurinn Birgir Sigurðsson er Reykvikingur, kennari að mennt, og hefur gefið út ljóðabókina Réttu mér fána (1968). Nýjasta leikrit hans heitir Selurinn hefur mannsaugu, og hefur það, einsog Pétur og Rúna, verið sýnt hjá Leikfélagi Reykja- vikur við góðan orðstir, i leik- stjórn Eyvindar Erlendssonar. Leikfélag Austur-Eyfellinga mun sýna leikritið Pétur og Rúnu i Kópavogsbiói laugardaginn 20. marz kl. 21. Svipmynd úr sviðsetningu Leikiélags Austur-Eyfellinga. „GÓÐIR EIGINMENN SOFA HEIAAA" — sýnt í Leirdrsveit Leikflokkurinn sunnan Skarðshciðar hefur að undan- förnu sýnt gamanleikinn „Góðir eiginmenn sofa heima”, eftir Walter Ellis i félagsheimilinu Iieiðarborg i Leirársveit. Leikstjóri er Brynja Kjerúlf. Undirtektir áhorfenda hafa verið mjög góðar og aðsókn góð. Leikflokkurinn sunnan Skarðsheiðar var stofnaður sem sjálfstætt leikfélag s.I. haust, en starfaði áður á veg- um ungmenna- og kvenfélag- anna i hreppunum sunnan Skarðsheiðar. Formaður er Jón Sigurðsson, Stóra-Lamb- haga. „Góðir eiginmenn sofa heima” er þriðja verkefni leikflokksins, en sýningum á þessum vinsæla gamanleik fer nú senn að ljúka. A myndinni eru leikendur ásamt leikstjóra. ...JACK FÖR/THANK YOU/GRACIAS POR 1975 STOCKHOLM TOKYO OSAKA KOBE HONGKONG BANGKOK JAKARTA UDAIPUR DEHLI BOMBAY AHMEDABAD WROCLAW GUTERSLOH BONN MANIZALES BOGOTA LIMA CARACAS MEXICO CITY Jólakort frá Meschke og brúðu leikhúsi hans, á því eru nöfn á stöðum, þar sem flokkurinn hefur haft leiksýningar. TÍMINN 9 Það gengur mikið á á fjölunum i Lindarbæ þessa dagana þar sem nemendur Leiklistaskóla íslands hafa verið að æfa fyrsta verkefni skólans. Timamynd: Róbert Leiklistarskóli íslands: Fyrsta verkefni nemenda frumsýnt á sunnudaginn gébé Rvik — A sunnudaginn frumsýnir Nemendaleikhús Leik- listarskóla islands, fyrsta verk- efni skólans, sem er Hjá Mjólkur- skógi, eftir hið þekkta skáld Dyl- an Thomas frá Wales, i þýðingu Kristins Björnssonar. i sýning- unni taka þátt 11 nemendur skól- ans úr fjórða bekk, sem útskrifast i vor. Leikstjóri er Stefán Baldursson. Leiktjöld og búninga gerðu nemendur sjálfir undir stjórn Steinþórs Sigurðssonar, Gunnar R. Sveinsson útsetti lögin og samdi auk þess tvö lög. i sam- bandi við sýninguna hélt Guð- mundur Pálsson námskeið fyrir nemendur i förðun. Dylan Thomas er óþarfi að kynna,enleikritþetta, sem er eitt frægasta verk hans, varð einnig það siðasta sem hann gerði áður en hann lézt, en tiu ár tók það skáldið að semja það. Efnið er i stuttu máli litlar svipmyndir úr sjávarþorpi i Wales og fjallar m.a. um lognmók lifsins. Sögu- maður tengir svipmyndirnar saman, en alls eru hlutverk i leiknum um 60-70 talsins og þvi eru nemendur Leiklistarskólans með 5-6 hlutverk á hendi hver. Eftirtaldir nemendur koma fram í leikritinu, en þau verða einnig hin fyrstu sem hinn ný- stofnaði Leiklistarskóli tslands útskrifar i vor: Anna Einarsdótt- ir, Asa Ragnarsdóttir, Elisabet Þórisdóttir, Evert Ingólfsson, Nanna Ingibjörg Jónsdóttir, ólaf- ur örn Thoroddsen, Sigurður Sigurjónsson, Sólveig Halldórs- dóttir, Svanhildur Jóhannesdótt- ir, Viðar Eggertsson og Þórunn Pálsdóttir. Eins og áður segir verður frum- sýningin á leikriti Dylan Thomas Hjá Mjólkurskógi þann 14. marz klukkan 21 i Lindarbæ, en þar eru aðgöngumiðar seldir daglega kl. 17-19. Ónnur sýning verður á mánudag, 15. marz. Atriði úr leikritinu Hjá Mjólkurskógi. Sögumaður Svanhildur Jó hannesdóttir er lengst til hægri á myndinni. AAeschke kemur með brúðuleikhús SJ-Reykjavik. Brúðuleik- húsmaðurinn frægi Mikael Meschke og flokkur hans koma hingað á listahátið frá Sviþjóð og sýna Litla prinsinn eftir Saint Exupery i.Þjóðleik- húskjallaranum 12., 13. og 14. júni. tslenzkir leikarar tala en sænskir stjórna brúðunum. 1 ársbyrjun færði Meschke og hans fólk úl kviarnar, og var þá til Sænska brúðleikhús- stofnunin. Til hennar teljast brúðuleikhús i Stokkhólmi, alþjóðlegt brúðuleikhússafn á öðrum stað i borginni. tilraunasvið fyrir fullorðna, fræðslustarfsemi fyrir brúðu- leikara og skrifstofu, sem annast skipti á alþjóðlegum gestaleikjum brúðuleikhús- fólks, en flokkur Meschkes ferðastmikiðauk þess sem er- lent brúðuleikhúsfólk er vel- komnir gestir i Stokkhólmi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.